Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Side 50
58
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
Tilvera
EFTIR VINNU
Vatnslitamyndir
í Stöðlakoti
Listakonan Hrefna Lárusdóttir
opnar í dag sýningu á
vatnslitamyndum í Stöðlakoti,
Bókhlöðustíg 6. Hrefna er
Reykvíkingur en hefur verið
búsett erlendis í 29 ár. Sýning
hennar nefnist „Heima og heima“.
Hrefna hefur áður sýnt akrýl- og
vatnslitamyndir í Reykjavík,
Þýskalandi, Lúxemborg og
Isafirði. Sýningin verður opin
daglega frá 14 til 18 frá 1. til 16.
september.
Opnanir
ySIAMAÐURINN Á HORNINU í
MIÐBÆNUM I dag klukkan 16 mun
önnur sýning útilistaverkefnisins
Listamannsins á horninu verða
formlega opnuö á horni
Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis.
Bandaríski listamaöurinn Eileen
Oliveri Torpey býður gestum og
gangandi aö njóta vettvangsverksins
Söfnunar meö sér. Söfnun stendur
í tvær vikur og er fólki bent á aö
bregöa undir sig betri fætinum og
litastu um.
LETTI í HAFNARBORG í kaffistofu
Hafnarborgar veröur Andri Egilitls
frá Lettlandi meö Ijósmyndir til sýnis
frá og meö deginum í dag til 24.
september. Viöfangsefni hans er
landslagiö og í myndum hans eru
sjónræn tilþrif notuö til hins ýtrasta
án þess aö farið sé yfir strikiö.
Hafnaröorg er oþin alla dag frá
klukkan 11 til 17.
SPEGLAR í LISTASAFNI
SIGURJONS Speglar nefnist sýning
á verkum eftir Helga Gíslason
' myndhöggvara sem verður opnuö í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
laugardaginn 1. september kl. 16.
Sýningin er liður í þeirri stefnu
safnsins að þjóða myndhöggvara aö
sýna í húsakynnum þess. sem auk
þess aö vera rammi um verk
Sigurjóns Ólafssonar, hafa reynst
sérstaklega hentug fyrir þrivíöa list.
Sýningin veröur opin alla daga nema
mánudaga milli 14 og 17 í
septemþer og um helgar á sama
tíma í október.
ARNGUNNUR ÝR í GALLERÍI
SÆVARS KARLS Sýning á verkum
Arngunnar Yrar veröur opnuð í
Galleríi Sævars Karls í
Bankastræti í dag klukkan 14.
Arngunnur Ýr vekur spurningar um
mikilvægi og varanleika
listaverksins. Viö fyrstu sýn viröast
myndir vera að flosna upp. Innri
lögin undir greinanlegu myndinni eru
gömul veöruö lög sem laða augaö
aö.
Klassík
KVEÐSKAPUR OG FORNAR
STEMMUR I ARBÆJARSAFNI Á
morgun veröur sérstök dagskrá í
Árbæjarsafni klukkan 14 I tilefni
síöustu sýningarhelgar
sumarsins. Kvæðamennirnir
Siguröur Slguröarson, Steindór
Andersen og Magnea Halldórsdóttir
kveöa fornar stemmur og veita
gestum leiösögn í stemmuflutningi.
Kvintbræöur, Orn og Sigursteinn
Magnússynlr, flytja síðan
fimmundarsöngva. Kaffisala veröur
á staönum, harmoníkuleikur og
hægt aö fylgjast meö roðskógerð.
Sjá náriar: Lífiö eftir vinnu á Vísl.ls
I>V
Tíu ár í útvarpinu
- ætla að halda upp á daginn með hlustendum mínum, segir Anna Kristine útvarpsmaður.
Útvarpskonan góökunna, Anna
Kristine, ætlar á sunnudaginn að
setjast aftur viö hljóönemann og
taka upp þráðinn að nýju með þátt
sinn, Milli mjalta og messu. Þátt-
urinn, sem er aö fara í loftið sjötta
árið í röð, hefur notið mikilla vin-
sælda og var í mars síðastliðnum
kosinn vinsælasti útvarpsþáttur-
inn á frjálsu stöðvunum í skoðana-
könnun Gallups.
Breytingar í vændum
Anna segir að þátturinn sé í loft-
inu milli níu og ellefu á sunnu-
dagsmorgnum. „Þátturinn hefur
fram að þessu einkennst af tónlist
og viðtali við eina manneskju í
klukkutima. En að þessu sinni
ætla ég að nota fyrri hlutann til að
bjóða upp á getraunir og ýmislegt
fleira skemmtilegt. Ég ætla að fara
yfir feril ungra söngvara og reyna
að fá þá í heimsókn. Við heyrum
oft í þessu fólki en vitum í raun
ekkert um það.“
Aðspurð segir Anna að sig langi
til að tala við Margréti Eir Hjart-
ardóttur, Stefán Hilmarsson og
írisi í Buttercup, svo einhverjir
séu nefndir. „Þau vita það bara
ekki enn þá.“
Þemaþættir
„Auk heföbundinna viðtala ætla
ég líka að vera með þemaþætti þar
sem ákveðin málefni verða tekin
fyrir. Ég ætla til dæmis að fjalla
um mannasiði, siðblindu, sértrú-
arhópa og ýmiss konar hlutverk
sem fólk hefur í lifinu. Mig langar
líka að taka fyrir framhjáhald og
fá til mín fólk sem kann eitthvað
fyrir sér í slíkum málum. Hlust-
endur geta þá líka hringt inn og
sagt sína skoðun eða spurt við-
mælanda spuminga. Ég er viss um
Milli mjalta og messu
Mig langar líka aö taka fyrir framhjáhald og fá til mín fólk sem kann eitt-
hvaö fyrir sér í slíkum málum. Hlustendur geta þá líka hrlngt inn og sagt
sína skoðun eöa spurt viömælanda spurninga.
