Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
7
I>V
HEILDARVIÐSKIPTI 6000 m.kr.
Hlutabréf 280 m.kr.
Húsbréf 2600 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI
v $ Össur 62 m.kr.
Pharmaco 36 m.kr.
íslenskir aöalverktakar 19 m.kr.
MESTA HÆKKUN
! O Kaupþing 0,8%
O Sjóvá-Almennar 0,7%
O
MESTA LÆKKUN
OLandsbankinn 6,1%
• Oíslandssími 5,5%
O Búnaöarbankinn 3,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1037 stig
- Breyting O -1,62%
Flugleiðir semja
við bandaríska
ferðaskrifstofu
Flugleiðir hafa náð samningum
við stóra bandaríska ferðaskrifstofu
um leiguflug milli Boston og fjög-
urra áfangastaða í Karíbahafinu tvo
næstu vetur. Fjárhæð samningsins
við ferðaskrifstofuna GWV í Boston
er um 1 milljarður króna.
Samningurinn felur í sér að Flug-
leiðir fljúga frá 15. desember - 15.
maí frá Boston til Puerto Plata og
Punto Cana i Dóminíska lýðveldinu,
St. Marteen á Hollensku Antillaeyj-
um og Liberia í Costa Rica.
Flugleiðir nota i verkið 213 sæta
Boeing 757-200 vél sem notuð hefur
verið í leiguflugi m.a. fyrir Úrval-
Útsýn og Samvinnuferðir-Landsýn
hér á landi og fyrir Air Scandic í
Bretlandi. íslenskar áhafnir Flug-
leiða munu annast flugið að mestu
leyti.
Hin nýja leiguflugsdeild Flugleiða
hefur haft veg og vanda af gerð
samningsins, en henni er ætlað að
annast og þróa vaxandi starfsemi
Flugleiða á alþjóðlegum leiguflugs-
markaði. Samningurinn er í sam-
ræmi við þá stefnu fyrirtækisins að
auka sveigjanleika í rekstrinum
með leiguflugi yfir vetrarmánuðina.
Bjarni eykur hlut
sinn í Keflavíkur-
verktökum
Eisch Holding SA keypti í gær
hlútabréf í Keflavíkurverktökum að
nafnvirði 30 milljónir króna. Eign-
arhlutur Eisch Holding er nú 20,1%
eða kr. 62.800.000 að nafnvirði en
var áður 10,4% eða kr. 32.500.000.
Eigandi Eisch Holding SA er Bjami
Pálsson.
06.09.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
BNpoHar 99,690 100.200
; Œ-Pund 144,650 145,380
l+lkan. dollar 64,000 64,400
CSlDönsk kr. 11,8710 11,9360
HgjÍNorskkr 11,1450 11,2070
ESsmosk kr. 9,3410 9,3920
IHHn. maik 14,8558 14,9451
iH tlFra. franki 13,4656 13,5465
i HJ Belg. franki 2,1896 2.2028
Sviss. franki 58,4700 58,8000
EJhoII. gyllini 40,0818 40,3226
"^Þýsktmark 45,1617 45,4331
Oít. i|ra 0,045620 0,045890
iQPAust. sch. 6,4191 6,4577
,;Port. escudo 0,4406 0,4432
, Spa. peseti 0,5309 0,5341
|[> ]jap. yon 0,822800 0,827800
lOlírskt pund 112,154 112,828
SDR 126,650000 127,410000
(|1ecu 88,3286 88,8594
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðið
Framlag á afskriftareikning
útlána eykst um helming
Framlag á afskriftareikning útlána
hjá fjármálafyrirtækjum hefur aukist
um nærri helming frá því á sama
tímabili í fyrra, eða úr rúmum 2,3
milljörðum í fyrra í tæpa 3,4 millj-
arða í ár. Helstu fjármálafyrirtæki
landsins ásamt sparisjóðum hafa ver-
ið að senda frá sér árshlutauppgjör
þar sem fram kemur alla jafna tölu-
Afskriftareikningar
Framlag á afskriftareikning útlána byrjar
oftast að vaxa þegar um hægist í efna-
hagslífinu
BioStratum með 1.250
milljóna króna tap
Bókfært tap BioStratum Inc.
fyrstu sex mánuði ársins var 12,6
milljónir dollara, eða um 1.250 millj-
ónir króna. Þett'a er meira tap en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Líftækni-
sjóðurinn MP BIO hf., sem skráður
er á Verðbréfaþingi íslands, er ann-
ar stærsti hluthafi félagsins með
9,3% eignarhlut og er það
langstærsta fjárfesting sjóðsins.
