Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Síða 5
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
5
DV
Fréttir
Hafrannsóknastofnun of fljót að draga ályktanir:
íslendingur í Taílandi:
Liggur þungt
haldinn á
Vandamálið er ekki
að það vanti fisk
- það vantar að veiða til að gefa seiðunum svigrúm, segir Jón Kristjánsson
Jón Kristjánsson fiskifræðingur
segist ekkert geta sagt um af hverju
seiði finnast nú mest fyrir Norð-
austurlandi en ekki á mestu hrygn-
ingarslóðinni fyrir vestanverðu
landinu. Hann segir menn þó ekki
geta dregið svona fljótt ályktanir
um batnandi ástand út frá seiða-
fjölda eins og Hafrannsóknastofnun
gerir. Seiðin eigi eftir að ganga í
gegnum langt ferli áður en þau
verða að veiðanlegum fiski. Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, taldi hins vegar í samtali
við DV í gær að útkoman í heild væri
mjög góð. Mikið var af þorskseiðum
og vísitalan var með því hæsta sem
mælst hefur frá því seiðarannsókn-
irnar hófust árið 1970.
Engin uppskera af margra
ára góöri nýliðun
„Nú er búin að vera góð seiða-
gengd í mörg ár en samt erum við
ekkert farin að
uppskera af því.
Vandamálið er
ekki að það vanti
fisk, það vantar
æti og það vantar
fyrst og fremst að
veiða fiskinn.
Við verðum að
gefa þessum seið-
um sem nú eru
að koma pláss.
Þess Vegna þarf
að rýma til með veiði,“ segir Jón
Kristjánsson. Hann segir að ef of
mikið £é af þorski sem ekkert æti
hafi þá leggist hann í afrán á sjálf-
um sér. Hann éti sig hreinlega nið-
ur.
„Nú segja menn að það sé um að
gera að geyma smáfiskinn til að
geta veitt hann seinna. Ég spyr;
hvenær á þá að veiða hann?“
Jón segir það athyglisvert að
Hafrannsókna-
stofnun tali nú
um að áður fyrr
hafi stórir seiða-
árgangar alltaf
gefið góða nýlið-
un seinna. Þá
hafi íslendingar
hins vegar verið
að veiöa grimmt
ásamt Bretum og
byrjað að veiða
fiskinn á fullu
þegar hann var orðinn eitt og hálft
kíló. Samt hafi aldrei orðið aldrei
viðlíka niðursveiflur og undanfar-
in ár. Nú er lokað á alla veiði á
fiski sem er undir 55 sentímetrum.
Menn ætli þannig að geyma fisk-
inn, en þá verði ekkert pláss fyrir
ungviðið að vaxa upp. Það verði
því að rýma til.
Enn veriö að bíða
„Lykillinn að uppskeru er að
veiða. Nú á samt ekkert aö læra af
mistökunum. Fyrir þrem árum
voru menn loksins á því að þá hafi
tekist þokkalega að byggja upp
stofninn og nýliðun þá orðin góð.
Svo klikkar það. Nú er nýliðun búin
að vera góð í fimm ár og það er enn
verið að bíða. Hvenær ætla menn að
fara að veiða.“
Engin fiskifræðileg rök
Jón gagnrýnir einnig kvótasetn-
ingu á veiðar smábáta á ýsu, stein-
bít og ufsa. Sex til átta hundruð
tonna ýsuveiði smábáta í Hvalfirði
verði nú t.d. aflögð þrátt fyrir að
þessi staðbundni stofn sé van-
veiddur. Hann segir því engin
fiskifræðileg rök lengur fyrir til-
vist kvótakerfisins. Þarna sé bara
verið að útrýma samkeppni.
-HKr.
sjúkrahúsi
Kitoi iatÁl,.)
urinn varð íyrir Taílandi
bil sem var ekið á íslendingur slas-
miklum hraða fyr- aQjSt lífshættu-
ir utan hótelið sem iega j biislysi í
hann gisti á. byrjun ágúst.
Hann var flutt- .
ur lífshættulega slasaður á sjúkrahús í
Pattaya og þaðan á sjúkrahús í Bang-
kok þar sem hann dvelur enn. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins var mann-
inum ekki hugað líf fyrstu dagana en
hann mun nú á hægum batavegi. Með-
al meiðsla voru höfuðkúpubrot og opið
lærbeinsbrot auk heilablæðingar.
Stefnt er að því að flytja manninn
heim með sjúkraflugi í næstu viku ef
læknar telja hann hafa náð heilsu til
svo langrar flugferðar. -aþ
Skógarplöntuframleiðslu hætt á Vöglum í Fnjóskadal:
Atlaga að byggð
- í Hálshreppi, segir Verkalýðsfélag Húsavíkur
íoyola
Nesan
Range Rover ford
Chevrotet
Suzuki
Cherokee
JrapWiliys
Land Rover
Musso
Isuzu
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
t jeppa
Jón
Kristjánsson,
fiskifræðingur.
