Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 27 I>V Helgarblað Ólafur er nýgiftur eftir 12 ára sambúö. Hann situr hér meö eiginkonu sinni Sigurbjörgu Bragadóttur og börnunum þremur, Fjölni, Ásgeröi og Brynju. vinnulegar eða persónulegar að- stæður sem urðu þess valdandi að hinir fjórir treystu sér ekki til að skrifa undir. Þetta kann að koma mönnum spánskt fyrir sjónir því það er erfitt fyrir óperuhús að hafa aðeins einn söngvara og einleiksóp- erur afar fáar en þetta er byrjunin og stjórn Óperunnar ákvað að halda sínu striki og skrifa undir minn samning þrátt fyrir allt.“ Ó, söngelska þjóö Ólafur Kjartan á ekki bara að syngja því í samningi hans felst einnig að hann taki þátt i mótun fræðsluefnis til kynningar á starf- semi íslensku óperunnar og óperu- tónlist almennt og hann segist hlakka mjög til að takast á við þann hluta starfsins. „íslendingar eru söngelsk þjóð sem gerir miklar kröfur til sinna söngvara en þeir þurfa að vera ansi hreint flölhæfir og duglegir ef þeir eiga að geta lifað af söngnum einum saman og það hafa aldrei margir gert í einu á hverjum tíma. Það er skylda okkar að búa söngvurum það starfsumhverfi sem fastráðning ein getur boðið og þarna tel ég að fyrsta skreflð sé stig- ið.“ Kannast við Papageno Fyrsta verkefni Ólafs Kjartans samkvæmt nýbökuðum samningi við íslensku óperuna er að syngja hlutverk Papagenos í Töfraflautu Mozarts sem á að frumsýna 22. sept- ember næstkomandi. „Papageno er afar skemmtilegt hlutverk sem kennarar mínir fóru snemma að minnast á að myndi ef- laust henta mér vel og ég hef því sungið stóra hluta af því áður en aldrei í heild. Papageno er eiginlega hálfur maður og hálfur fugl og er eiginlega partur af dýrinu í okkur öllum meðan Tamínó er þessi bjarta og heiðarlega hetja. Töfraflautan er afar vinsæl og mér finnst að það megi engin kyn- slóð vera án þess að sjá hana að minnsta kosti einu sinni." Það eru áætlaðar tólf sýningar á „Flautunni" eins og mér skilst að óperusöngvarar kalli þetta vin- sælasta stykki óperubókmennta heimsins. Það er sagt að bæði Em- anuel Shikaneder textahöfundur og Mozart hafi verið frímúrarar og stykkið sé samið undir miklu áhrif- um frá þeirri merku leynireglu. Það er sérkennileg og skemmtileg tilvilj- un að um þessar mundir er haldið upp á 50 ára afmæli Frímúrararegl- unnar á íslandi. Er þetta poppópera? Það vekur athygli að Hilmir Snær „Ég byrjaði ungur að lœra á fiðlu og hélt mig lengi við hana en segi stundum að ég geti glamrað á mjög mörg hljóðfæri en kunni ekki vel á neitt þeirra. Ég söng mikið sem barn og á meðal annars sexfalda rödd mína í englakór með Ellý Vilhjálms þar sem hún syngur Ave María. Ég var í Hamrahlíðar- kórnum á námsárun- um og fór eftir það að lœra söng og hef ekki litið upp síðan. “ Guðnason leikari situr í stól leik- stjóra við þessa uppfærslu og Selma Björnsdóttir, söngvari og dansari, semur dansana meðan Vytautas Narbutas hannar búninga. Allt er þetta ungt hæfileikafólk sem hefur getið sér afar gott orð innan veggja leikhússins en lítt verið orðað við óperur. Verður þetta einhvem veg- inn öðruvísi Töfraflauta en við eig- um að venjast? „Töfraflautan er leikhúsverk í eðli sínu, meira en óperur almennt eru og ég held að þetta verði mikil leikhússýning. Þetta er ein af fyrstu alíslensku uppfærslunum af þessari stærðargráðu og mjög spennandi að sjá hvað þetta unga fólk ætlar að gera.