Kaupverð eignarhlutar MP BIO í
BioStratum Inc. var 768 milljónir
króna en kaupin fóru fram í febrúar
2000. í nýframkomnu árshlutaupp-
gjöri MP BIO var eignarhlutinn
hins vegar bókfærður á 1.082 millj-
ónir króna.
Bókfærðar tekjur einungis
9% af áætlunum
í frétt frá BioStratum kemur fram
að helsta ástæða þess að afkoma fé-
lagsins er lakari en áætlanir gerðu
ráð fyrir er að bókfærðar tekjur
tímabilsins voru aðeins tæpar 0,5
milljónir Bandaríkjadala eða um 4,9
milljónum dollara lægri en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Heildarútgjöld tima-
bilsins voru 13,1 milljón dollara eða
2,3 milljónum dollara lægri en áætl-
anir höfðu gert ráð fyrir
Tekið er þó fram að í ofannefnd-
um tölum yfir tekjur tímabilsins er
ekki tekin með 6 milljóna dollara
greiðsla sem fyrirtækið fékk frá jap-
anska lyfjafyrirtækinu KOWA
vegna samnings um þróun og mark-
aðssetningu á lyfinu Pyridorin í SA-
Asíu. Sú greiðsla verður tekjufærð
hlutfallslega til ársins 2005.
Handbært fé BioStratum Inc.
þann 30. júní var 9,6 milljónir
Bandaríkjadala.
Þurfa viðbótarfjármögnun
Ljóst er að BioStratum mun þurfa
að auka hlutafé sitt til þess að
standa straum af rekstrarkostnaði
næstu ára. Til stóð að skrá félagið á
almennan hlutabréfamarkað í
Bandaríkjunum (NASDAQ) en sök-
um erfiðra aðstæðna á hlutabréfa-
mörkuðum hefur þeim áformum
verið frestað. Þess í stað hefur félag-
ið frá því í byrjun sumars unnið í
samvinnu við fjárfestingarbankann
UBS Warburg að lokuðu hlutafjárút-
boði meðal valinna fagfjárfesta. í
frétt BioStratum er tekið fram að
ekkert liggur fyrir um hvaða aðilar
kunna að kaupa hlut í félaginu né á
hvaða gengi en almennt hefur fjár-
mögnun líftæknifyrirtækja verið
mun erfiðari á þessu ári en á und-
anfórnum árum.
Stefnt er að þvi að niðurstöður
um hlutafjáraukningu BioStratum
liggi fyrir á fyrri hluta fjórða árs-
fjórðungs þessa árs.
verð aukning á afskriftareikning út-
lána.
Ef tekin eru fjögur stærstu fjár-
málafyrirtækin, íslandsbanki, Lands-
bankinn, Búnaðarbankinn og Kaup-
þing, þá jukust framlög á afskrifta-
reikning útlána um að meðaltali 41%.
Mest jukust framlögin hjá Lands-
bankanum, eða um rúman hálfan
milljarð króna. Stuttu á eftir honum
kom íslandsbanki með 400 milljónir.
Framlag á afskriftareikning útlána
byrjar oftast að vaxa þegar um hægist
í efnahagslíflnu þar sem erfiðara
verður fyrir fyrirtæki og einstaklinga
að standa í skilum við lánastofnanir
vegna samdráttar í tekjum. Með mjög
háu vaxtastigi í hagkerfinu, sem
Seðlabankinn hefur haldið uppi síð-
ustu ár, hafa líkurnar á því að bank-
arnir lendi í meiri útlánatöpum því
aukist. Framlag í afskriftareikning
útlána endurspeglar ekki endanlega
töpuð útlán heldur er um að ræða
fjárhæð sem lögð er til hliðar til að
mæta hugsanlegum útlánatöpum.
Fjármálafyrirtæki meta sjálf framlag
á afskriftareikning útlána og fer hann
eftir efnahagsástandinu hverju sinni.
Ef efnahagsástandið versnar aukast
alla jafna framlög á afskriftareikning
útlána fjármálastofnana.
