Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
r>v
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um kynþáttahatur hafin í Suður-Afríku:
Tökum framtíðina í
okkar eigin hendur
Fyrrum írlandsforseti og núver-
andi mannréttindafulltrúi Samein-
uðu þjóðanna, Mary Robinson, er
ekki í nokkrum vafa um mikilvægi
ráðstefnu SÞ um kynþáttamisrétti
og útlendingahatur sem hófst i
Durban i Suður-Afríku í gær.
„Ég hef beðið fulltrúana um að
setja til hliðar gagnkvæmar ásakan-
ir og þrætur og grípa þess í stað
þetta einstæða tækifæri sem ráð-
stefnan er. Þetta er sjaldséð tæki-
færi fyrir mannkynið til að taka
framtíðina í sínar eigin hendur og
ákveða í hvers konar heimi börn
okkar og við sjálf ætlum að lifa,“
segir Robinson í viðtali við franska
dagblaðið Le Monde.
Hún segir enn fremur að ef sá
pólitíski vilji sem til þarf sé ekki til
staðar geti ráðstefnan allt eins farið
út um þúfur.
Þjáningar viðurkenndar
„Hér er um að ræða mjög mikil-
væga ráðstefnu, ekki aðeins vegna
þess að á dagskrá hennar er breið
umfjöllun um kynþáttahatur og
mismunun, heldur einnig vegna
þess að hún gefur fórnarlömbunum
tækifæri til að tjá sig og gefur þeim
von, von um að þjáningar þeirra
verði viðurkenndar og teknar til
greina," segir Robinson enn fremur.
Því má slá fóstu að umræður á
ráðstefnunni verði fjörugar og harð-
ar þegar þeir sem telja á sig hallað
fá tækifæri til segja það sem þeim í
brjósti býr. Síðustu daga hefur at-
hygli umheimsins einkum beinst að
afstöðu bandarískra stjórnvalda til
ráðstefnunnar.
Ráðamenn í Washington hafa
ákveðið að senda Colin Powell utan-
rikisráðherra ekki til Durban. í
hans stað fer tiltölulega lágt settur
embættismaður. Með þessu vilja
stjórnvöld í Bandaríkjunum lýsa
andstöðu sinni við tilraunir
arabaríkja til að fá ráðstefnuna til
að setja samasemmerki milli sion-
isma og kynþáttahaturs. Slíkt orða-
lag er þó ekki að fmna í uppkasti að
lokayfirlýsingu ráðstefnunnar.
Móðgandi fyrir ísrael
Bandarísk stjórnvöld segja að
uppkastið að lokayfirlýsingunni feli
í sér „móðgandi ummæli" í garð
Ísraelsríkis þar sem framkoma þess
í garð Palestínumanna og hemám
lands þeirra eru talin til kynþátta-
haturs.
Meðal þeirra sem lögðust gegn
því að Powell færi til Durban er
Condoleezza Rice, þjóðaröryggis-
málaráðgjafi Georges W. Bush
Bandaríkjaforseta. Hún á ættir sín-
ar að rekja til Afríku, rétt eins og
Powell.
Fjölmargir leiðtogar bandarískra
blökkumanna segja að með því að
Kyndill umburðaiiyndisins tendraður í Suður-Afríku
Hundruð Suður-Afríkumanna, þar á meðal mikill fjöldi skólabarna, halda kertum á lofti á meðan kveikt er á kyndli umburðarlyndisins á Kirkjutorgi í Pretoríu. At-
höfnin var liður í herferð um allt land þar sem lögð er áhersla á andstöðu Suður-Afríkumanna við kynþáttahatri. Vel við hæfi þar sem nú stenduryfir í hafnar-
borginni Durban ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um kynþáttahatur, mismunun og andúð í garð útlendinga.
láta Colin Powell sitja heima missi
stjórn Bush af kjörnu tækifæri til
að láta til sín heyra í umræðunum
um kynþáttamismunun og sam-
skipti hvítra og svartra.
I fararbroddi
„Ef litið er á þann árangur sem
við höfum náð og á það hversu mjög
við höfum sinnt stefnumótun um
samskipti kynþáttanna, höfum við
sögu að segja og okkur ber skylda
til að vera í fararbroddi," segir
blökkumannaleiðtoginn og klerkur-
inn Jesse Jackson í viðtali við
bandaríska dagblaðið The Wash-
ington Post.
Jackson, sem er kominn til
Durban til að sitja ráðstefnuna, seg-
Stuðningi við ísrael mótmælt
Þúsundir Suður-Afríkumanna mótmæltu stuðningi bandarískra stjórnvalda
við ísraelsríki fyrir utan bandaríska sendiráðið i Pretoríu.
ir að nærvera Colins Powells, fyrsta
blökkumannsins i embætti utanrik-
isráðherra Bandaríkjanna, myndi
senda mikilvæg skilaboð til þeirra
sem gagnrýna Bandaríkin.
