Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Fréttir
DV
Nýtt brunabótamat hrellir ellilífeyrisþega í Grindavík:
Hrörleg útihús
metin á 20 milljónir
- gamalt mjólkurhús hækkaði á þriðju milljón í matinu
Vaxtalækkun tímabær
Skýr samdráttar-
einkenni eru í samfé-
laginu að mati Dav-
íðs Oddssonar forsæt-
isráðherra. Hann tel-
ur að Seðlabankinn
eigi fremur að horfa
fram á við en aftur á
bak í mati á stöðu
efnahagsmála. Davíð segir tímabært
að lækka vexti en segist verða að halda
sig til hlés í umræðunni þar sem Seðla-
bankinn heyri undir hans ráðuneyti. -
Fréttablaðið greindi frá.
Karl Júlíusson, ellilífeyrisþegi
I Grindavík, trúði ekki sínum eig-
in augum þegar hann fékk yfirlit
yfir endurskoðað fasteignamat og
brunabótamat á húseignum sín-
um frá Fasteignamati ríkisins.
Brunabótamat á gömlu útihúsi
sem hann á, hafði hækkað úr
rúmum 7,6 milljónum í ríflega
20,3 milljónir. Gömul geymsla við
útihúsin, sem upphaflega var
mjólkurhús, hækkaði úr 2,2 millj-
ónum króna í 4,8 milljónir í mati.
Fasteignamat útihúsanna hækk-
aði einnig, en þó ekki nærri eins
mikið og brunabótamatið.
Útihúsin voru upphaflega fjós
og hlaða. Síðar var rekin þar salt-
fiskverkun og rækjuverksmiðja.
Húsin hafa staðið ónotuð síðan
1987. Karl hefur hýst þar nokkrar
rollur og geymt hey, auk þess
sem hann hefur skotið þaki yfir
fáeina tjaldvagna. Byggingin er
skráö sem iðnaðarhúsnæði hjá
Fasteignamatinu. Heildarbruna-
bótamat á eignum Karls hefur nú
hækkað um 17 milljónir og fast-
eignamatið um nær 10 milljónir
króna við endurmat FR.
„Ég var nýbúinn að láta lækka
fasteignamatið á eignunum, þeg-
ar endurmatið kom til sögunnar,"
sagði Karl.“ Þá rauk það upp aft-
ur og er nú hærra en nokkru
sinni fyrr. Ég er alveg rasandi á
þessum vinnubrögðum, en hef
engar skýringar fengið.
Brunabótamatið:
Engar breytingar
fyrirhugaðar
- segir ráöherra
Valgerður Sverr-
isdóttir viðskipta-
ráðherra segir að
endurskoðað bruna-
bótamat lýsi betur
efnislegum verð-
mætum sem geti
glatast í eldi. Um
það eigi málið að
snúast.
Kærur frá fast-
eignaeigendum hafa
streymt inn til Fasteignamats ríkis-
ins vegna endurskoðunar á fast-
eignamati og brunabótamati. Kæru-
frestur rennur út 15. þessa mánaðar.
„Það er aldrei þannig að maður
telji að einhver löggjöf sé svo full-
komin að ekki megi athuga hvort
eitthvert atriði þurfi leiðréttingar
við,“ sagði hún, aðspurð hvort til
greina kæmi að fresta gildistöku
nýja brunabótamatsins eða hrein-
lega undirbúa frumvarp til breyting-
ar á lögum frá 1999, þar sem kveðið
er á um afskriftir. „En miðað við
það sem okkur sýnist höfum við enn
ekki séð ástæðu til að fara í vinnu
við breytingar á lögunum.“ -JSS
Ferðalögum að ljúka:
Síðasta ferð
sumarsins
Valgerður
Sverrisdóttir.
DV, SEYDISFIRÐI:
Norræna kemur til Seyðisíjarðar
í síðustu ferð sumarsins í dag. Með
skipinu koma 155 farþegar og 55 far-
artæki. Utan fer skipið með 600 far-
þega og 250 farartæki. Næsta vor
hefur Norræna siglingar á ný en
það verður síðasta sumar þessa
skips. Von er á stærri og glæsilegri
farkosti sumarið 2003. -KÞ
Dýrt spaug
Þaö getur veríö dýrt spaug að eiga fasteignir, þótt gamiar séu. Hér er Karl
viö gömlu útihúsin sem ruku upp um nær 13 milljónir króna í endurskoöuöu
brunabótamati.
