Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 25 Helgarblaö Brad Pitt: Tók þátt í Jackass og var rænt Leikarinn Brad Pitt á það sameig- inlegt með fleiri stjörnum að meira er fiallað um hjónaband hans í fjölmiðl- um en það sem hann raunverulega starfar við sem er að leika. Pitt á greinilega sérstæð áhugamál eins og sést á því sem hann gerir í frítíma sínum. Meðal þess er að koma fram í þættinum Jackass á MTV sem er afar einkennilegur. Þátturinn snýst um að umsjónarmenn fremja ýmis heimsku- leg áhættuatriði, eins og synda í skolpræsum, renna sér á skíðum nið- ur brattar skógarbrekkur að sumar- lagi, bruna á hjólabrettum yfir um- ferðargötur og fleira einkennilegt. Pitt hefur gam- an af því að láta eins og fífl og hefur komiö fram í þættinum Jackass á MTV. Brad Pitt hefur tvisvar komið fram í þættinum og í fyrra skiptið brunaði hann, klæddur í apabún- ing, á körtubíl um götur Los Angeles og hræddi líftór- una úr vegfarend- um sem óttuðust greinilega mjög að mæta vélknúnum ökutækjum sem stýrt væri af mannapa. Þeir hafa sennilega aldrei kynnst íslenskri umferðarmenningu. í næsta þætti tók Pitt þátt í svið- settu mannráni. Hann var á gangi á götu þegar sendibíll nauðhemlaði við hlið hans, menn stukku út og vöðluðu honum inn í bílinn með valdi. Það sem var leiðinlegt við þessa uppá- komu var að venjulegir vegfarendur báru kennsl á Pitt og reyndu að koma í veg fyrir þann hörmulega glæp sem þeir töldu vera í uppsiglingu. Þetta olli miklum leiðindum og geðshrær- ingu hjá þeim saklausum aðdáendum sem í þessu lentu. Billy Bob Thornton: Vill fá aö syngja Billy Bob Thomton stórleikari þykir góður fyrir sinn hatt. Hann er þekktur fyrir afrek sín á hvíta tjald- inu en ekki síður frægur fyrir að vera eiginmaður Angeline Jolie. Hún hefur verið mjög iðin við að lýsa nánum samskiptum þeirra hjóna fyrir fjölmiðlum og margir vita meira um hjónalíf þeirra en þeir kæra sig um. En þetta allt er ekki nóg fyrir Billy Bob. Hann vill líka hasla sér völl sem söngvari og segist reyndar hafa fengist við tónlist löngu áður en hann sneri sér að kvikmyndaleik þótt litlum sögum fari af afrekum hans á því sviði. Thomton hefur tekið upp lög sem nægja á einn geisladisk en gengur erfiðlega að fá útgefanda. Hann segist þó vona að menn áttí sig á þeim sanna og hreina tóni sem er að finna í tónlist hans sem að sögn kemur beint frá hjart- anu. Billy Bob Thornton Hann hefur verið frægur ieikari og frægur eiginmaö- ur en vill veröa frægur söngvari. Eitt laga hans var á geisladiski sem fylgdi með timaritinu Us og einn blaðamanna þar var ekki sér- lega hrifinn. í umsögn Jeanette Wails sagði að Thomton urraði, gólaði og talaði í stað þess að syngja. Thomton segist sjálfur syngja eiris og Leonard Cohen og Tom Petty en blaðamaðurinn segir að blandan minni meira á Gregg Allman og William Shatner. Sem- sagt ömurlegt. Margur er rámur en syngur samt, segir íslenskt máltæki og það á greini- lega vel við í tilfelli Billy Bobs en það er verst ef enginn viil hlusta. Helgartilboð til London í september f rá 19.720,- Heimsferðir bjóða nú einstök helgartilboð til London í september. Komið til London á föstudegi og flug til baka á mánudagi og í London bjóðum við þér úrval hótela á frábæru verði. 7. sept. 14. sept. 21. sept. 28. sept. Kr. 19.720 Kr. 29.990 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. Flug Flug og Bayswater lnn hótelið, í 3 metur. og skattar. M.v. 2 í herbergi, skattar innifaldir. Heimsferðir Skógarhlíð 18 sími 595 1000. www.heimsferdir.is Smaauglysingar allt fyrir heimilið 1 550 5000 Sumargiot að verMf ^ ,5® PORTUCAL Ávísun gildir 65.ooo kr. 50.000 kr. 65.ooo kr. 50.000 kr. 50.000 kr. 50.000 kr. Brottför 07. september 2I. september 28. september 05. október 12. október I9. október Bókunarstaða 7 sæti laus I7 sæti laus 24 sæti laus örfá sæti laus laus sæti laus sæti Lengd dvalar 2 eða 3 vikur 1.2 eða 3 vikur 1.2 eða 3 vikur 1,2 eða 3 vikur I eða 2 vikur I vika Nú eru síðustu forvöð fyrir áskrifendur DVað tryggja sér ódýra sumar- eða haustferð í sólina meðferðaávísun DV og Sólar. • Málið ereinfalt Efþú ert áskrifandi bíður ávísunin þess að þú sækir hana í afgreiðslu DV að Þverholti v. Efþú ert ekki áskrifandi bjóðum við þérað skuldbinda áskrift til a.m.k. 12 mánaða og ávísunin erþín. KYPUR Ávísun gildir 65.000 kr. 65.000 kr. Bókunarstaða 6 sæti laus laus sæti Lengd dvalar 2 vikur 2 vikur Brottför 03. september 17. september Verðdæmi á mann ívikuferð til Portúgals 21. september m.v. tvíbýli á Santa Eutálía Askrifendur DV greiða m.sk. • lágmark 2 í Studio/íbúð Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum Sólar, Grensásvegi 22, sími 5450 900. www.sol.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.