að það er fullt af fólki sem langar
til að vita hvernig er að lifa tvö-
foldu lífi, án þess þó að prófa það.“
Heldur upp á daginn
í útvarpinu
Á sunnudaginn eru liðin tíu ár
frá því Anna Kristine settist fyrst
við hljóðnemann og á þeim árum
hefur hún stjómað fjölda vinsælla
útvarpsþátta, eins og til dæmis
Þjóðarsálinni. Milli mjalta og
messu er þó án efa vinsælasti þátt-
ur hennar til þessa. Þegar Anna er
spurð hvort hún ætli að halda sér-
staklega upp á daginn svarar hún
því neitandi: „Ég ætla bara að
vera í útvarpinu og tala við hlust-
endur mína.“
Litróf lífsins
Anna Kristine er með mörg jám
í eldinum og um næstu jól kemur
út bók sem hún hefur nýlokið við.
„Ég veit ekki hvað bókin kemur
endanlega tO með að heita en ég
kalla hana Litróf lifsins. Þetta er
viðtalsbók þar sem ég tala við
flmm konur sem búa yfir mikilli
lífreynslu og vilja miðla af henni. í
bókinni er að finna bæði sorg og
gleði, sigra og ósigra og allt þar á
milli.
Ég er búin að starfa við fjölmiðl-
un í tuttugu og fimm skemmtileg
ár og mig langar að nota tækifær-
ið og þakka lærimeistara mínum
fyrir. Ég man vel eftir því þegar
hann Sigurjón Jóhannsson, blaða-
maður og kennari i fjölmiðlafræði
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti,
tók við mér fyrsta daginn minn á
Vikunni. Ég var alger nýgræðing-
ur og hann leiddi mig yfir fyrstu
hindranirnar af einstakri ljúf-
mennsku og kenndi mér allt sem
ég kann.“ -Kip
Jóna Rúna Kvaran hefur opnað vef:
Vill efla trú á gildi góðleikans
„Mér finnst Netið heillandi birt-
ingarform fyrir uppbyggilegt og að-
gengilegt efni,“ segir Jóna Rúna
Kvaran, rithöfundur og sjáandi,
sem nýlega opnaði vefinn
www.jonaruna.com. Þar inni eru
meðal annars kærleikshvetjandi
hugleiðingar, frásagnir af dulrænni
reynslu, gamanmál, jákvæðir lífs-
leiknipistlar og hvers kyns heil-
ræði. „Vefurinn er fyrir fólk á öll-
um aldri. Auk þess að lesa það sem
þar er getur það sent mér skilaboð
og frásagnir. Markmiðið með vefn-
um er að efla trú á gildi góðleikans
í mannssálinni. Viö þurfum að hlúa
að jálægum lifsvilja fólks í hverful-
um heimi.“
Ekki ein í ráðum
Hún kveðst ekki vera ein í ráð-
um. Unga fólkið í kringum hana
eigi ekki síður heiöurinn af þessu
framtaki. „í byrjun gaf Hulda Rós
Ingibergsdóttir hugmyndum mínum
að heimasíöu líf og hvatti mig til
dáða. í kjölfarið tóku þrjú ung-
menni við siðunni. Dóttir mín, Nína
Rúna Kvaran, sópransöngkona og
þýðandi, Jón Þorsteinn Sigurðsson,
sem er vefsíðustjóri, og Ásgeir Sig-
urðsson, kerfisfræðingur og kerfis-
stjóri. Þau hafa unnið frábært starf
af smekkvísi og velvilja."
Jóna Rúna hefur fengið viðbrögð
vegna vefsins víða að úr veröldinni,
m.a. frá Namibíu, Ástralíu, Kanada,
Svíþjóð og Bandarikjunum, enda er
vefurinn uppfærður bæði á ensku
og íslensku. Þótt hann sé tiltölulega
nýr hafa þegar tæplega fjögur þús-
und manns heimsótt hann.
Skrifaöi pistla fyrir sjálfa sig
Jóna Rúna er löngu landsþekkt
fyrir dulargáfur sínar. Hún skrifaði
árum saman pistla í Vikuna og
svaraði lesendabréfum. Hún kveðst
hafa myndað í gegnum það starf
mjög sérstakt trúnaðarsamband við
lesendur. En hver er undirrótin aö
þessu starfi? „Þegar ég var yngri fór
ég að skrifa jákvæða pistla til upp-
byggingar fyrir sjálfa mig, pistla um
gleði og sorg, sigra og ósigra, og hef
síðan deilt þeim smám saman með
samferðafólki mínu,“ svarar hún.
Hlúir að jálægum lífsvilja fólks
Jóna Rúna Kvaran, rithöfundur og sjáandi.
Enginn fjárhagslegur ábati
Hvað skyldi þaö vera sem knýr
Jónu Rúnu áfram í baráttu sinni
fyrir bættum heimi?
„Þessi vefur er allur unninn í
sjálfboðavinnu og enginn fjárhags-
legnr ábati er aö framtakinu. Drif-
krafturinn á bak við þessa vinnu er
trúin á mikilvægi kærleikshvetj-
andi sjónarmiða og vissan um að
það sé áríðandi að ýta undir tiltrú
fólk á gildi góðleikans í mannlegum
samskiptum."
-Gun.