Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 19 r>v Helgarblað 21.990 kr. (1.833 kr.ámánuði) Athugiö tilboðið stendur til og með 7. október. Ljósabekkir á báðum stöðum. Nautilus á íslandi Sundlaug Kópavogs sími 570 0470 og Suðurbæjarlaug Hafnarfirði sími 565 3080 _________________________________ Tvíþætt barátta - hvað segir sálfræðin? „Þaö er ævaforn hefð aö synir feti í fótspor feðranna," sagði Áskell Örn Kárason sáifræöingur í samtali við DV. „Það má segja að í þessu sam- bandi togist tvennt á. Annars veg- ar er það löngunin til aö standa sig jafn vel eða betur en faðirinn en hins vegar óttinn við að skara langt fram úr foðurnum og verða þannig til þess að gera lítið úr hon- um. Sá ótti getur virkað eins og sálfræðileg bremsa í sumum tilvik- um.“ Áskell benti á aö mörg störf og viðfangsefni lægju í fjölskyldum og synir tækju við af sonum en benti jafnframt á að á því væru til sér- stæðar undantekningar. „Ég þekki vel til í skákheimin- um og fullyrði að í gervallri skák- sögunni finnast engin dæmi um að sonur feti í fótspor föður síns og keppi í skák.“ Áskell sagði það álit margra sál- fræðinga að aUir karlmenn yrðu einhvem tímann að gera einhvers konar uppreisn gegn föður sínum. Hann taldi að flestir eða allir karl- menn gerðu það upp við sig með einhverjum hætti hvort þeir ætl- uðu að feta í fótspor föður síns eða ekki og með hvaða hætti það gerð- ist. -PÁÁ Ritsfjórn og blaða- mennska Bjarni Benediktsson var rit- stjóri Morgunblaðsins á árunum 1956 til 1959 og óumdeilt er að árum saman eftir það hafði hann mikil áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins enda tengsl Morgunblaðs- ins og Sjálfstæðisflokksins þá mun nánari og skýrari en þau eru í dag. Björn Bjarnason var blaðamað- ur á Vísi skamma hríö snemma á áttunda áratugnum og síðan á Morgunblaðinu 1979 til 1984 og að- stoðarritstjóri þess 1984 til 1991 og lét af þvi starfi þegar hann tók við embætti menntamálaráðherra. Hann var helsti sérfræðingur blaðsins í erlendum málefnum. Þingmennska og völd Bjarni Benediktsson var kjörinn á þing 1942, þá 34 ára gamall. Hann var utanríkis- og dómsmálaráð- herra 1947 til 1953, dómsmála- og iðnaðarráðherra 1959 til 1963 og forsætisráðherra frá 1963 til 1970. Björn sonur hans var kjörinn á þing 1991 þegar hann var 47 ára gamall. Hann hefur verið mennta- málaráðherra síðan 1995. Bjarni var formaður Sjálfstæðis- flokksins frá 1961 til 1970. Margir héldu að Björn sonur hans myndi feta sig upp metorða- stiga flokksins í stól formanns eða varaformanns þegar hann sneri sér að stjórnmálum 1991. Svotfór þó ekki því þegar siðast var kosið um embætti varaformanns Sjálfstæðis- flokksins varð fljótlega ljóst að Geir H. Haarde átti mun meiri stuðning til þess embættis en Björn sem gaf ekki kost á sér þegar á hólminn var komið. Það þótti hins vegar sérstök frétt að hann skyldi ekki bjóða sig fram. Ljóst er aö úr því sem komið er verður Bjöm ekki formaður Sjálf- stæðisflokksins nema ófyrirsjáanleg- ar breytingar verði á forystuliði hans. Borgin heillar Bjarni Benediktsson var í borg- arstjórn Reykjavíkur í fimmtán ár og gegndi starfi borgarstjóra á ár- unum 1940 til 1947. Það sópaöi að honum í embætti enda borgin þá undir forystu sjálfstæðismanna sem engum datt í hug að ætti eftir að breytast. Mikið er rætt um það manna á meðal hvort Björn Bjarnason ætli að láta til skarar skríða og stíga upp úr stól menntamálaráðherra og leiða lista sjálfstæöismanna i komandi borgarstjórnarkosning- um. Þessi orðrómur hefur veriö í opinberri umræðu um nokkurra mánaða skeið og ljóst aö málið er til skoðunar þar sem Björn hefur aldrei vísað því á bug. Þvert á móti telja margir að milli línanna í viðtali DV við hann síðasta laug- ardag megi sjá að hann sé alvar- lega að velta þessu fyrir sér. Föður- betrungar og fleiri sporgöngu- menn Lausleg yfirferð gegnum Al- þingismannatal leiðir í ljós hvernig stjórnmál liggja í ættum á tslandi og mjög margir þing- menn hafa fetað í fótspor föður síns á þessu sviöi. Enn fleiri eiga afa, föðurbróður, tengdafööur eða náið skyldmenni sem setið hefur á þingi. Hér er listi yfir nokkra þing- menn sem hafa átt þingmenn eða ráðherra að feðrum. Listinn er ekki tæmandi. Björn Bjarnason Jón Baldvin Hannibalsson Steingrimur Hermannsson Vilmundur Gyifason Bjarni Benediktsson Bragi Sigurjónsson Finnur Torfi Stefánsson Guðmundur Árni Stefánsson Gunnlaugur Stefánsson Geir Hallgrímsson Gísli Sveinsson Guðni Ágústsson Auður Auðuns Jónas Árnason Ingi Bjöm Albertsson Jóhanna Sigurðardóttir Júlíus Sólnes Árni Mathiesen Pálmi Jónsson Pétur Benediktsson Margrét Sverrisdóttir -PÁÁ ------------------------- Komdu í alvöru líkamsrækt í Hafnarfirði og Kópavogi Faglærðir kennarar leiðbeina hverjum einstaklingi um þjálfun í nýjustu og fullkomnustu Nautilus tækjunum. Frír aðgangur að sundlaug þar sem kort er keypt. Tilboð sem þú getur ekki hafnað - heitsunnar vegna! Árskort á Háahlíð 14 Þetta var heimili Bjarna Benediktssonar frá 1955 til dauöadags 1970 og þar býr Björn sonur hans og hefur reyndar nær alltaf gert. Þannig má segja aö Björn sé ekki enn farinn aö heiman. Haröur slagur Verði það úr að Björn láti til skarar skriða er fram undan kosn- ingabarátta sem óhætt er að spá að verði sú harðvítugasta og skemmtilegasta í manna minnum. Með slíkri tilfærslu væru sjálf- stæðismenn og ekki sist Björn per- sónulega að leggja mikið undir og Björn myndi þar leggja sinn póli- tíska feril á vogarskálarnar. Ef hann myndi sigra þá myndi hann gera það í tvennum skilningi því bæði myndi hann heimta Reykjavík aftur úr óvinahöndum samkvæmt skilningi sjálfstæðis- manna en ekki síður væri hann loksins orðinn föðurbetrungur. Þegar litið er yfir feril þeirra feðga hlýtur niðurstaðan að verða sú að Björn hafi fetað í fótspor föð- ur síns á sviði lögfræði, blaða- mennsku og stjórnmálaþátttöku á landsvísu. Án þess að varpað sé rýrð á frammistöðu hans á þessum sviðum hefur hann ekki á neinu þeirra náð að jafna afrek föður síns. í þessu samhengi á hann aðeins eftir aö takast á við stjómmálin á vettvangi borgarinnar og þar er jafnframt síðasta tækifærið sem hann fær til að komast með tærn- ar þar sem faðir hans hafði hæl- ana. -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.