Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Skoðun
DV
Verður virkjað fyrir austan?
(Spurt á Akureyri.)
Birgir Pétursson afgreiðslumaöur:
Nei, en ég sjálfur er á móti spjöllum
sem fylgia virkjun.
Stefán Jökulsson sjómaöur:
Já, mér finnst allt benda til þess.
Stefán Tryggvason vélamaöur:
Já, enda eru peningamennirnir löngu
búnir aö ákveöa þaö.
Sandra Magnúsdóttir húsmóöir:
Þaö getur vel veriö, en ég hef sjálf
ekki myndaö mér skoöun á þessu.
Ólöf Árnadóttir húsmóöir:
Já, ekki spurning. Viö eigum bæöi
aö geta virkjaö og verndaö í senn.
Björgvin Björgvinsson rafvirki:
Þaö efast ég um, en hef ekki mynd-
aö mér skoöun á málinu.
Álver í Reyöarfiröi. - Austurlandi fórnaö fyrir norska hagsmuni?
Er ísland norsk nýlenda?
Einar Vilhjálmsson skrifar:
Allt frá dögum Haralds lúfu tO okk-
ar daga hafa Norðmenn nýtt auðlindir
íslands að hætti nýlenduþjóða. Hákon
gamli gerði íslendinga skattskylda sér
1262 og utanríkisverslun okkar var í
höndum Norðmanna. Árið 1868 hófu
Norðmenn sUdveiðar í íslenskri land-
helgi og tóku sér aðstöðu á sjávarlóð-
um á Seyðisfirði. Þetta varð upphafið
aö umfangsmOdum sUdveiðum, þorsk-
veiðum og hvalveiðum á íslandsmið-
um, og sem stóðu í heila öld. ÖO þessi
umsvif Norsara höfðu á sér snið ný-
lendukúgara. Og ríkisvaldiö hér var
máttlítið þá eins og nú.
Á árunum eftir 1878 voru Norðmenn
með um 180 skipa flota á íslandsmið-
um, 90 nótalög og 1800 manna við sUd-
arútveginn. Á árunum 1903 tO 1929
fluttu Norðmenn 4.639.110 tunnur salt-
sUdar tO Noregs af íslandsmiðum og er
þá ótalið það sem þeir fluttu tU ann-
arra landa og aflinn sem lagður var á
land á íslandi i bræðslu og salt. Á
stríðsárunum hurfu Norðmenn af ís-
Er hugsanlegt að efnahag-
skreppan sem gengur yfir
þjóðina nú sé hluti af undir-
búningi stjómvdlda fyrir stór-
iðjuframkvœmdir
Norsk Hydro?
landsmiðum en strax eftir stríðslok
komu þeir aftur með stóran sUveiði-
flota á miðin og voru þá betur búnir tU
veiðanna en íslendingar.
Á árunum 1995 tU 1999 keyptu ís-
lendingar vörur af Norðmönnum fyrir
kr. 81.556.000.000, en seldu þeim fyrir
kr. 29.304.600.000. HaUinn af þessum
viðskiptum var því kr. 52.251.400.000.
Árið 1976 samdi íslenska ríkið við El-
kemSpikerverket um byggingu jám-
blendiverksmiðju á Grundartanga. ís-
lendingar áttu 55% hlut en Norðmenn
45%. TU verksins var tekið 7 mUljarða
lán hjá Norræna fjárfestmgarbankan-
um. Járnblendiverksmiðjan tók tU
starfa árið 1979 og tapaði einum mUlj-
arði þetta fyrsta starfsár, þrátt fyrir
lágt rafmagnsverð. - Áriö 1980 var tap-
ið um þrír mUljarðar.
Ef tU vUl gátu Norsarar stýrt af-
komu fyrirtækisins, þar sem þeir önn-
uðust bæði öflun aðfanga og seldu
framleiðsluna. Þeir hafa máske haft í
hendi sér að láta verksmiðjuna tapa og
getað látið gróðann myndast af sölu að-
fanga og afúrða. Lok þess hráskinna-
leiks urðu þau að ríkið taldi þann kost
vænstan að hætta félagsskapnum við
Norsarana og lét þeim eftir eignarhlut
sinn. Enn ætla Norðmenn að komast
yfir auðlmdir íslands með hjálp ís-
lenskra flugumanna sem aUtaf virðast
reiðubúnir að endumýja Gamla sátt-
mála. Ætla að fóma Austurlandi fyrir
norska hagsmuni. - Er hugsanlegt að
efnahagskreppan sem gengur yfir þjóð-
ina nú sé hluti af undirbúningi stjóm-
valda fyrir stóriðjuframkvæmdir
Norsk Hydro?