Jóhann
Siguriónsson.
Verkalýðsfélag Húsavíkur hefur
mótmælt harðlega þeirri ákvörðun
landbúnaðarráðuneytisins að hætta
skógarplöntuframleiðslu hjá Skóg-
rækt ríkisins á Vöglum í Fnjóskadal
en ráðuneytið hefur gefið út aö allri
sölu skógarplantna hjá gróðrarstöðv-
um Skógræktar ríkisins verði hætt nú
í haust.
í ályktun Verkalýðsfélags Húsavík-
ur segir að afleiðingar sölubannsins
verði að gróðrarstöðvar Skógræktar-
innar verði af um 15 milljóna króna
sértekjum á ári sem þýði verri rekstr-
argrundvöll, fækkun ársstarfa og að
ráðningar sumarvinnufólks dragist
verulega saman. „Ljóst er að gangi
þessi ákvörðun eftir er þar um að
ræða alvarlega atlögu að byggð í Háls-
hreppi sem þegar stendur veik fyrir,“
segir í ályktun Verkalýðsfélags Húsa-
víkur.
Félagið skorar á landbúnaðarráð-
herra að endurskoða nú þegar þessa
ákvörðun og efla í stað hennar starf-
semi Skógræktarinnar á Vöglum með
auknum fjárframlögum sem nýtist í
því metnaðarfulla starfi sem þar fari
fram. „Það verður ekki þolað að ríkis-
stjórn íslands hafi frumkvæði að því
að veikja atvinnuöryggi fólks og þar
með byggðar á landsbyggðinni," segir
í ályktuninni. -gk
VÆNTANLEGIR
Krókódílaskilti
Mynd af krókódíium prýöir skiltið.
Utlendingar hissa
- á krókódílaskilti
Feröalangar á leið til Húsavíkur
hafa rekið upp stór augu undanfar-
ið vegna skiltis sem staðsett er
sunnan við bæinn. Skiltið er eins og
Siglufjörður:
Fjórir sóttu um
prestsembættið
Fjórir umsækjendur eru um stöðu
sóknarprests á Siglufirði en staðan
verður veitt frá næstu mánaðamótum.
Umsækjendurnir fjórir eru sr. Sig-
urður Ægisson, Halldóra Ólafsdóttir
guðfræðingur, Stefán Már Gunnars-
son guðfræðingur og Þórður Guð-
mundsson guðfræðingur. -gk
venjulegt umferðarskilti fyrir utan
eitt smáatriði. Mynd af krókódílum
prýðir skiltið og stendur „væntan-
legir" fyrir neðan myndina.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri
á Húsavík, hefur stutt hugmyndir
um krókódíla i affallsvatni á Húsa-
vík og hefur yfirvöldum verið sent
formlegt erindi vegna málsins. Bæj-
arstjórinn segir að málið sé í bið-
stöðu sem stendur en einhverjir
húmoristar hafi komið skiltinu upp
og Vegagerð ríkisins hafi ekki séð
ástæðu til aðgerða. Hins vegar segir
Reinhard að ítrekað hafi sést til út-
lendinga sem eru að fletta orðinu
„væntanlegir" upp í orðabók. Lái
þeim hver sem viU. -BÞ
Seckmann) |yjeð yfjrburöi á þýskum markaði
Hreinsiefni í sérfiokki
HREINSIEFNI FYRIR LITASMIT
Fór rauður sokkur í vélina
með hvíta þvottinum?
-ekkert mál,
Colour RunRemover bjargar
þvottinum þínum.
Notið ekki á gerfiefni.
BLETTATÖFLUR
Frábært efni. Ein tafla í
vélina með þvottinum.
Þvottaefni eins og venjulega
- og þvotturinn verður
skínandi hvítur.
GARDÍNUHREINSIDUFT
Hreinsar gluggatjöldin
og fjarlægir fitu og
nikotíngulu.
BLETTAHREINSIDUFT - sem á engan sinn líka.
Hefur þú viðkvæma húð? Þolir þú illa sterk þvottaefni?
Dr. Beckmann blettahreinsiduftið leysir vandann.
Duftið er fyrir mjög óhreinan þvott og þá sem ekki þola sterk
þvottaefni.
Ath. Öll efnin brotna 100% niður í
náttúrunni. Engin kemísk efni. Ofnæmisfrí!
Útsölustaðir:
Elko
11-11
Fjarðarkaup
Hagkaup
Húsasmiðjan
Kjöthöllin
Krónan
Nettó
Nóatún
Nýkaup
Samkaup
Þín verslun
ÁSVÍK EHF