Uppl. gefur Ólafur í símum
421 4124 eða 892 1116.
M-Benz 2540 Actoros, árg. 1998. Ekinn
276 þ. km, kojuhús, loftfjöðrun, ABS, EPS,
ASR, 8 hjóla m/búkka, 7,40 m álkassi, 100%
opnun, cruise control, vagnabremsa,
loftflauta, 400 I áltankur, mjög gott útlit og
ástand. Verð 5.500 þús. + VSK.
Mercedes Benz SL 600 V-12, árg. 09/94, ekinn :
119 þ. km, vínrauður, allt rafdrifið, minni á sætum,
aksturstölva, 18“ AMG álfelgur, skrikvörn.
Driflæsing, Xenon Ijós, leðurinnrétting, GSM,
CD, 1998 útlit, 394 hp, einn með öllu, skipti
möguleg á ódýrari. Til sýnis á Borgarbílasölunnl.
BMW 540i V-8, árg. 1997, steptronic,
blásans, leðurinnrétting, 17“ álfelgur,
TV, GSM, Navigation, allt rafdrifið,
glertopplúga, 286 hp, aksturstölva,
hiti í sætum og stýri, einn með öllu.
{Skipti á ódýrari. Verð 3.600 þús.
Stökktu til
Svigrúm fyrir 1-2 pró-
sentustiga vaxtalækkun
Svigrúm er fyrir Seðla-
bankann að lækka stýri-
vexti sina um 1-2 pró-
sentustig. Þetta kemur
fram í nýútkomnu Mark-
aðsyfirliti Greiningar ís-
landsbanka.
Þar segir að mat Grein-
ingar ÍSB á verðbólgu-
horfum gefi þetta til
kynna. Hún spáir því að
verðbólga muni um mitt
næsta ár fara inn fyrir
þolmörk peningastefn-
unnar, sem er 4,5% verð-
bólga, og að markmið
Seðlabankans um 2,5% ___
verðbólgu árið 2003 muni
nást.
Spá Greiningar ÍSB byggist á því
að framleiðsluspenna sem verið hef-
ur í hagkerfinu hverfl á næstu miss-
erum og að gengi krónunnar haldist
nærri því sem það er í dag. Fram
kemur að helstu óvissuþættirnir
lúta að gengis- og launaþróun.
„Hjaðni spennan hægar á innlend-
um vinnumarkaði en gert er ráð
fyrir i forsendum spárinnar er lík-
legt að verðbólgan verði meiri.
Hjaðni hún hins vegar hraðar, sem
rétt eins gæti orðið raunin, má gera
ráð fyrir því að verðbólgan verði
Vextir
Mat Greiningar ÍSB er aö Seðlabankinn vilji bíða
þar til skýr teikn berast, m.a. frá vinnumarkaði,
um aö farið sé að draga úr þenslunni.
minni. Sömu sögu er að segja af
gengisþróuninni en þar er óvissan
talsverð þegar litið er til næstu
missera,“ segir Greining ÍSB.
Fram kemur að þrátt fyrir að for-
sendur séu fyrir lækkun vaxta nú sé
það mat Greiningar ÍSB að Seðla-
bankinn vilji bíða þar til skýr teikn
berast, m.a. frá vinnumarkaði, um
að farið sé að draga úr þenslunni.
„Greining ÍSB er því þeirrar skoð-
unar að vaxtalækkun sé ekki líkleg
fyrr en um eða eftir næstu áramót,"
segir í nýútkomnu Markaðsyfirliti.
Liílaa; bfjframan > ’. i\ ós n»BTl “iiitl
Costa del Sol
20. september í viku
frá 39.985,-
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu
sætunum til Costa del Sol, 20. september, í eina
viku. Þú bókar núna og 3 dögum fyrir brottför
segjum við þér hvar þú gistir og að sjálfsögðu nýtur
þú traustrar þjónustu fararstjóra okkar allan tímann.
Verðdæmi:
Kr. 39.985
Verðdæmi:
& 49.930
Verð fyrir mamiinn miðað við hjón með
2 böm, 2-11 ára, flug, gisting, skattar.
20.sept., vikuferð.
Verð fyrir manninn miðað við 2 í
íbúð/studio, viku, 20. sept.. vikuferð.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 sími 595 1000. www.heimsferdir.is