Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2001, Page 36
Subaru Impreza
FRETTASKOTIÐ
SIMINN sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2001
Seðlabankinn enn á sömu skoðun:
Engin merki
um samdrátt
- vextir verða ekki lækkaðir í bráð
Seðlabankinn heldur sig fast við fyrri
skoðun um að ótímabært sé að lækka
vexti þrátt fyrir að öll spjót standi á
bankanum um hið öndverða. Birgir ís-
leifur Gunnarsson seðlabankastjóri
sagði á fundi Verslunarráðs i gær að
launahækkanir hafi átt drýgstan þátt í
verðbólgunni og óvissa sneri enn að
endurskoðun kjarasamninga á næsta
ári. Undanfarið hafi laun hækkað langt
umfram framleiðniaukningu og viðun-
andi verðbólgu. Þessu valdi miki eftir-
spum vinnuafls sakir ofþenslu.
Seðlabankastjóri sagði litil teikn á
lofti um að spennan hefði hjaðnað og
neíhdi sem dæmi raunveltuaukningu í
greiðslukortum fyrstu sex mánuði árs-
ins. „Engin merki er enn að fmna í þess-
um tölum um samdrátt í efnahagslíf-
inu,“ sagði Birgir ísleifur.
í byrjun ágúst kynnti Seðlabankinn
spá sem gerir ráð fyrir 8,1% verðbólgu á
árinu 2001 og 2,9% næsta ár. Bankinn
stefndi að því að verðbólgumarkmiðinu
yrði náð á miðju ári 2003. Birgir Isleifur
telur að ekki sé raunhæft að bera sam-
an Bandaríkin og Island þegar rætt er
um aðgerðir í efnahagslífmu en í Banda-
ríkjunum hafa vextir lækkað undanfar-
ið. Nýjustu tölur um verðbólgu í Banda-
ríkjunum séu 3,6% en 7,9% á íslandi
sem dæmi. Reynslan sýni að verðbólgan
sé helsti óvinur fyrirtækja og heimila.
Það sé alþjóðlega viðurkennt og af þeim
sökum sé seðlabönkum um allan heim
gert að halda verðbólgunni í skefjum.
„Ég get vel fallist á að það eru ýmis
teikn á lofti um að tekið sé að draga úr
ofþenslunni hér á landi. Sú mynd er þó
fjarri því að vera skýr og ótvíræð. Við
skulum hafa í huga að það skiptir afar
miklu máli hvenær slökunaraðgerðir
eru tímasettar. Bráðlæti í þeim efnum
getur gert illt verra. Þess vegna telur
Seðlabankinn að ekki sé tilefni til að
lækka vexti frekar í bráð. I þeirri grein-
ingu var bæði litið um öxl og fram á
veg. Sú greining stendur enn,“ sagði
seðlabankastjóri. -BÞ
Sjá leiðara bls. 18
DV-MYNDIR SIGURÐUR K. HJALMARSSON
Ættingjar sáu athöfnina um gervihnött
/ gær voru gefin saman í Hálsanefshelli undir Reynisfjalli í fögru veöri þau Alison Matochak, 32 ára rithöfundur, og
Timothy Masick, 32 ára tölvugrafíkari frá New York. Sýslumaðurinn, Siguröur Gunnarsson gaf hjónin saman. Ungu
hjónin voru í Reykjavík um áramótin 2000 og hrifust svo af landi og þjóö aö þau ákváöu aö gifta sig hér. Þau komu
ríöandi til athafnarinnar sem fór fram inni í hellinum. Fjölskylda, vinir og ættingjar eru dreifö víös vegar um heiminn og
höföu ekki tækifæri til aö koma meö þeim til íslands. Var athöfnin því send í gegnum gervihnött, inn á Internetiö.
Erótík, Ijóð og
jólaplötur
I Fókus á morgun er fjallað itar-
lega um nýja plötu Bjarkar Guð-
mundsdóttur sem datt i verslanir í
vikunni, matgæðingar Fókuss
ákveða hvaða smokkategund bragð-
ast best og Tryggvi V. Líndal spjallar
um ljóð, erótík og spásseringar með
göngustaf utan skrifstofutíma. Við
skoðum hvaða plötur koma út fyrir
jólin og ræðum við Gísla Öm Garð-
arsson sem leikur í stórum leikritum
á milli þess sem hann rekur heitasta
barinn í Reykjavík. Lífið eftir vinnu
er svo nákvæmur upplýsingapakki
um viðburði helgarinnar.
Öryrkjabandalagið ósátt við framkvæmd hæstaréttardóms:
Ný málshöfðun
í undirbúningi
- vegna eignaupptöku og skerðingarákvæða
Öryrkjabandalag íslands hyggst
stefna TVyggingastofnun ríkisins fyrir
dóm á næstunni vegna vanefhda á úr-
bótum sem fylgja áttu hæstaréttardóm-
inum frá þvi í fyrra. Garðar Sverrisson,
formaður bandalagsins, segir að þessa
dagana sé verið að ganga frá nýrri máls-
höfðun sem væntanlega yrði birt stjóm-
völdum innan nokkurra vikna. Garðar
segir þessar vanefndir margvíslegar og
bandalaginu sé nú sá kostur nauðugur
að fara dómstólaleiðina á ný.
