Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aóstoóarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fróttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.netheimar.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð: isafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuði 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverð 200 kr. m. vsk., Helgarblaö 300 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Tími risaeðlanna liðinn
Ríkisútvarpið á í verulegum íjárhagsvandræðum. Frá
því var greint í gær að rekstur stofnunarinnar stefni að
óbreyttu í 300 milljóna króna halla. Tekjuáætlanir hafa
brugðist, sérstaklega eru auglýsingatekjur mun minni en
ætlað var. Launakostnaður hefur hækkað, sem og verðlag,
auk þess sem óhagstæð gengisþróun hefur komið niður á
rekstrinum.
í hnotskurn er þetta þekkjanlegur vandi íslenskra fyrir-
tækja nú um stundir, minni tekjur og aukinn kostnaður,
ekki síst launakostnaður, og gengistap sem í heild skilar
sér í verri afkomu, jafnvel taprekstri. Frammi fyrir þess-
um vanda er ríkisfyrirtækið svifaseint og kallar eftir
hækkun afnotagjalda. Almenningur, sem neyddur er til
skylduáskriftar, skal bæta hallarekstrinum ofan á önnur
útgjöld heimilisins.
Einkafyrirtæki í sama vanda og Ríkisútvarpið hefði þeg-
ar gripið til aðgerða til þess að snúa óheillaþróuninni við.
Fyrirtæki sem ekki getur farið fram á skylduhækkun, eða
komist á annan hátt í vasa skattborgaranna, hefði hagrætt
í rekstri sínum til þess að bregðast við minni tekjum. Yf-
irstjórn Ríkisútvarpsins hugleiðir þá leið að vísu með sam-
drætti í dagskrárgerð, ráðningarstoppi og fleiri aðgerðum
en virðist þó bíða með aðgerðir þar til svör fást við um-
sókn um hækkun afnotagjalda frá næstu mánaðamótum.
Rekstrarform Ríkisútvarpsins er úrelt, í því felst megin-
vandinn. Æðsti yfirmaður þess, Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra, veltir því fyrir ser í nýlegum pistli á vefsíðu
sinni hvernig laga eigi þessa stofnun að nýjum kröfum.
Hann bendir á að erfitt hafi reynst að laga Ríkisútvarpið
að nútímaháttum. Athyglisvert er, segir ráðherrann, að
fylgjast með umræðum í Bretlandi en æ fleiri, þeirra á
meðal vikuritið The Economist, hallist nú að því að tími
BBC sem ríkisfyrirtækis sé á enda kominn. Breska ríkis-
útvarpið hafi ekki þá sérstöðu lengur sem réttlæti að rík-
ið reki það.
Menntamálaráðherra hefur lýst þeirri skoðun sinni að
Rikisútvarpinu eigi að breyta í hlutafélag í eigu rikisins.
Hiklaust á að ganga lengra og einkavæða stofnunina. Þótt
færa megi rök fyrir þvi að eðlilegt hafi verið að rikið ræki
útvarps- og sjónvarpsstöð eiga þau ekki við lengur. Einka-
aðilar hér á landi, eins og í nágrannalöndum okkar, hafa
sýnt fram á það að þeir eru fullfærir um þennan rekstur.
Fjölmiðlarekstur á ekki að vera verkefni ríkisins. Engum
dettur í hug að ríkið reki dagblað. Þau blöð sem eru á
markaðnum standa og falla með því sem þau bjóða lesend-
um sínum. Hið sama á að gilda á ljósvakamarkaði.
Ríkisútvarpið á að selja og það er án efa góð söluvara.
Nýir eigendur þess geta þá keppt við aðra ljósvakamiðla á
jafnréttisgrundvelli, selt áskrift og auglýsingar. Telji þeir
sig verða að hækka afnotagjöldin geta þeir gert það en
kaupandinn hefur þá rétt á að segja áskriftinni upp, of-
bjóði honum verðlagningin. Hann er ekki neyddur til
kaupanna eins og nú er.
Það er hreinlega út í hött að menn þurfi að láta skrásetja
sig hjá opinberu apparati kaupi þeir jafn sjálfsagða neyslu-
vöru og sjónvarpstæki. Slysist tveir á sama heimili til þess
að kaupa hvor sitt tækið er heimilið þar með farið að
borga tvöfalda áskrift. Þá líkist það hryllingssögum af
„stóra bróður“ þegar fréttist af tæknirukkurum á þvælingi
um borg og bý til þess að mæla hugsanlega sjónvarpsnotk-
un á heimilum fólks.
