Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Fréttir
ÐV
Örlygur Jónsson, pitsusendill Pizzahússins, sætir aöför sýslumanns:
I klóm kennitölubraskara
- rukkaður um sama virðisaukann þrisvar. Rekstraraðili kærður til lögreglu
Hundeltur
Örlygur Jónsson sýpur nú seyöiO af starfi sínu undir hinum ýmsu kennitölum
Pizzahússins. Sýslumaður krefur hann um virOisaukaskatt sem hefur veriö
dreginn af honum i tvígang.
„Ég er í klóm kennitölubraskara og
þarf aö vinna dag og nótt til að greiða
skuldir sem eru tilkomnar vegna
svika vinnuveitenda rninna," segir
Örlygur Jónsson, fyrrverandi pitsu-
sendill hjá Pizzahúsinu, sem er hund-
eltur af Sýslumanninum í Kópavogi
vegna virðisaukaskattsskuldar sem
hann hefur greitt í tvígang til vinnu-
veitenda sinna. Umræddur viröis-
aukaskattur er í vanskilum síðan árið
1999 og hljóðar krafan upp á 220 þús-
und krónur. Örlygur segir að um það
hafi verið samið að vinnuveitandinn,
Ólafur Þór Jónsson, þáverandi rekstr-
araðili Pizzahússins, greiddi virðis-
aukaskatt af verktakalaunum Örlygs.
Vinnuveitandinn stóð ekki við þetta
þrátt fyrir ítrekuð loforð. „Ég hef unn-
ið hjá Pizzahúsinu með hléum síðast-
liðin sex ár. Árið 1999 var í gildi
munnlegur samningur um að þáver-
andi rekstraraðili greiddi virðisauka-
skattinn. Þrátt fyrir mikla eftirgangs-
muni af minni hálfu borgaði hann
ekki og sýslumaður krafði mig um
greiðslu," segir Örlygur.
Hann segir að á meðan hann stóð í
stappi við Ólaf Þór um greiðsluna hafi
ný kennitala dúkkaö upp á rekstrin-
um. Þá hafi hann komist að þeirri nið-
urstöðu að ekki væri um annað að
ræða en greiða skuldina sjálfur. Hann
gekk því á fund Sigurðar Ómarssonar
rekstrarstjóra og samdi við hann.
„Sigurður kynnti sig meðal starfs-
fólks sem eiganda fyrirtækisins. Ég
samdi viö hann um að draga af mér
ákveðna upphæð mánaðarlega og
greiða sýslumanni. Ég vildi umfram
allt losna úr snörunni. Næstu mánuði
voru dregnar af mér 160 þúsund krón-
ur. En þá kom áfalliö því ekki ein
króna af þessu skilaði sér til sýslu-
manns og nú stefnir í að ég þurfi að
greiða sama virðisaukaskattinn í
þriðja sinn því hótanir sýslumanns
dynja stöðugt á mér,“ segir Örlygur.
82 ára stjórnarformaður
Eins og DV greindi frá í vikunni er
Pizzahúsið nú rekið undir fjórðu
kennitölunni á aðeins hálfu ári. Blað-
ið ræddi þá við Sigurð Ómarsson sem
að mati Örlygs er eigandi fyrirtækis-
ins. Sigurður þrætti þá fyrir að eiga
hlut í kennitölufyrirtækjunum en
neitaði að upplýsa hver væri hinn
raunverulegi eig-
andi. 1 fyrirtækja-
skrá er Jón P.
Andrésson, 82 ára
vesturbæingur,
skráður forráða-
maður Pizzahúss-
ins ehf. og Pizza-
hússins heimsend-
ingarþjónustu ehf.
Þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir hefur
DV ekki náð tali af
þeim manni. Ör-
lygur hætti störf-
um hjá Pizzahús-
inu í júlí sl. og sýpur nú seyðið af
starfi sínu undir hinum ýmsu kenni-
tölum Pizzahússins. Sigurður Ómars-
son, forsvarsmaður Pizzahússins,
ságði við DV á þriðjudag að hann
væri á leið í bankann til að greiða
virðisaukaskattsskuld Örlygs. Hann
hefur eitthvað villst af leið því í gær
hafði engin greiðsla borist.
