Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 Helgarblað DV Alexander Björn Gíslason, heimilis- laus Reykvíkingur, ætlar í mál við borgina fyrir sína hönd og annarra heimilislausra sem hann segir skipta hundruöum. Fólk sefur í geymslum, stigagöngum og tjöldum eöa ráfar um göturnar. Alexander Björn Gíslason er 38 ára gamall Reykvíkingur sem hefur verið heimilislaus í sex ár. Hann hefur búið undanfamar vikur í skjóli Félagsþjón- ustunnar á gistiheimili á Bugðulæk en því fyrirkomulagi lýkur fyrsta septem- ber sem er í dag. Á morgun á Alexand- er afmæli og þá verður hann 39 ára. Hann veit ekkert hvað tekur við annað en gatan. Alexander hefur vakið athygli vegna þess að þrátt fyrir eymd sína hefur hann ráðið sér lögfræðing og hyggst stefna Reykjavíkurborg í krafti þess lagabókstafs sem segir að skylda stofnunarinnar sé að útvega þeim hús- næði sem af einhverjum ástæðum ráða ekki við það sjálfir. Eins og Oliver Twist Þegar þetta spurðist út í borgarkerf- inu var Alexander óðar boðaður á fund félagsmálayfirvalda sem buðust til þess að útvega honum íbúð þegar í stað en höfðu skömmu áður skilgreint stöðu hans svo að tveggja ára bið hið minnsta væri eftir íbúð. Alexander af- þakkaði pent og kaus að líta svo á að með þessu væru yfirvöld að kippa hon- um fram fyrir röðina til þess að losna við málsóknina. „Ég var eitthvað slapp- ur og fór til lœknis í blóðrannsókn. Þegar ég fór svo í viðtal sá ég skjal fremst í möpp- unni hans þar sem stóð að ég vœri HlV-smitað- ur. Þannig frétti ég það. Hann hefur sjálf- sagt haldið að ég vissi þetta og ég er ekkert að áfellast hann. “ Það er eitthvað við þetta mál sem minnir á atriðið í sögunni um Oliver Twist þegar hann fór sársvangur með skálina sína aftur að borðinu á munað- arleysingjahælinu og bað um meiri graut. Það þótti hneyksli. Það er deilt um það hve margir séu heimilislausir í Reykjavík og það er deilt um það hvemig eigi að skilgreina eymd og heimilisleysi. Yfirvöld virðast meta það svo að á bilinu 50-80 manns séu heimilislausir. Leigjendasamtökin telja að 3.000 íbúðir vanti til að svara eftirspum eftir ódým húsnæði. í apríl 2001 vom 552 umsókn- ir um félagslegar leiguíbúðir á skrif- borðum borgarkerfisins. Af Klambratúni á Kaffi Skít Meðan deilt er um skilgreiningar á neyð sefúr fólk í görðum og á túnum eða skrimtir í tjöldum yfir sumarið. Það sefúr í geymslum og stigagöngum eða um borö í bátum. Það reikar um götumar án þess að eiga peninga fyrir mat, stundum á kafi í neyslu áfengis og eiturlyíja, stundum veilt á geði. Stundum allt þetta. Menn leita at- hvarfs á Kaffi Austurstræti, eða Kaífi Skít eins og það mun vera kallað með- al útigangsmanna, eða þeir beija upp á hjá lögreglunni. Þar fá heimilislausir oft að liggja inni og er kallað Hótel Hilton meðal götufólks. „Það em ekki til neinar tölur í kerf- inu sem byggjandi er á sem sýnir sof- andahátt og getuleysi Félagsþjónust- unnar í Reykjavík. Ég vildi sjá ráð- stefnu þeirra aðila sem málið varðar á næstu mánuðum þar sem varpað yrði upp þeirri mynd sem snýr að hverjum og einum. Síðan mætti gera skýrslu og knýja með hana á dyr stjórnvalda. Ég veit að Leigjendasamtökin em í við- ræðum við ASÍ og BSRB um slíka ráð- stefnu og hvet alla sem málið varðar til að hafa samband við Leigjendasamtök- in,“ segir Alexander. Enginn hlustaði Ég hitti Alexander á kafílhúsi á Rauðarárstíg og spurði hvers vegna hann væri að gera þetta? „Ég er búinn að tala við alla sem ég get, frá borgarstjóra og niður úr. Það gerir enginn neitt nema vísa hver á annan. Ég er bara að leita réttar míns samkvæmt lögum. Ef þú ert með of lágar tekjur til þess að geta leigt á venjulegum markaði þá á Félagsþjónustan lögum samkvæmt að hafa úrræði. Það er mjög breiður hópur sem ræð- ur ekki við þennan leigumarkað. Allir sem ég hefi rætt við innan Félagsþjón- ustunnar þekkja þennan vanda en geta í sjálfu sér ekkert gert og þess vegna átti ég engin úrrræði nema stefna borginni," segir Alexander. 600 á götunni Alexander segist halda að það séu tæplega 600 manns sem séu í raun heimilislaus á hrakhólum í Reykjavík þótt tala þeirra sem þurfa á húsnæði að halda sé nærri 3000. Hann getur í fljótu bragði talið saman athvörf og áfangaheimili sem rúma nokkur hundruð manns sem eru að stórum hluta heimfíisleysingjar. Það er sagt í gamni um Alexander að þar komi saman í einum og sama manninum margir minnihlutahópar í okkcir þjóðfélagi. Hann getur brosað með viðmælanda sínum að þessu en brosið ristir grunnt. Hann er 75% ör- yrki vegna langvarandi óreglu, hann er einstæður faðir, hann er heimilis- laus og atvinnulaus og hann er HIV- smitaður. En Alexander hefur ákveðið að berjast til þrautar fyrir rétti sínum og annarra sem eiga hvergi höfði sínu að að halla. Alexander þekkir vel heim útlaganna í Reykjavík. Hér stendur hann viO dyr lögreglustöövarinnar viö Hlemm þar sem útigangsmenn fá oft aö sofa og er kallaö Hótel Hilton í gamni. Umsóknin týndist Hann er snyrtilega klæddur og ekki eins markaður af óreglu og ætla mætti. Hann er vel máli farinn og talar yfir- Alexander á aö baki langa sögu óreglu og erfiöleika. Hann hefur veriö heimilislaus í sex ár en býr nú á gistiheimili á vegum Félagsþjónustunnar. Þeirri dvöl lýkur í dag c
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.