Þau atriði sem málshöfðunin snýr að
era hvort túlkun Jóns Steinars Gunn-
laugssonar hrl. á öryrkjadómnum og
lagasetningin i framhaldi af því standist
dómsorð Hæstaréttar. „Þar á ég ekki að-
eins við túlkun dómsins, heldur einnig
hertari skerðingarákvæði, afturvirkni
laganna og þá eignaupptöku sem ríkis-
stjómin keyrði i gegn. Með eignaupp-
töku á ég við að taka ófrjálsri hendi þá
tekjutryggingu sem
allir dómarar bæði
í héraði og Hæsta-
rétti dæmdu ör-
yrkjum fyrir árin
1995 og 1996,“ segir
Garðar.
„Ráðamenn jafnt
sem þjóðin verða
að fá botn í það
hvort Hæstiréttur
var að fallast á
dómkröfur okkar
eða ekki. En svo hræddir eru þeir við að
úrskurður Jóns Steinars um dóm
Hæstaréttar standist ekki að þeir hafa
ekki enn þorað að hreyfa við hinum
hefðbundnu bótaflokkum, heldur fóra
þeir þá leið í vor að flækja kerfið með
nýjum bótaflokki sem skerðist af mun
meiri þunga en tekjutryggingin, og er
þá langt til jafhað," sagði Garðar.
Eins og DV greindi frá í vikunni
stefnir nú i verulega framúrkeyrslu hjá
Tryggingastofnun á þessu ári og verði
greiðslur stofnunarinnar tæpum þrem-
ur milljörðum kr. hærri á ársgrandvelli
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þarna veg-
ur öryrkjadómurinn þyngst.
„Þegar við lesum ítrekaðar árásir
þessara manna á Hæstarétt verðum við
að hafa í huga að hér era ekki á ferð
neinir venjulegir brotamenn, heldur
fólk sem fengið hefur á sig alvarlega
dóma á siðustu tveimur áram og bíður
nú dóms eina ferðina enn. I því ljósi ber
að skoða þessa miður geðfelldu gagn-
rýni á Hæstarétt. Aldrei hefur þessum
sömu mönnum dottið í hug að gagnrýna
nýju fæðingarorlofslögin, þótt þar geti
þeir tekjuhæstu fengið igildi 5 ára tekju-
tryggingar úr sameiginlegum sjóðum
okkar á 90 dögum," segir Garðar.
-SBS
Dómsmálaráðherra um ummæli vegna löggæslu í Reykjavík:
Efast um dómgreind borgarstjóra
„Svona ummæli vekja spurningu um
fjármálalega dómgreind borgarstjóra,"
sagði Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra um orð Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur í DV i gær að ef lögreglan í
Reykjavík væri í Qárhagslegu svelti
gæti vart talist spennandi verkefni að
borgin yfirtæki löggæslu. Ráðherra seg-
ir að ummæli Ingibjargar veki furðu
þar sem árlegur kostnaður rikisins af
löggæslu I Reykjavík einni sé 1,6 millj-
arðar króna.
Ráðherra segir að þó svo að fyrir liggi
að fækka muni um allt að 25 menn í lög-
reglunni í Reykjavík i haust - þegar
ekki verður ráðið i störf þeirra sem
hætta og afleysingamenn halda til náms
Sólveig Ingibjörg Sólrún
Pétursdóttir. Gísladóttir.
i Lögregluskólanum, í því skyni að
halda embættinu innan ramma fjárlaga
- þá muni þjónustan ekki minnka. „Ég
mun leggja mikla áherslu á að íbúar
borgarinnar verði ekki fyrir skertri
þjónustu hvað þeirra öryggi snertir.
Viðbótarmenn verða kallaðir út á álags-
tímum, ef með þarf,“ sagði Sólveig.
Fram hefur komið að gert er ráð fyr-
ir að tveir tugir lögreglumanna muni
koma í lið embættisins um áramótin
þegar útskrifað verður úr Lögregluskóla
ríkisins. En með hliðsjón af því að samt
hefur ekki verið hægt að „anna eftir-
spurn“ eftir menntuðum lögreglumönn-
um, hvemig sér ráðherrann þá fyrir sér
framtíðarlausn hvað mönnun varðar?
„Við höfúm verið að stækka þá hópa
sem teknir hafa verið inn i skólann. Og
við verðum að halda því áfram. Á þetta
hefur mikil áhersla verið lögð enda býð-
ur skólinn upp á mjög góða menntun,"
Á strandstaö í morgun.
Sfrandaði við
innsiglinguna til
Suðureyrar
DV, SUÐUREYRl:
Linubáturinn Asi SH-314 strandaði
við innsiglinguna til Suðureyrar
snemma í morgun. Báturinn var að
koma úr róðri og talið er líklegt að
maður við stýri hafi sofnað. Tveir
menn voru á bátnum og sakaði hvor-
ugan. Hringt var úr bátnum klukkan
fimm í morgun og átti hann þá 11
minútur ófarnar til Suðureyrar. Þeg-
ar hann kom ekki til hafnar kom í
ljós að hann hafði strandað. Sjór
komst i lúkar og vél. Björgunarsveit-
armenn á Suðureyri björguðu mönn-
unum i land. Um sjöleytið í morgun
var von á björgunarskipinu Gunnari
Friðrikssyni frá ísafirði og átti að
huga að björgun bátsins þegar hann
væri kominn á staðinn. Tæp þrjú
tonn af fiski voru í bátnum þegar
hann strandaði. Blíðskaparveður var
þegar þetta gerðist. -VH
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
Heilsudýnur i sérflokkil
Svefn&heilsa
HeiLSUNNAR veG
Reykjavik 581 2233 Akureyri 461 1150