„Þessir menn skipta um kennitölur
oftar en sokka og þama era einhverj-
ir huldumenn á ferðinni. Samskiptin
eru ótrúleg því stöðugt er lofað að
borga en ekki staöið við neitt. Ekki er
nóg með að ég þurfi að greiða virðis-
aukaskattinn í þriðja sinn því ég hef
engin laun séð fyrir júnímánuö," seg-
ir Örlygur.
Hann hefur kært Sigurð Ómarsson
til efnahagsbrotadeildar lögreglunnar
fyrir að hafa dregið sér fé. Þá hefur
hann einnig leitað á náðir Verkalýðs-
félagsins Eflingar til að ná fram leið-
réttingu sinna mála. Hann er búinn
að selja bifreið sína og baráttan vegna
skuldanna stendur sem hæst.
„Mér skilst að það taki tvö til þrjú
ár að ná fram rétti sínum í gegnum
verkalýðsfélagiö og ég verð að þrauka.
Ég hef reynt að skýra stöðu mína fyr-
ir Sýslumanninum í Kópavogi en það
hefur ekkert að segja og hótanirnar
dynja á mér,“ segir örlygur Jónsson.
-rt
Óheppnlr
Siguröur Ómarsson svarar fyrir eigendur Pizzahússins en
kveöst ekkert eiga í fyrirtækinu sjálfur. Hann segir eig-
endurna hafa veriö óheppna meö leigjendur aö rekstrin-
um, því sé svo komiö sem raun ber vitni.
Tómur salur
Sú orrahríö sem staöiö hefur um Pizzahúsiö hefur oröiö til þess aö viöskipta-
vinir láta ekki sjá sig. Hér er rekstrarstjórinn, Constance Ménsah.
Umræðan um Pizzahúsið:
Fólk hætt að koma
- segir rekstraraðili
„Umfjöllun um Pizzahúsið í fjöl-
miðlum hefur stórskaðað okkur.
Hingað kemur varla neinn leng-
ur,“ segir Constance Ménsah sem
rekur veitingastaðinn Pizzahúsið
undir félaginu Constance ehf.
Þar er um að ræða eina af fjór-
um kennitölum sem Pizzahúsið
hefur verið rekið undir síöan á
áramótum. Constance leigir rekst-
ur veitingastaðarins af eigendum
Pizzahússins ehf. en annað fyrir-
tæki, Pizzahornið ehf., leigir
rekstur heimsendingarþjónustu
Pizzahússins. Constance segir
sárt að þurfa að gjalda gjörða ann-
arra með því að fólk snúi baki við
veitingahúsinu og tómur salur sé
regla fremur en undantekning.
„Ég skulda engum neitt og
borga alla reikninga með skilum.
Ég skil ekki af hverju mitt fyrir-
tæki verður fyrir þessu,“ segir
Constance. -rt
Slys á Hverfisgötu
Kona slasaöist þegar hún varö undir
strætisvagni.
Hverfisgata:
Varð undir
strætisvagni
Kona á níræðisaldri varð undir
strætisvagni við Hverfisgötu síðdeg-
is í gær. Tildrög slyssins munu vera
þau að konan sté niður af palli í bið-
skýli og datt fram fyrir sig með
þeim afleiðingum að höfuð hennar
skall í neðstu tröppu vagnsins. Að-
stoð tækjabíls slökkviliðs þurfti til
að ná konunni undan vagninum.
Hún var flutt á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi. Þær upplýsing-
ar fengust á slysadeild í morgun að
líðan konunnar væri eftir atvikum
en hún beinbrotnaði auk þess að
hljóta höfuðáverka. -aþ
Óvíst hvert
Keikó fer
„Þaö er verið að skoða málin í
heild sinni og skoðaðir sérstaklega
möguleikar á því að Keikó fari til
Keflavíkur eða Húsavíkur en við
höfum átt mjög góðar viðræður við
aðila á þessum stöðum," segir Hall-
ur Hallsson, talsmaður þeirra sem
standa að hvalnum Keikó og til-
raunum við að sleppa honum laus-
um út í náttúruna að nýju.
