Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 37 DV Helgarblað vegað og skipulega. Þetta er maður sem hefur sett sér markmið og stefnir að því að ná því. En hve oft hefur hann sótt um íbúð hjá borginni? „Ég sótti um íbúð 1996 en umsóknin mín týndist í kerfinu. Það er ekkert einsdæmi samkvæmt því sem margir aðrir útigangsmenn hafa sagt mér. Síð- an sótti ég aftur um i fyrra og þá var mér sagt að afgreiðsla málsins gæti tekið eitt ár. í vor var mig farið að lengja eftir einhverjum svörrnn og bar um skrif- legt svar. Þá kom i ljós að ég var met- inn með eliefu stig á einhvetjum kvarða sem ég skil ekki alveg og bið- tími eftir íbúð væri því í það minnsta tvö ár. Þetta sætti ég mig ekki við.“ Á 28 meöferðir að baki Alexander ræður ekki við leigu á al- mennum markaði þar sem 75% ör- orkubætur hans eru rúmlega 50 þús- und sem bætast við smávægUegar bæt- ur frá Félagsþjónustunni svo heddar- tekjur hans á mánuði eru 61 þúsund krónur. Hann getur ekki komist inn á Hjálpræðisherinn, áfangaheimili eru engin lausn nema stuttan tíma og aug- ljóslega getur hann ekki keypt fast- eign. Alexander á að baki langa sögu af óreglu og eiturlyflaneyslu sem að hans sögn hefúr varað frá unglingsaldri. Hann hefur aðallega neytt áfengis, lyfla og amfetamíns en stöðugt barist við flknina og hefur farið í 28 áfengis- meðferðir. Hann hefur enga menntun utan skyldunám en margþætta starfs- reynslu og rak meðal annars árum saman sitt eigið fyrirtæki sem fólst í rekstri þvottahúss og fatainnflutningi. Eitt pennastrík Hann sneri baki við því öllu árið 1995 í kjölfar hjónaskilnaðar og segist sjálfur hafa eyðilagt allt með því einu að taka tappann úr flöskunni og hefja drykkju á ný eftir nokkmt hlé. Síðan hefur hann verið á hrakhólum á göt- um Reykjavíkur og ýmist gist á göt- unni, í stigagöngum, geymslum eða úti undir berum himni þegar hann hefur ekki verið í meðferðum eða fengið að liggja inni hjá vinum og kunningium eða dvalist erlendis. Síðan þetta gerð- ist hefur hann ekki stundað hefð- bundna vinnu. „Ég henti þessu frá mér með einu pennastriki, tók pokann minn og hef verið með hann síðan. Ég á þokkalega fjölskyldu úti í bæ en ég hef ekkert samband við hana og þaðan er engrar aðstoðar að vænta.“ g þá tekur ekkert nema gatan viö. ' SÍjll Alexander Björn Gíslason er útlagi í Reykjavík. Alexander segist halda að þaö séu tæplega 600 manns sem séu í raun heimilislausir á hrakhólum í Reykjavík þótt tala þeirra sem þurfa á húsnæöi aö halda sé nærri 3000. Hann getur í fljótu bragöi taliö saman athvörf og áfangaheimili sem rúma nokkur hundruö manns sem eru aö stórum hluta heimilisleysingjar. Hústaka á Hverfisgötu Alexander hefur leitað ýmissa leiða í leit sinni að þaki yflr höfuðið. „Ég og félagi minn gerðumst reynd- ar hústökumenn á Hverfisgötu á síð- asta ári og fluttum meira að segja lög- heimili okkar þangað. Þar bjuggum við í þrjá mánuði án vitundar eiganda hússins en með fullri vitneskju Félags- þjónustunnar." Alexander segir að engum sé hleypt inn á Hjálpræðisherinn nema með bréf frá Félagsþjónustunni. Gistiheimilið í Þingholtsstræti