Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Qupperneq 56
Egilsstaðir: Alþingismenn — komust á flug Segjamáaðmeirihluti íslenskraal- Segja þingismanna hafi náð sér á flug í gær - í orðsins fyllstu merkingu. Með áætl- unarfluginu til Egils- staða í gær voru samankomnir flestir þingmenn Sjálfstæð- isflokksins, auk flestra þingmanna Samfylkingarinnar. Með í fór var síðan einn framsóknarmaður, Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra. Heima- Jón Kristjánsson. menn á Egilsstöðum, sem sáu prósess- íuna ganga út úr vélinni, áttuðu sig ■y ekki á hvað var eiginlega að gerast og einhver heyrðist spyrja hvort hann hefði misst af frétt um flutning rikis- stofnunar út á land. Skýringin á þessu þingmannafjölmenni er sú að bæði þingflokkur Sjálfstæðisflokks og þing- flokkur Samfylkingar verða með þing- flokksfundi um helgina fyrir austan og báðir þingflokkarnir munu skoða og kynna sér Kárahnjúkasvæðið. Jón Kristjánsson mun hins vegar hafa verið að fara austur til að hitta kjós- endur sina. -BG Fastur í bílnum eftir veltu Bilvelta verð í Kjós á níunda tíman- um í gærkvöldi, skammt frá Meðal- fellsvatni. ökumaður bifreiðar sem þar var á ferð missti vald á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún valt út af veginum og niður í gil. Maðurinn sem var einn í bifreiðinni festist inn í henni og var því svokallaður „klippibíH" slökkvi- liðsins í Reykjavík sendur á vettvang ásamt tækjabíl og tveimur sjúkrabif- reiðum í öryggisskyni en óljóst var í fyrstu hvort fleiri hefðu slasast. Vel . gekk að ná manninum úr bifreiðinni þegar á staðinn var komið og var hann fluttur á slysadeild. Hann var með meðvitund, nokkuð slasaður, en ekki lágu fyrir frekari upplýsingar um líðan hans þegar DV fór í prentun. -gk Kristinn sam- þykkir ekki Kristinn H. Gunnarsson, formað- ur þingflokks Framsóknarflokksins, hefur efasemdir um reglugerðar- breytingar sem sjávarútvegsráð- herra hefur boðað varðandi veiðar smábáta og hefur lýst því yfir að hann muni ekki samþykkja væntan- legt frumvarp ráðherrans á þingi í haust, komi ekki til aðrar ráðstafan- ir. Kristinn telur frumvarpið ekki samræmast stefnu ríkisstjórnarinn- -gk „TUTTUGUKARUNN“ ER ,SKO ENGINN BRANDARU FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö i DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 55Ö5555 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001 DV-MYND BRINK Olsenbræöur á Broadway Hinir dönsku Olsenbræöur, sem sungu til sigurs í Evróvisjón-söngvakeppninni í fyrra, komu hingaö til lands í gær. í gærkvöld sungu þeir sig inn í hjörtu gesta í troðfullu veitingahúsinu Broadway. Reyndar seldist á örskotsstundu upp á þá tónleika og var því ákveöiö aö halda aðra tónleika í kvöld. Bændur í Húnavatnssýslu undrandi á innheimtukröfum frá Kjötumboðinu: Fa rukkun en eiga inni fé - ekki heimild til skuldajöfnunar, segir fjármálastjóri Kjötumboðsins Talsverðrar óánægju og undrun- ar hefur gætt hjá nokkrum íjölda bænda, m.a. í Húnavatnssýslum, vegna rukkana sem komið hafa síð- ustu daga frá Kjötumboðinu (Goða). Eiga þeir menn sem blaöið ræddi viö og fengið hafa reikninga þaö sameiginlegt að þeir töldu sig ekki skulda Kjötumboðinu neitt og í einhverjum tilfellum telja þeir sig hins vegar sumir hverjir eiga tals- veröar upphæðir inni hjá fyrirtæk- inu. Innheimtukröfurnar sem bændur eru að fá rokka frá því að vera nokkur þúsund krónur og upp í nokkur hundruð þúsund. Gjald- frestur er stuttur og lögfræðiaö- gerðum er hótað fyrir mánaðamót. Að sögn Sigríðar Óskar Jónsdótt- ur, fjármálastjóra Kjötumboðsins, hefur fyrirtækið verið að senda út mikinn fjölda ítrekana síðustu daga og ekki sé óeðlilegt að ein- hverjar athugasemdir komi vegna