Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 Helgarblað I>V Barn myrt til fjár - og gamalmenni fylgdi með Þann 12. júní 1997 klæddi Robbie Brewington sig hljóðlega, safnaði saman nauðsynlegum pappírum, læddist út og ók á brott í bíl sínum. Á bænum í Norður- Karólínaríki voru eftir amma Robbies, 82 ára gömul, og átta ára gamall bróðursonur hans, Brian Brewington. Drengurinn og langamma hans sváfu í sitt hvoru rúminu í svefnherbergi sínu. Heimilishagir voru þannig að Robbie, 34 ára gamall, var trúlof- aður stúlku að nafni Vera Lee, en hann byrjaði að halda við hana þegar hún var 14 ára. Amma gamla, Frances Brewington, ann- aðist að mestu sonarson sinn, sem foreldrarnir voru búnir að yfir- gefa og lá faöir drengsins í dópi og aumingjaskap. Móðirinn vildi ekkert af honum vita. Og amma gamla og Robbie kærðu sig ekkert um að hafa strákinn heldur en neyddust til að hýsa hann vegna skyldleika. Sú gamla var líka á móti ráðahag Robbies og Veru Lee, sem orðin var tvítug þegar hér var komið. Framkvæmdin Þegar bíll Robbies var úr aug- sýn læddust tvær manneskjur út úr skóginum og inn í ólæst íbúð- arhúsið. Þar var Vera Lee á ferð ásamt nágranna sínum, Michael McKeithan, 18 ára gömlum, hor- uðum og taugastrekktum pilti. Þau héldu beint inn í svefnher- bergið þar sem gamla konan og barnið sváfu. Michael hélt á bens- ínbrúsa og hellti úr honum um herbergið og Vera skvetti úr öðr- um brúsa í eldhúsinu. Síðan gekk hún að rúmi Brians með hníf í hönd, en hætti við að stinga krakkann þar sem eldurinn mundi gera sitt gagn. Hins vegar tók Michael hnífinn og stakk gömlu konuna nokkrum sinnum. Síðan báru þau eld að bensín- inu í svefnherberginu og eldhús- inu og hurfu á brott. Enginn kœrði sig um að sjá fyrir Bri- an Brewington, átta ára gömlum dreng sem foreldrarnir yf- irgáfu. En frœndi hans sá hvernig hœgt var að grœða á barninu með því að myrða það. Grunsemdir vakna Klukkan 6.10 sama morgun var aðstoðarlögreglustjóri Harnett- sýslu á leið í vinnuna er hann sá eldinn og gerði slökkviliðinu þeg- ar viðvart. Það kom á vettvang 14 mínútum síðar og gekk greiðlega slökkva eldinn, sem náði ekki að breiðast út úr svefnherberginu og eldhúsinu. Yfirleitt er erfitt að finna sönn- unargögn fyrir íkveikjum þar- sem þau eru oftast brunnin þegar rannsókn hefst. En hér lá ljóst fyr- ir hvað gerðist vegna þess hve skammt var frá þvi að kveikt var í og eldurinn var slökktur. Það er strax grunsamlegt þegar eldur kviknar á fleiri en einum stað samtimis. Hálibrunninn plast- brúsi með slatta af bensini fannst á svefnherbergisgólfinu og annar i stofunni, sem var óbrunnin. Hitinn i svefnherberginu var magnaður og voru fætur Frances gömlu kolbrunnir en lík bamsins lá kolbrunnið á gólfinu. En bæði höfðu þau reynt að komast út úr brennandi svefnherberginu, því líkin fundust milli rúmanna og dyranna. Það var ekki fyrr en síð- ar um daginn er líkin voru hreyfð að stungusárin á þeirri öldruðu komu í ljós. Þá var augljóst að íkveikjan átti að leyna morði. Við krufningu kom í ljós að lungu drengsins voru full af sóti og að hann hafði kafnað áður en eldurinn brenndi hann. Sömuleið- is var dánarorsök gömlu konunn- ar köfnun en ekki hnífstungurnar. Margsaga í fyrstu Þar sem eldurinn náði ekki að eyðileggja nema hluta hússins varð fljótlega ljóst að þriðji íbúinn var ekki í húsinu. Þegar haft var samband við Robbie í vinnunni þóttist hann verða undrandi og sorgmæddur þegar honum voru sögð tíðindin. En hann var fljótur að komast að upptökum eldsins. Hann sagðist hafa tekið eftir ein- hverjum hávaða i viftu í hitakerf- inu um nóttina og hlyti hún að hafa orsakað íkveikjuna. Þá var maðurinn beðinn að koma á lög- reglustöðina til að