Heimilislausir í Reykjavík
J.M.G. skrifar:
Lengi hefúr ríkt neyðarástand í hús-
næðismálum Reykjavikur. Valdamenn
hafa reynt að þegja allt það mál í hel. Frá
borgarstjóm heyrist það eitt að dýrt sé að
taka á móti nýjum íbúum og sinnir því
ekki íbúðaþörfmni. Hennar áhugamál em
ráðstefhuhús og tónlistarhaUir.
Nú er blaðran hins vegar sprungin og
umræðan verður ekki stöðvuö héðan af.
Það kom fram í DV um sl. helgi að bæt-
ur tU 75% öryrkja em 61 þúsund krón-
ur á mánuði. Svo lágar bætur leiða af
sér eymd og volæði og jafnvel auðgunar-
brot. Á sínum tíma hélt aUt „félagsvís-
indafólkið" ráðstefiiu um fátækt. Ekki
„Verkalýðsfélögin íReykja-
vik hafa ekki tekið á þessum
mikla vanda og þá heldur
ekki Samfylkingin. Eða man
einhver eftir að hún hafi
vakið athygli á málinu?“
bætti sú ráðstefna mikið úr ástandinu,
enda snerist ráðstefnan fyrst og fremst
um það eitt að tala, að „greina vand-
ann“, en síðan ekki söguna meir. - Að-
gangur að ráðstefnu þessari var 1000 kr.
svo að fólk á lægstu bótunum sást þar
ekki. Ráðstefnan var því haldin fyrir
aðra en það fólk.
Verkalýðsfélögin í Reykjavik hafa
ekki tekið á þessum mikla vanda og þá
heldur ekki Samfylkingin. Eða man ein-
hver eftir að hún hafi vakið athygli á
málinu? Leiga fyrir tveggja herbergja
íbúð í Reykjavík er hærri en bætur 75%
öryrkjans. DV er eini fiölmiðUlinn sem
hefur þó neytt hina sinnulausu félags-
hyggjuforystu tU að tala. Það var það
sem þurfti. Fátæktin er ekki tU að
spauga með og á ekki að vera efni tU
einskonar grínfunda fýrir hina efnuðu
félagsvisindamanna - hinnar „nýju
stéttar".
Gervifyrirtæki í
gjaldþrot
Jón Stetönssonjkrifar:
Engum er gerður greiði með því að
halda fyrirtækjum á floti með þeim
hætti sem hér hefúr lengi tíðkast, að
safna skuldum á skuldir ofan, draga
greiðslur tU viðskiptamanna og jafnvel
starfsmanna. Slík fyrirtæki eru „gervi-
fyrirtæki“ sem ættu að vera tekin tU
gjaldþrotaskipta. Ég furða mig á Sam-
tökum atvinnulífsins og fleirum sem
breiða út þann boðskap að gjaldþrotahr-
inu sé að vænta lækki Seðlabankinn
ekki vexti veruiega. Þau fyrirtæki sem
standa sig, og eru ekki „gervifyrirtæki",
líkt og mörg í t.d. tölvu- og veitinga-
bransanum eru, þola biðina á meðan
grisjun gervUyrirtækjanna stendur yfir.
Samtök atvinnulífsins funda
Gjaldþrotahrina hverra?
Hver rústar borgina?
Kari Ormsson skrifar:
Hafliði nokkur Helgason skrifar
mér smá ádrepu í DV 3. þ.m. vegna
pistUs er ég setti saman um R-listann
og ástandið í miðborginni. - Jú,
Hafliði, ég man tímana tvenna í miðbæ
Reykjavikur, og ég man þá tíð að mað-
ur gat farið óhultur um borgina okkar
sér tU skemmtunar. Þú viðurkennir þó
það sem Bubbi Morthens sagði um R-
listann, en skrifar aumingjaskap R-list-
ans á sjáifstæðismenn. Ég sagði hins
vegar að þegar aUt væri komið í vand-
ræði hjá R-listanum í miðborginni
hrópuðu þeir á lögreglu. Sjálfstæðis-
menn hafa ekki rústað borgina, og
skiptir þá ekki máli hvort lögreglan er
undir stjóm sjáifstæðismanna. Bubba
þakka ég fyrir hreinskUni í tali sinu
um R-listann.
Afríkuferð ráðherra
Haildóra GuOmundsdóttir skrifar:
Ég er ein þeirra sem
gagnrýni félagsmála-
ráðherra fyrir afstöðu
hans og túlkun á
brunabótamatshækk-
uninni. TUtölulega lítil
umræða hefur verið
um þetta stórmál.
Kannski ekki furða
þegar félagsmálaráð-
herra fer úr landi aUa
leið tU Suður-Afríku
með fjölmennu fylgdar-
liði. Skyldi sú ferð hafa
verið nauðsynlegri en
að vera hér á landi tíl andsvara fyrir mis-
tökin sem hans ráðuneyti er í forsvari fyrir?
