Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Side 28
3
Opel Zafira
Bílheimar
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
Keikó líklega í
Eyjum I vetur
„Við höfum alltaf gert okkur
grein fyrir að það getur brugðið til
beggja vona meö verkefnið. Menn
verða því bara að taka því ef þetta
tekst ekki,“ sagði Hallur Hallsson,
talsmaður Ocean Future-samtak-
anna í morgun, um það hvort há-
hyrningurinn Keikó muni aðlagast
öðrum hvölum. Senn liður að því að
háhyrningavaða sem heldur sig
gjarnan við Vestmannaeyjar á þess-
um árstíma, það er fram í þriðju
viku ágúst, muni hverfa annað.
„Þetta hefur gengið mjög vel.
Keikó hefur verið langdvölum
þama úti og átt stöðug samskipti
við aðra hvali. Þetta er fráleitt ein-
falt en við gerum allt sem í okkar
valdi stendur," segir Hallur.
En hvað verður um Keikó ef hann
aölagast ekki öðrum háhymingum?
„Ég reikna meö að við verðum
áfram í Eyjum í vetur.“ -Ótt
Varagiröing
Hér eru bæjarstarfsmenn að útbúa
varaftotgiröingu.
Tugur danskra kafara:
Sprengjuleit
í El Grillo
Um það bil tugur kafara úr danska
sjóhernum hóf köfun við flak E1
Grillo á Seyðisfirði í gær. Þeir munu
meðal annars fjarlægja úr skipinu
virkar sprengjur og tundurdufl sem
talið er að geti verið í því og utan við
> það. Bæjarstarfsmenn á Seyðisfirði
era á sama tíma að ganga frá flotgirð-
ingu fyrir olíu sem á að vera vara-
girðing fyrir Norðmennina sem
munu reyna að ná olíunni úr skipinu
á næstunni. Varðskipið Týr er með í
aðgerðum.
í gær köfuðu Danimir og festu Tý
yfir flakinu með akkerum að aftan og
framan. Um borð í Tý er allur búnað-
ur fyrir kafarana. Magnús Stefáns-
son, kafari á Seyðisfirði, sagði í sam-
tali við DV að öll köfun við flakið
væri varasöm og þarna væri ástæða
til að fara sérlega varlega. Hann sagð-
ist telja að ætlunin væri að kafa með
fram skipinu og kanna hvort einhver
hætta er þar á ferðum. -JBP
Sígarettuglóö varö aö eldi dv-mynd ko.
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi viö Vatnsstíg 11 í nótt en tilkynnt var um eld í íbúö þar á 1. hæö. Aö sögn lögreglu virö-
ist sem eldurinn hafi kviknaö í söfa og er taliö líklegast aö sígarettuglóö hafi valdiö. 18 íbúöir í húsinu voru rýmdar
og tveir íbúar fluttir á slysadeild meö reykeitrun. Skemmdir uröu ekki miklar af eldi en þónokkrar reykskemmdir.
Kynnisferðir sf. og Upplýsingamiðstöð ferðamála takast á:
Lögbann á að
læsa dyrunum
- samkvæmt úrskurði sýslumanns - stefnir í dómsmál
Forráðamenn Kynnisferða sf. og
Upplýsingamiðstöðvar ferðamála hafa
aö undanfómu deilt hart um hvort
læsa eigi dyram sem era milli ferða-
skrifstofunnar og miðstöðvarinnar eða
hafa þær opnar. Málsaðilar leigja báðir
húsnæði í Bankastræti 2. Svo háttar til
að viðskiptavinir Kynnisferða ganga í
gegnum húsnæði Upplýsingamiðstöðv-
arinnar og þaðan inn í ferðaskrifstof-
una. Ágreiningurinn um dymar er svo
harður að sýslumaðurinn í Reykjavík
hefur nú, að kröfu Kynnisferða, sett
timabundið lögbann á þann gjöming
Upplýsingamiðstöðvarinnar að læsa
þeim. Stefna hefur síðan verið lögð
fram í málinu og fer það að óbreyttu
fyrir dómstóla, að sögn Jóns Magnús-
sonar hrl., lögmanns Upplýsingamið-
stöðvarinnar.
Það eru Flugleiðir, Ferðaskrifstofa
íslands, Samvinnuferðir-Landsýn, Atl-
antic og Ferðaskrifstofa BSÍ sem eiga
og reka Kynnisferðir. Upplýsingamið-
stöðina reka Ferðamálaráð, Reykjavík-
urborg og Ferðamálasamtök íslands.
Pétur Rafnsson, stjómarmaður Upp-
lýsingamiðstöðvarinnar, sagði að eitt
af höfuðmarkmiðum í rekstri mið-
stöðvarinnar, sem ríkið kæmi aö, væri
Oplö
Lögþann er á aö loka þessum dyrum.
að upplýsingamiðlun hennar væri hlut-
laus. Lögð væri áhersla á að veita eins
fulikomnar upplýsingar og hægt væri
og segja ferðamönnum frá öllum þeim
möguleikum sem fyrir hendi væra.
„Eftir að hafa fengið kvörtun úr at-
vinnugreinirmi var það álit stjómar
Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í
Reykjavík að það væri óeðlilegt að inn-
angengt væri úr upplýsingamiðstöð-
inni inn á söluskrifstofu eins fyrirtæk-
is i ferðaþjónustu," sagði Pétur.
