Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Hagsýni
r>v
Endurmat á brunabótamati:
Hefur vídtækar afleiðingar
- bæði góðar og slæmar
Siguröur H. Guöjónsson, formaöur Húseigendafélagsins
„Ég tel að endurskoða þurfi fyrningarreglurnar því þeir hagsmunir sem fólk þarf að hafa á hreinu við bruna eru fyrir
borð bornir núna. “
Á vef Fasteignamats ríkisins
www.fmr.is er að finna svör við
þeim spurningum sem upp kunna
að koma varðandi kærur og kæru-
frest. Þar segir meðal annars:
„Frestur til að skila inn athuga-
semdum við endurmat brunabóta-
og fasteignamats er til 15. septem-
ber nk. Þar til gerð eyðublöð fást í
Borgartúni 21, en þau eru ekki
nauðsynleg. Athugasemdir eru
fullnægjandi, þótt þær séu sendar
með tölvupósti eða faxi, komi eftir-
farandi upplýsingar fram: Heiti
eignar og sveitarfélag, svo og
fastanúmer eignar, nafn, kennitala
og heimilisfang eiganda. Hvað ver-
ið sé að kæra, fasteigna-
mat/brunabótamat eða hvoru-
tveggja, kært til hækkunar/lækk-
unar. Nauðsynlegt er að rökstuðn-
ingur fylgi.
Öll gögn málinu til stuðnings
eru vel þegin, t.d. ljósmyndir, lúti
athugasemd að hækkun bruna-
bótamats vegna endurbóta.
Öllum skriflegum athugasemd-
um veröur svarað. Athygli er vak-
in á því að liggi niðurstaða ekki
fyrir þann 15. september gildir nú-
verandi mat þar til úrskurðað hef-
ur verið í málinu.“
Undanfarið hefur mikil umræða
farið fram um endurmat á bruna-
bótamati húseigna hér á landi og
sýnist sitt hverjum. Umræðan hef-
ur hingað til að mestu leyti snúist
um þá sem eru að kaupa og selja
húseignir og hafa fasteignasalar
verið þar fremstir í flokki. Einnig
hefur heyrst frá einstaklingum
sem telja matið ekki rétt og greini-
lega eru margir á þeirri skoðun
því yfir 1500 kærur hafa þegar
borist til Fasteignamatsins. En
þessar breytingar koma ekki ein-
ungis við kaupendur og seljendur
fasteigna, heldur öllum þeim er
4-
eiga húsnæði. Hagsýni fór á stúf-
ana og tók nokkra aðila sem að
málinu koma með einum eða öðr-
um hætti tali í þeim tilgangi að
leita svara við því hvernig endur-
matið kemur við hinn almenna
borgara.
Sigurður G. Guðjónsson er for-
maður Húseigendafélagsins og seg-
ir hann brunabótamatið ekki vera
neitt annað en verðmiða á fast-
eign, eða það verð sem á að greiða
ef hún brennur. „Þær formúlur
sem upp voru settar til að reikna
dæmið voru lögfræði- og vátrygg-
ingafræðilega réttar en eitthvað
fór úrskeiðis. Það má líkja þessari
framkvæmd við uppskurð, þarna
þurfti að gera eitthvað og aðgerðin
heppnaðist en sjúklingurinn dó.
Því út úr þessu endurmati, sem
átti að vera réttlætismál, hefur
komiö ýmis vitleysa og ósamræmi.
Búast mátti við að sumir hækk-
uðu á meðan aðrir lækkuöu en inn
á milli koma upp óskiljanleg tilvik
sem þarf að kæra og lagfæra."
Byggja hálft hús?
„Ég geri helst athugasemdir við
þær fyrningar sem lækka bruna-
bótamatið ár frá ári, mér finnst
þær ekki ganga upp varðandi
íbúðarhúsnæði. Þær eru að vísu
réttar samkvæmt lögfræðinni og
skólabókarforskriftum í vátrygg-
ingafræði og maður skilur þær svo
sem ef um bOa er að ræða. Ef tíu
ára gamall tryggður bíll eyðileggst
fær maöur ekki nýjan í staðinn.
Þegar um hús er að ræða kemur
eitthvað annað til sem er erfitt að
festa hendur á sem tryggingarleg
verömæti. Ef hús fjölskyldu brenn-
ur missir hún heimili sitt og
stendur á götunni og þarf að koma
sér upp nýju heimili þrátt fyrir all-
ar fyrningar. Spurningin er hvort
fjölskyldan eigi að byggja sér hálft
hús eða bara einhvern skúr. Fólk
vill að tryggingin sé þannig að það
sé statt í sömu sporum og fyrir
brunann. En það verður þaö ekki
nema það geti fengið sér sambæri-
legt hús. Sem dæmi má nefna að
fólk sem býr í húsum sem eru jafn-
vel svo gömul að þau eru friðuð,
fær afskaplega lítið út úr bruna-
tryggingunni þrátt fyrir að húsinu
hafi verið listilega vel við haldið
og sé feiki verðmætt. Ég tel að end-
urskoða þurfi fyrningarreglurnar
því þeir hagsmunir sem fólk þarf
að hafa á hreinu við bruna eru fyr-
ir borð bornir núna.“
Hefur ekki mikla þýðingu
„Hér á landi eru brunar mjög fá-
tíðir, kannski verða örfáir slíkir á
ári. Því hefur brunabótamatið ekki
ýkja mikla þýðingu per se, fyrir það
sem þvi var upphaflega ætlað. Hins
vegar hefur það geypimikla þýðingu
í allskyns aukahlutverkum sem eru
hengd á það, eins og t.d. veðhæfni
gagnvart opinberum sjóðum og líf-
eyrissjóðum. Svo eru alls kyns gjöld
og skattar sem miðast við bruna-
bótamat. Þau koma væntanlega til
með að lækka með endurmatinu.
