Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Fréttir
I>V
Slök útkoma Stöðvar 2 í fréttaáhorfi:
Varla marktækt að
mati fréttastjóra
- Sjónvarpið fékk leyfi til að birta niðurstöðurnar
Áhorf hefur minnkað á fréttir
Stöðvar 2 í sumar samkvæmt ný-
legri könnun en Karl Garðarsson,
fréttastjóri Stöðvar 2, segir að menn
hafl búist við því fyrst eftir til-
færslu fréttatímans. Niðurstaðan sé
innan þeirra marka sem búist hafi
verið við og því standi alls ekki til
að færa fréttatímann aftur. „Hins
vegar vekur athygli mína að könn-
un sé gerö á þessum timapunkti
þegar sumarleyfi eru í hámarki og
áhorf á fréttir ekki dæmigert." í því
samhengi bendir Karl á að sterk-
ustu áhorfshópar Stöðvar 2 séu á
aldrinum 25-50 en eldra fólkið -
sterkasti hópur RÚV - sé heima á
sumrin.
Könnunin sýnir að fréttastofa
Sjónvarpsins hafði í sumar yfir-
burði á fréttastofu Stöðvar 2.
Nálega tvöfalt fleiri horfðu í
júlí á fréttir Sjónvarpsins en
Stöð 2 og segir Elín Hirst,
staðgengill fréttastjóra Sjón-
varpsins, að þrennt veki
mesta athygli: „í fyrsta lagi
er það hversu mikið bilið hef-
ur breikkað milli Sjónvarps-
ins og Stöðvar 2 eftir að þeir
fluttu fréttatíma sinn fram til
18.30. Sá tími fellur áhorfend-
um greinilega ekki nógu vel í geð. í
ööru lagi sýnir könnunin að það er
minna áhorf á sjónvarpsfréttir en
venjulega enda er hún gerð um há-
sumarið þegar fólk er í fríum og
áhorfið stopulla. í þriðja lagi eru
áhorfstölumar ekki sambærilegar
viö þær sem við erum að fá út í
stóru áhorfskönnunum frá
Gallup sem gerðar eru
tvisvar á ári því í þessari
könnun er miðað við meðal-
áhorf en í stóru könnunun-
um er miðaö við uppsafnað
áhorf. Það er því óhætt að
bæta við 4-5 prósentum til að
fá samanburðarhæfar tölur,“
segir Elín.
Fyrirvarar eru um birtingu
svona kannana en Gallup
vann könnunina fyrir Islensku aug-
lýsingastofuna. Segir um skýrsluna
að hún og innihald hennar sé ein-
göngu til innanhússnota hjá því fyr-
irtæki eða þeim einstaklingi sem
hana hafi keypt en Elín segir að Sjón-
varpið hafi fengið leyfi fyrir birtingu
upplýsinganna hjá íslensku auglýs-
ingastofunni. Jafnframt hafi auglýs-
ingastofan sent Skjá einum og Stöð 2
niðurstöðumar til að jafnræðis væri
gætt.
DV hefur helstu niðurstöður könn-
unarinnar undir höndum og kemur
þar fram að í júlí/ágúst horfðu 24%
að einhverju leyti á fréttir Stöðvar 2
en tæplega 41% að einhverju leyti á
fréttir RÚV. Tæplega 8% segja að
áhorf á fréttir Stöðvar 2 hafi aukist
eftir að fréttatíminn var færður fram
til 18.30 á kvöldin en tæplega 41%
segja að áhorf hafi haldist óbreytt.
Ríflega 51% segir áhorf sitt á fréttir
Stöðvar 2 hafa minnkað eftir að þær
voru færðar fram til klukkan hálfsjö.
Um 1.200 manns svöruðu í könnun-
inni eða um 70% úrtaksins. -BÞ
Elín Hirst.
Urnsjón: Hörður Kristjansson
netfang: hkrist@ff.is
Ábyrgir menn!
Útvarpsráð hefur margítrekað
komist í fréttir fyrir að vera að
vasast í ritstýringu dagskrárefn-
is. Þetta hefur verið oftlega gagn-
rýnt en pólitískt kjörnir útvarps-
ráðsmenn verja slíka ritstýringu
gjarnan með vísan í pólitíska
ábyrgð útvarps-
ráðs á rekstri
stofnunarinnar.