Ástandið á útibyggingunni er
afar bágborið. Timbrið í þakinu
er svo fúið, að það heldur engum
nöglum. Mér hefur þó tekist að
skipta um hluta af járninu á því.
Hluti af þakinu fauk fyrir
nokkrum árum. Þá kom maður
frá Fasteignamatinu. Hann sagði
að húsið væri ónýtt og það myndi
ekki borga sig að meta það. En
það er ekki að sjá að það sé ónýtt
í dag, með rúmar 20 milljónir í
brunabótamat og rúmar 8 millj-
ónir í fasteignamat."
Karl greiddi innan við 25 þús-
und í brunabótagjöld, en sam-
kvæmt nýja matinu þarf hann að
borga um 63 þúsund. Fasteigna-
gjöldin eru á 3. hundrað þúsund,
en voru um 200 þúsund fyrir end-
urmatið.
„Ég ætla að brjóta niður mjólk-
urhúsið og útihúsin gömlu og
láta fjarlægja þau,“ sagði Karl.
„Það er ekki um neitt annað að
gera. En ég skii ekki hvernig
Fasteignamatið hefur fengið út að
þessar byggingar væru allt í einu
orðnar svona verðmætar, því það-
an hefur enginn maður komið til
þess að meta þær. Það er eitthvað
loðið við þetta allt saman.“
Karl hefur auglýst húseignir
sínar til sölu en ekkert tilboð
fengið. Þau hjónin hafa 150 þús-
und krónur í mánaðartekjur, en
þurfa að greiða rúm 90 þúsund á
mánuði í afborganir af lánum af
byggingunum. Vegna þessa háa
fasteignamats fá þau engar vaxta-
bætur.
„Þessar rollur og kartöflur í
garði á haustin bjarga okkur,“
sagði Karl. „Ella væri litið til að
lifa af.“ -JSS
Framsókn bjartsýn á að sátt náist um R-listann:
Þarf að rýmka til
fyrir Vinstri-græna
Sjúkraliöar í hart?
Fjöldi sjúkraliða hefur sagt upp
störfum en allflestir sjúkraliðar sem
starfa hjá ríkinu vilja grípa til verk-
fallsaðgeröa til að fylgja eftir kröfum
sínum. - RÚV greindi frá.
Engin efnahagsleg áhrif
Geir Haarde fjár-
P málaráðherra sagði i
fréttum á Stöð tvö í
I gærkvöldi að rúm-
||7 * láfnl le8a 4 milijarða
m króna halli á ríkis-
M sjóði sé bókhaidsleg-
■k Jm ur °S hafi ekki efna-
H.______hagsleg áhrif. Við af-
greiðslu fjárlaga var gert ráð fyrir rúm-
lega 16 milljarða rekstrarafgangi.
Gagnrýnir hallarekstur
Gyifi Arnbjömsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, segir að illa hafl verið hald-
ið á fjármálum ríkisins í góðærinu.
Þetta sé augljóst af ríkisreikningi fyrir
síðasta ár en samkvæmt honum varð 4
milljarða króna halli á rekstri ríkis-
sjóðs. Gylfi lýsti yflr áhyggjum af út-
gjaldaaukningu og tekjusamdrætti sem
verði mætt með auknum álögum.
Forseti fram úr áætlun
Embætti forseta íslands fór sjö millj-
ónir króna fram úr áætlun á árinu
2000. Útgjöldin námu þá 131 milljón
króna en til embættisins höfðu verið
ætlaðar 124 miHjónir.
Minna i ríkiskassann
Fyrstu sjö mánuði þessa árs em tekj-
ur ríkissjóðs af veltusköttum þremur
til flórum milljörðum króna lægri en
væntingar vom um. Heildartekjumar
eru hins vegar ámóta miklar og gert
var ráð fyrir - þar sem tekjuskattar eru
því hærri. Þar munar talsvert um flár-
magnstekjuskatt.
