Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2001, Blaðsíða 20
24
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2001
IDV
Tilvera
Sérstætt brúðkaup undir berum himni á níræðisafmælisdegi ömmunnar:
- Þurftu ekki að skipta
um nöfn í hringunum
PV, DALVÍK:
í lok júní gengu í hjónaband Arn-
þór Guöjón Benediktsson og Sólveig
María Hjaltadóttir. Athöfnin fór
fram úti undir berum himni við
Litla-Haga í Fáskrúðsfirði, húsið
þar sem amma Amþórs átti heima.
Brúðkaupið fór fram á 90 ára af-
mæli ömmunnar. Fengu brúðhjónin
giftingarhringa ömmu og afa Arn-
þórs. Svo heppilega vildi til aö þau
hétu líka Amþór og Sólveig þannig
að það þurfti ekki einu sinni að
breyta nöthunum í hringunum.
Amma Arnþórs heitir Sólveig
Þórlaug Sigurðardóttir og afi hans
hét Arnþór Guöjón Benediktsson,
en hann lést 22. september 1997 og
var þá vistmaður á Hornbrekku á
Ólafsfirði.
Foreldrar Arnþórs eru Benedikt
Birgir Sverrisson, eigandi ráðning-
arfyrirtækisins Brúarár í Ólafsfirði
og Jóhanna Kristín Amþórsdóttir,
'*’* starfsmaður á Hombrekku. Foreldr-
ar Sólveigar eru Hjalti Haraldsson
bóndi í Ytra-Garðshorni i Svarfaö-
ardal, og Anna Sölvadóttir en hún
lést 17. júlí 2000.
Arnþór fékk tvo vini sína, sem
eru miklir tónlistarsnillingar og
reyndar hljómsveitarfélagar Arn-
þórs, til að flytja tónlist við athöfn-
ina. Byrjuðu þeir félagar að spila
léttan djass á meðan fólk var að
koma sér fyrir. Fluttur var hinn
hefðbundni brúðarmars Mendels-
__ sohns meö nokkrum breytingum og
í útsetningu þeirra félaga, og svo í
miðri athöfninni, öllum að óvörum,
fór Arnþór að syngja ástaróðinn
Mariah Carey:
Barbara
Walters
ræðir við
Carey
Sjónvarpskonan Barbara Walters,
sem fræg er fyrir að fá frægt fólk í
opinská viðtöl í sjónvarpsþáttum
sínum, hefur fengið poppstjörnuna
Mariah Carey til að koma fram í
þætti sínum 20/20 á ABC-sjónvarps-
stöðinni 12. september nk. Þar mun
Walters án efa fá Carey til að segja
frá því hvað gerðist þegar hún
brotnaði saman fyrr i mánuðinum
og lét það boð út ganga á heimasíðu
sinni að hún væri komin í tilvistar-
kreppu. Hún mun nú á batavegi og
hefur þegar tilkynnt aðdáendum
sínum það á vefsíðunni. Meðal
þeirra sem hafa komið fram í þátt-
um Barböru er Monika Lewinsky,
sem opnaði þar allar flóðgáttir um
samband sitt við Clinton Banda-
ríkjaforseta.
„Have I Told You lately“ eftir Van
Morrison, við undirleik þeirra fé-
laga og vakti það mikla lukku (hún
sagði allavega já!).
Eftir athöfnina var haldin sam-
eiginleg afmælis- og brúðkaups-
veisla i veislusal slysavarnadeildar-
innar. -hiá
Feöur og brúöhjón
Benedikt Sverrisson, brúöhjónin Arnþór og Sólveig María og Hjalti Haraldsson.
eftirminnilegt um margt.
Brúökaup þeirra var
Gleymda mótið í Galtalækjarskógi:
Lögguvæna
útimótið
DV, SUDURLANDI:____________________
„Ég held að fólk hafi fundið sig
hér í paradís i veðurblíðunni sem
lék við mótsgesti alla dagana," sagði
Aðalsteinn Gunnarsson, mótsstjóri
á útimótinu í Galtalæk. Það mót var
ekki í fréttunum, það var gleymda
útimótið, en þar voru þó tvö þúsund
manns og engin vandamál sem lög-
regla þurfti að fást við. Fjöldi góðra
skemmtikrafta kom fram á mótinu,
söngvarakeppni var haldin og
margir ungir listamenn komu fram,
Bindindisfélag ökumanna var með
reiðhjólakeppni, ökuleikni og fleira.
Á laugardagskvöldinu var brenna
og frábær flugeldasýning sem Hjálp-
arsveit skáta í Hveragerði stjórnaði
fyrir mótshaldara.
-SKH
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON.
Efnileg söngkona
Sigurvegari söngvarakeppninnar í Galtalækjarskógi, Edda Lind Styrmisdóttir
11 ára, sem söng lagiö Memory meö glæsibrag.
Hljómar
Hljómar frá Keflavík hafa svo sannarlega látiö til sín taka aö undanförnu. Þessi fornfræga sveit steig á sviö meö Ol-
senbræörum á Broadway um síöustu helgi og hélt uppi slíku stuöi eftir sýninguna aö Olsenbræöur létu hafa eftir sér
baksviös: „De er sgu megetgode. Helt fremragende!" Hljómar veröa meö dansleik á veitingahúsinu Broadway laugar-
daginn 25. ágúst og eiga gestir staöarins von á aö upplifa hina einstöku Hljómastemningu langt fram á nótt. Auk
þess aö leika öll bestu lög sín spila þeir ýmsar perlur sjöunda áratugarins.
Kim Stanley látin
Leikkonan Kim Stanley, sem gerði
garöinn frægan á Broadway á sjötta og
sjöunda áratugnum, lést á sjúkrahúsi i
Nýju-Mexíkó sl. mánudag. Stanley,
sem náði 76 ára aldri, kunni mun bet-
ur við sig á sviði heldur en í kvik-
myndum og lét gjarnan öðrum
leikkonum, eins og Marilyn Monroe
og Elizabeth Tylor, eftir kvikmynda-
leikinn eftir að hafa sjálf gert persón-
urnar ódauðlegar á sviði. Hún var
fyrst fræg á sviöi fyrir leik sinn í
stykkjunum Bus Stop, Picnic og í
Lundúnauppsetningunni á Köttur á
heitu tinþaki og hafnaði í kjölfarið
mörgum góðum kvikmyndatilboðum.
Kim fékkst þó til að leika í einum
fimm kvikmyndum á 35 ára leikferli
og var fyrsta myndin The Goddes árið
1958, en sú siðasta, The Right Stuff, ár-
ið 1983. Þrátt fyrir fá kvikmyndahlut-
verk var hún tvisvar tilnefnd til ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn i myndun-
um Seance on a Wet Afternoon árið
1964 og Frances árið 1982.