Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Blaðsíða 40
48
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001
Formúla 1
rspjallib
Ingveldur Eiríksdóttir á formulal.is:
Trúir á Kimi
Blm. DV spyr Ingu um Formúlu
Ingveldur er að verða ein af
fróðustu manneskjum um For-
múlu 1 á íslandi og hefur undan-
farið ár unnið á www.formulal.is
og er ritstjóri síðunnar. Hún seg-
ir það vera endalausa vinnu sem
aldrei taki enda en ánægjan af því
að vinna með góðu fólki og hugsa
um Formúlu daginn út og inn er
bónus sem gerir þetta að
skemmtilegri og gefandi vinnu.
Hún fór til Magny Cours í sumar
og upplifði þar með sína fyrstu
Formúlukeppni sem hún telur að
allir sem hafa einhvem snefll af
áhuga á Formúlu ættu að gera.
Nú eru ekki nema fimm keppn-
ir eftir af keppnistímabilinu og
titilkeppnin svo gott sem búin.
Hvað hefur þér fundist einkenna
tímabilið til þessa?
„Yfirburðir Ferrari. Vissulega
hefur hann skarað fram úr hvað
áreiðanleika varðar og löngum
verið hraðasti bíll á brautinni en
annað hefur einnig skapað þessa
yfirburðastöðu, eins og arfaslakt
gengi McLaren miðað við þær
væntingar sem við íslendingar
höfum lært að bera til þeirra sið-
ustu ár. Ég var hins vegar á því í
upphafi árs að tvennt væri I spil-
unum hjá McLaren - annaðhvort
tækist þeim að koma með bíl eng-
um öðram líkan ellegar þeir
hefðu skotið hressilega yfir strik-
ið í hönnun MP4-16 bílsins.
Tvöfaldur heimsmeistari, Mika
Hákkinen, hefur átt erfitt upp-
dráttar.
„Það er gríðarlegur ókostur ef
þú er ökumaður i Formúlu 1 að
koma ekki bílnum af ráslínu en
það hefur gerst í 25% tilvika hjá
Hakkinen. Ástæða þess aö hann
hefur ekki komist oftar á pall er
sambland af bíl sem ekki var
samkeppnishæfur og þess að
Mika átti ekki góðan dag. í tíma-
tökum er jafnt á komið með þeim
Coulthard.“
Frentzen var rekinn frá Jordan
og Alesi hefur komið í staðinn.
Var þetta rétt ákvörðun hjá Eddie
og var Alesi rétti staðgengillinn?
„Ég veit ekki um réttmæti
uppsagnar Frentzen, það mál
virðist ekki ætla að upplýsast, en
úr því sem komið var hefði Jord-
Ingveldur ásamt dóttir sinni
Ragnhildi.
an ekki getað fengið betri mann
en Alesi. Frakkann þyrstir í ár-
angur og hefur reynslu í poka-
horninu sem hlýtur að hjálpa
honum við að takast á við nýtt lið
og nýjan bíl. Jordan verður ein-
faldlega að fara að ná I stig, tvö
arfaslök ár er ekki viðunandi hjá
liði eins og Jordan.“
Frentzen er kominn til Prost.
Er ferill hans á enda?
„Nei, það þætti mér með hrein-
um ólíkindum. Ég yrði hissa ef
Frentzen yrði ekki boðin öku-
mannsstaða á næsta ári og alltént
getur hann orðið reynsluökuþór
hjá einhverju af toppliðunum. Ég
held það sé almennt álit manna
að Frentzen sé með hæfari öku-
mönnum Formúlunnar í dag.“
í byrjun tímabilsins var mikið
talað um alla nýliðana. Hver af
þeim finnst þér hafa skarað fram
úr?
„Kimi Ráikkönen er bílstjóri
sem ég hef unun af að fylgjast
með á brautinni - verst hve lítið
er sýnt frá miðjuslagnum. Juan
Pablo Montoya vekur óskipta að-
dáun mína fyrir áræðni og
dirfskufullan akstur. Montoya er
líklegastur til þess að afsanna að
framúrakstur tilheyri fortíðinni í
Formúlu 1. Fyrir það á hann heið-
ur skilinn nú þegar.“
-ÓBS
uBWax
ISEhSieí
Það var For-
múlu 1 heiminum
mikið áfall þegar
Jordan-keppnislið-
ið ákvað nokkrum
dögum fyrir þýska
kappaksturinn að reka annan af
ökumönnum sínum eftir tveggja og
hálfs árs þjónustu og neita heima-
manninum um heimakappakstur
sinn. Heinz Harald Frentzen vann
tvisvar keppni fyrir Jordan árið
1999 og endaði liðið í þriðja sæti í
stigakeppninni það árið. Síðan hef-
ur gangur Jordan verið allt annað
en upp á viö og ekki verið sérstakur
þrátt fyrir að hafa fengið samning
við Honda-vélaframleiðandann á
keppnisvélum fyrir þetta ár. Það
eru geysilega miklir peningar í húfi
og styrktaraðilar sem ausa milljón-
um króna i reksturinn eru hungrað-
ir í árangur. Allt frá því í Imola-
kappakstrinum hafði Frentzen ekki
skilað liði slnu einu einasta keppn-
isstigi og þessu taka kostendur eftir.
Þjóðverjinn hafði hvað eftir annað
verið útspilaður af félaga sínum í
tímatökum og ekki þótt nægilega
hungraður í keppnum. Því varð eig-
andi og stjórnandi liðsins, Eddie
Jordan, að grípa til afdrifaríkra
ráða og sá sig nauðbeygðan til að
losa sig við ökumann sinn og grípa
næstu gæs sem gafst. í þetta sinn
var það Jean Alesi sem kom fljúg-
andi frá Prost-liðinu og kemur hann
til með að aka út keppnistímabilið í
gulu bílunum.
