Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 Fréttir DV Skipulagsstjóri fellst á byggingu álvers í Reyöarfirði: Samþykkt þrátt fyr- ir verulega mengun Baugur græðir Hagnaður Baugs á fyrri helmingi líð- andi árs nam 373 milljónum kr. eftir skatta. Rekstrar- tekjur námu 13,9 milljörðum kr. og jukust um 13,7% milli ára. Sala á bæði mat og sérvöru jókst. Forstjór- inn, Jón Ásgeir Jóhannesson, segist ánægður. - skilyrði sett um búsetubann í nágrenni verksmiðjunnar Skipulagsstjóri fellst á byggingu ál- vers í Reyðarfírði eftir mat á um- hverfisáhrifum þess og var úrskurð- urinn kynntur síðdegis í gær. Viss skilyröi eru þó sett fyrir framkvæmd- inni, það er annars vegar að ekki verði búseta innan þess skilgreinda þynningarsvæðis þar sem mengunar- áhrifa álvers og rafskautaverksmiðju Mjög ánægður „Ég er mjög ánægður með úrskurð Skipulagsstofnunar. Úrskurðinn tel ég staðfesta það sem við höfum haldið fram, að vel sé mögulegt að byggja álver af þessari stærðargráðu í góðri sátt við um- hverfið," segir Geir A. Gunnlaugsson, stjómarformaður Reyðaráls. Um þau skilyrði sem sett eru í úr- skurðinum, þ.e. að ekki verði búseta innan þynningarsvæðis álversins og að fylgst verði með PHA-efnum, segir Geir að hann hafi ekki trú á öðru en því aö farsæl lending náist. -sbs Gelr A. Gunnlaugsson. Áfangasigur „Ég fagna þessari niðurstöðu og vona að úrskurðurinn sé bæði traustur og hald- góður. Þetta er mikill áfangasigur fyrir okkur sem höfum verið að berjast fyrir bygg- ingu álvers hér eystra og þar með aukinni atvinnu,“ segir Smári Geirs- son, forseti bæjar- stjórnar Fjarðabyggðar. „Hins vegar er staðan á þessum tímapunkti mjög sértök. Skipulags- stofnun hefur eftir mat á umhverfis- áhrifum samþykkt byggingu álvers í Reyðarfirði, gerð hafnar þar og lagningu háspennulína frá Kára- hnjúkavirkjun. Hins vegar leggst stofnunin gegn byggingu virkjunar- innar sjálfrar. Ég legg áherslu á að allir þættir þessa máls verða að skoðast í samhengi, þar á meðal hin samfélagslegu áhrif,“ segir Smári. -sbs Smári Geirsson. kann að gæta. Hins vegar að við um- hverfisvöktun verði fylgst með styrk PAH-efna í lofti, ákomu þeirra á jörð og afrennsli í sjó og uppsöfnun i sjáv- arseti og lífverum innan sem utan þynningarsvæðisins. Losun mengunarefna í úrskurði Skipulagsstofnunar segir að umhverfisáhrif álvers í Reyðarfirði séu margvísleg en tvennt vegi þyngst. Annars vegar áhrif á loft og sjó og á samfélag. Fyr- irhuguð rafskautaverksmiðja komi til með aö hafa í fór með sér umtals- verða losun mengunarefna, einkum brennisteinsdíoxíðs og PAH-efna. 1 úrskurðinum er á það bent aö gæði andrúmslofts og sjávar í Reyðarfiröi séu mikil, en starfsemi allt að 420 þús. t. álvers og 233 þús. t. rafskauta- verksmiðju muni hafa í fór með sér mengun andrúmslofts og sjávar í firðinum. Sérstaklega sé þetta á þynningarsvæðinu, en mörk þess á landi verða í um eins km fjarlægð frá þéttbýli í Reyðarfirði. „Á byggingartíma álvers í Reyðar- firði og hafnar við það verður mikil uppsveifla í atvinnulífi á Austur- landi. Þegar að rekstri álversins kemur telur Skipulagsstofnun að já- kvæð áhrif verði fólgin í miklum fjölda nýrra starfa en hins vegar leiki meiri vafi á því hver áhrifin verði á aðrar atvinnugreinar sem verða þá í meiri samkeppni um vinnuafl," segir í úrskurðinum. Þá segist Skipulagsstofnun telja líklegt að álver í Reyðarfiði leiði til sam- þjöppunar byggðar á Austurlandi. Kærufrestur til 5. október Enda þótt úrskurður skipulags- stjóra sé fenginn nú er ekki nema hálf sagan sögð. Umhverfisráðherra hefur siðasta orðið og úrskurðinn má kæra þangað til 5. október nk. Hefur ráð- herrann þá átta vikur til að fara yfir málið og kveða upp endanlegan dóm. Á sömu spýtu og álversmálið hangir svo úrskurður skipulagsstjóra vegna Kárahnjúkavirkjunar en kærufrestur vegna hans rennur út á miðvikudag í næstu viku. Þá hefur ráðherra átta vikurnar upp á að hlaupa til að kom- ast að niðurstöðu um hvort virkja skuli, en sem kunnugt er hefur Kára- hnjúkaúrskurðurinn verið harðlega gagnrýndur m.a. af forystumönnum ríkisstjómarinnar. Ef allt gengur eftir gætu fram- kvæmdir við álver eystra hafist snemma á næsta ári og rekstur álvers- ins árið 