Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV
Erkibiskup bakar
Vatíkaninu vandræði
Nú eru liðnir hátt 1 þrír mánuðir
frá því að Emmanuel Milingo, erki-
biskup og fyrrverandi yfirmaður
kaþólsku kirkjunnar i Afríkuríkinu
Sambíu, hleypti öllu í háaloft í
Vatíkaninu í Róm með því að gifta
sig. Þar með braut hann eina af
meginreglum kaþólsku kirkjunnar
um að prestar afneiti öllu sambandi
við konur, andlegu og líkamlegu.
Þetta er aðeins seinasta sagan í erf-
iðu samstarfi Milingos og kaþólsku
kirkjunnar.
Jesús átti aö gifta sig
í lok maí gekk Milingo að eiga
suður-kóresku konuna Mariu Sung
í fjöldagiftingarathöfn í New York
hjá Sameiningarkirkju séra Sun
Myung Moon, sem kallast oftast
Moonsöfnuðurinn. Vatíkanið hótaði
Milingo að hann yrði sviptur hemp-
unni og bannfærður ef hann léti
verða af því að gifast Sung.
Milingo lét hins vegar allar að-
varanir um bannfæringu sem vind
um eyru þjóta og ákvað að ganga að
eiga fröken Sung. Hann sagði að eft-
ir ævilanga þjónustu við Guð og
uppfyllingu þeirra heita sem hann
gekkst undir þegar gerðist kaþólsk-
ur prestur hafi Drottinn hvatt hann
til að gifta sig. Milingo hafði um
tveggja ára skeið sótt giftingarat-
hafnir Moonsafnaðarins. Hann
hafði ekki hitt væntanlega eigin-
konu sína fyrr. Það er alls ekki
óvanalegt í giftingarathöfnum
Moonsafnaðarins og sér þá séra
Moon oft sjálfur um að para saman
væntanleg brúðhjón.
Moon stofnaði söfnuð sinn með
það að markmiði að koma á heims-
friði í gegnum hjónabandið. Hann
byggir trú sína á fyrstu syndinni
þegar Djöfullinn tældi Evu til að
bíta í eplið og fall mannkyns út af
því. Þeir trúa einnig að Guð hafi
sent Jesú til að hreinsa mannkynið
af syndum sínum. Það hafi hins veg-
ar ekki tekist þar sem Jesú var
krossfestur af mönnunum áður en
hann gat gifst. Moon telur það hlut-
verk sitt að klára verk Jesú og
stofna fjölskyldu mannkyns.
Fundur meö páfa
Strax eftir giftingarathöfnina gaf
Vatíkanið út þá yfirlýsingu að ka-
þólska kirkjan hefði afneitað Mil-
ingo. Hann hefði gert alvarleg mis-
tök og gæti ekki lengur talist vera
biskup innan kirkjunnar. Talsmað-
ur Vatíkansins sagði m.a.: „Með því
að taka þátt í opinberri giftingarat-
höfn Moonsafnaðarins hefur hann
(Milingo) sett sjálfan sig út úr ka-
þólsku kirkjunni og skaðað sam-
band hennar og biskupa hennar.“
Stuttu síðar dró kirkjan aðeins í
land og setti Milingo afarkosti sem
gerðu honum kleift aö komast hjá
bannfæringu. Enda hefur Milingo
ávallt lýst því yfir að hann vilji
áfram þjóna kaþólsku kirkjunni.
Samkvæmt afarkostunum ber Mil-
ingo að skilja við Mariu Sung, konu
sina, hið snarasta og ganga úr
'PéSUe#*!. ftPP/íBL.
'i- ‘v^- <%*V*v»n.'VX.'v
1* K**~<*í* fíyUMivp
'Ptíuts /h
1'»
cums* Uusf ?siKih*s,',H *
n-o
ppt/»h ú ee& '4*tf Íþ
Uf 11 fáL 4r/é«t Afy,
/S re*W» S/*f&. á&M UÉtAkM.
