Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 46
* 54 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________py Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson s « li 1. sept. 90 ára Rósa Pálsdóttir, €gisgrund 14, Skagaströnd. 35 ára_________________________ 3uðjón Magnússon, tleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. luðrún Hjartardóttir, trahólum 4, Reykjavík. 30 ára_________________________ -tulda Jónsdóttir, Skarðshlíð 14a, Akureyri. Ingibjörg Pétursdóttir, Mýrarbraut 2, Blönduósi. Jón Páll Pétursson, Noröurbrún 1, Reykjavík. Margrét Ólafsdóttir, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Svana Jónsdóttir, Sólheimum, Ólafsfirði. 75 ára_____________________ Haukur Magnússon, Brekku, Blönduósi. Sveinbjörn Ingimundarson, Álfaskeiöi 43, Hafnarflröi. 70 ára_____________________ Beta Guðrún Hannesdóttir, Hamrabergi 7, Reykjavík. Ólöf Guðlaug Sigurðardóttir, Garðabraut 3, Akranesi. 60 ára_________________________________ Ester Óskarsdóttir, Kirkjuvegi 20, Vestmannaeyjum. Jakobína Ólafsdóttir, fyrr- um bóndi í Hellutúni, Lauf- skálum 3, Hellu verður sextug í dag. Jakobína er fædd og uppalin í Hellu- túni! Ásahreppi í Rangár- vallasýslu. Eiginmaður hennar var Gylfi Jónasson bóndi, f. 30.11. 1937. Hann lést 2.3. áriö 2000. Jón Hákon Jónsson, Reykjavík. Conný Hansen, Torfufelli 11, Reykjavlk, veröur sextug I dag. Hún og eiginmaður hennar, Baldur Sveinn Scheving, verða að heiman í dag. Ingibjörg Aradóttir, Espigerði 4, Reykjavík. Óli Guðmarsson, Hamraborg 34, Kópavogi. Ólöf Árný Antonsdóttir, Laxakvísl 29, Reykjavlk. Sigurbjörg Rósa Þórhallsdóttir, Tjaldanesi 17, Garðabæ. Sigrún G. Sigurðardóttir, Krummahólum 4, Reykjavík. . Þórey Sveinsdóttir, Kambaseli 18, Reykjavík. Fjarðarasi 12, 50 ára 40 ára___________________________ Dísa Guðrún Sverrisdóttir, Hellisbraut 8b, Króksfjarðarnesi. Elísabet Björg Gunnarsdóttir, Kambageröi 4, Akureyri. Guðrún Einarsdóttir, Dofrabergi 25, Hafnarfirði. Laufey Kristjánsdóttir, Laugartúni 13, Akureyri. Sigurjón Runólfsson, Furugrund 39, Akranesi. Særún Sigurðardóttir, Hrafnhólum 4, Reykjavík. Sigurður Guðmundsson kennari, Austur- brún 2, Reykjavík, andaðist á hjarta- deild Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 28. ágúst. Gunnar Óli Ferdinandsson, Sóltúni 8, áður Langholtsvegi 166, Reykjavík, lést fimmtudaginn 30. ágúst. Inga Berg Jóhannsdóttir, Hlíðarhúsum 3-5, Reykjavík, áður Sléttuvegi 11, lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudag- inn 29. ágúst. Baldvin Rúnar Helgason, Smyrlahrauni 37, Hafnarfiröi, lést aðfaranótt miðviku- dagsins 29. ágúst á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi. Sjötug Guðrún Anna Kristjánsdóttir húsmóðir Guðrún Anna Kristjánsdóttir (Dúna), húsmóðir og fyrrum ræsti- tæknir, Furulundi 13F, Akureyri, verður sjötug á morgun. Starfsferill Guðrún Anna fæddist að Básum í Grímsey í Eyjafjarðarsýslu en fór fjögurra ára að Núpi í Dýrafirði og flutti svo síðar til Akureyrar. Guð- rún Anna stundaði nám við Núps- skóla i Dýrafirði og við Húsmæðra- skóla Akureyrar 1949-50. Hún stundaði húsmóðurstörf í rúm fimmtíu ár og ræstitæknir í tuttugu og fjögur ár. Guðrún Anna átti heima á Hjalt- eyri í sextán ár þar sem maður hennar var vélfræðingur við síldar- verksmiðjuna um tuttugu ára skeið. Hún er félagi í Kvenfélagi Akureyr- arkirkju og starfar í Rebekku- stúkunni nr. 2 Auði Oddfellowregl- unni. Fjölskylda Guðrún Anna giftist 2.9. 