Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Side 18
18
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001
x>v
Helgarblað
Kynþokkinn á
keppnisbrautinni
Frjálsíþróttamót eru ekki lengur einungis háalvarleg
keppni í köstum, hlaupum og stökkum. í kapphlaupi um
kastljós fjölmiðla og framfærslusamninga við auglýsend-
ur reynir hver að skapa sinn persónulega stíl. Kynþokk-
inn er þar vinsælt stílbragð.
íþróttir eru beint framhald hring-
leikahúsanna í Róm. í staö þess að
henda einhverjum vesalingum inn í
hringinn til aö berjast við óseðjandi
ljón er vel þjálfuðum íþróttamönn-
um komið fyrir á stórum keppnis-
völlum. Þar eru allir hungruð ljón,
meira að segja fólkið sem situr á
áhorfendapöllunum og bíður eftir
heimsmetum, nýjum sigrum og nýj-
um vonbrigðum. Heima í stofum
heimsins bíða svo nokkrar milljón-
ir blóðþyrstra áhorfenda eftir kjöt-
inu sínu. Útsendingar frá íþrótta-
mótum snúast nefnilega líka um
kjöt, kroppa sem eru á heimsmæli-
kvarða.
Límdur við skjáinn
Félagi minn, knattspyrnudómari
og íþróttaáhugamaður, var harka-
lega gagnrýndur fyrir þá skoðun
sína að alltof mikið væri sýnt frá
íþróttum kvenna. Ég sagði reyndar
við hann að hann ætti ekki að segja
mikið; nóg grín væri gert að 22
mönnum sem eltust við einn
kringlóttan hlut í níutíu mínútur
þótt hann væri maðurinn/dómar-
inn sem eltist við 22 menn sem elt-
ust við einn kringlóttan hlut í níu-
tíu mínútur. Ég held reyndar að
hann hafl verið að tala um boltai-
þróttir þegar hann hélt þessu fram
en ekki frjálsar íþróttir. Ég er nokk-
uö viss um að hann sat límdur yfir
stökkum Stacey Dragila, hlaupum
Marion Jones og nöglum Gail
Devers.
Sérstaða íþróttafólks
íþróttafólk er háð fjölmiðlum og
auglýsendum. íþróttamenn á heims-
mælikvarða eru vel launaðir því
þeir fá borgað fyrir að auglýsa og
keppa í ákveðnum merkjavörum.
Við vitum öll að allt bandaríska
landsliðið er í Nike-fatnaði. Við
Saklausa stúlkan
Marion Jones er saklausa stúlkan í hópi frjálsíþróttakvenna. ímyndin
varö fullkomnuö meö hjónabandi hennar viö lyfjabryöjarann C.J. Hunter.
Hún skildi viö fóliö.
Móðirin
Gabriela Szabo hefur tilkynnt aö hún
taki árs frí til aö eignast barn og
ganga inn í móöurhlutverkiö.
erum búin að sjá merkið svo oft á
stílhreinum fatnaðinum. Til að vera
í fremstu röð í íþróttum er ekki nóg
að geta hlaupið eins og íjandinn sé
á hælunum á manni heldur verður
líka að skapa sér sérstöðu í útliti og
framkomu. Ato Boldon er alltaf með
sólgleraugu, Michael Johnson var
alltaf í gylltum skóm og Jonathan
Edwards hefur þá „sérstöðu" að líta
út eins og skrifstofumaður hjá
Skýrsluvélum ríkisins. Auglýsinga-
markaðurinn krefst þess af kepp-
endum að þeir skapi sér þessa sér-
stöðu.
Fórnarlömbin
Á einu ári voru sex konur á for-
síðu hins fræga tímarits, Sports 111-
ustrated. Ein var módel í sundfötum
sem kynnti nýjustu sundfatalínuna,
önnur var Monica Seles, liggjandi á
tennisvellinum með hníf í bakinu,
þriðja og fjórða voru ekkjur hafna-
boltamanna, fimmta var tenniskon-
an Mary Pierce, sem sagði frá mis-
notkun foður síns á sér, og sú sjötta
Vúdútónlist
Um nokkurt skeið hefur verið starf-
rækt djassstöð á FM 97.7. Það er mik-
ið fagnaðarefni því djassinn er
skemmtilegur. Stöðin er að vísu fátæk-
leg, t.d. er enginn þulur sem kynnir
lögin, það er eins og safni af djasslög-
um hafi verið komið fyrir í tölvu sem
velur lögin af handahófi. Safnið er
ekki mjög stórt því maður heyrir
sömu lögin full oft. En þó er greinilega
skipt á tölvunni af og til og í það heila
er útkoman allt í lagi.