2006. -sbs. Tíu ára afmæli SKB Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna verður tíu ára 2. september. Af því tilefni opnuöu nokkur börn innan félagsins sýningu í Kringlunni í gær. Þar eru saga og starfsemi SKB sett upp í máli og myndum. Einnig eru til sýnis teikningar eftir börnin þar sem þau tjá minningar frá sjúkrahússvist sinni. Sýningin er á fyrstu hæö Kringiunnar (á móti versiun- inni Jón Indíafari) til 9. september. Vopnfirðingum aftur orðið rótt: Vinningshafinn sat hlæjandi heima Vopnfirðingum er aftur orðið rótt eftir að vinningshafi gaf sig fram með frægan víkingalottósmiða sem skilaði eiganda sínum 5,4 milljónum króna. Taugatitringur hefur verið á Vopnafirði síðan um mánaöamót en 31. júlí sl. seldist miði þar án þess að nokkur gæfi sig fram. Fólk hringdi í íslenska getspá og sagði sögur af týndum miðum en Guð- björg Hólm, þjónustufulltrúi hjá Lottóinu, útilokaði ekki í samtali við DV fyrir skömmu að vinnings- hafinn sæti hlæjandi heima og það kom á daginn. „Hann kom sama dag og hann gat fengið greitt. Málið var að miðinn var aldrei týndur eins og mér hafði dottið í hug,“ sagði Guðbjörg í sam- tali við DV í gær. Maöurinn er að austan en Guð- björg vill ekki upplýsa hvort maður- inn sé Vopnfirðingur. Hún segir hann fjölskyldumann og vinningur- inn hafi lent á góðum stað. „Hann sagðist alltaf hafa vitaö af þessu og svo erum viö búin að vera með svaka læti,“ sagði Guðbjörg og hló. Þeir sem freista gæfunnar hafa til nokkurs að vinna í lottópottum næstu daga. Á morgun er fjórfaldur pottur í íslenska lottóinu og stefnir í 12 milljóna króna vinning. I vík- ingalottóinu er einnig íjórfaldur pottur og verða að líkindum um 180 milljónir í pottinum þar. -BÞ Blaðið»dag Austræn ást fyrir norðan Taíland í Kelduhverfi Umdeild ráðstefna um rasisma Erlent fréttaljós Þingmaður eins og pabbi Fööurbetrungar Tónar úr djúpinu Aftur á Aston Martin Slgurbur Flosason Nýl Bond-billinn Hekluhringur opnaður Gerðar hafa verið vegabætur norðan og austan Heklu þannig að nú hefur opnast hringvegur um- hverfis fjallið. Vegurinn tengir saman Syðri- og Nyrðri-Fjallabaks- leiðir austan eldfjallsins fræga. Fréttavefur Suðurlands sagði frá. Stofna Búbót Bændur í Austur-Skaftafellssýslu hafa stofnað framleiðendasam- vinnufélag um sauðfjárslátrun á Höfn í haust. Félagið heitir Búbót og það hefur tekið á leigu sláturhús Kjötumboðsins ehf. á Höfn. RÚV greindi frá. íslendingar brotaglaðir íslendingar eru kærðir á átta mínútna fresti fyrir að brjóta um- ferðarlög og auðgunarbrot eru framin á tæplega klukkustundar- fresti. Brotist er inn í hús á fjög- urra stunda fresti og einum bíl er stolið á dag. Þetta kemur fram í árs- skýrslu Ríkislögreglustjóra sem kom út í gær. Landi i Hreppum Lögreglan á Selfossi gerði í gær við húsleit á bæ í Hrunamanna- hreppi upptæk bruggunartæki og á annað þúsund lítra af landa. Einn maður var í gærkvöld í haldi vegna málsins. Grunur er um skipulagða sölu á miðinum, segir Sjónvarpið. Fagnar niðurstöðu Halldór Ásgríms- son, utanríkisráð- herra og þingmað- ur Austílrðinga, fagnar úrskurði Skipulagsstofnunar um Reyðarfjarðar- álver. Hann minnir þó á að ekki verði ál framleitt án rafmagns og vísar þar til úrskurðar um Kárahnjúka. Visir.is sagði frá Eldisfiskur mikilvægur Eldisfiskur skiptir æ meira máli í framtíðinni, segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA. Fyrirtækið hefur hafið tilraunir með þorskeldi og er hluthafi í lúðu- eldi við Eyjafjörö. Mikilvægt er þó að fara varlega í fjárfestingar á þessu sviði. Mar.is greindi frá. Súgfirðingar á sjó Allir bátar á Suðureyri voru á sjó í gær í blíðskaparveðri. Þetta var síðasti dagur kvótaársins og menn að keppast við að fylla kvótann. Afl- inn í ágúst var góður og margir bát- ar á Suðureyri með yfir fjörutíu tonn. BB greindi frá. Útskýri Lottó-hækkun BSRB hefur ósk- að eftir því að Hag- stofan skýri út- reikninga sem leiddu til að vísitala neysluverðs hækk- aöi um 0,17% vegna hækkunar á lottómiðum. Sam- tökin segja að ekki hafi verið færð sannfærandi rök fyrir því hvers vegna lottóverðbólgan hafi valdið því að vísitölulán hækkuðu um 900 millj kr. -sbs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.