1950 Sig- mundi Óla Reykjalín Magnússyni, f. 4.12. 1923, fyrrv. umdæmisstjóra Vinnueftirlits ríkisins á Norður- landi eystra, en hann er sonur Magnúsar Símonarsonar, hrepp- stjóra í Grímsey, og Siggerðar Bjarnadóttur húsfrúar. Böm Guðrúnar og Sigmundar: 1) Þórir Ottó, f. 12.12. ‘50, d. 3.2. ‘73. Sambýliskona hans var Svan- hildur Björk f. 4.6. ‘47, d. 20.9. ‘93. Þeirra sonur er Þórir Sigmundur f. 8.10. ‘73, íþróttakennari á Selfossi, kvæntur Guðrúnu Erlu Gísladóttur iþróttakennara. Þeirra börn eru Gísli Fannar og óskírð dóttir, sonur Guðrúnar er Atli Jakob. 2) Þórný Krístín f. 11.05. ‘54, fyrrv. bankamaður og verslunarmaður í Reykjavík, var gift Guðmundi Sig- urbjörnssyni húsasmiði. Þeirra börn eru: Björn Þór Guðmundsson f. 12.9. ‘74, húsasmiður, í sambúð með Unni Ingimundardóttur, hans börn eru Aníta Lind og Guðmundur Hreiðar; Arna Rún f. 01.08. ‘78, leið- beinandi, hennar börn eru Alex- andra Gná og ísabella Gná. 3) Stefanía Gerður f. 09.06. ‘58 leikskólakennari og tæknifulltrúi á Akureyri, gift Helga Jóhannessyni verkfræðingi, þeirra börn eru: Anna Kristín, f. 5.11. ‘77, leikskól- stjóri, í sambúð með Smára Sigur- björnssyni símvirkja; Magnús Gunnar f. 14.11. ‘80, stúdent; Jónína Björg, f. 14.08. ‘89; Helga Þóra, f. 18.11. ‘91. 4) Sigrún Hulda, f. 4.3. ‘63 ferða- málafræðingur 1 Reykjavík, maki Finnbogi Rútur Jóhannesson, húsa- smiðameistari og iðnrekstrafræð- ingur, þeirra börn eru: Einar Jó- hannes, f. 3.9. ‘83, nemi í VÍ; Þórir Freyr, f. 6.2. ‘92, og Finnbogi Rútur f. 13.4. ‘94. Guðrún Anna átti sex systkini en á nú eina systur á lífi, Þórhildi Björgu (Dúllu), ekkju Jóhanns Kr. Jónssonar, skrifstofustjóra á Húsa- vík. Fósturforeldrar Guðrúnar Önnu voru Sigtryggur Guðlaugsson, f. 1862, d. 1959, prestur, stofnandi og skólastjóri ungmennaskólans á Núpi í Dýrafirði, og Hjaltlína Mar- grét Guðjónsdóttir, f. 1890, hús- freyja. Frá 10 ára aldri var Guðrún í Grímsey hjá Guðrúnu Bjarnadótt- ur og Sigmari Ágústssyni. Foreldrar Guðrúnar Önnu voru Kristján Guðmundur Eggertsson, f. 1893, d. 1963, og Guðrún Þórný Jó- hannesdóttir, f. 1896, d. 1935, hús- freyja. Kristján var bóndi og kenn- ari á Víkingavatni, sýslunefndar- maður og sýsluskrifari á Akureyri, útibússtjóri KEA í Grímsey og síð- ast skrifstofumaður hjá KNÞ á Kópaskeri. Guðrún Þórný var frá Krossdal í Kelduhverfi, systkini hennar voru Þórhildur Björg, gift Ásmundi Eiríkssyni, forstöðumanni Hvítasunnusafnaðarins í Reykjavík, og Þórarinn bóndi i Krossdal. Ætt Systur Kristjáns Guðmundar voru Helga Kaaber, Guðbjörg, Mar- ía, Ástríður og Kristjana Anna, móðir Eggerts skipstjóra og Sigurð- ar, b. og fræðimanns í Hvítárholti, Sigurmundssona. Kristján Guð- mundur var sonur Eggerts