Þær tilraunir hafa ekki borið ár-
angur og nú er leitað að framtíðar-
heimili fyrir Keikó sem verður að
yfirgefa Klettsvíkina í Vestmanna-
eyjum. Hallur segir að ákvörðun
um það hvert farið verður með
Keikó muni ligja fyrir eftir nokkrar
vikur en segir að ekki sé útilokað að
farið verði með hann utan. -gk
VfeSNiiið) li Krt/öáldl
y<3
'<i\
íof7
(10 <
Íp9°
3tO V
Hlýjast sunnan til
NV 10-15 m/s noröaustantil, 8-13
suöaustanlands, en hægari vestantil. Dálítil
rigning eöa súld með köflum um norö-
austanvert landiö, en víöa bjart veður á
Suöur- og Vesturlandi. Hiti 5 til 14 stig,
hlýjast sunnantil.
RÉYKJAVIK AKUREYRl
Sólariag í kvöld 20.26 20.20
Sólarupprás á morgun 06.27 06.06
Síódeglsflóó 20.28 12.47
Árdegisflóð á morgun 08.45 01.01
Skýríngar á veðurtáknum
) *~^VINDATT 10%—HITI “k -10° >.VINDSTYRKUR Vrnncr í nwtnan i sekúmlu ’vkus i & HEIÐSKÍRT
LÉTTSKÝJAÐ C!> HÁLF- SKÝJAÐ 5KÝJAÐ o ALSKÝJAÐ
RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA
w ÉUAGANGUR PgslS SKAF- RENNINGUR ÞOKA
—
Astand fjallvega
Vegabætur víða
Unnið er aö vegabótum víöa á landinu,
meöal annars milli Hestgeröis og
Smyrlabjarga í Suöursveit. Þar veröur
þvía aö fara rólega um sinn.
OmðöMÍ
www.vegag.is/faerd
71V!A,V-=--.
Bjart sunnan- og vestanlands
Norölæg átt 6 -11 m/s Dálítil súld með köflum um
noröaustanvert landiö, en bjart veöur á Suöur- og Vesturlandi.
Hiti 5 til 14 stig, hlýjast sunnantil.
Vindun
6—9 »«A
í Hiti 6“ til 12°
Norólæg eóa breytileg átt,
5-8 m/s, en hvassara
austantll. Súld vlö
noröausturströndina, en
annars þurrt og viöa bjart..
Hltl 6 tll 12 stig.
Vindun
5—8 «vs
Hiti 8“ tii 13”
Fremur hæg suölæg átt.
Skýjaö aö mestu og stöku
skúrlr um vestanvert
landlð, en viöa léttskýjað
austantll. Heldur hlýnandl.
j Hiti 8° til 14'
1
Suölæg átt. Skýjaö meö
köflum austantil, en dálítil
súld eöa rigning vestantil.
Fremur mllt veöur.
AKUREYRI súld 5
BERGSSTAÐIR rign. á síö. kls. 5
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR skýjaö 6
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 5
KEFLAVÍK léttskýjað 6
RAUFARHÖFN rigning 5
REYKJAVÍK léttskýjaö 5
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 7
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBLIN
HAUFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
skýjaö 9
léttskýjaö 13
skýjaö 13
12
10
þoka á síö. kls. 9
skúr 10
þokumóöa 20
þokumóöa 14
skýjaö 18
alskýjað 14
léttskýjaö 17
skýjaö 9
léttskýjað 10
skýjað 10
skýjað 12
rigning 5
alskýjað 15
rigning 9
léttskýjaö 18
heiöskírt 13
súld 6
heiöskírt 13
hálfskýjað 25
rigning 14
rigning 12
heiöskírt 14
heiöskírt 26
MJjZilákýMWSœXiqi