Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Utlönd
9
DV
Átök fyrir botni Miðjarðarhafs þrátt fyrir friðarviðleitni:
Pútín sendir fulltrúa
sinn á óróasvæðið
Þrátt fyrir friðarviðræöur þeirra
Javier Solana, yfirmanns öryggismála
ESB við Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, og Vladimir Pútíns
Rússlandsforseta við Ariel Sharon,
forseta ísraels, á dögunum, héldu ísra-
elar áfram hernaðaraðgerðum á óróa-
svæðinu heima fyrir í gær, með því að
skjóta tveimur öflugum sprengjueld-
flaugum á höfuðstöðvar „Force 17“,
öryggissveita Palestinumanna, í bæn-
um Beit Hanoun á Gazasvæðinu.
Flugskeytunum var skotið frá herstöð
ísraelsmanna við landamærabæinn
Erez og særðist einn maður í árásinni
auk þess sem húsnæði öryggissveit-
anna var lagt í rúst.
Árásin var gerð í kjölfar skotárásar
Palestínumanna á óbreytta borgara í
Ramallah á Vesturbakkanum, þar
sem einn ísraelskur borgari særðist.
Talsmaður ísraelshers sagði herinn
gera allt til að vernda ísraelska borg-
ara á svæðinu og eldflaugaárásin
hefði verið ákveðin eftir stöðugar
skotárásir Palestinumanna á ísra-
elska borgara síðasta sólarhringinn.
- Allt í rúst
Höfuðstöðvar öryggissveita
Palestínumanna, „Force 17“ á Gaza-
svæðinu, voru lagðar í rúst í
sprengjuárás ísraelsmanna í gær.
Eldílaugunum var skotið aðeins
stundu eftir að palenstínskur embætt-
ismaður hafði tilkynnt að þeir Arafat
og Shimon Peres myndu væntanlega
hittast á fundi í næstu viku, en fund-
urinn mun haldinn að frumkvæði
Javier Solana, öryggisfulltrúa ESB,
sem hitti Peres og tvo forystumenn
Palestínumanna á fundi fyrr i vik-
unni. Fundarstaðurinn hefur ekki
enn verið ákveðinn, en líklegt talið að
hann verði einhvers staðar fyrir botni
Miðjarðarhafs, eða jafnvel á Ítalíu i
tengslum við efnahagsráðstefnu sem
þar verður haldin um helgina.
Ariel Sharon, forseti ísraels, átti á
dögunum fund með Vladimir Pútin
Rússlandsforseta í þriggja daga heim-
sókn sinni til Rússlands, en þar
reyndi hann að knýja Rússa til frekari
afskipta af deilumálunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Pútín tók málaleitan
hans vel og ákvað samkvæmt beiðni
bæði ísraela og Palestínumanna að
senda þegar sérstakan fulltrúa sinn,
Andrei Vdovin, á átakasvæðið til að
kanna ástandið.
A vettvangi glæpsins
Laganna verðir í Simi-dal, skammt frá Los Angeles í Kaliforníu, bera saman bækur sínar fyrir utan hús þar sem vopn-
aður maður varð þremur að bana í gær. Að sögn sjónvarpsstööva í borginni voru tvö fórnarlambanna ung börn en lög-
reglan gat ekki staðfest það í gærkvöld. Tveir táningar urðu einnig fyrir skotum i árásinni og þriöji unglingurinn særð-
ist einnig. Meintur byssumaður flúði af hólmi og i morgun var ekki búið að handsama hann.
Ráðstefna SÞ um kynþáttahatur:
Ný drög aö lokaskjali
Stjómvöld i Suður-Afríku lögðu í
morgun fram endurskoðuð drög að
lokayfirlýsingu ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um kynþáttahatur
sem stendur yfir í Durban. Vonast
er til að nýju drögin verði til þess að
Evrópusambandið kalli ekki full-
trúa sína heim vegna deilna um
orðalag um deilumar fyrir botni
Miðjarðarhafsins.
„Við erum nýbúin að fá tillögu
um Mið-Austurlönd frá suður-
afrískum forsetum ráðstefnunnar,"
sagði erindreki ESB við fréttamann
Reuters í Durban í morgun. Hann
vildi ekki skýra nánar frá tillög-
unni.
Evrópusambandið dró i gærkvöld
til baka hótun sina um að hætta
þátttöku í ráðstefnunni ef arabarík-
in héldu til streitu kröfum sínum
um að fundurinn lýsti ísrael sem
rasistaríki.
Ráðstefnunni lýkur á morgun ef
Indíáni í Suður-Afríku
Þessi ábúðarmikli indíáni heitir Matt-
hew Coon Come og er formaður
samtaka frumbyggja í Kanada. Hann
er í Suður-Afríku að fylgjast með ráð-
stefnu SÞ um kynþáttahatur.
allt fer samkvæmt áætlun. Hún hef-
ur hins vegar nánast verið óstarf-
hæf frá því á mánudag þegar Banda-
ríkin og ísrael kölluðu sendinefndir
sínar heim vegna kröfu araba um
fordæmingu Israelsríkis.