Ákall Ríkisútvarpsins um hækkun skylduáskriftarinnar
nú minnir okkur á að tími risaeðlanna er liðinn.
Jónas Haraldsson
Skoðun
Vitfirring eða vitkun
Nú bryddar á nýrri aðskiln-
aðarstefnu í Afríku sunnan-
verðri, þ.e. viðsnúningur ný-
lendustefnunnar gömlu. í
Simbabwe vill Mugabe forseti
svipta hvíta bændur löndum
sínum með „afnýlendun11 og af-
henda þau svörtum. Skítt með
þjóðarhag, en landbúnaðaraf-
urðir eru eini útflutningurinn;
nýir landtökumenn kunna ekki
til verka í nútíma landbúnaði
og vilja það ekki.
Ef snúa á klukkunni við
verða réttlitaðir að stöðva
ræktun og hefja smáhjarðbúskap, en bein
aíleiðing af því er hungursneyð og hrun
því íbúar eru of margir fyrir eftirsóknar-
verða lifnaðarhætti fortiðar; bestu mjólk-
urkúnum skal slátrað ef þær hafa rangan
lit; enda flykkjast íbúar burt úr landinu.
Flottræfilsháttur forsetans kostar vinnu-
virði milljón manna, augljóst réttlætis-
mál í stíl við aðra peningafursta. Norræn-
ir vandamálafræðingar geta nú skilgreint
þetta nýja réttlæti, vitkunina eða flrring-
una. Ef vel er að gáð á bókasöfnum má
likast til flnna skýringar á Flóabardaga
og stríði íraka og írana til að kenna Bret-
um um, þeir drógu jú vitlaus landamæri
á vitlausum tímum.
Jónas Bjarnason
efnaverkfræOingur
Nýlenduvörur
Þeir sem komnir eru til ára
muna að matarbúðir voru kall-
aðar nýlenduvöruverslanir, en
skelflleg ábyrgð og skömm hvíl-
ir á því að hafa verið þjófsnaut-
ar nýlenduvelda í aldir. Fáar
vörur koma nú frá fyrrverandi
nýlendum; minnast má á kakó,
te, einhveija ávexti, krydd og
kaffl eða flkniefni, jútastriga,
hamp og kókoshnetur. í raun
tæki enginn eftir því, nema
löndin sjálf, ef viðskipti við þau
legðust af en óráð væri að rifta þeim til að
friðþægja þeim, sem sjá heimsins ógæfu í
brölti nýlenduþjóða. íslendingar urðu
aldrei það fjáðir að þeir yrðu einhvers
virði sem skattlendingar, nema fyrir
kaupmenn; þá má nú skamma fyrir flest
eins og sumir hafa gert og svo ailt sem
kapítaliskt er.
Áður fyrr skrifuðu sigurvegarar mann-
kynssöguna, en nú eru það þeir sem töp-
uðu sem vilja umskrifa hana. Rómveijar
voru í raun fyrsta alvöru nýlenduveldið
og skattlendur þeirra náðu yflr stærsta
hluta hins „þekkta heims“, en matarbúr
þeirra var í Norður-Afríku. Ameríka öll
var nýlendur í aldir sem og Afríkulöndin
„Vissulega erframtíðin björt og lífskjörfara batnandi, en besta og
kannski eina leiðin til að njóta þeirra er að loka augum og eyrum
fyrir útburðarvœli mótmœlenda og öfgasinna; vissulega em þessa
merki nú að sjá í mörgum löndum ríkidæmisins, ékki síst USA,
sem má skamma fyrir állt. “
flest, Indland og mörg lönd i Austur-Asíu.
Enn eru Normannar skammaðir í
Englandi og Rússar hafa lengst af afneit-
að þætti norrænna manna í landinu, nú
eru bækur umskrifaðar. Þegar litið er til
þjóðflutninga í lok fomaldar má sjá að
norrænir menn óðu þvers og kruss yfir
lönd í Suður-Evrópu og Norður-Afríku;
orðin vandalismi og barbarar þýða rupl
og skeggjaður ránslýður og tengjast þau
mönnum sem réðust á hinn „siðvædda"
heim, en nú er það menningarvottur að
vera norrænn og skeggjaður; samið hefur
verið nýtt Háttatal.