„Þegar hann stígur út úr flugvél í
Afríku eða Evrópu segir það sína
sögu um að Bandaríkin séu samfé-
lag fjölda kynþátta og margbreyti-
legrar menningar. Vonin sem hann
hefur verið fulltrúi fyrir sem tákn-
gervingur framþróunar í samskipt-
um kynþáttanna dofnar vegna fjar-
veru hans,“ segir Jesse Jackson.
Séra Joseph Lowery, leiðtogi
blökkumannasamtakanna Black
Leadership Forum, er harðorður í
garð stjórnvalda í Washington þeg-
ar hann segir það skammarlegt að
þau skuli ekki ætla að vera með á
ráðstefnunni.
„Með ákvörðun sinni gera Banda-
ríkin sig sek um hrokafulla afstöðu
og þau skjóta sér undan ábyrgð,"
segir séra Lowery.
Vegið úr öllum áttum
Orðaskakið vegna tilrauna
arabaríkjanna til að fá Ísraelsríki
stimplað sem rasistaríki hefur stað-
ið í marga mánuði. Fulltrúar gyð-
inga sem komnir voru til Durban
sögðu í vikunni að þrýstihópar sem
eru andvígir Ísraelsríki níddust á
þeim. Fulltrúar Palestínumanna
sökuðu gyðingahópana hins vegar
um að breiða út áróður til stuðnings
Israel.
„Mér finnst vegið að mér úr öll-
um áttum þar sem á heimsráðstefn-
unni um kynþáttahatur eru rit með
andgyðinglegum og hatursfullum
áróðri,“ segir Anne Bayefsky, pró-
fessor við lagadeild Columbia-há-
skóla í New York. Hún bætir við að
margir fulltrúar gyðinga hafi
íhugað að fara aftur til síns heima.
í bæklingum sem lágu frammi á
fundi frjálsra félagasamtaka sem
haldinn var á undan sjálfri aðalráð-
stefnunni var skopast að gyðingum
og á veggspjöldum hafði hakakross-
inn verið settur yfir Davíðsstjörn-
una, tákn Ísraelsríkis.
Þrælasala á dagskrá
En það var ekki bara móðgandi
orðalag um Ísraelsríki sem fékk
hárin til að rísa á bandarískum
embættismönnum. Fyrr í sumar
lýstu ýmsir þeirra áhyggjum sínum
yfir því að í lokayfirlýsingu ráð-
stefnunnar yrði að finna stuðning
við skaðabætur fyrir þær Afríku-
þjóðir sem fóru illa út úr þrælasölu
fyrr á öldum. Á síðustu vikum hef-
ur hins vegar verið horflð frá því að
nefna skaðabætur á nafn en þess í
stað er talað um alþjóðlega aðstoð,
jafnframt því sem þrælasalan og af-
leiðingar hennar eru harmaðar.
Talið er að evrópskir þrælasalar
hafi sent milli ellefu og tólf milijón-
ir þræla frá Afríku vestur um haf.
Allt að fimmtungur þeirra komst
aldrei á leiðarenda.
I mörgum löndum Afríku hafa
lengi verið uppi kröfur um skaða-
bætur vegna þrælasölunnar. Hins
vegar gæti reynst erfitt aö skera úr
um endanlega ábyrgö þar sem
margir ættbálkar og mörg þorp í
Afríku högnuðust einnig á henni.
Hófleg bjartsýni
Mary Robinson, mannréttinda-
fulltrúi SÞ, er hóflega bjartsýn á að
ráðstefnan í Durban, sem stendur í
eina viku, verði til þess að þjóðir
heims fari að hugsa um fortíðina á
annan hátt en nú.
„Þátttökulöndin hafa nálgast
sjónarmið hver annarra í ýmsum
málum, þar á meðal þeim viðkvæm-
ustu sem tengjast þrælasölu og ný-
lendustefnu, svo og skilgrein-
ingungunni á því hverjir eru fórn-
arlömb kynþáttahaturs. Ég hef
einnig orðið vör við meiri sveigjan-
leika í leitinni að orðalagi um mál-
efni Mið-Austurlanda. Sem dæmi
má nefna að það að jafna síonisma
við rasisma á ekki heima í umræð-
unum á ráðstefnunni," segir Robin-
son.
Byggt á Le Monde, Reuters og
The Washington Post.
Colin Powell
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna
fær ekki að fara til Suður-Afríku.
Mary Robinson
Mannréttindafulltrúi SÞ er
bjartsýnn á árangur ráðstefnu um
rasisma.