Sláturmál í deiglu Bændur í Húnavatnssýslu eru undr- andi á aö fá rukkanir frá Kjötumþoö- inu meö hótun um lögfræöiaðgeröir á sama tíma og þeir eiga sumir hverjir mikla peninga inni hjá fyrir- tækinu. slíkra reikninga. Hins vegar segir hún eðlilegt að þeir sem hafi at- hugasemdir beri sig þá eftir fylgi- gögnum og útprentunum þannig að málið geti skýrst. Hún segist ekki vita til að um nein mistök sé að ræða en þetta séu skuldir sem mönnum gefist nú tækifæri til að greiða án þess að á þær séu reikn- uð vaxtagjöld og annar kostnaður. Fyrir liggur að þessar ítrekanir fari í lögfræðiinnheimtu strax þann 25. ágúst og segir Sigríður það ekki óeölilegt i ljósi þess að um ítrekun er aö ræða. Varöandi þaö að þessir sömu bændur eiga jafnvel háar upphæðir inni hjá Kjötumboðinu segir Sigriður málið horfa þannig við að Kjötumboðið sé í greiðslustöðvun og tilsjónar- maður fyrirtækisins hafi ekki fall- ist á aö farið yrði út I skuldajöfn- un. Samkvæmt þessu getur sú staöa komið upp - og virðist vera að koma upp - að gengið er með lögfræðiinnheimtu að manni sem skuldar Kjötumboðinu mun lægri upphæð en Kjötumboðið skuldar honum. -BG Tuttugukarlinn Frá athöfninni í Hafnarfiröi í gær. Drengur Kárason, „ Tuttugukarlinn", tekur viö viöurkenningu frá Magnúsi Gunnarssyni bæjarstjóra. Fjölgun í Firðinum: Hafnfirðing- ar nú 20.000 Hafnflrðingar eru nú orðnir 20.000 talsins og af því tilefni var eöit til lítill- ar athafhar í Hellisgerði í gær. Magnús Gunnarsson bæjarstjóri færði dreng Kárasyni, sem er tuttuguþúsundasti Hafnflrðingurinn, og fjölskyldu hans hamingjuóskir með von um bjarta fram- tíð. Drengurinn fékk silfurkross með áletruðu skjaldarmerki bæjarins. Fram kom þama að í fjölskyldunni gengi drengur Kárason undir nafninu „Tutt- ugukarlinn". Sú nafngift er þó ekki ein- vörðungu tilkomin af því að hann er 20 þúsundasti Hafnfirðingurinn heldur er hann einnig tuttugasta ömmubam fóð- urömmu sinnar og hann fæddist á tutt- ugu ára afmæli móðurbróður síns sem var 9. ágúst sl. Foreldrar hans em Kári Freyr Unn- steinsson og Margrét Ósk Gunnarsdótt- ir. Þau eiga eina dóttur fyrir sem heitir Theodóra Líf Káradóttir, fædd 1997. -BG Rannsókn á hrossaútflutningi á lokastigi: Svik upp á tugi milljóna - stærsti útflytjandinn með meira Rannsóknir á tekjuskattssvikum vegna útflutnings á íslenskum hross- um er nú á lokastigi hjá embætti Skattrannsóknarstjóra ríkisins. Um er að ræða svik upp á tugi milljóna. Þeir aðilar sem hafa verið teknir til rannsóknar eru á bilinu 10-20 talsins. Hæsta upphæðin sem útflutningsaðili hefur reynt að skjóta undan skatti með þessum hætti fer yfir tíu milljón- ir króna. Að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar hafa grunsemdir um undanskot flest- ar reynst á rökum reistar. í öðrum til- fellum, færri þó, hefur svo ekki verið. Beint í kassann Rannsóknir skattrannsóknarstjóra á útflutningi hrossa munu færa tugi milljóna í ríkiskassann. Skúli Eggert sagði að ekkert málanna væri mjög stórt. Ósennilegt væri að en tíu milljónir einhver útflytjendanna myndi sæta lögreglurannsókn. Þó gæti verið um 1-2 mál að ræöa sem færu þá leiðina. Ákvörðun um meðferð hefði enn ekki verið tekin og yrði sjónarmiða við- komandi aðila þar um leitað. Ef málin færu ekki í lögreglumeð- ferð yrði þeim lokið innan skattkerfis- ins með skattsekt. Hún fælist í þvi að þá færu málin til yfirskattanefndar í sektarmeðferð. Skúli Eggert sagði að útflutningur einstaklinga hefði ekki verið tekinn inn í rannsóknina heldur einungis stóru útflutningsaðilarnir. -JSS Heilsudýnur t sérflokki! ^eilsunnar veG Reykjavik 581 2233 Akureyri 461 1150 t t t t t t t t t t t t t á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.