Djassinn er stórmerkileg tónlist
sem hefur haft víðtæk áhrif. Til dæm-
is eru greinleg djassáhrif i Paganini
tilbrigðum Rachmaninoffs, báðum pí-
anókonsertum Ravels og mörgum öðr-
um tónverkum. Sumir litu þó djassinn
hornauga í byrjun og töldu hann vera
hálfgerða úrkynjun er tilheyrði aðal-
lega hórum og glæponum. Einstaka
sérvitringar gengu meira að segja svo
langt að kenna döflinum um djassinn,
og þar á meðal var tónskáldið og dul-
spekingurinn Cyril Scott (1879-1970). 1
bók sinni Music - Its Secret Influence
Through the Ages segir hann meðal
annars: „Eftir að djassinn kom fram á
sjónarsviðið, sem myrkraöflin voru
völd að, varð greinileg hnignun í kyn-
ferðislegu siðferði. Konur, sem áður
höfðu látið sér nægja yfirborðslegt
daður, eru nú helteknar af leitinni að
erótískum ævintýrum og hafa breytt
kynlífi í tómstundagaman."
Samkvæmt Scott hefur
rétt samansett tónlist yf-
irnáttúruleg áhrif og get-
ur valdið víðtækum hug-
arfarsbreytingum. Ekki
nóg með það, hann var
líka sannfærður um að
ósýnilegir meistarar
hefðu samið tónlist i
gegnum Beethoven,
Brahms og alla hina til að
hafa jákvæð áhrif á gang
sögunnar. Því miður risu
myrkraöflin upp á móti
og dældu út djassi og
öðru ógeði til að spilla
mannkyninu.
Djassinn varð til vegna þrælasöl-
unnar fyrr á öldum og er blanda af
afrískri og vestrænni tónlist. Sumir
segja að hann hafl fyrst litið dagsins
ljós í New Orleans þar sem vúdútrúin
er áberandi en það er engin tilviljun
því djassinn og vúdútrúin eiga sam-
eiginlegan uppruna. Vúdútrúin er
önnur afleiðing þrælasölunnar og er
blanda af afrískri andatrú og kristni.
Tónlistin sem spiluð er í vúdútrúarat-
höfnum er þó mun frumstæðari en
djassinn.
í vúdú eru fjölmargir guðir, sem
eru nokkurskonar persónugerfing
náttúrukrafta, rétt eins og sumir kaþ-
ólskir dýrlingar. Tónlist skiptir höfuð-
máli, og þá aðallega hrynjandin, sem
Valkyrjan
Trine Hattestad er valkyrjan í hópi íþróttakvenna. Margir söknuöu hennar á
heimsmeistaramótinu í Edmonton.
var Nancy Kerrigan skautadrottn-
ing sem varð fyrir hrottalegri lík-
amsárás skömmu fyrir mikilvæga
keppni. Fimm af þessum sex konum
voru sem sagt fórnarlömb. Það hef-
ur einnig verið gagnrýnt að afrek
íþróttakvenna séu yfirleitt ekki að-
almálið í viðtölum og umfjöllun
heldur sé meira litið á persónulegt
líf þeirra; til dæmis hvernig það fari
saman að vera afrekskona og móðir.
Hættulega konan og móðirin
Svo virðist vera að auglýsinga-
iðnaðurinn geri aðrar kröfur til
kvenna þegar kemur að sérstöðu-
sköpun. Fyrir löngu hljóp reyndar
Sola Budd berfætt og náði góðum
árangri en hún hefur örugglega
ekki náð góðum auglýsingasamn-
ingum við skóframleiðendur og þvi
orðið af stórfé. Frjálsíþróttakonur
eiga, samkvæmt auglýsingabrans-
anum og fjölmiðlum, fyrst og fremst
að vera konur, kynþokkafullar og
heillandi, og þær þurfa að vera inni
Jónas Sen
skrífar
Hættulega konan
Neglur Gail Devers eru tákn um
hættulegu og glæsilegu konuna.