Þá hefur djúpstæður ágreiningur
milli Afríkuríkja og fyrrv. nýlendu-
velda, um hvort þeim síðarnefndu
beri að biðjast afsökunar á þræla-
sölu undanfarinna alda, einnig gert
ráðstefnufulltrúum erfltt fyrir.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar i
Durban höfðu gert sér vonir um aö
hún myndi marka tímamót í barátt-
unni gegn kynþáttamisrétti í heim-
inum.
Samningaumleitunum um breytt
orðalag draganna að lokayflrlýs-
ingu var slitið fyrr en ætlað var I
gærkvöld og Suður-Afríkumönnum
falið að leggja fram nýjan texta fyr-
ir dagrenningu í morgun, texta til
samþykkis eða synjunar.
M. Benz ML 270 CDI. 01/00, ek.
85 þús., ssk., geisli, ABS, hraðastillir,
álfelgur, loftkæling, dráttarkrókur
o.fl. Verð 4.350 þús.
Opel Vectra GL 02/95, ssk., ek. 119
þús., álfelgur, 2000 cc, rafdr. Verð
690 þús. Tilboð 550 þús.
Toyota Yaris Luna, 12/99, 5 gíra,
1300 cc, ek. 30 þús. Geisli, ABS,
vindskeið, Rafdr. o.fl.
BMW 316i COMPACT, 04/00, ssk.,
ek. 26 þús., geisli, ABS,16“ álfelgur,
rafdr. o.fl. Verð 1.850 þús.
MMC Pajero Long Dísil Turbo, 04/95,
2800 cc, ssk., ek. 161 þús., álfelgur,
aksturstölva, dráttarkrókur, vindskeið,
Intercooler, rafdr. o.fl. Verð 1.590 þús.
M. Benz A 140 Classic, 04/00, ek
11 þús.,5 gíra, geisli, álfelgur,
vindskeið, saml.,Rafdr. o.fl. Verð
1.790 þús. Tilboð 1.590 þús.
Daihatsu Terios SX 05/98, ssk.,
ek. 38 þús., 4x4, álfelgur, rafdr. o.fl
Verð 990 bús.
Daewoo Leganza CDX Executive,
04/99, ssk., leður, hraðastillir,
loftkæling, ABS, toppl., geisli, rafdr.
p,fI Verð 1.950 þús. Áhv. 650 þús.
Subaru Legacy GLI 2000,
st.,07/97, ek. 58 þús, 5 gíra, álfelgur,
Rafdr. o.fl. Verð 1.290 þús.
Áhv. 800 þús.
Honda Civic V-Tec H/B, 03/00,
1500 cc, 5 gíra, geisli, ek. 22 þús.
Rafdr. o.fl. Verð 1.490 þús.
» **
Yfir 1000 bílar á
skrá hjá okkur á
www.bHaholHn.is
VW Golf Basicline, 10/98, 5 gíra,
1400 cc, ek. 40 þús. ABS, álfelgur,
vindskeið o.fl. Verð 1.250 þús.
Vísa- og Euro-raðgr.
Löggild bílasala.
Vantar bíla á skrá og á
staðinn með 100% lánum.
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is
TAXI TAXI TAXI...M. Benz 300D
turfoo 08/98, ssk., ek. 175 þús., geisli,
ABS, þjófavörn, hraðastillir, álfelgur,
loftkæling, taxapakki og leður.rafdr.
o.fl. Verð 2.990 þús.
VW Passat 1,8, 4-Motion, 06/99,5
gíra, ek. 42 þús., geisli, ABS, topp-lúga,
þjófavörn, álfelgur.dráttarkrókur, rafdr.
o.fl. Verð 1.890 þús. Áhv. 1.250 þús.
Subaru Impreza sedan 4wd. 06.00
,ek, 23 þús., 2000 cc, ssk., geisli,
ABS, álfelgur, vindskeið, vetrardekk
rafdr. o.fl. Verð 1.790 þús.
VW Caddy, árg. 99, vsk-bíll.5 gíra,
1600 cc, saml.
Verð án vsk. 760 þús.
Lexus IS 200, 05/01, nýr bíll, 6 gíra
6 diska spilari, ABS, loftkæling,
álfelgur o.fl. Verð 2.900 þús.
■ Tilboð 2.750 þús. staðgr.
Mazda 626 GLXI, 2,0 st. 04/99,
ssk., ek. 19 þús., geisli, ABS.álfelgur,
hraðastillir, rafdr. o.fl.
Verð 1.870 þús. Tilboð 1.750 þús.