Hjónabandinu slitiö
Vatíkanið sendi Sung, eiginkonu Milingos, þetta bréf þar sem hann slítur
sambandi við hana og Moonsöfnuðinn. Hún segir bréfið ekki vera frá
honum.
Moonsöfnuðinum. Milingo hafði
frest til 20. ágúst.
Milingo fór fram á fund með Jó-
hannesi Páli páfa II. Hann fékk
áheyrn og hittust þeir 7. ágúst síð-
astliðinn. Talsmaður Milingo full-
vissaði alla að erkibiskupinn hefði
hafið hjónalíf með konu sinni og
skildi það að blessun Drottins væri
aðeins hægt að veita í gegnum fjöl-
skylduna. Eftir fund páfa og erki-
biskupsins varð stefnubreyting hjá
kaþólsku kirkjunni. í yfirlýsingu
kom fram að hótun um bannfær-
ingu á Milingo hefði verið dregin til
baka. Málið væri mun flóknara en
talið hefði verið og ræða þyrfti mál-
ið í þaula.
Eiginkonan ólétt
Eftir stuttar viðræður ílækist
málið frekar en hitt. Kaþólska kirkj-
an gaf út þá yfirlýsingu að Milingo
hefði beðið þess að fá tíma til hug-
leiðslu og bæna í einrúmi og var
ekki upp gefið hvar hann væri nið-
ur kominn. Skömmu síðar fékk
Maria, eiginkona Milingos, bréf
sem Vatíkanið segir vera frá eigin-
manni hennar. Þar segir Milingo að
hann haíi ákveðið að segja skilið
við Sung og Moonsöfnuðinn og
helga líf sitt þjónustunni við Guð.
Eiginkona Milingos er nú komin
til Rómar þar sem hún hefur farið
fram á að fá að hitta eiginmann
sinn. Hún hefur ekkert svar fengið
við þeirri beiðni. Sung hélt blaða-
mannafund vegna málsins. Þar
sagði hún að hugsanlega gæti hún
verið barnshafandi, þungunarpróf
færu hins vegar ekki fram nema að
eiginmanninum viðstöddum. Einn-
ig hefur hún hafið hungurverkfall
þar til hún fær að hitta eiginmann-
inn. Hún telur aö kaþóska kirkjan
hafi rænt Milingo og að hann hafi
ekki skrifað bréfið sem hún fékk
sent. Sung bendir einnig á það að
Milingo hafi skilið eftir öll embætt-
istæki sín og Biblíu sem sýni að
hann hafi ætlað sér að snúa aftur
fljótlega. Sung segir að þótt hjóna-
band þeirra sé ekki alveg þriggja
mánaða þá hafi þeir tveir mánuðir
sem þau eyddu saman verið yndis-
legir. Ef hún fær ekki að sjá mann-
inn sinn aftur ætlar hún að svelta
sig þar til hún deyr. Hún vill frekar
vera í nánd eiginmannsins síns sem
andi en lifa án hans.
Stöðugt til vandræða
Milingo hefur í átt í stríði við
kirkju sína síðastliðin 20 ár. Árið
1983 var hann settur af sem yfir-
maður kirkjunnar í Sambíu vegna
þess að það spurðist út að hann
stundaði heilun sjúkra og tók að sér
að særa út illa anda með samblandi
af innlendri andatrú og kristnum
fræðum. Þessar athafnir þykja ekki
samrýmast nútímakirkju. Honum
var fengið lítið embætti í Vatíkan-
inu en þar hélt hann áfram að
stunda andasæringar. Þetta endaði
með því að kaþólska kirkjan setti
strangar reglur um særingar til að
losa sig undan fordómum á fornfá-
legum vinnubrögðum. Það má því
vel vera að Milingo takist að færa
sömu kirkju nær nútímanum í sam-
bandi við samskipti kynjanna.
Byggt á greinum frá
Reuters, BBC ofl.
Umskipti eftir viöræöur viö páfa
Svo virðist sem Milingo hafi tekið u-beygju eftir samtal viö Jóhannes Pál
páfa II og ákveðið að snúa aftur undir fald kaþólsku kirkjunnar.