„Stjómin samþykkti á fundi sínum í
sumar að þessum dyrum skyldi lokað
vegna þessa, auk þess sem við þurftum
meira pláss. Opnar dyr og allur um-
gangur um þær tekur aukið pláss og
upplýsingamiðstöðin er að springa
utan af okkur. Viðbrögð Kynnisferða
vora með þeim hætti að krafist var lög-
banns á þá aðgerð okkar að læsa dyr-
unum. Lögbannið- fékkst fram. Þetta
dyramál er því að verða dálítið skraut-
legt. Dymar era enn opnar og enn er
kvartað."
Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri
Kynnisferða Sf„ sagði við DV að í leigu-
samningi fyrirtækisins væri gert ráð
fyrir að rýmið, sem nú er deilt um,
væri sameiginlegt. í samningnum
stæði að Kynnisferðir ættu að hafa að-
gang að dyrum á austurhlið húsnæöis-
ins. Þetta væri viöurkennt af leigusala
sem væri Minjavernd. „Við viljum ekki
sætta okkur við að brotnir séu á okkur
samningar," sagði Pétur. Hann bætti
við að einnig væri hægt aö ganga inn í
húsnæði Kynnisferða um port en sá
inngangur væri einungis ætlaður fyrir
starfsfólk. -JSS
Innrás ísraela í Jenín:
Öfgaöfl á
báða kanta
„Það bendir
flest til þess að
öfgaöflin séu far-
in að ráða þessari
þróun báðum
megin og það
hlýtur að reyna
mjög á innviðina
í ríkisstjórn Shar-
ons,“ sagði Tómas
Ingi Olrich, for-
maður utanríkis-
málanefndar Alþingis, í samtali
við DV í morgun.
Sjötíu ísraelskir skriðdrekar
réðust i gærkvöld inn í palest-
ínsku borgina Jenín á vestur-
bakka Jórdanar og eyðilögðu
meðal annars 2 palestínskar lög-
reglustöðvar. Þremur klukku-
stundum síðar drógu þeir herlið-
ið til baka en staðan er eigi að
síður alvarleg og hafa Palestínu-
menn komið fram með kröfur um
alþjóðlega öryggisgæslu á svæð-
inu.
Tómas Ingi telur til lítils að
senda friðargæslulið fyrr en aðil-
ar málsins, þ.e. ísraelar og Palest-
ínumenn, sýna vilja til sátta, en
lítil teikn hafa verið á lofti um
slíkt undanfarið. Tómas Ingi vildi
ekki tjá sig um líkur þess aö ís-
lendingar hefðu bein afskipti af
deilunni nú og DV náði ekki í ut-
anríkisráðherra, Halldór Ás-
grímsson, áður en blaðið fór i
prentun.
ísraelsher hefur ekki ráðist
jafn langt inn á palestínskt land-
svæði í átta ár og er hugsanlegt
að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna verði kallað saman í dag.
„Málið er mjög eldfimt," sagði
formaður utanríkismálanefndar.
-BÞ
Strik líka í
kláminu
í ljós hefur komið að á vefsíðu
Strik.is hefur verið vísað á aðrar
vefsíður sem innihéldu gróft
klámefni. Þegar hefur verið
brugðist við þessu á viðeigandi
hátt af forsvarsmönnum Striks-
ins.
Eins og fram hefur komið varð
tímaritið Bleikt og blátt uppvíst
að því um helgina að heimasíða
þess var tengd við klámvef sem
innihélt gróft klám, m.a.
barnaklám. Rannsókn þess máls
hófst hjá lögreglu í gær og þar
verður einnig skoðað það sem átti
sér stað hjá Strik.is. Það sem sér-
staklega er skoðað er hvort það
að tengja heimasíður við aðra
vefi sem innihalda klámefni telst
vera dreifing á klámi. -gk
Tómas Ingi
Olrich.
Ibúar við Garðhús krefjast gagna
- Vegagerðin og Skipulagsstofnun hafa frest til föstudags
Lögfræðingar eigenda og íbúa í
húsum við Garðhús í Reykjavík
hafa gert kröfu um að Reykjavíkur-
borg, Vegagerðin og Skipulagsstofn-
un afhendi gögn er varða fyrirhug-
aða lagningu Hallsvegar frá Fjall-
konuvegi að Víkurvegi i Reykjavík
á grundvelli upplýsingalaga. Var
krafan, sem er í sex liðum, send
þessum aðilum á fóstudag. Þar er
þess krafist að gögn verði afhent
eigi síöar en föstudaginn 17. ágúst.
Árni Friðbjamarson, einn af íbú-
um viö Garöhús, sagði í samtali við
DV í morgun að málið væri í raun
einfalt. Ef lagning vegarins yrði
knúin óbreytt í gegn þá yrði farið í
mál við borg-
ina. Ljóst
væri að þar
væri um
svik að ræða
á forsendum
lóðaúthlut-
unar sam-
kvæmt upp-
haflegu
skipulagi
svæðisins.
Ef til málshöfðunar kæmi yrði þess
krafist að borgin keypti upp eignir
ibúa við Garðhús.
íbúamir halda því fram að til
grundvallar framkvæmdum við
Hallsveg hafi verið lagðar fram
misvísandi umferðarspár. Helgi
Hjörvar, forseti borgarstjómar,
hefur krafið embættismenn
skýringa vegna þessa. -HKr.
Heilsudýnur t sérflokkil
Svefn&heilsa
★ ★★★★
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150
Rafkaup
Ám.'.lo OA . CQC 'ionn®
Ármúla 24 • sími 585 2800