Þegar allar óskir rætast
Það eru tólf ár síðan að sú sem
þetta skrifar flaug frá litlu ríki í
Bandaríkjunum alfarin heim eftir
tveggja ára nám. Á vellinum var sálu-
félaginn þessi ár, yndisleg kanadísk
skólasystir sem hafði verið besti vin-
ur og staðgengill fjölskyldu allan
þennan tíma. Hún hafði verið félags-
skapur þær nætur sem við vöktum og
unnum ritgerðimar okkar. Hún hafði
komið með neyðarhjálp í veikindum,
haldið óvænt upp á afmælið mitt og
boðið öllum félögum okkar til veislu
þegar ég útskrifaðist. Og við kvödd-
umst með þau heit á vörum að sjást
oft og missa ekki sambandið.
Þetta fyrra klikkaði alveg, en við
misstum ekki sambandið. Hún skrif-
aði mér oft fyrstu árin og ég hringdi
öðru hvoru í hana og talaði ævintýra-
lega lengi. En við hittumst ekki. Einu
sinni þegar ég átti leið um Flórída
flaug það að mér að keyra alla leið
norður bara til að hitta hana. En ekki
varð úr því, enda það ferðalag hræði-
lega margra sólarhringa ferð eftir
einlitri hraðbrautinni nr. 95.
Hún hefur ferðast nokkuð á þess-
um árum, en allt innan Norður-Amer-
íku og þá notað til þess bílinn sinn.
Flugferð yfir Atlantshafið var ýmist
alltof dýr eða gott verð í boði á
óheppilegum tíma. En svo kom loks-
ins að því. Eftir að hafa farið gegnum
iiíSSMfcf
„Þetta var rigning þar sem hver dropi var svo stór að
hann skildi eftir Ijótan hlett á skyrtunum og nokkrir
slíkir gegnbleyttu fötin. En Lónið var glœsilegt og þessi
glæsilega rigning var bara til að minna á heppnina
fram að þessu. “ - Við Bláa lónið.
tíu ára múrinn án þess að
hittast þá fór þetta að verða
nokkuð aðkallandi. Og loks-
ins gekk þetta allt upp. Hún
var núna í júní með miða til
íslands í höndum harðá-
kveðin i þvl að heimsækja
landið mitt og mig.
Heimsóknin
Þetta var frábær heim-
sókn. Við höfðum auðvitað
hvorug breyst nokkuð,
þekktumst á vellinum undir
eins og vorum fljótar að ná
þessari góðu nálægð sem hafði ein-
kennt samskiptin á námsárunum.
Við lögðumst í ferðalög um landið
með dæturnar í aftursætinu. Og
hvernig sem á því stóð þá var eins og
yfir okkur væri einhver blessun.
Hvar sem við komum skartaði landið
sínu fegursta og fólkið var glaðlegt og
hjálplegt. Ættingjar i fjarlægum hér-
uðum viku úr rúmi til að gesturinn
langtaðkomni gæti hvílst, fiskar bitu
á öngla úti á norðlægum bryggju-
sporðum eins og einhver hefði mútað
þeim og jafnvel golfkylfur hlýddu
kaUinu í höndum hins erlenda við-
vanings og kúlur flugu í miðnætur-
golfi með fallegum hvin beint inn á
grænumar. Til þess að kóróna þetta
allt voru veðurguðirnir svo hliðhollir
að lýsingu á veðrinu hvar sem við
komum myndi enginn trúa.
Það er ótrúlega gaman þegar hlut-
imir hafa svona tilhneigingu til að
ganga upp. Þegar allt sem maður tek-
ur sér fyrir hendur æxlast þannig að
það hefði ekki getað orðið betra.
Þannig var allt okkar ferðalag. Síð-
asta daginn hennar hér á landi fórum
við í Bláa lónið á leiðinni á völlinn.
Sígfríöur
Björnsdóttir
tónlistarkennari
Þá rigndi. En meira að segja
rigningin var ekki venjuleg.
Þetta var ekki þessi venju-
lega islenska rigning sem er
svo létt í sér og dropasmá
að maður veit aldrei hvort
hún ætlar að ferðast lóðrétt
eða lárétt. Þetta var rigning
þar sem hver dropi var svo
stór að hann skildi eftir ljót-
an blett á skyrtunum og
nokkrir slíkir gegnbleyttu
fötin. En Lónið var glæsi-
legt og þessi glæsilega rign-
ing var bara til að minna á
heppnina fram að þessu.
