Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001
I>V
Tilvera
Alaska til Argentínu
Sigursteinn Baldursson ætlar aö hjóia frá Alaska til Argentínu á næstu tveimur árum. Jafnframt ætlar hann aö klífa
hæstu fjöil í hverju landi fyrir sig en leiö hans liggur um 15 lönd.
Tveggja ára ferðalag:
Hjólað frá Alaska
til Argentínu
Hvað er það sem fær þrítugan
sjálfstætt starfandi ljósmyndara og
netfræðing til þess að leggja upp i
tveggja ára hjólreiðaferð yfír hálfan
hnöttinn?
„Þetta er gamall draumur sem
kviknaði í grunnskóla, að hjóla
lengstu mögulegu leið á samfelldu
landi á jöröinni," sagði Sigursteinn
Baldursson í samtali við DV. Sigur-
steinn leggur af stað frá Alaska um
miðjan maí og hjólar 33 þúsund
kílómetra suður eftir Norður- og
Suður-Ameriku til Argentínu. Hann
áætlar að verða kominn til Argent-
ínu í april 2003. Jafnframt ætlar Sig-
ursteinn sér að klífa 14 hæstu fjöll
Ameríku, þar með talið Mt. McK-
inley í Alaska, sem er 6013 metrar á
hæð, og Aconcagua í Suður-Amer-
iku sem er 6962 metrar á hæð.
„Ástæðan fyrir því að ég fer á
hjóli en ekki bil er sú að maður upp-
lifir náttúruna miklu betur,“ sagði
Sigursteinn. „Maður kemst í betri
snertingu við dýralíf, mannlíf og
náttúruna á þennan hátt.“
Landafræðikennsla
Sigursteinn sagðist ætla að vera
mikið til sjálfum sér nægur. Rafall,
sem festur er við hjólið, mun gefa
nægt rafmagn fyrir tölvuna hans,
gervihnattasímann og annan búnað
hans sem gengur fyrir rafmagni.
Mat kaupir hann á leiðinni og
næstu sex mánuðina gistir hann í
tjaldi en i Suður-Ameríku mun
hann nýta sér þá gistingu sem hon-
um býðst til þess að forðast skordýr
og glæpi.
Á meðan á ferðinni stendur mun
Sigursteinn verða í sambandi við
grunnskólana og verið er að útbúa
landafræðikennslubækur fyrir 9.
bekk sem byggjast á ferð Sigur-
steins. Auk þess að halda fyrirlestra
um ferð sína á leiðinni mun Sigur-
steinn koma upp vinasambandi á
milli grunnskóla á íslandi og ann-
arra skóla í þeim löndum sem hann
á leið um.
Jafnframt mun Sigursteinn verða
með ljósmyndasýningar í Kringl-
unni á nokkurra mánaða fresti, en
hann segist ætla aö taka 60.000 til
70.000 ljósmyndir á leiðinni.
-SMK
Kidman trúir
enn á ástina
Kvikmyndastjarnan Nicole Kid-
man trúir enn á ástina, þrátt fyrir
skilnaðinn við eiginmanninn, stór-
leikarann Tom Cruise.
„Og þótt hlutirnir fari ekki alltaf
eins og maður óskar sér, er betra að
hafa elskað og tapað," segir Nicole í
samtali við norska blaðið VG.
Hún talar um nýjustu myndina
sína, Moulin Rouge, sem verður
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es á næstunni og boðskap hennar
um að maður geti alltaf fundið ást-
ina, hvað sem á dynur i lífinu.
„Ég trúi enn á hana. Ég er róman-
tísk og ég trúi á forlögin og því að
við eigum okkur öll sálufélaga ein-
hvers staðar," segir stórstjaman.
Kidman grátbað Tom Cruise um
að fara ekki frá henni fyrr á þessu
ári. Hún gekk þá með barn þeirra.
Hann hlustaði hins vegar ekki á
hana og svo fór að leikkonan missti
fóstrið. Upplýsingar þessar koma
fram í gögnum sem lögð voru fram
í skilnaðarmáli þeirra fyrir dóm-
stóli í Kaliforníu á dögunum.
Kidman og Cruise
Leikkonan er enn aö ná sér eftir
skilnaöinn viö eiginmanninn.
Harrison á bata-
vegi eftir skurð
Bítillinn fyrrverandi George
Harrison er á batavegi eftir skurð-
aðgerð þar sem fjarlægt var ber á
öðru lunga hans. Aðgerðin var gerð
á hinu virta Mayo-sjúkrahúsi i
Bandaríkjunum en þaðan fór bítili-
inn fyrrverandi rakleiðis til
Toscana-héraðs á Italíu þar sem
hann lætur fara vel um sig.
„Hann er í flnu formi, hefur ekki
verið svona afslappaður og rólegur
síðan hann varð fyrir líkams-
árásinni í desember 1999,“ segir í yf-
irlýsingu sem lögmenn Harrisons
sendu frá sér.
45 .
_ r
Viitu gpæða frían mánuð í sumar?
Vikuna 7.-12. maí hefjastíworid
Class hin vinsælu aðhaldsnámskeið Gauja litla. ifl
Fjögurra mánaÖa námskeið á verði þriggja
®Reynsla okkar
tryggir þér
frábæran árangur
Innifalið í námskeiðinu er eftirfarandi: Yogaspuni 6
daga í viku - vigtun í hverri viku - ummálsmæling og
fitumæling í upphafi og enda námskeiðs - ítarleg kennslu
gögn - matardagbækur - leiðbeiningar um fæðuval
mataruppskriftir - æfingabolur - vatnsbrúsi - fyrirlestrar-
dagur - kennsla i tækjasal - viðtal við næringaráðgjafa -
ótakmarkaður aðgangur í World Class.
Það er aldrei of seint að byrja!
Sknaning í síma 561 8585 eða 561 8586
TRIM /\FORM
)
( Sími
[S53 3818
Viltu laga línurnar Fyrii
Brúðkaupið
útskriftina
utanlandsferðina
eða viltu bara líta vel út?
Faglært starFsFólk.
Langur opnunartími.
Kynntu þér tilboðin.
Sjáumst hress.
(Frír pruFutími)
1 | „
Hi
i ij
Fyrir eFtir 6 vikur-60 tíma
á okkur nærðu árangril!
">V-
TRIM /\FORM
Bercjhdar
Grensásvegi 50, sími 553 3818.
Smáauglýsingar
vantar þig félagsskap?
550 5000