Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Page 5
5
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
DV
Fréttir
Uppbygging Borgarholtshverfis kaos og klúður, segir borgarfulltrúi D-lista:
Aðeins yngri nemend-
ur fá inni í skóla
Borgaryfirvöld eru gagnrýnd fyr-
ir klúður og kaos í kringum upp-
byggingu Borgarholtshverfis. Á
sama tíma og bullandi skortur er á
húsnæði seljist íbúöir í hverfmu
illa. „Það er athyglisvert hvað allt
er kaoskennt þarna í uppbygging-
unni, Reykjavíkurlistinn hefur þó
undirbúið hverfið í tvö kjörtímabil.
Miðað við þeirra eiginn málflutning
myndi maður ætla að allt væri í
fullkomnu lagi í þessu eina hverfi
sem þeir hafa skipulagt. Nú stefnir í
að skóla vanti fyrir hluta barnanna,
auk þess sem uppbyggingin er ótrú-
lega hæg. Helstu rök R-listans fyrir
lóðaskortsstefnnunni hafa verið þau
að sérstaklega sé vandað til verka,“
sagði Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi og fulltrúi í fræðslu-
ráði borgarinnar.
Fræðslustjórinn í höfuðborginni
er ósammála borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. „Þetta er i fyrsta
sinn sem Reykjavíkurborg er búin
að stofna skóla áður en fólk flytur
inn í hverfi. Mér fmnst það góð
þjónusta og til fyrirmyndar. Enn
höfum við fáa innritaða nemendur
en það er staðfóst ákvörðun okkar
að hafa þarna skóla í vetur. Mér
skilst að sala á íbúðum hafi gengið
hægar en menn héldu og því dregst
uppbygging nokkuð," sagði Gerður
Óskarsdóttir, fræðslustjóri í Reykja-
vík, í gær. Nýr Ingunnarskóli í
Grafarholti, nýjasta byggingarsvæði
borgarinnar, tekur til starfa í haust
í nokkrum lausum kennslustofum
en skólabygging hefst síðar. Verið
er að undirbúa teikningar.
Aðeins 27 nemendur hafa enn
Þingey j arsýslur:
Sameiningar-
kosning
á döfínni
íbúar i sjö sveit-
arfélögum í Þing-
eyjarsýslum munu
ganga að kjörborð-
inu 3. nóvember og
greiða atkvæði um
það hvort sameina
eigi sveitarfélög
þeirra í eitt. Sveit-
arfélögin sem um
ræðir eru Skútu-
staðahreppur,
Reykjahreppur,
Aðaldælahreppur,
Tjörneshreppur, Kelduneshreppur,
Öxarfjarðarhreppur og Húsavík.
Fari svo að sameiningin verði
samþykkt í öllum sveitarfélögunum
sjö verður ný sveitarstjórn kjörin í
kosningum í mai á næsta ári. Skipt-
ar skoðanir eru varðandi það hvort
sameiningin verður samþykkt.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á
Húsavík og formaður nefndar sem
vinnur að undirbúningi sameining-
arinnar, hefur sagt að hann trúi
ekki öðru en sameiningin nái fram
að ganga enda séu hagsmunir ibú-
anna best tryggðir á þann hátt.
Sveitarstjómarmaður í öðru sveit-
arfélagi, sem DV ræddi við, sagðist
vantrúaður á sameiningu, ekki síst
með tilliti til þess að fjárhagsstaða
sveitarfélaganna væri mjög mis-
munandi. Hún væri t.d. mjög slæm
á Húsavík og í Aðaldælahreppi. -gk
„Stútur" velti
Ökumaður bifreiðar sem valt á
Árskógssandsvegi í Eyjafirði í fyrri-
nótt er grunaður um að hafa verið
undir áhrifum áfengis við aksturinn
en hann var einn á ferð.
Ökumaðurinn var fluttur á slysa-
deild á Akureyri með minni háttar
áverka en bill hans var óökufær eft-
ir veltuna og er sennilega ónýtur.
-gk
Reinhard
Reynisson,
bæjarstjóri á
Húsavík
verið innritaðir í Ingunnarskóla.
Börnum frá 6 ára til 13 ára verður
kennt í lausu stofunum í vetur en
eldri börnin, í 8. til 10. bekk, verða
að leita til skóla í öörum borgar-
hverfum og skólaakstur verður
kannaður.
„Mér þykir ekki ólíklegt að með
haustinu verið komnir 40 nemendur
og fjölgun verði í vetur,“ sagði Guð-
laug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Ing-
unnarskóla. Hún segir að áætlað
hafi verið að vera með 52 nemend-
ur. Yfirleitt hafi nemendur í nýjum
skólum reynst fleiri en áætlun hef-
ur gert ráð fyrir þar til nú. Fimm
kennarar hafa verið ráðnir að skól-
anum og nokkrir starfsmenn.
„Við samkennum tveimur ár-
göngum. Það verður kannski ögn
færra en í litlum sveitaskólum,"
sagði Guðlaug. „Þegar nýir skólar
hafa tekið til starfa hefur venjan
verið að þeir ná ekki nema upp í 4.
bekk en ástæðan fyrir því að við fór-
um upp í 7. bekk er sú að enginn
annar skóli er í hverfinu sem er
slæmt,“ sagði Guðlaug. -JBP
DV-MYND HARI
Skóli Ingunnar
Ingunnarskóli í Grafarholti er nokkrar færanlegar kennslustofur í byrjun. Skól-
inn heitir eftir Ingunni sem var fræöikona á Hóium á 12. öld og kenndi latínu
og málfræöi, auk þess sem hún þótti afbragös handmenntakona. Næsti
skóli hverfisins mun eiga aö heita Sæmundarskóli.
I
Suzuki Grcmd Vituru
er öflugur og vel búinn
grindnrbyggðurjeppi
með hátt oa láat drif
9 9
tengjanlegt um millikassa.
i 6 á
n RMRRIí Í.WANI)
1 VIT/IWA 1“
FULLl=í
frameIMI
Byggður á grind
Beröu saman getu, aksturseiginleika, búnaö, þægindi
og rekstrarhagkvæmni jepplinga við þaö sem þú færð
í Suzuki Grand Vitara.
KOMDU í REYNSLUAKSTUH
Hátt og lágt drif
^SUZUKI
->'//*■
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, slmi 55S 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sfmí 431 28 00.
Borgarnes: Bllasala Vesturlands, simi 437 15 77. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95. Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 22 30.
Sauðárkrókur: Bila- og búvélasalan, Borgarröst 5, slmi 453 66 70. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bilasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, sfmi 471 30 05.