Það þarf að grípa félagsmáiaráðherra glóð-
volgan strax við heimkomu og krefia hann
skýringa á breyttu brunabótamati fasteigna
hér í Reykjavík.
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra
Afríkuferö
númer eitt?
i—
■H ■ • I
Davíð hefur
Þá er Davíð búinn að tjá sig um vaxtamálin. í
Morgunblaðsfrétt í gær segir Davíð frá því að hann
hafi ekki viljað segja mikið um vaxtamálin vegna
þess að hann viU ekki vera að setja þrýsting á
Seðlabankann. Sem kunnugt er hefur bankinn nú
talsvert víðtækt frelsi viö mörkun peningamála-
stefnu og á að gæta þess framar öUu öðru að halda
stöðugu verðlagi í landinu. Þetta sjálfstæði bankans
er talið gríðarlega mikilvægt og Davíð segir einmitt
í Mogganum að hann hafi þagað tU að vega ekki að
nýfengnu sjáU'stæði bankans. „Ég verð að halda
mig til hlés í þessu til þess að gefa Seðlabankanum
færi á að fara með þetta vald. Bankinn heyrir und-
ir mig og ég verð að horfa til þess,“ segir Davið.
Þessi hlið á Davíð kann að koma einhverjum á
óvart, en þarna sannar hann í eitt skipti fyrir öU
hve réttlátt stjómvald hann er og skilningsríkur
þegar kemur að starfsemi ríkisstofnana. Augljós-
lega verðskuldar hann aUa þá miklu aðdáun sem
Garri hefur á honum.
Smáfreisting
En auðvitað hlýtur það líka að vera mikil freist-
ing fyrir efnahagsmálaráðherra landsins, Davíð
Oddsson, að hafa skoðanir á jafnmikilvægu máli og
peningamálin eru. Enda kemur á daginn að forsæt-
isráðherra getur ekki alveg neitað sér um að segja
talað
nokkur vel valin orð um efni málsins - þó svo auð-
vitað að það kunni af einhverjum að vera túlkað
sem vantraust á að Seðlabankinn kunni að fara
með það nýfengna vald sem hann hefur yfir þessum
málaflokki. Hér hefur í raun verið sköpuð fordæm-
isgefandi regla varðandi svona mál, því nú má skU-
greina sjálfstæði Seðlabankans þannig að sjálfstæöi
bankans felst í því að Davíð segi ekkert um pen-
ingamál í nokkra mánuði. Mörk þessa sjálfstæðis
hljóta hins vegar að liggja einhvers staðar og nú
erum við einmitt komin að þeim mörkum. Það er
því tímabært að rjúfa þögnina og það hefur Davíð
gert.
Birgir og baksýnisspegillinn
Úrskurðarorð Davíðs eru þessi: „En mín skoðun
er þessi. Það eru að koma fram samdráttareinkenni
og bankinn á frekar að horfa fram á við en aftur í
þessum efnum.“ Tími sjálfstæðis Seðlabankans er
þvi útrunninn og réttast fyrir bankann að drífa í að
lækka vextina. Birgir ísleifur bankastjóri á nú að
hætta að horfa í baksýnisspegUinn en horfa þess í
stað á kreppuna fram undan, sem er kurteislegt
orðalag yfir það að hann á að lækka vextina. Birgir
ísleUúr getur ekki borið því við að hann átti sig
ekki á að Davíð sé að setja á hann þrýsting, því
Davíð talar mjög skýrt í þessum efnum. Hann seg-
ist hafa þagaö um málið, gagngert til að forðast að
setja þrýsting á bankann. Gagnálykti menn út frá
þeirri yfirlýsingu, liggur í augum uppi að þegar
Davíð talar um málið sé það gagngert til að setja
þrýsting á bankann. Dagskipunin er því ljós: Lækk-
um vexti!
Garri
Til vamar réttlætinu
160658-3719 skrifar:
í bréfi Kristinar Pétursdóttur í DV
31. ágúst sl. kaUar hún mál Áma
Johnsens „gjömingaveður". Situr þá
stór hluti manna á Litla-Hrauni og víð-
ar inni vegna einhvers „gjömingaveð-
urs“? Frú min góð, ekki veit ég hvers
konar kristindómur var messaður yfir
Eyjamönnum. Hér á fastalandinu var
okkur kennt nokkuð sem heitir rétt-
læti, ásamt boðorðunum 10, en eitt
þeirra hefur einmitt yfirskriftma Þú
skalt ekki stela. Er Kristín tUbúin að
fyrirgefa öUum þeim ógæfumönnum
sem „varð á í messunni" en sitja þó
inni og margir hverjir fyrir minna
brot en þetta? - Það er greinUegt að hjá
ykkur Eyjamönnum gUdir þetta gamla
en slæma máltæki, að ekki er sama
Jónsson eða Johnsen.
ÍRÍMimillMI
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendureru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
.^gma póstfang.