Mörður Árna-
son komst
þannig sem frægt
varð i fréttir í
vetur vegna af-
skipta af texta I
Eurovisionlagsins
sem hann vildi láta syngja á ís-
lensku. Nú heyrast tíðindi af
öllu alvarlegra máli, en það er
bullandi halli á rekstri stofnun-
arinnar. Nú ber hins vegar svo
við að á þessari framúrkeyrslu
virðist útvarpsráð enga ábyrgð
bera. Vísar Mörður nú á Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
sem beri endanlega alla ábyrgð á
stofnuninni. Með öðrum orðum,
útvarpsráð beri ábyrgð á dag-
skrárstjórn en alls ekki einhverj-
um leiðindum eins og aðhaldi í
peningamálum...!
Indverskur billjard
Ræöismaöur íslands á Indlandi, Beep Hirlekar, færöi frænda sínum, Girich Hirlekar, sem er ræöismaöur Indlands á
íslandi góöa gjöf á þingi ræöismanna á Grand Hótel. Þetta er eins konar indverskt billjardborö sem Beep baö frænda
sinn aö færa íþróttasamtökunum á Akureyri. Hér tekur Girich viö gjöfmni sem frændinn haföi meö sér frá Indlandi.
Eins og sjá má er billjardboröiö mun minna en þau sem íslendingar þekkja.
Félag framhaldsskólakennara vill að ríkið aðhafist eitthvað:
Vilja úttekt á afleiðing-
um kennaraverkfalls
- 11% féllu í MR í vor en aðeins 3,5% í hittifyrra
Vandi RUV:
Morgunútvarpið
undir hnífinn?
Mögulegt er að morgunútsendingar
svæðisútvarpsins á Akureyri muni
fara undir hnífinn. Eins og fram kom
í DV í gær er mikill hallarekstur á
RÚV og er stofnuninni gert að hag-
ræða um 90 milljónir til áramóta. Eitt
af því sem endurskoðað verður er
starfsemi svæðisstöðvanna.
Karl Eskil Pálsson, fréttamaður RÚ-
VAK og staðgengill deildarstjóra, segir
að engar breytingar hafi verið boðaðar
starfsmönnum. Hins vegar séu flest
mál til athugunar þegar skera á niður.
„Það hefur ýmislegt verið uppi á borð-
inu en menn hafa einna helst horft til
morgunútsendinganna hérna,“ segir
Karl Eskil.
Einnig hefur verið skoðað hvort til
greina komi að færa fréttatíma svæð-
isstöðvanna fram. Auglýsingatekjur
eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir
hjá RÚV en Karl Eskil hyggur að
þokkalega hafi árað i þeim geiranum
íyrir norðan. RÚVAK er eina útstöðin
sem er með morgunútsendingu alla
virka morgna. -BÞ
Björn bíöur
nefndarálits
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
vill að svo komnu
máli ekki tjá sig um
þá rekstrarerfiðleika
sem blasa við RÚV
þessa dagana en eins
og fram kom i DV í
gær liggur beiðni frá
Björn útvarpsstjóra hjá ráð-
Bjarnason. herra um að fá að
hækka afnotagjöld um 11,1% frá og
með næstu mánaðamótum. „Ég hef
falið nefnd með fulltrúum frá mennta-
málaráðuneyti, tjármálaráðuneyti og
ríkisendurskoðun að fara yfir íjármál
RÚV og ætla ekki að segja neitt um
málið fyrr en þeirri vinnu er lokið,“
sagði Bjöm Bjamason við D. -BG
Eyþing styður
Austfirðinga
Aðalfundur Eyþings, samtaka sveit-
arfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýsl-
um, sem haldinn var í Hrísey, lýsti
yfir afdráttarlausum stuðningi við
áform um atvinnuuppbyggingu á
Austurlandi í tengslum við nýtingu
orkulinda í fjórðungnum. Aðeins einn
þingfulltrúi var á móti. I ályktun aðal-
fundarins segir að fundurinn vænti
þess að úrskurður Skipulagsstofnunar
um álver í Reyðarfirði verði til að
tryggja að svo megi verða. -gk
Kennarasam-
band íslands vill
að menntamála-
ráðuneytið geri
úttekt á afleiðing-
um verkfalls
framhaldsskóla-
kennara sl. vetur.