“ Emil fer í óperuna Þetta er í þriðja sinn sem Töfraflautan er sett upp af íslensku óperunni en fyrsta uppsetningin er Ólafi Kjartani sérstaklega minnis- stæð af mjög sérstæðum ástæðum. „Ég söng mikið sem barn og með- al annars söng ég inn á hljómplötu hlutverk Emils í Kattholti þegar ég var 10 ára á móti Margréti Örnólfs- dóttur sem söng ídu. Síðast þegar ég vissi fékkst þessi plata enn í búðum. Þetta ásamt öðru leiddi til þess að þegar Töfraflautan var sett upp í fyrsta sinn þá gafst mér færi á að syngja prufusöng fyrir hlutverk eins þriggja ungsveina sem koma fram. Ég var óskaplega spenntur yfir þessu og mætti niður i Gamla bíó. Þar sem ég stóð á sviðinu við flygilinn og ætlaði að syngja brast röddin því á þessu augnabliki upp- götvaði ég að ég var kominn í mút- ur,“ segir Ólafur Kjartan. Þarna var semsagt að springa út sú barítonrödd sem Ólafur hefur nú tamið og fágað um árabil og hann reynist vera sammála skrifara um að baritónn sé hið náttúrulega birt- ingarform karlmannsraddarinnar. „Við endumst lika betur en erum lengur að þroskast en tenórarnir. Þetta sést best á því að Guðmundur Jónsson, stórhöfðingi og fyrrum kennari minn, söng í brúðkaupinu mínu fyrir skömmu, 82 ára gamall." Nýkominn úr brúðkaupsferð Ólafur Kjartan er nefnilega ný- giftur Sigurbjörgu Bragadóttur sem er reyndar sambýliskona hans til 12 ára og móðir þriggja barna sem þau eiga saman. Þau eru Fjölnir, 11 ára, Ásgerður, 7 ára, og Brynja, eins árs. Ölafur mætti viku of seint til æf- inga á Töfraflautunni því hann var ásamt nýbakaðri eiginkonu sinni í brúðkaupsferð um Suður-Frakk- land. Þau voru þrjú saman á ferð því þótt börnin væru heima hjá afa og ömmu var Papageno með i för- inni. „Okkur fannst eiginlega tími til kominn að stíga þetta skref. Við höf- um verið á flakki milli landa og milli borga nánast alla okkar sam- búð en nú er hirðingjalífinu lokið og staðfesta tekur við um einhvern tíma. Þetta var frábært ferðalag. Við vorum lengi í íbúð rétt hjá Mont- pellier í Frakklandi og vorum aðal- lega að hvíla okkur, sofa, borða og læra Töfraflautuna. Brúðkaup er eiginlega eina afsökunin sem fólk hefur til að fara í frí og ferðalag án barnanna.“ Stóra tónlistarfjölskyldan Ólafur er fæddur inn i mikla tón- listarfjölskyldu því hann er sonur Sigurðar Rúnars Jónssonar tónlist- armanns, sem flestir þekkja sem Didda fiðlu, en hann er aftur sonur Jóns Sigurðssonar, kontrabassaleik- ara í Sinfóníuhljómsveit íslands og víðar, sem oft er kallaður Jón bassi. Það er alveg augljóst að Ólaf vantar eiginlega gælunafn tengt tónlist. En var mikið sungið á þínu heimili? „Ég byrjaði ungur að læra á fiðlu og hélt mig lengi við hana en segi stundum að ég geti glamrað á mjög mörg hljóðfæri en kunni ekki vel á neitt þeirra. Ég söng mikið sem barn og á -meðal annars sexfalda rödd mína í englakór með Ellý Vil- hjálms þar sem hún syngur Ave María. Ég var í Hamrahlíðarkórn- um á námsárunum og fór eftir það að læra söng og hef ekki litið upp síðan.“ Ólafur Kjartan er einbirni en fað- ir hans er einn af átta systkinum. Er það gott veganesti fyrir söngvara að vera einbirni? „Ég veit það ekki. Yngstu föður- systkini mín eru á líkum aldri og ég og fjölskylduböndin þétt svo ég upp- lifði mig sennilega aldrei sem ein- birni. Ég býst við því að ég sé nokk- uð frekur en það er sennilega bara betra.“ PÁÁ --------------------------> Kawasaki fjórhjólin traust & lipur KLF 220 2WD. 620.000 m/vsk. KVF 300 4WD, h/l drif. 839.000 m/vsk. KVF 400 4WD, h/l drif. 949.000 m/vsk. Stórsýning í Laugardal!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.