Menn hafa svo sem ekki talað hátt
um það undanfarið. En með því að
lækka brunabótamatið hefur Fast-
eignamat ríkisins í raun lækkað
tekjur til sjálfs síns.“
Þau gjöld sem Siguróur talar hér
um eru lögó á eigendur fasteigna og
miðast vió brunabótamat eignanna.
Þau eru ákveöin krónutala á hverja
milljón sem fasteign er metin á í
brunabótamati. Þannig fœr Bruna-
málastofnun 45 kr. af hverri milljón,
Fasteignamat rikisins 100 kr., for-
varnargjald er 300 kr. og viðlaga-
tryggingin er 250 kr. á hverja millj-
ón.
Var hálfgert plat
„Þessar fyrningar sem nú lækka
brunabótamatið eru ekkert nýjar.
Þær hafa alltaf verið til staðar með
einum eða öðrum hætti. Þær
komu hins vegar ekki í ljós fyrr en
húsið brann og fólk fékk trygging-
arnar sínar. Kannski var húsið
tryggt fyrir 10 milljónir en eigand-
inn fékk einungis 5 milljónir i
hendur eftir að búið var aö reikna
fyrninguna inn í. Þannig að fjár-
hæðin sem stóð á seðlunum sem
fólk fékk var hálfgert plat. Núna
eru fyrningarnar birtar frá mán-
uði til mánaðar þannig að fólk veit
á hverju það á von ef brennur hjá
þeim.“
Hækkun mats eykur gjöldin
„Hér á landi er skyldutrygging
húseigna sem er andstætt því sem
gerist víðast hvar annars staðar.
Við íslendingar erum svo sinnu-
lausir um eigin hagsmuni að við
myndum ekki tryggja húsin því
það brennur svo sjaldan og þá
alltaf hjá hinum. Ég held því að
það væri algert glapræði að fella
niður skyldutrygginguna þrátt fyr-
ir að hér gildi almennt samnings-
frelsi. Best væri auðvitað ef
skyldutryggingin stæði og fólk
hefði síðan val um að tryggja sig
betur hjá sínu tryggingafélagi,
kannski fyrir mismuninum milli
brunabótamatsins og markaðsvirð-
is eignarinnar. En tryggingafélög-
in hafa ekki boðið upp á þetta og
finnst mér það skrítið. Kannski er
það vegna þess að tryggingarið-
gjöldin eru svo lág. En Húseigenda-
félagið er með það á döfinni að
vinna í þessum málum.
Nú eru margir búnir að kæra
endurmatið og finnst mér það sjálf-
sagt ef tilefni er til. Fasteignamat-
ið á að segja til um hvað eignin
kostar í staðgreiðslu og hefur fyrir
flesta ekki aðra þýðingu en að vera
skattstofn. Þannig að þeir sem
kæra til hækkunar auka hjá sér
gjöldin. Fyrir flesta kemur sér best
að hafa hátt brunabótamat og lágt
fasteignamat þvi fleiri gjöld eru
hengd á fasteignamatið en bruna-
bótamatið þótt þau séu nú nokkur
á því líka.“ -ÓSB
íbúöarhús brennur
Brunar á íbúðarhúsnæði eru fremur fátíðir hér á landi en gerist slíkt er gott að brunabótamatið sé sem réttast og inn-
búið vet tryggt, annars getur Ijárhagslegt hrun blasað við íbúunum.
Smáauglýsingar
Allt til alls
Tilboð verslana
Uppgrip verslanir Olís
September tilboö.1
0 Gatorade Tropical 500 ml 160 kr.
Q Gatorade Orange 500 ml 160 kr.
Q Gatorade lemon 500 ml 160 kr.
0 Sóma pastabakki 229 kr.
Q Freyju Rís stórt 85 kr.
Q Kit Kat Chynky Kingsize 109 kr.
Q Yankie Bar 30 kr.
Q Bouchee konfektmolar 40 kr.
Q Simoniz Back to Black 555 kr.
Q Simoniz Cockpit Shine 519 kr.
Þín verslun
Tilboöin gilda til 12. september. 1
Í Q 4 hamborgarar m/brauöi 295 kr. \
| Q 1944 kjúklingabringur í sósu 415 kr. j
Q Pagens heilhveitibruöur 169 kr.
Q Honey Cheerios 299 kr.
Q BKI extra, 400 g 249 kr.
Q Mjólkurkex 159 kr.
Q Kókómjólk og nestistaska 499 kr.
j Q Frissi Fríski appelsínusafi, 21189 kr. j
0 Fis eldhúsrúllur, 2 stk. © 99 kr.
Fiaröarkaup
Tilboöin gilda til 8. september. j
0 Svínaskinka 598 kr. kg
Q Kindabjúgu 299 kr. kg
j Q Reykt & saltaö folaldakjöt389 kr. kg j
j Q Sv/na lærissneiöar 419 kr. kg j
i Q Chicago Town örbylgjupizzur 359 kr. j
o
o
o
o
©
Select
Tilboöin gilda til 29. september.
Q Júmbó saml. & 1/2 I Pepsi 279 kr.
Q Júmbó saml. & 1/2 I d Pepsi279 kr.
Q Júmbó saml. & 1/2 I appeis. 279 kr.
Q Freyju Villiköttur 69 kr.
Q Nóa Púkar 50 g allar teg. 59 kr.
Q 102 Dalmations pennapokar 499 kr.
Q Vekjaraklukka 589 kr.
Q Turtle wax original bón 399 kr.
Q Turtle wax teflon bón 399 kr.
Q Turtle back in a flash 285 kr.