er mikið sótt af drykkjumönnum og því forðast þeir sem eru að reyna að halda sér frá neyslu þann félagsskap. Menn sofa í geymslum og stigagöngum og skríða inn hjá kunningjum. Þeir sem eru í neyslu leita á Kaffi Austurstræti og Kaffi Stíg á Rauðarárstíg. „Það sofa margir undir tröppum á sumrin eða banka upp á hjá löggunni. Þeir hafa verið mjög almennilegir við fólk þótt ég hafi sem betur fer aldrei leitað þangað sjálfviljugur. Menn sofa í sturtunum á tjaldstæðunum og hér og þar. Menn eru inni á börunum. í fyrra svaf 5-6 manna hópur á Klambratúni og þaðan er stutt hér eftir Rauðarár- stígnum með viðkomu í sjoppunni Draumnum og út á Hlemmtorg. Þar er botninn en margir leita skjóls hjá Sam- hjálp á Hverfisgötunni." Alger vítahringur Eftir hjónabandið á Alexander tvö börn, 12 og 6 ára sem hann hefur lítið sem ekkert getað sinnt með eðlilegum hætti og telur hann það vera brot á mannréttindum sínum og þeirra. „Þetta er alger vítahringur og stjómvöld hafa ekkert gert til þess að reyna að leysa þessi mál. Þegar það fréttist að ég væri kominn með lög- mann var ég kallaður á fund og þá var mér lofað íbúð í næstu úthlutun. Mitt svar var nei. Þeir verða fyrst að útvega þeim 100-150 manns sem eru á undan mér á listanum íbúð. Kerfið í heild og félagsmálayfirvöld hafa árum saman verið að nauðga líknarfélögum eins og Byrginu og fleir- um. Þangað er fólki sem er á götunni ýtt markvisst en þessum sömu félög- um eru skammtaðir smáaurar frá borginni til þess að sinna skyldum sem hún vanrækir. Það er erfitt að meta hver er á göt- unni og hver ekki en það er öruggt mál að það kemst enginn inn á þennan biðlista nema hann búi við mjög erfið- ar aðstæður." - En hvemig getur heimilislaus ör- yrki ráðið sér lögfræðing? „Við teljum rétt okkar til gjafsóknar skýlausan og höfum sótt um hana. Verði því hafnað þá hef ég orðið var við mikinn áhuga ónefndra aðila á að styrkja þetta mál og til þeirra munum við leita.“ Líf útlaganna Á gistiheimilinu fær Alexander gist- ingu og morgunmat en þær tekjur sem hann hefur draga í rauninni mjög skammt þegar kemur til þess að fæða sig og klæða og sinna lágmarksgrunn- þörfum. Hann segir að oftar en ekki sé hann nær peningalaus um miðjan mánuð en segist í raun vera meðal þeirra heppnu því hann hafi góða gist- ingu um þessar mundir. En hvað tek- ur svo við? „Maður hefur ekki til hnifs og skeið- ar og lífið gengur út á að bjarga sér. Um helgar eru engin athvörf opin í Reykjavík. Þá reika hinir heimilis- lausu um götumar og maður sér stöku sinnum nunnur sem ganga um meðal smælingjanna og gefa þeim kaffi og samlokur. Þessi hjálp kemur að utan sem er kaldhæðnislegt en staðfestir að úrræðin eru nákvæmlega engin.