Frentzen greip tækifærið
Við þessar breytingar hjá Prost
vantaði liðið reyndan ökumann og
var Alain Prost ekki lengi að hafa
samband við fyrrum Jordan-öku-
manninn og bauð honum að aka i
dimmbláu bílunum þær fimm
keppnir sem eftir eru af tímabilinu.
„Þetta eru alveg nýjar kringum-
stæöur fyrir mig. Ég hef aldrei upp-
lifað liðsbreytingar á miðju timabili
og ég þarf að aðlagast aðstæðum og
bíl eins fljótt og auðið er,“ sagöi
Frentzen fyrir helgi en hann prófaði
Prost-bílinn í fyrsta sinn á Magny- •
Cours-brautinni í Frakklandi á dög-
unum. „Ég hef eytt miklum tíma í
að kynnast því fóki sem ég kem til
með að vinna með og reyna að átta
mig á nýju umhverfi. Ég kem til
með að gera mitt besta til að smella
inn i nýtt lið eins fljótt og hugsan-
legt er.“ Ekki er ósennilegt að
Frentzen, sem er hvers manns hug-
ljúfi, verði fljótur að koma sér fyrir.
Þó eru margar spurningar á lofti
því Prost-liðið er sagt í miklum fjár-
hagsvandræðum og hefur ekki get-
að greitt fyrir afnotin af Ferrari vél-
unum sem liöiö hefur notað með
góðum árangri í sumar. Ekkert hef-
ur verið gefið út um áframhaldandi
vélasamningi liðanna og enn síður
hvort Frentzen fái starf á næsta ári
sem ökumaður Prost.
Takmarkaðar prófanir
Þar sem síöustu þrjár vikur hafa
verið óopinbert sumarfrí starfs-
manna Formúlu 1 þá voru allar
prófanir bannaðar frá þýska
kappakstrinum á Hockenheim þar
sem Ralf Schumacher sigraði í væg-
ast sagt eftirminnilegum kapp-
akstri. Eini aksturinn sem leyfður
hefur verið er 50 km pökkunarakst-
ur þar sem bílamir fá lokaprufu
áður en þeir eru sendir til keppnis-
staðar. Þar sem Jean Alesi og Heinz
Harald Frentzen eru báðir komnir i
nýja bíla, voru þessir örfáu kíló-
metrar nýttir til hins ýtrasta til að
þeir fengju tækifæri til að kynnast
nýjum kringumstæðum hjá nýjum
liðum. „Viö einbeittum okkur aðal-
lega að sætinu og stöðu minni í
bílnum svo mér líði vel honum og
það var gott að vinna með nýjum
aðstoðarmönnum og kynnast þeim
nánar“ sagði Jean Alesi eftir að
hafa prófað EJll og var hann nokk-
uð ánægður með keppnisbíl Jordan-
liðsins. „Við áttum erilsaman en ár-
angursríkan dag þar sem ég þurfti
að læra mikið um bílinn. Þó svo við
hefðum aðeins getað ekið 50 km
pökkunarakstur, þá miðaði okkur
talsvert áfrarn," sagði Alesi, sem
kemur til með að keppa í sinni 197.
kappakstur á löngum á ferli og telur
sig nú vera kominn í bíl sem er fær
um koma honum á verðlaunapall.
„EJll virkar bara nokkuð vel og ég
hlakka veruleg til kappakstursins
um helgina til að upplifa raunveru-
lega getu bíls sem hefur sýnt tals-
verða samkeppnishæfni," sagði
franski ökuþórinn sem er að verða
einn af reyndustu ökumönnunum í
sögu Formúlu 1.
Hver verður hvar 2002?
Seinni hluti keppnistímabilsins
er nú vel á veg kominn og flest
keppnisliðin hafa gert samninga við
ökumenn fyrir næsta ár. Lið eins og
Ferrari, BAR, Sauber.og Williams
eru öll búin að framlengja samn-
inga sína við núverandi ökumenn.
En Jordan, Benetton, Prost og
Minardi eru ekki enn búin að gera
upp hug sinn varðandi ökumenn.
Mestu tíðindin eru þó að annað af
stærstu liðunum er ekki enn búið
að ákveða hverjir muni aka fyrir þá
á næsta ári. McLaren hefur haft það
fyrir sið undanfarin ár að tilkynna
hverjir verði ökumenn næsta tíma-
bils á Hockenheim í júlimánuði, en
enn sem komið er hefur ekkert
heyrst frá grástökkunum. Sögusagn-
ir hafa verið á kreiki um áframhald-
andi samning Davids Coulthards
við McLaren fyrir næstu þrjú árin
en ekkert verið staðfest. Síðan hefur
arfaslakur árangur Mika Hakk-
inens í ár komið af stað sögum um
að hann hætti hreinlega akstri í
Formúlu 1 og komi til með að segja
þetta gott eftir þetta tímabil. Ing-
veldur á Formulal.is er alls ekki á
þeirri skoðun og telur að enginn
frambærilegur ökumaður sé á lausu
fyrir liðið hætti Hákkinen akstri.
„Ég sé ekki nokkra ástæðu til þess
að Hákkinen fari frá McLaren, mér
fyndist í raun eðlilegra að Coult-
hard færi og leitaði sér sóknarfæra
hjá öðrum liðum þar sem hann
kemur til með að halda áfram í For-
múlunni í nokkur ár enn. Ég tel
Ron Dennis ekki hafa betri mann til
verksins sem bíður á næsta ári en
Mika Hákkinen," segir Inga, sem
41