Óvæntur glaðningur
Við kvöddumst á vellinum og ég
hraðaði mér aftur út í bíl þar sem
þreyttar dæturnar biðu. Vinkona mín
var alveg sjálfbjarga. Næsta dag
hringdi hún og var dálítið hátt uppi.
„Guess what happened?" sagði hún
og tónninn í röddinni var hálfri átt-
und ofar en hennar venjulega altrödd
hljómaði að jafnaði. Hún hafði verið
seinni en til stóð að afgreiðsluborð-
inu vegna þess hve vel við skemmt-
um okkur í Lóninu. Fyrir bragðið var
búið að bóka vélina fulla og því ekki
sæti fyrir hana. Henni bauðst að
fljúga til annarrar borgar og þaðan á
áfangastað sem auðvitað olli töfum.
En fyrir ómakið fékk hún líka
miða hjá Flugleiðum sem hún á að
nota innan árs! Eftir tólf ára bið má
því búast við að við hittumst innan
árs og getum tekið upp þráðinn þar
sem frá var horflð í þessari ferð.
Ef þetta er ekki að endurnýja sam-
bandið með stæl - þá veit ég ekki
hvað!
Sigfríður Bjömsdóttir
Spurt og svarað
Er rétt að hcekka afhotagöld Ríkisútvarpsins?
iHi í
Einn heimur - en hvers?
Sumir mótmælendur heimskapítalism-
ans vilja að bylting verði; bara einhver
bylting. í frönsku byltingunni vissu menn
heldur ekki hver útkoman yrði. Á sama
hátt óska þess margir nú að sandur kom-
ist í vélbúnað heimsvæðingar eða
„Tsjemóbyl“ í viðskiptum, eða bara nýr
skattur, sem súrsað getur líf mógúlanna.
Þeir þeysa um heimsins höf eins og Hol-
lendingurinn fljúgandi; rótlausir á gand-
reið örlaganna, sem gert hafa þeim eirð-
arleysi í blindu kapphlaupi við aðra lika.
Þegar öllu er á botninn hvolft má gjörla
sjá að glíman stendur um heiminn sjálfan
með gæðum og gögnum. Hver á að fá að
menga hann áfram og nota yflrborð hans
til viðhalds þeirra lifnaðarhátta, sem
menn telja sig eiga kröfú á til að þjónkast
sinu sjónarhomi og tilkalli til óhófslífs og
fordildar, fitu og flrringar?
Vissulega er framtíðin björt og lífskjör
fara batnandi, en besta og kannski eina
leiðin til að njóta þeirra er að loka augum
og eyrum fyrir útburðarvæli mótmæl-
enda og öfgasinna; vissulega eru þessa
merki nú að sjá í mörgum löndum ríki-
dæmisins, ekk'i síst USA, sem má
skamma fyrir allt.
Jónas Bjamason
Ummæli
Ömurleg framganga
„Undirstaða efnahagslegrar vel-
gengni íslendinga byggist á því að
við nýtum náttúruauðlindir okkar,
sem fyrst og fremst eru sjávarfang
og orka. Takist okkur það ekki get-
um við ekki búist við því að við get-
um miðað okkur við nágrannaþjóð-
irnar um almenn lífskjör og mennt-
unarstig, því peningar verða ekki til
í bönkum og fj árfes tingarfyrirtækj -
um. Þessar einfóldu staðreyndir
hafa íslenskir vinstri menn alltaf
skilið. Því er það ömurlegt fyrir
okkur sem talið höfum okkur hing-
að til til vinstri kants í íslenskum
stjórnmálum að horfa á framgöngu
stjómarandstöðunnar í virkjana- og
stóriðjumálum á Austurlandi."
Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri í
leiöara Austurlands.
Samkvæmisleikur
frá annarri öld
„Muniði ekki þeg-
ar allt í einu fylltust
allir þættir í sjón-
varpinu - ég man al-
veg sérstaklega eftir
Kastljósi Sjónvarps-
ins, þar sem einu
sinni í viku tromm-
aði upp þessi nýja kynslóð sem ber-
sýnilega skildi peninga; þið hljótið
að muna þetta öll; þau sátu þarna
þrjú, svona bjartleit og djörf, og áttu
að ráðleggja fólki hvaða hlutabréf
væri vænlegast að leggja eigur sínar
í þá vikuna ... Svo er allt í einu eins
og þessi samkvæmisleikur hafi til-
heyrt annarri öld, sem hann gerði
vissulega strangt til tekið, en þó eru
ekki nema örfá misseri síðan þetta
var talið gott og göfugt og ábyrgt
sjónvarpsefni handa almenningi."