Elna Katrín
Jónsdóttir, for-
maður Félags
framhaldsskóla-
kennara, segir að hún hafi ekki
séð óyggjandi gögn sem styðji að
brottfall nemenda hafi verið
óvenjumikið í kjölfar verkfalls-
ins en ástæða sé til að kanna það
mál meö vísindalegum hætti og
fá úr því skorið hvað verkfallið
kostaði íslenskt samfélag.
Skólastarf lamaðist í fram-
haldsskólum um margra vikna
skeið i fyrravetur og segir Yngvi
Pétursson, rektor MR, að brott-
fall nemenda þar hafi verið
óvenjuhátt.
Hann grunar að kenna megi
kennaraverkfallinu að einverju
leyti um en segir þó erfitt aö
greina slíkt. Yngvi tekur undir
með Elnu Katrínu um að gott
væri að gera úttekt á afleiöing-
um verkfallsins en erfitt gæti
reynst að vinna slíka rannsókn.
Rektor MR hefur tekið saman
tölur um fall og brottfall siðustu
þriggja ára fyrir DV og kemur
þar fram að 7,8% nemenda hættu
námi eöa féllu árið 1999, 11,5%
árið 2000 en 13,1% í vor. Ef þeir
eru aðeins skoðaðir sem sitja allt
árið en falla hefur orðið athyglis-
verð þróun. 3,5% heltust úr lest-
inni árið 1999, 5,5% árið 2001 en
heil 11% í ár. Rektor bendir þó
að fleiri þættir en verkfallið
kunni að spila inn i. Til dæmis
ný námsskrá og hertar reglur
um próftöku.
Eftir þvi sem DV kemst næst
er upp og ofan eftir framhalds-
skólum hve mikinn skaða skóla-
meistarar rekja til kennaraverk-
fallsins. Þannig eru einhver
dæmi um að brottfall nema síð-
asta skólaár hafi varla veriö
meira en í meðalári. -BÞ
Elna Katrín
Jónsdóttir.
Veikleiki vitrings
Sá kunni íslendingur Sir
Magnus Magnusson fór á kost-
um í ræðu sem hann hélt á ræð-
ismannaþingi á Grand Hótel í
vikunni. Magnus var um árabil
með sjónvarpsþáttinn Master-
mind í bresku
sjónvarpi og
þekking hans á
hinum fjölbreytt-
ustu málefnum
er víðfeðm. Hann
upplýsti þó í
ræðu sinni að
netvæðingin
hefði reynst sér
erfið. Þannig þýddi ekki að
senda honum tölvupóst nema í
kjölfarið fylgdi fax sem greindi
frá skilaboðunum. Ræðismenn-
irnir grétu úr hlátri þegar vitr-
ingurinn upplýsti um veikleika
sinn...
Sendiherra íhugar
Talið er að Jón Baldvin
Hannibalsson, sendiherra ís-
lands í Bandaríkjunum, sé nú al-
varlega að hugsa sinn gang varð-
andi endurkomu í íslenska póli-
tík. Stríðsmaðurinn Jón Baldvin
mun vera orðinn frekar þreyttur
á því að hjala í i
kokkteilboðum |
auk þess að hon-
um hugnast litt I
að yfirgefa
merkasta sendi-
ráð íslands í út-
löndum til að
verða sendiherra
í léttvægara
sendiráði. Jón Baldvin er enn á
léttasta skeiði og að auki með
glímuskjálfta þannig að víst er
að hann muni hrista upp í is-
lenskri pólítík ákveði hann að
snúa til baka...
Auökýfingar
Tvær bækur um íslenska auð-
menn eru væntanlegar á jóla-
bókamarkaðinn. Annars vegar
kortleggur Pálmi Jónasson
sögu hinna ríku en hins vegar
Sigurður Már
Jónsson. Þeim
félögum mun
vera nokkur
vandiá höndum
því hrun á verði
hlutabréfa hafa
leitt til þess að
sumir hinna ný-
ríku lepja nú
dauðann úr skel. Váleg tíðindi af
markaðnum þýða væntanlega aö
henda þarf út milljónamæringum
og enn sér ekki fyrir endann á
fækkuninni...