Langt fram úr áætlun
Ríkislögi-eglustjóri eyddi í fyrra 190
milijónum króna umfram áætlun. Al-
þingi gerði ráð fyrir 624 milljóna króna
útgjöldum en þau urðu hins vegar 814
milljónir þegar upp var staðiö. Útgjöld-
in árið 1999 voru 344 milljónir og nam
hækkunin milli ára þvi 470 milljónum
eða 137%.
- viðræðuhlé vegna Orkuveitunnar og ekki búið að boða næsta fund
Guöjón Olafur
Jónsson.
Engir fundir
hafa farið fram um
skeið vegna þreif-
inga Vinstri-
grænna, Samfylk-
ingar og Framsókn-
arflokksins um
samstarf í Reykja-
víkurlistanum. Að
sögn Guðjóns Ólafs
Jónssonar, sem
leiðir viðræðurnar
fyrir hönd Framsóknar, er ástæðan
aö hluta til tengd málum Orkuveitu
Reykjavikur.
Eins og fram kom í DV fyrir
skömmu sagði Sigríður Stefáns-
dóttir hjá Vinstri-grænum að hlé
hefði orðið á viðræöunum vegna
þess að beðið væri upplýsinga. Hún
vildi ekki tjá sig um hvers konar
gögn væri að ræða en Guðjón Ólaf-
ur segir að þau tengist Orkuveit-
unni að hluta. Skiptar skoðanir eru
meðal Vinstri-grænna og hinna
fylkinganna um
rekstrarform Orku-
veitunnar en Guð-
jón Ólafur hyggur
að sá þröskuldur
verði yfirstíganleg-
ur og hann er bjart-
sýnn á niðurstöð-
una. „Menn eru
nánast sammála
um alla hluti.“
Sandurinn renn-
ur hins vegar í tímaglasinu, ekki
síst þar sem Vinstri-grænir hafa
sagt að þeir þyrftu að skila niður-
stöðum úr könnunarviðræðunum
til sinna félagsmanna eftir rúma
viku. Þótt næsti fundur hafi ekki
verið boðaður telur Guðjón Ólafur
að fundað verði innan skamms og
hann hyggur að eitthvað óvænt
verði að koma upp á til að viðræð-
urnar sigli í strand.
Vinstri-grænir horfa til beggja
átta en vilji Framsóknar og Sam-
Sigríður
Stefánsdóttir.
fylkingarinnar
liggur fyrir um
áframhald R-list-
ans. Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir,
sem fer fyrir Sam-
fylkingarfólki í við-
ræðunum, sagði í
DV fyrir skemmstu
að uppstillingar-
málin væru enn
órædd og þau yrðu
flóknasta úrlausnarefnið. Guðjón
Ólafur segir að það mál sé snúið
hjá Samfylkingunni þar sem 6 af 8
borgarfulltrúum R-listans komi
þaðan. „Það þarf að rýmka ein-
hvers staðar til fyrir Vinstri-
græna.“ Hins vegar verði varla
vandamál fyrir Framsókn að ráða
sínum uppstillingarmálum en Guð-
jón telur rétt að bíða með frekari
hugmyndir í því efni.
„Það er nógur tími. Þetta er allt i
sómanum," segir Guðjón. -BÞ
Reglur brotnar?
í kæru Landsvirkj-
unar segir að úr-
skurður Skipulags-
stofnunar vegna
Kárahnjúkavirkjunar
sé efnislega rangur,
málsmeðferð sé
ábótavant og megin-
reglur stjómsýslu-
réttar hafl verið brotnar. Rökstuðning
skorti og leiðbeiningarskyldu ekki
gætt.
Eldur á Hótel Loftleiöum
Slökkvilið var kallað að Hótel Loft-
leiðum skömmu fyrir hádegi i gær. Eld-
ur hafði komið upp í rafmagnstöflu í
kjallara. Vel gekk að ráða niðurlögum
eldsins og ekki urðu meiðsl á fólki.
Vatnsflóö í Hlíðaskóla
Heitt vatn flæddi um gólf í Hlíða-
skóla í gær og var vatnsborðið 2 sm
hátt þegar slökkvilið bar að garði. Hús-
vörður mun hafa verið að bora í vegg
þegar gat kom á vatnspípu. -HKr.