Illugi Jökulsson í pistli á Stöð 2.
Jón Ásgeir Sigurdsson, formaður Starfsmannasamtaka RÚV 2 Sigurður G. Guðjónsson, lögmadur og í stjóm Norðurljósa Steini Þorvaldsson útvarphlustandi ’ 1
RÚV ofiirselt geðþótta „Því miður er Ríkisútvarpið ofur- selt geðþótta ríkisstjórnarinnar þegar Sleppa ekki tang- arhaldinu „í sjálfu sér má alveg hækka af- notagjöldin upp í 3.000 krónur á u RÚV hluti af þjóðarvitund „Mér finnst að Rikisútvarpið eigi að vera áfram í ríkiseigu en tekjur n
kemur að verðbreytingum á þjónustu. Víðast hvar á
Vesturlöndum er starfrækt öflugt ríkisútvarp og þar
breytist afnotagjald í takt við almenna verðþróun.
Geðþótti ríkisstjórnar ræður ekki verðbreytingum.
Hér fer kostnaður Ríkisútvarpsins vaxandi en stjórn-
völd halda tekjum niðri. Þetta veldur því að starfs-
menn vinna undir ofurálagi. Enn sem komið er
treystir þjóöin Ríkisútvarpinu best af öllum fjölmiðl-
um. En eitthvað hlýtur að láta undan, ef ríkisstjóm-
in þverskallast við að hækka afnotagjaldið. Bestu
kaupin á fjölmiðlamarkaði eru dagskrárefni Útvarps
og Sjónvarps. En sílækkandi tekjur þrengja að dag-
skrárgæðum. Er það ætlun ríkisstjórnarinnar?“
mánuði og jafnvel meira, það er að segja ef fólk hef-
ur eitthvert frelsi til að vera eða vera ekki í áskrift
að þjónustu Ríkisútvarpsins. Starfsemi þeirrar
stofnunar verður að standa undir sér eins og öll
önnur starfsemi sem ríkið starfrækir í samkeppni
við einkaaðila. Ég held að Ríkisútvarpið verði á
næstu árum, hvort sem þaö verður stofnun eða
hlutafélag, því stjórnmálamenn á íslandi munu
aldrei sleppa því tangarhaldi sem þeir hafa á þess-
um fjölmiðli til þess að koma að pólitískum sam-
ferðamönnum í pólitískum tilgangi."
á stofnunin að fá af fjárlögum og peninganna á að
afla í gegnum hina almennu skattheimtu. Sjálfur
hef ég búið víða um landið, meðal annars í af-
skekktum byggðum, og þar er RÚV öryggistæki
þar sem aðrar stöðvar nást ekki. í Suðurlands-
skjálfunum sást vel hvert öryggishlutverkið er og
af þeim náttúruhamförum gátu menn dregið álykt-
anir og lærdóm um hvernig stofnunin getur enn
betur uppfyllt skyldur sínar að þessu leyti. Sá hóp-
ur fólks em ég þekki er á þeirri línu að RÚV skuli
áfram reka með óbreyttu sniði, enda er stofnunin
partur af þjóðarvitundinni."
. HVENÆI?
wTRJ \/ON Vl REP
KOMS=í3T ± Ioee>W,
vBe?0-ETR-E> iPCA
Ólöf Guöný Váldimarsdóttir,
arkitekt og varaþingm. Framsóknar
Á móti
auknum álögum
„Ég er á móti því að leggja aukn-
ar álögur á heimilin í landinu, ef
ekkert kemur á móti. Eðlilegra teldi ég að leita
annarra leiða ef Ríkisútvarpið þarf aukið tjár-
magn, einkum og sér í lagi þar sem fólk getur ekki
valið hvort það er í áskrift ef það á útvarps- eða
sjónvarpstæki. Á meðan ríkið stendur i rekstri fjöl-
miðlafyrirtækis teldi ég eðlilegt að rekstur þess
yrði fjármagnaður með sköttum landsmanna og ég
tel að stjórnvöld ættu að huga að þeirri leið. Rikis-
útvarpið á djúpar rætur í þjóðarsálinni og menn-
ingarsögu íslendinga - og því finnst mér eðlilegt að
það sé ríkisrekið áfram.“
Leviqstur <sr á
Landspitala vi€ HrlyiQ.bvöat,
I y*QY' 9Stur biíiVieftiF’ 31;
wennri SKurQafc9er5vör3Q >
&2- VÍKbrJCLAMOLClCKllSEMBO
Miðpunktar
heimsins
Sótt hefur verið um heimild til menntamálaráðherra til að hækka afnótagjöld í 2.500 kr. á mánuði tll að mæta fjárhagsvanda stofnunarinnar.
