Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Qupperneq 49

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 57 DV Tilvera Afmælisbörn Gloria Estefan 44 ára í dag Söngkonan Gloria Estefan er 44 ára í dag. Hún fæddist í Havana á Kúbu og var skírð Gloria Maria Milagrosa Fajardo. Þegar Gloria var aðeins 16 mánaða gömul flutti hún til Miami í Bandaríkjunum og hefur búið í því landi síðan. Gloria hefur slegið í gegn með tónlist sinni um allan heim og hef- ur gert það gott í tónlistarbransanum. Árið 1990 hryggbrotnaði hún í umferðarslysi en var komin aftur á sviðið aðeins ári eftir slys- ið. Nýlega kom út hennar önnur Greatest Hits-plata sem inniheldur íjögur ný lög. Salma Hayek á afmæli á morgun Mexíkóska ieikkonan Salma Hayek fædd- ist 2. september 1969 í Coatzacoalcos, Mexíkó og verður því 33 ára á morgun. Hún er í dag ein vinsælasta leikkonan 1 kvik- myndaheiminum og hefur fengið íjölda góðra hlutverka. Uppeldi hennar í Mexíkó var nokkuð ólíkt þvl sem gengur og gerist í því landi þar sem faöir hennar var einn af forstjórum ríkisolíufélagsins og móðir hennar óperusöngkona. Meðal mynda sem hún hefur leikið i eru Wild Wild West, Desperado og Fools Rush In. Stjörnuspá Gildir fyrir sunriudaginn 2. september og mánudaginn 3. september Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.t: I dag er eitthvað öðru- vísi en það er vanalega og það angrar þig og vini þína. Það er í þínu valdi að koma málunum í lag. Þér verður sýnd einhver óvirðing í dag og upp kemur misskilningur sem brýnt er að þú leiðréttir. Vertu varkár í fjármálum. Hrúturinn (21. mars-19. anriH: (\BSil Einhver hefur mikinn áliuga á því sem sem m þú ert að að gera og þú ættir að nýta þér það. Happatölur þínar eru 9, 16 og 36. Dagurinn hefst á einhverju óvenjulegu sem á eftir að vera þér ofarlega i hug framan af degi. Vinur þinn sýnir á sér nýja hlið. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): /f*r Þú ert innan um tilfinn- mm£/ ingasamar manneskjur í dag og þarft að haga þér í samræmi við það. Vertu sérstak- lega tillitssamur við þina nánustu. Einhver hefur í hyggju að nýta sér stöðu þína til að koma sér áfram. Þú verður að fara varlega með upplýsingar sem þú geymir. Liónið 123. iúli- 22. áaústi: Spá sunnudagsins ' Dagurinn hefst á ró- legu nótunum, en er líður á hann hefur þú meira að gera og þarft á hjálp að halda til að komast yfir allt. Það hentar þér vel í dag að ræða málin við fólk sem þekkir þig ekki vel þvi þar færð þú góð ráð frá hlutlausum aðila. Vogin (23. sept.-23. .Qkíál Þú ættir að hafa hægt um þig innan um fólk ' f sem þú veist að er á annarri skoðun en þú. Ekki skipta þér af málum annarra. Vinir og ættingjar koma við sögu í dag og það verður mikið um að vera einhvers staðar í fjölskyld- unni. Bogamaður (22. nóv.-21. des.t Spa sunnudagsins ’Þínir nánustu eru upp- teknir af einhverju öðru HBSpK en þér í dag og það gæti angrað þig að fá ekki næga athygli. Happatölur þínar eru 4, 6 og 32. Spá mánudagsins Kvöldið verður skemmtilegt og ef til vill skipuleggur þú ferðalag sem fyrirhugað er í framtíðinni. Farðu varlega í fjárfestingar. Fiskarnif (1 9. febr.-20. marsl: Spá sunnudagsins 0* Fólki í kringum þig hættir til að vera kæru- laust í dag og það bitn- ar óþyrmilega á þér. Vertu þohn- móður við þá sem yngri eru í dag. Dagurinn verður fremur viðburð- arlitill og þú ættir að nota frítíma þinn til að slaka á og hitta fólk sem þú hefur ekki hitt lengi. Nautið (20. april-20. mai.l: / EíæiiijEiffia Heppnin er með þér í / dag á vissum vett- Vr vangi. Ef þú nýtir þér aðstæður gæti dagurinn orðið ein- staklega ábatasamur. Þú mætir skilningi í dag í sam- bandi við ákveðið atriði, en þú verður að leggja þig allan fram til að fólk hafi trú á þér. Krabbinn (22. iúní-22. íúiíi: TK’g-nTiTiTrftg'^riTH «aHaalMnÉÉMMaw | Þú skalt fara varlega í fjármálum í dag og vera viss um að þeir sem þú semur við séu heiðarlegir. Varastu mikla eyðslu. Spá mánudagsins Þó þú mæth’ mótlæti verður þú að trúa á sjálfan þig og gera það sem þú ætlar þér. Það verður hklega á brattann að sækja í vinnunni í dag. Mevian (23. ágúst-22. sept.l: Það er kominn tími til ^^^kað leita á önnur mið og ' vikka sjóndeildarhring- inn. Taktu engar skyndiákvaröan- ir, heldin- hugsaðu þig vel um. Margir sýna þér og hugmyndum þin- mn athygli fyrri hluta dagsins en þú gætir þurft að að sætta þig við að einhver annar tekur við af þér. Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.): Þú mætir metnaðar- j»gjörnu fólki í dag og í átt í vök að verjast í vinnunni. Leggðu þig fram og þú munt fá það sem þér ber. Spá mánudagsins Þú ættir að sækja í margmenni í dag þar sem þú átt eftir að njóta þin vel. Þú heyrir eitthvað sem vekur forvitni þína. Steingeltln (22. des.-19. ian.): 3 Vinur þinn hjálpar þér við erfitt verkefm en þú verður að launa honum greiðann. Ekki gera neitt sem er þér þvert um geð. Þó þú viljir ákveðnum aðila vel getur farið svo að hann taki þér ekki vel og þú ættir aö sýna hon- um skilning í stað þess að reiðast. Skákþing íslands: Landsliðsflokkur Landsliðsflokkurinn er að þessu sinni í Hafnarfirði og mótið byrjaði i gærkvöld. Ekki liggja úrslit fyrir þegar þetta er skrifað. Skákirnar hefjast kl. 17 alla daga, nema síðasta umferð sem hefst kl. 13. Keppt er í kvenna- og „karlafiokki". Karla- flokkurinn er það reyndar ekki lengur því ein kona vann sér rétt til að tefla í landsliðsflokknum, Lenka Ptacnikova, og verður fróðlegt að fyigjast með frammistöðu hennar. Eins gott að greinarhöfundur er ekki með! Og eins og siðaðra manna er háttur þá ætla ég að fjalla um kvennaflokkinn fyrst. Keppendur þar eru: Guðfríður L. Grétarsdóttir, Harpa Ingólfsdóttir, Aldís Lárus- dóttir, Anna Björg Þorgrímsdóttir, Elsa María Þorfinnsdóttir og Hall- gerður Helga Þorsteinsdóttir. Tveir íslandsmeistarar eru með, Harpa Ingólfsdóttir, núverandi Islands- meistari, og Guðfríður L. Grétars- dóttir, margfaldur íslandsmeistari. En það er aldrei að vita nema nýr íslandsmeistari líti dagsins ljós. Þetta eru allt ungar stúlkur og það er bara að vona að fleiri stúlkur og konur sjái ijósið og fari að tefla. Skákheimurinn er ákaflega skemmtilegur þegar fólk fer að kynnast honum almennilega, skák- fólk er ákaflega skemmtilegt - það hafa fleiri en einn „ekki skákarar" tjáð mér, bæði íslenskir og erlendir, og ég vona að við stöndum undir því. Það gerum við reyndar! Keppnin í landsliðsflokki verður vafalaust spennandi og hörð og ekki vfst að stórmeistararnir sigri þó að Hannes Hlífar sé óneitanlega sigur- stranglegur, langefstur að stigum. En núverandi íslandsmeistari er Jón Viktor Gunnarsson. Keppnin verður á veraldarvefnum (Internet- inu!) og skákirnar sýndar beint. Nú þegar hefur orðið vart við mikinn áhuga erlendis frá og hefur verið ákveðið að hafa umfjöllunina á ensku að mestu leyti á vefnum. Þarna fær hinn hýri Hafnarfjörður góða auglýsingu og maður á eflaust eftir á komandi misserum að heyra margbreytilegan ft-amburð á orðinu Hafnarfjörður. Keppendur eru eftir- farandi: Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Þórhallsson, Jón Viktor Gunnarsson, Stefán Kristjánsson, Bragi Þorfinnsson, Jón Garðar Við- arsson, Sigurbjörn Björnsson, Lenka Ptacnikova, Arnar Gunnars- son og Björn Þorfinnsson. Allt er þetta ungt fólk og nafnið á aldurs- forsetanum er ekki gefið upp, en hann mun vera frá Akureyri og er ekki mjög gamall. Nú, á nýju árþús- undi, eru að byrja ný kynslóða- skipti, eina ferðina enn (!), i skák- inni og ætla ég að lýsa fyrir lesend- um hvernig líf ungs skákmanns í dag er, sérstaklega hjá þeim sem eru í fremstu röð eins og