Jochumssonar, kennara og sýslu- skrifara á ísafirði, bróður Matthías- ar þjóðskálds. Meðal hálfbræðra Kristjáns voru, samfeðra, Samúel skrautritari og Matthías prestur í Grímsey. Eggert var sonur Jochums, b. í Skógum í Þorskafirði, Magnússonar. Móðir Jochums var Sigriður, systir Guðrúnar, langömmu Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar. Sigríður var dóttir Ara Jónssonar, b. á Reykhólum, og konu hans, Helgu Ámadóttur, prests í Gufudal, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri, Jónssonar, langafa Jóns for- seta. Móðir Eggerts Jochumssonar var Þóra, tvíburasystir Helgu í Hall- bjamarnesi ömmu listamannsins Muggs, og systir Guðrúnar, ömmu skáldanna Herdísar og Ólínu Andr- ésdætra. Þóra var einnig systir Guð- mundar, prests og alþingismanns á Kvennabrekku, fóður Theodóru skáldkonu. Móðir Kristjáns Guðmundar var Guðrún, systir Kristínar, móður Sig- urðar, skólastjóra á Laugum, Gísla ritstjóra og Filippíu skáidkonu (Hugrúnar) Kristjánsbarna, en son- ur Hugrúnar er Helgi Valdimarsson iæknir. Guðrún var dóttir Kristjáns, b. í Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal, Jónssonar, og Sólveigar Jónsdóttur, b. í Syðra-Garðshorni, Jónssonar. Foreldrar Guðrúnar Þórnýjar voru Jóhannes Sæmundsson frá Narfastaðaseli í Reykjadal, og kona hans, Sigríður Þórarinsdóttir frá Víkingavatni, Föðurbróðir Guðrún- ar var Friðrik, faðir Sæmundar, framkvæmdastjóra Stéttarsambands bænda og Barða, fyrrv. fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bandsins. Jóhannes var sonur Sæ- mundar, b. í Narfastaðseli, Jónsson- ar. Móðir Jóhannesar var Þómý Jónsdóttir, b. á Fjöllum, Gottskálks- sonar, b. á Fjöllum, Magnússonar, ættfóður Gottskálksættarinnar, fóð- ur Magnúsar, afa Benedikts Sveins- sonar alþingisforseta, afa Halldórs Blöndals, forseta Alþingis, og Björns Bjamasonar menntamálaráðherra. Meðal móðursystkina Guðrúnar Þórnýjar var Björn, faðir Sveins, bónda á Víkingavatni, og Þórarins, skólameistara á Akureyri. Sigríður, amma Guðrúnar Þómýjar, var dótt- ir Þórarins, b. á Víkingavatni, Björnssonar, b. á Víkingavatni, bróður Þórarins, afa Jóns Sveins- sonar, Nonna, og langafa Árna Óla. Annar bróðir Bjöms var Grímur, langafi Sveins Víkings prests og Sveins Þórarinssonar listmálara. Björn var sonur Þórarins, b. á Vík- ingavatni, Pálssonar. Guðrún Anna verður með fjöl- skyldu sinni á afmælisdaginn. 'Vf]:*--'-;' ::k\ . Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur, deildarstjóri á skólaskrifstofu Reykjanesbæjar, Hraunstíg 5, Hafn- arfirði, verður fertugur á morgun. Starfsferill Gylfi fæddist í Kópavogi en ólst upp í Keflavík. Hann tók stúdents- próf frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1983, B.Ed-próf frá Kennaraháskóla Islands 1986, sálfræði sem aðalgrein frá Háskóla íslands 1992 og meist- arapróf í sálarfræði (cand. psych) frá Háskólanum í Árósum 1997. Gylfi vann ýmis sumarstörf á fiöl- brautaskólaárum og var kennari við Glerárskóla 1986-1988. Hann starfaði sem meðferðarfulltrúi á unglingageðdeild Landspítalans 1988-1992, var forstöðumaður á