Hún hleypur eins og tígur og hefur
skrautlegustu klær sem sést hafa á
hlaupabrautinni.
í staðalímyndum: móðirin, saklausa
stelpan, hættulega konan, valkyrjan
og svo framvegis. Þær konur sem
falla utan hefðbundinnar flokkunar
geta verið í erfiðri aðstöðu.
-sm
er mismunandi eftir því hvaða guð er
ákallaður. í vúdútrúariðkun dansar
fólk sig í trans á meðan presturinn og
meðhjálpararnir stýra áköllunum, og
í hápunkti athafnarinnar telja margir
sig fyllast anda guðsins. Kraftaverk
eiga sér þá stundum stað.
Hljómar þetta kunnuglega? Það
ætti að gera það, því þetta er aðferðin
sem iðkuð er í sumum sértrúarsöfn-
uðum hér á landi. Fyrir nokkrum
árum var vakningarsamkoma í Laug-
ardalshöllinni með predikaranum
Benny Hinn og í sjónvarpsviðtölum
við þátttakendur í hita leiksins varð
ekki betur séð en að þarna væri vúdú
á ferðinni. Að minnsta kosti var spil-
uð drynjandi tónlist.'fólk dansaði sig í
trylling, nokkurs konar prestur stýrði
áköllum og bænum, og sjúkir töldu
sig læknaða.
Því miður get ég vitnað um að
lækningin entist ekki alltaf sérlega
vel. Vinnufélagi minn, sem var veikur
af krabbameini, var dreginn á sam-
komuna í Laugardalshöllinni af öðr-
um vinnufélaga, sem var meðlimur í
einhverjum sértrúarsöfnuði. Sá veiki
taldi sig hressast mikið og sá trúaði sá
sýnir. í vinnunni nokkrum dögum
seinna tilkynnti hann að Guð hefði
sagt sér i Laugardalshöllinni að sá
veiki myndi ná sér að fullu og koma
aftur til vinnu innan tiðar. Það rætt-
ist ekki, því hann dó fljótlega.
Mér finnst sumir sértrúarsöfnuðir
vafasamir. Einu sinni var ég staddur
einn míns liðs á kaffihúsi þegar tveir
menn settust hjá mér, sögðust vera í
Krossinum og spurðu hvort ég væri
ekki þessi náungi sem væri alltaf að
skrifa um dulspeki í Pressuna sem þá
kom út í hverri viku. Þegar ég játaði
því reyndu þeir að fá mig á fund með
þeim um kvöldið. Svo sagði annar
þeirra: „Þú veist það, Jónas, að það
eru tvö öfl í heiminum sem berjast
um völdin. Dómsdagur, Jónas, er ekki
langt undan og þá verða allir dæmdir.
Þá er betra, Jónas, að vera í vinnings-
liðinu." Síðan tók hann þéttingsfast í
hendina á mér og starði á mig langa
stúnd. Mér leið eins ðg fyllibvtru sem
AA-menn voru að reyna að koma í
meðferð.
Rétt er að taka fram að ég er ekki
djöfladýrkandi, og hef aldrei verið
það. Það er því óþarfi að frelsa mig.
Ég er hins vegar heillaður af ýmsum
undarlegum fræðum, heimspekikenn-
ingum og mismunandi heimsmynd-
um, og ég hef brennandi áhuga á alls
kyns trúarbrögðum.
Almennileg tónlist er frábær vett-
vangur fyrir slíkar pælingar. Tónlist
hefur sprottið af margs konar trúar-
hugmyndum, lífsjátningum, andleg-
um upplifunum, tilfinningakrísum og
heimspekilegum vangaveitum, og tón-
skáld sem kann sitt fag getur gert slík-
ar hugmyndir áþreifanlegar. Ég er
hinsvegar nokkuð sannfærður um að
djassinn er ekki verkfæri djöfulsins,
og hefur aldrei verið það. Ég veit fátt
unaðslegra en sumt sem djasspíanist-
inn Keith Jarrett spilar og í mörgum
djasslögum er svo mikil fegurð að
maður gæti flogið. Ef það er ekki
himnariki þá veit ég ekki hvað er.