strákarnir í Firðinum. Veraldarvefurinn er einn mikilvægasti þátturinn. Þar er bæði hægt að tefla, skoða skákir og spjalla saman á skákspjallsrásum og kemur það í góðar þarfir, sér- staklega þegar menn eru erlendis. Þá eru leitaðar uppi svokallaðar „netkaffistofur", eins og við strák- arnir köllum þær. Þar er hægt að slá andstæðingnum upp - tökum mig sem dæmi. Ef strákarnir eiga að tefla við mig þá fara þeir inn á sérstakar heimasiður og slá inn nafnið mitt á erlenda vísu, Bjarna- son Saevar. Þá fá þeir upp nokkur hundruð skákir með mér, allt frá 1973, og þeir renna yfir nokkrar til að fá á tilfinninguna hvernig ég tefli. Síðan ákveða þeir hvaða byrj- un þeir ætla að beita gegn mér og slá síðan nafnið á byrjuninni á ensku inn á heimasíðuna og guð má vita hversu mörg þúsund skákir birtast á skjánum. Venjulegast eru skoðaðar nokkrar skákir með sterk- um stórmeisturum. Síðan er teflt eða spjallað við vinina á alþjóða- veraldarvefs-taflfélaginu. Ef menn eru erlendis er fariö inn á visir.is og fréttir að heiman skoðaðar þannig að skákmenn eru alltaf með á nót- unum um gang mála. Svo halda ungu skákmennirnir hópinn. Hér heima hafa þeir stofnað nokkur fé- lög með undarlegum nöfnum og keppa í íþróttum, likamlegum íþróttum, og svo skemmta menn sér saman. Sérlega góður félagsskapur enda fáheyrt að skákmenn leiðist út í einhverja vitleysu, eins og afbrot eða eiturlyfjaneyslu. Nei, engin della þarna á ferðinni, nema auðvit- að skákin! í dag verður engin skák birt og ef menn vilja komast í tæri við skák verða þeir að bregða sér i gamla og góða íþróttahúsið við Standgötuna í Hafnarfirði, eða, eins og ég, fara inn á síðurnar: http://www.skak.is/si/sthi2001/kve nna/sthi2001.htm fyrir stúlkurnar eða fyrir landliðsflokkinn: http://www.skak.is/si/sthi2001.htm Góða skemmtun! Hátíð í bæ / tilefni af Ijósanótt í Reykjanesbæ veröur mikið um aö vera í bænum i dag og í kvöld. Ljósanótt í Reykjanesbæ 2001: Mikið um dýrðir íbúar í Reykjanesbæ og nærsveit- um ætla að halda daginn í dag há- tíðlegan og í kvöld er árleg ljósanótt í bænum. Af þessu tilefni verður mikið um að vera. Bæjarbúar munu draga fána að húni og verslanir og veitingastaðir verða með ljósanæt- urtilboð allan daginn. Ópera og bryggjusöngur Einn af hápunktum hátíðarinnar er án efa frumsýning óperunnar Z ástarsaga eftir Sigurð Sævarsson sem fram fer i Dráttarbrautinni og hefst kl. 19. Duus/Víkin verður líka vettvangur hátíðahaldanna frá kl. 13-24. Þar veröur m.a. sýning á bátalíkönum í Byggðasafninu, hopp- kastali og andlitsmálun fyrir börnin og sæþotukappar sýna listir sínar fyrir utan smábátabryggjuna. Ellert Eiríksson ávarpar bæjarbúa kl. 20.30 og að því loknu hefst bryggju- söngur. Karlakórinn og Kvennakór- inn taka þar lagið ásamt Rúna Júl., meðal annarra. Kl. 22 verður flug- eldasýning og að henni lokinni hefst bryggjuball þar sem Mummi Her- manns leikur fyrir dansi. Af öðrum atriðum má nefna að nokkrir nikkukarlar munu spila fyrir bæjarbúa og götuleikarar verða á göngugötunni frá kl. 12-24. Sambíóin bjóða börnum Reykjanes- bæjar frítt í bíó á meðan húsrúm leyfir á Disneymyndina Nýi stíllinn keisarans og á tímabilinu 13-15.15 verða Stuttmyndir - Glefsur frá bæj- arlífinu fyrr á tímum, á sama stað. Veltubíllinn verður í Hafnargötu 12 og í Skrúðgarðinum verða knatt- spyrnuþrautir. Skátar kynna starf sitt á Keflavíkurtúni og frítt er í sund. Að auki má nefna körfubolta- leik, körtuakstur, púttmót, hest- vagnaferðir og listsýningar úti um allan bæ. Gleðistund verður í Kefla- víkurkirkju kl. 14, sýningar og rat- leikur í bókasafninu og kveikt verð- ur á lýsingu á minnismerki um drukknaða og horfna sjómenn. Moby Dick býður fjölskyldutilboð á siglingum og listaverk Erlings Jónssonar verður vígt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.