sambýlinu við Holtaveg 1992-1994, sálfræðingur við göngugeðdeild barna og unglingageð- deildar í Viborg í Dan- mörku 1997-1999. Frá þvi hefur Gylfi verði deildar- stjóri sérfræðiþjónustu á skólaskrifstofu Reykjanes- bæjar. Gylfi var í stjórn Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1982-1983 og var ritari i Stjórn SSÍ Stéttarfélags sálfræðinga á íslandi 2000-2001. Hann átti sæti í Stefnu- mótunamefnd um málefni nýbúa í Reykjanesbæ 2000-2001. Gylfi hefur haldið fiölda fyrirlestra og nám- skeið, m.a. um uppeldismál og böm með sérþarfir. Þá hefur hann skrif- að greinar um uppeldismál og stangaveiði í dagblöð og tímarit. Fjölskylda Þann 14.9. 1991 giftist Gylfi Gyðu Hjartardóttur, félagsráð- gjafa og félagsmálastjóra í Sandgerði, f. 26.2. 1967. Foreldrar hennar eru Hjörtur Ingi Vilhelmsson verslunarmaður, Reykja- vík, og Ingibjörg Guð- mundsdóttir skrifstofu- kona, Reykjavík, d. 1.03.1973. Börn Gylfa og Gyðu eru: l) Ingi- björg Gylfadóttir, f. 24.5. 1992; 2) Adda Guðrún Gylfadóttir, f. 9.12. 1995. Systkini Gylfa eru: 1) Bára Kol- brún Gylfadóttir, nemi í sálfræði í Háskóla íslands, f. 23.3. 1979; 2) Sveinn Gunnar Gylfason f. 9.4. 1966 d. 4.4. 1983. Foreldrar Gylfa eru Gylfi Guð- mundsson, skólastjóri Njarðvíkur- skóla og Guðrún Jónsdóttir, kenn- ari við Njarðvíkurskóla. Ætt Foreldrar Guðrúnar eru Bára Sveinbjörnsdóttir húsmóðir frá Skagafirði, látin, og Jón Sæmunds- son, fyrrv. vélstjóri Foreldrar Gylfa voru Guðmundur Helgason, prestur frá Melshúsum, Hafnarfirði, látinn, og Hulda Sveinsdóttir húsmóðir frá Bolung- arvík, látin. Guðmundur var sonur Helga, sjó- manns í Ásbúð í Hafnarfirði, Guð- mundssonar, sjómanns á Hellu í Hafnarfirði, Guðmundssonar og konu hans, Guðrúnar Þórarinsdótt- ur, bónda og smiðs í Fornaseli á Mýrum vestra, Þórarinssonar. Sveinn faðir Huldu var sonur Hall- dórs, hálíbróður, sammæðra, séra Sigurðar á Vatnsenda og síðar verslunaráðs-ritara í Reykjavík, Guðmundssonar. Fertugur Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur Onnur afmælisbörn helgarinnar Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður á ísafirði, verður 48 ára á morgun. Ólafur tók stúdentspróf frá MR 1972 og lögfræðipróf frá HÍ sex árum seinna. Hann hef- ur starfað sem sýslumaður frá ár- inu 1991 en var áður meðal annars skattstjóri Vestfiarðaumdæmis. Ólafur Helgi er einnig þekktur fyr- ir áhuga sinn á hljómsveitinni Rolling Stones. Söngkona Ruth Reginalds er 36 ára í dag. Ruth var vinsæl barna- stjama á sínum yngri árum og byrjaði að syngja aðeins sjö ára. Á þeim tíma gaf hún út fimm breið- ■hmk—i skífur, eina ævintýra- VkJ plötu auk þess sem lög V' a með henni komu á P t? -jW safnplötum. Hennar [k M fyrsta sólóplata frá því 'jB hún var fiórtán ára kom út í fyrra og heit- ir Ruth. Meðal laga á þeirri plötu eru Jam Side Up og I Will Get There. 7 Jjrval - gott í hægíndastólinn Þú nærð alltaf sambandi við okkur! Smáauglýsingar (D 550 5000 alla vlrka daga kl. 9-22 sunnudaga kl. 16-22 550 5000 dvaugl@ff.is hvenær sólarhringsins sem er V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.