Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 43
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 51 DV Tilvera Sigling um grísku eyjarnar: Margir telja siglingu á skemmti- ferðaskipi tind ferðamennskunnar. Þar fara saman þægindi, skemmt- un og mikill fróðleikur þar sem viöa er ferðast og íjölmargt ber fyr- ir augu. Úr ýmsu er að velja en al- gengast mun að fólk velji annað- hvort siglingu um Karíbahaf eða Miðjarðarhafið. Tilvalið er fyrir fólk að blanda saman hefðbund- inni ferð og siglingu, nýta nokkra daga ferðarinnar til ærlegrar afslöppunar en um leið frábærrar skemmtunar. Sigling um grísku eyjarnar er, svo dæmi sé tekið, til- valinn kostur fyrir þá sem dvelja á Kýpur. Undirritaður reyndi slíkt fyrr í sumar og getur óhikað mælt með því. Ferðin var frá mánudegi til íostudags. Siglt var frá Limassol á Kýpur og komið næsta dag til Ródos. Séð er fyrir öllum þörfum fólks um borð, hvort sem menn vilja fá sér í gogginn, skreppa á barinn, dansa eða njóta fjöl- breyttra skemmtiatriða. Allur mat- ur, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður, er innifalinn í verði ferðarinnar en drykki kaupir fólk sjálft. Gott er að láta ljúfar öld- ur Miðjarðarhafsins vagga sér i svefn. Lítil hætta er á sjóveiki á veitti ekki af. Næsta dag var siglt til fjalllendrar smáeyjar, Tinos. Þar búa um átta þúsund manns. Þar er meðal annars að finna minjar um guðinn Póseidon sem tilbeðinn var af eyjarskeggjum. Náttúrufegurð Tinos er mikil eins og raunar á mögum grísku eyjanna, hvít hús og tær sjór. Patmos var þriðja eyjan sem siglt var til. Hún á sér langa sögu og hef- ur verið undir yfirráðum ýmissa þjóða. Fyrr á þessari öld réðu ítalir eyjunni en hún hefur tilheyrt Grikklandi frá árinu 1948. Hringn- um lauk með heimsókn á smáeyj- una Kastellorizo. Hún er aðeins 9 ferkílómetrar að stærð og íbúar litlu fleiri en 200. Mannlíf er því ró- legt en eyjan er afar falleg sem og allt umhverfi hennar. Hún er aðeins nokkur hundruö metra undan ströndum Tyrklands. Blái hellirinn er náttúrufyrirbrigði sem sjálfsagt er að skoða, sjávarhellir með ein- stakri blárri birtu. Þegar stigið er á land í Limassol á Kýpur eftir slíka ævintýraferð er maginn mettur, hugurinn afslapp- aður og minningarnar geymdar jafnt í kollinum sem á mörgum film- um. Sigling sem þessi er upplifun fyrir öll skynfærin. -JH Náttúrufegurö Gríska eyjan Kastellorizo, rétt undan Tyrklandsströndum, er ekki stór og íbúar fáir. Náttúrufegurö er hins vegar ómæld. slíkum glæsiskipum en þeir sem eru veikir fyrir ættu ekki að hika við að gleypa hálfa eða eina sjó- veikipillu, svona rétt til öryggis. Þeir fá þá notið ferðarinnar. Ródos þekkja margir íslendingar, fógur eyja og á sér merka sögu. Gamli bærinn þar er einstakur frá tímum riddaranna. Mannlífið er íjölbreytt, götulíf mikið og verslanir og veitingahús á hverju götuhomi. Þar var dvalið lungann úr degi og Upplifun fyrir öll skynfæri Rauöu örvarnar Rúsínan í pylsuendanum veröur svo sýningaratriði Rauðu örvanna, listflugssveitar breska fiughersins og Rauöu djöfl- anna, listfallhlífasveitar breska landhersins Fyrsta flugs félagið: Rauðar örvar og rauðir djöflar heilla QlO Allir almennir dansar fyrir börn, unglinga ogfullorðna. Standard - Latin - Gömlu dansarnir Byrjendur og framhald. Opið hús á laugardagskvöldum DANSSKÓLI Sigurðar Hákonarsonar Dansíþróttafélag Kópavogs - DlK Auðbrekku 17 - Kópavogi Kántry línudans-Brúðarpör Keppnispör, æfingar 2-3svar í viku Einkatímar - Frábærir kennarar og skemmtilegt andrúmsloft „Það hefur ekki verið haldinn rækilegur flugdagur á íslandi í háa herrans tíð,“ segir Gunnar Þorsteinsson, formaður Fyrsta flugs félagsins, sem er áhuga- mannafélag um flugmál. Félagið hefur skipulagt helgarferð til London dagana 7. - 9. september þar sem farið verður á risaflugdag á Duxford-flugminjasafninu. Stærsta flugminjasafn Evrópu Duxford er stærsta flugminja- safn í Evrópu en þar eru um 180 sögufrægar flugvélar, fallbyssur, skotvopn og fleira af því taginu. Flugsýningarnar í Duxford eru frægar um allan heim og Fyrsts flugs félagið hefur farið með hópa á nokkrar þeirra á undanförnum árum „í ár ætlum við að bjóða flugáhugamönnum upp á þríþætta flugsýningu þar sem menn geta séð gamlar tvíþekjur, stríðsjálka og síðast en ekki síst allra nýjustu herþoturnar. Rúsínan í pylsuend- anum verður svo sýningaratriði Red Arrows, listflugssveitar breska flughersins, og Red Devils, listfallhlífasveitar breska land- hersins. Heiðursgestir ferðarinnar verða gamlar kempur úr íslenskum flug- málum, þeir Þorsteinn E. Jónsson, fyrrverandi flugstjóri, og Úlfar Þórðarson, fyrrverandi augnlækn- ir.“ Fjölbreytt dagskrá Að sögn Gunnars er dagskráin í grófum dráttum á þá leið að farið verður frá Keflavík síðdegis á föstudegi og komið til baka seint að kvöldi sunnudagsins. „Laugar- deginum verður varið í að skoða flugsýninguna í Duxford og kvöld- inu í kastala í nágrenninu. Á sunnudeginum gefst síðan tími til þess að skreppa í búðir, fara í skoðunarferð um London eða rölta um söfn með íslenskum farar- stjóra. Nánari upplýsingar og dagskrá er unnt að fá hjá Fyrsta flugs félag- inu. ítrOjj^Jiijjjáiifiskeií) verfte hcsldin 17, s©pf til 14, dm 2001. Imrífyim frá S.sepL Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna, námskeið fyrir börn og eldri borgara, taltímar, einkakennsla. Kennum í fyrirtækjum. Upplýsingar í síma 552 3870 Alliance Francaise Hringbraut 121/JL-húsiS • Sími 552-3870 • Fax 562-3820 netfang af@ismennt.is • veffang http://af.ismennt.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.