Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Qupperneq 28
3 Opel Zafira Bílheimar FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 Keikó líklega í Eyjum I vetur „Við höfum alltaf gert okkur grein fyrir að það getur brugðið til beggja vona meö verkefnið. Menn verða því bara að taka því ef þetta tekst ekki,“ sagði Hallur Hallsson, talsmaður Ocean Future-samtak- anna í morgun, um það hvort há- hyrningurinn Keikó muni aðlagast öðrum hvölum. Senn liður að því að háhyrningavaða sem heldur sig gjarnan við Vestmannaeyjar á þess- um árstíma, það er fram í þriðju viku ágúst, muni hverfa annað. „Þetta hefur gengið mjög vel. Keikó hefur verið langdvölum þama úti og átt stöðug samskipti við aðra hvali. Þetta er fráleitt ein- falt en við gerum allt sem í okkar valdi stendur," segir Hallur. En hvað verður um Keikó ef hann aölagast ekki öðrum háhymingum? „Ég reikna meö að við verðum áfram í Eyjum í vetur.“ -Ótt Varagiröing Hér eru bæjarstarfsmenn að útbúa varaftotgiröingu. Tugur danskra kafara: Sprengjuleit í El Grillo Um það bil tugur kafara úr danska sjóhernum hóf köfun við flak E1 Grillo á Seyðisfirði í gær. Þeir munu meðal annars fjarlægja úr skipinu virkar sprengjur og tundurdufl sem talið er að geti verið í því og utan við > það. Bæjarstarfsmenn á Seyðisfirði era á sama tíma að ganga frá flotgirð- ingu fyrir olíu sem á að vera vara- girðing fyrir Norðmennina sem munu reyna að ná olíunni úr skipinu á næstunni. Varðskipið Týr er með í aðgerðum. í gær köfuðu Danimir og festu Tý yfir flakinu með akkerum að aftan og framan. Um borð í Tý er allur búnað- ur fyrir kafarana. Magnús Stefáns- son, kafari á Seyðisfirði, sagði í sam- tali við DV að öll köfun við flakið væri varasöm og þarna væri ástæða til að fara sérlega varlega. Hann sagð- ist telja að ætlunin væri að kafa með fram skipinu og kanna hvort einhver hætta er þar á ferðum. -JBP Sígarettuglóö varö aö eldi dv-mynd ko. Eldur kom upp í fjölbýlishúsi viö Vatnsstíg 11 í nótt en tilkynnt var um eld í íbúö þar á 1. hæö. Aö sögn lögreglu virö- ist sem eldurinn hafi kviknaö í söfa og er taliö líklegast aö sígarettuglóö hafi valdiö. 18 íbúöir í húsinu voru rýmdar og tveir íbúar fluttir á slysadeild meö reykeitrun. Skemmdir uröu ekki miklar af eldi en þónokkrar reykskemmdir. Kynnisferðir sf. og Upplýsingamiðstöð ferðamála takast á: Lögbann á að læsa dyrunum - samkvæmt úrskurði sýslumanns - stefnir í dómsmál Forráðamenn Kynnisferða sf. og Upplýsingamiðstöðvar ferðamála hafa aö undanfómu deilt hart um hvort læsa eigi dyram sem era milli ferða- skrifstofunnar og miðstöðvarinnar eða hafa þær opnar. Málsaðilar leigja báðir húsnæði í Bankastræti 2. Svo háttar til að viðskiptavinir Kynnisferða ganga í gegnum húsnæði Upplýsingamiðstöðv- arinnar og þaðan inn í ferðaskrifstof- una. Ágreiningurinn um dymar er svo harður að sýslumaðurinn í Reykjavík hefur nú, að kröfu Kynnisferða, sett timabundið lögbann á þann gjöming Upplýsingamiðstöðvarinnar að læsa þeim. Stefna hefur síðan verið lögð fram í málinu og fer það að óbreyttu fyrir dómstóla, að sögn Jóns Magnús- sonar hrl., lögmanns Upplýsingamið- stöðvarinnar. Það eru Flugleiðir, Ferðaskrifstofa íslands, Samvinnuferðir-Landsýn, Atl- antic og Ferðaskrifstofa BSÍ sem eiga og reka Kynnisferðir. Upplýsingamið- stöðina reka Ferðamálaráð, Reykjavík- urborg og Ferðamálasamtök íslands. Pétur Rafnsson, stjómarmaður Upp- lýsingamiðstöðvarinnar, sagði að eitt af höfuðmarkmiðum í rekstri mið- stöðvarinnar, sem ríkið kæmi aö, væri Oplö Lögþann er á aö loka þessum dyrum. að upplýsingamiðlun hennar væri hlut- laus. Lögð væri áhersla á að veita eins fulikomnar upplýsingar og hægt væri og segja ferðamönnum frá öllum þeim möguleikum sem fyrir hendi væra. „Eftir að hafa fengið kvörtun úr at- vinnugreinirmi var það álit stjómar Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Reykjavík að það væri óeðlilegt að inn- angengt væri úr upplýsingamiðstöð- inni inn á söluskrifstofu eins fyrirtæk- is i ferðaþjónustu," sagði Pétur. „Stjómin samþykkti á fundi sínum í sumar að þessum dyrum skyldi lokað vegna þessa, auk þess sem við þurftum meira pláss. Opnar dyr og allur um- gangur um þær tekur aukið pláss og upplýsingamiðstöðin er að springa utan af okkur. Viðbrögð Kynnisferða vora með þeim hætti að krafist var lög- banns á þá aðgerð okkar að læsa dyr- unum. Lögbannið- fékkst fram. Þetta dyramál er því að verða dálítið skraut- legt. Dymar era enn opnar og enn er kvartað." Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða Sf„ sagði við DV að í leigu- samningi fyrirtækisins væri gert ráð fyrir að rýmið, sem nú er deilt um, væri sameiginlegt. í samningnum stæði að Kynnisferðir ættu að hafa að- gang að dyrum á austurhlið húsnæöis- ins. Þetta væri viöurkennt af leigusala sem væri Minjavernd. „Við viljum ekki sætta okkur við að brotnir séu á okkur samningar," sagði Pétur. Hann bætti við að einnig væri hægt aö ganga inn í húsnæði Kynnisferða um port en sá inngangur væri einungis ætlaður fyrir starfsfólk. -JSS Innrás ísraela í Jenín: Öfgaöfl á báða kanta „Það bendir flest til þess að öfgaöflin séu far- in að ráða þessari þróun báðum megin og það hlýtur að reyna mjög á innviðina í ríkisstjórn Shar- ons,“ sagði Tómas Ingi Olrich, for- maður utanríkis- málanefndar Alþingis, í samtali við DV í morgun. Sjötíu ísraelskir skriðdrekar réðust i gærkvöld inn í palest- ínsku borgina Jenín á vestur- bakka Jórdanar og eyðilögðu meðal annars 2 palestínskar lög- reglustöðvar. Þremur klukku- stundum síðar drógu þeir herlið- ið til baka en staðan er eigi að síður alvarleg og hafa Palestínu- menn komið fram með kröfur um alþjóðlega öryggisgæslu á svæð- inu. Tómas Ingi telur til lítils að senda friðargæslulið fyrr en aðil- ar málsins, þ.e. ísraelar og Palest- ínumenn, sýna vilja til sátta, en lítil teikn hafa verið á lofti um slíkt undanfarið. Tómas Ingi vildi ekki tjá sig um líkur þess aö ís- lendingar hefðu bein afskipti af deilunni nú og DV náði ekki í ut- anríkisráðherra, Halldór Ás- grímsson, áður en blaðið fór i prentun. ísraelsher hefur ekki ráðist jafn langt inn á palestínskt land- svæði í átta ár og er hugsanlegt að öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna verði kallað saman í dag. „Málið er mjög eldfimt," sagði formaður utanríkismálanefndar. -BÞ Strik líka í kláminu í ljós hefur komið að á vefsíðu Strik.is hefur verið vísað á aðrar vefsíður sem innihéldu gróft klámefni. Þegar hefur verið brugðist við þessu á viðeigandi hátt af forsvarsmönnum Striks- ins. Eins og fram hefur komið varð tímaritið Bleikt og blátt uppvíst að því um helgina að heimasíða þess var tengd við klámvef sem innihélt gróft klám, m.a. barnaklám. Rannsókn þess máls hófst hjá lögreglu í gær og þar verður einnig skoðað það sem átti sér stað hjá Strik.is. Það sem sér- staklega er skoðað er hvort það að tengja heimasíður við aðra vefi sem innihalda klámefni telst vera dreifing á klámi. -gk Tómas Ingi Olrich. Ibúar við Garðhús krefjast gagna - Vegagerðin og Skipulagsstofnun hafa frest til föstudags Lögfræðingar eigenda og íbúa í húsum við Garðhús í Reykjavík hafa gert kröfu um að Reykjavíkur- borg, Vegagerðin og Skipulagsstofn- un afhendi gögn er varða fyrirhug- aða lagningu Hallsvegar frá Fjall- konuvegi að Víkurvegi i Reykjavík á grundvelli upplýsingalaga. Var krafan, sem er í sex liðum, send þessum aðilum á fóstudag. Þar er þess krafist að gögn verði afhent eigi síöar en föstudaginn 17. ágúst. Árni Friðbjamarson, einn af íbú- um viö Garöhús, sagði í samtali við DV í morgun að málið væri í raun einfalt. Ef lagning vegarins yrði knúin óbreytt í gegn þá yrði farið í mál við borg- ina. Ljóst væri að þar væri um svik að ræða á forsendum lóðaúthlut- unar sam- kvæmt upp- haflegu skipulagi svæðisins. Ef til málshöfðunar kæmi yrði þess krafist að borgin keypti upp eignir ibúa við Garðhús. íbúamir halda því fram að til grundvallar framkvæmdum við Hallsveg hafi verið lagðar fram misvísandi umferðarspár. Helgi Hjörvar, forseti borgarstjómar, hefur krafið embættismenn skýringa vegna þessa. -HKr. Heilsudýnur t sérflokkil Svefn&heilsa ★ ★★★★ Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150 Rafkaup Ám.'.lo OA . CQC 'ionn® Ármúla 24 • sími 585 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.