gefa skýrslu. Þar var honum sagt frá bensín- brúsunum og öðrum sönnunar- gögnum um að kveikt hefði verið í húsinu. Þá breytti náunginn sögu sinni og skýrði nú lögegl- unni frá því að drengurinn Brian hefði kveikt í. Ekki vantaði skýr- inguna á athæfi barnsins. Amma hans, mamma Robbies, var látin og var drengurinn miður sín af sorg og hefði því kveikt i húsinu. Sagðist Robbie hafa séð þegar Bri- an litli hellti bensíninu og kveikti í. Hafi hann þá flúiö í skyndi og ekki viljað verða vitni að harm- leiknum. Hann gekkst undir að segja þessa sögu tengdur við lyga- mæli. Hann kolféll á því prófi. Eftir það stóð bunan upp úr honum um vel undirbúinn glæp. Hann og Vera ætluðu að gifta sig en skorti fé til að hefja búskap. Þá datt þeim í hug að kaupa líftrygg- ingu fyrir Patrick, dópistann föð- ur Brians, og myrða hann með of stórum skammti. Ráðagerðin var að þau ættu að fá trygginguna fyr- ir að sjá fyrir Brian litla. Þá datt þeim enn betra ráð í Robbie Lagði á ráðin um tvöfalt morð og íkveikju en þóttist hvergi hafa komið nærri. Michael Féllst á að myrða fólk og kveikja I fyrir peninga sem hann fékk aldrei að njóta. hug. Að líftryggja bamið líka og myröa það og slá þannig tvær flugur í einu höggi. Til að fá aurana óskipa átti líka að kála ömmunni, Francis gömlu. Þetta gekk eftir og gekk Robbie frá líftryggingunum. Trygginga- skírteinin fundust í bíl hans. Kirkjurækin skötuhjú Þegar kom að játningum um morðin kom f ljós að skötuhjúin fóru að svipast um eftir manni til aö fremja verknaðinn. Vera sagði vinkonu sinni að þau væru tilbú- inn að greiða þúsund dollara fyrir ómakið. Síðar samdi hún við ná- granna sinn, Michael McKeithan, um að vinna verkið. Þegar að því kom var hann svo us, taugaóstyrkur að Veru þótti viss- ara að vera með honum svo að hægt væri að ganga sómasamlega að verki. Þegar þau voru handtek- in tólf klukkustundum eftir að þau frömdu verknaðinn játuðu þau bæði, enda lá þá vitnisburður Robbies fyrir og næg voru sönn- unargögnin til að sakfella þau. Sveitungunum komu þessir at- burðir mjög á óvart. Þau Vera og Robbie voru kirkjurækin og var hann stundum meðhjálpari og ekki fór sérstaklega illt orð af þeim. Þegar kom að réttarhöldum neituðu þeir Robbie og Michael að svara spurningum og báru fyrir sig stjórnarskrábundinn rétt til að neita að vitna gegn sjálfum sér í glæpamáli. Dómarnir í réttarhöldunum kom fram að Vera hafði verið misnotuð sem barn og öllum var ljóst að hún hafði átt í ástarsambandi við Robbie síðan hún var 14 ára göm- ul. Hún var dæmd til dauða. Skömmu síðar skar hún sig á púls í fangelsinu og var flutt f ofboði á sjúkrahús. Og þaðan aftur í fang- elsið. Kviðdómur fór fram á að fá að úrskurða á ný og var útkoman sú að dauðadómi var aflétt, Vera var dæmd f tvisvar sinnum lífstíðar- fangelsi. Hún mun þvf aldrei fá frelsi á ný. Robbie Brewington og Michael McKeithan vor báðir sakfelldir fyrir tvöfalt morð. Robbie hlaut dauðadóm en Michael slapp með lífstíðarfangelsi og var tekið tillit til þess hve samvinnuþýður hann var við að upplýsa glæpinn. Þau græddu á moröinu En þetta var ekki endir málsins. Foreldrar Brians litla sáu sér nú leik á borði og kröfðu tryggingafé- lagið um líftryggingu sonarins, sem þau vildu ekkert vita af í lif- anda lífi. Lögmaður þeirra benti á að tryggingafélagiö hefði átt að vita að eitthvað bjó undir þegar átta ára gamall og heilbrigður strákur var líftryggður fyrir háa upphæð. Þar með var reynt að gera tryggingafélagið samsekt. Fremur en að standa í dýrum málaferlum og láta blöðin auglýsa hvaða þátt félagið átti í viðbjóðs- legum glæp var samið um að greiða foreldrunum 2,1 milljón dollara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.