“ Eins og dauöadómur Alexander hefur flækst um allan heim og kynnst fólki í öllu mannfélags- stiganum, allt frá ráðamönnum yfir til útigangsfólks. Hann segir út í hött að bera Reykjavík saman við aörar stór- borgir þar sem víðast hvar séu neyðar- athvörf fyrir útigangsfólk sem taki við þegar önnur úrræði þrjóti. Einhvers staðar á þessum þvælingi hefur Alexander lent í heldur óheppi- legum félagsskap því í ágúst í fyrra uppgötvaðist fyrir tilviljun aö hann væri HlV-smitaður. „Ég var þá staddur í Hegningarhús- inu þar sem ég var að afplána eina dóminn sem ég hef fengið fyrir slags- mál. Ég var eitthvað slappur og fór til læknis í blóðrannsókn. Þegar ég fór svo í viðtal sá ég skjal fremst í möpp- unni hans þar sem stóð að ég væri HlV-smitaður. Þannig frétti ég það. Hann hefur sjálfsagt haldið að ég vissi þetta og ég er ekkert að áfellast hann.“ - Veistu hvernig eða hvenær þú smitaðist? „Nei. Læknarnir segja að ég hafi sennilega verið smitaður síðan 1999.“ - Hvemig varð þér við? „Þetta er að sumu leyti eins og dauðadómur og það komu dagar sem vom mér afar erfiðir. Ég er að reyna að lifa með þessu. Þetta er afleiðing af minni neyslu og ég get ekkert gert nema sætta mig við það.“ - Sérðu fyrir þér leið út úr stöð- unni? „Þegar húsnæðismálin em í höfn þá get ég tekist á við næstu tröppu sem er vinnumarkaðurinn. “ - Hvernig halda menn andlegri reisn og sjálfsvirðingu í þessum erfiðu aðstæðum? „Ég geri það með því að beijast fyr- ir þessum málstað og með því að tala um þessi mál við til dæmis fólk eins og þig. Ég á góðan bandamann og trúnað- arvin sem ég blæs út við og hann skammar mig í staðinn." PÁÁ Kaffi Austurstræti. Athvarf þeirra útigangsmanna sem enn eru í neyslu. Hlemmur Höfuöstöövar útigangsmanna í Reykjavík. Hérgeta menn setiö daglangt í friöi. Samhjálp á Hverfisgötu. Hér leita menn skjóls en Alexander segir hiö opinbera nauöga líknarfélögum eins og Samhjálp. Draumurinn Áfangastaöur á leiö útlaganna frá Klambratúni út á Hlermm. Hvað eru marg- ir á götunni? Eins og fram kemur í viðtalinu við Alexander Björn Sveinsson er deilt um fjölda heimilislausra í Reykjavík. Alexander gerði eftir- farandi úttekt á stöðunni og naut við það fulltingis Leigjendasam- takanna. Gistiskýlið: 184 einstaklingar gistu árið 2000, Rauði krossinn telur 12 börn vera á götunni (Mbl. 16.6 2001) Byrgið: 226 á götunni. Einstaklingar á áfangaheimil- um: 140 Einstaklingar á gistiheimilum: 30 Á hrakhólum hjá ættingjum: ca 600 Óstaðsettir í hús í Reykjavík: 290 Á biðlista ÖRBÍ eftir húsnæði: 450 Á biðlista Stúdentaráðs eftir húsnæði: 440 Á biðlista Félags einstæðra for- eldra: 70 Á biðlista hjá Svæðisskrifstofu fatlaðra: 132 Á biðlista Félagsþjónustu Reykjavíkur í ágúst sl.: 601 Á skrá leigumiðlana: 320 Alexander telur að 592 af þess- um hóp séu á algerum hrakhólum. Leigjendasamtökin telja 3.000 íbúðir vanta til að sinna brýnustu þörfinni og þessar tölur ættu að skýra að einhverju leyti hvernig sú tala er fundin. Sjö dóu „Sjö einstaklingar, sem verið hafa skjólstæðingar skýlisins mörg undanfarin ár, létust á ár- inu. Sumir þeirra alltof ungir, því miður. Þannig var einn 28 ára, annar 30 ára, tveir 33 ára, tveir 35 ára og loks einn 67 ára. Ekki fund- ust úrræði sem leyst gátu þessa einstaklinga úr viðjum mikillar áfengissýki. Er það miður eins og miklum fiárhæðum er varið til meðferðar áfengissýki í þjóðfélag- inu.“ (Úr ársskýrslu Gistiheimilisins fyrir áriö 2000)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.