Einhverjir varasömustu
staðir í henni veröld hafa
löngum verið hinir svoköll-
uðu „miðpunktar heims-
ins“ og er svo enn. í Morg-
unblaðinu í vikunni var
haft eftir rabbína sem hér
var staddur og er leiðtogi
gyðingasafnaðar á land-
nemasvæðum í ísrael, að
„trúað fólk hérlendis ætti
að hafa í huga að Jesús
Kristur hefði verið Gyðing-
ur, af Guðs útvöldu þjóð.
Kanaansland, ísrael, væri
land Guðs útvöldu þjóðar og Jerúsal-
em miðpunktur heimsins."
Þeir sem svo þenkja, hvar í landi
sem er og hvaða trúarbrögð sem þeir
aðhyllast, eru nú jafn hættulegir og
þeir hafa alltaf verið í sögunni.
Hroki, þjóðremba og trúarofstæki af
þessu tagi er görótt blanda.
Miðpunktar heimsins hafa í gegn-
um tíðina verið margir og víða og
þjóðir sem hafa talið sig útvaldar af
guðum og goðum af einhverju tagi
sömuleiðis. Útvaldar þjóðir í mið-
punktum heimsins hafa jafnan talið
sig öðrum þjóðum og kynflokkum
æðri og það hefur undantekningalít-
ið leitt skelfingar yfir „óæðri“ mann-
verur og oft ekki síður, þegar upp er
staðið, fyrir hinar guðs útvöldu þjóð-
ir sjálfar.
Snorrabúðir
Þúsund ára ríki Hitlers byggði,
eins og flestum gyðingum er kunn-
ugt, fyrst og fremst á þeirri hug-
myndafræði að aríska ofurmennið
væri öðrum kynstofnum æðri og að
Stór-Þýskaland væri miðpunktur
heimsins. I krafti þeirra trúarbragða
var óæðri kynstofnum á borð við
gyðinga og Slava slátrað kerfisbund-
ið hvar sem til þeirra náðist. Róma-
veldi var eitt sinn miðpunkrur
heimsins eins og barbarar annarra
landa fengu á að kenna. Nú er sú
Snorrabúð stekkur. Bretland var um
tima nafli alheimsins og enskir
sjentilmenn á borð við Winston
Churchill öxluðu byrðar hvíta
mannsins og riðu glaðbeittir með
blikandi sverð gegn hottintottum og
öðrum blökkum og brúnum undir-
málslýð. Japanar, synir sólarinnar,
slátruðu á sinum tíma óæðri kyn-
Jóhannes
Sigurjönsson
skrifar
stofnum í Kína og Kóreu í
krafti guðlegs uppruna
keisara síns. Og Sovétmenn
fóru brugðnum brandi um
lönd og álfur útbelgdir af
trúnni á heilagan Stalín,
kommúnismann og móður-
jörðina, enn einn miðpunkt
heimsins. Svona mætti
lengi telja.
Fíll í glerveröld
En þó strangtrúaðir gyð-
...... ingar telji Jerúsalem mið-
punkt heimsins um þessar mundir,
þá eru ugglaust fleiri sem telja það
Washington sem er einmitt í guðs
eigin landi, Bandaríkjunum. USA
hefur líka mörg einkenni fyrri mið-
punkta heimsins í mannkynssög-
unni. Þjóðremba grasserar þar
vestra og fullvissa um að Banda-
ríkjamenn séu mestir og bestir á
flestum sviðum og forsenda þessa er
ekki sist landlæg fáfræði um restina
af henni veröld. Annars er auðvitað
ekki sanngjarnt að alhæfa um
Bandaríkin (frekar en kannski aðrar
þjóðir) því þar ægir öllu saman og
þar er að finna dæmi um það besta
og það versta í veröldinni og allt þar
á milli.
Nýlegt dæmi um bandaríska filinn
í glervörubúð heimsins er eldflauga-
vamakerfið sem Bush er að bisa við
að byggja upp. Ef það kemur til með
að virka, þá segja sérfræðingar að
óvinaflaugum verði vissulega bægt
frá Bandaríkjunum og aungvar vítis-
vélar muni falla á ameríska grund.
Vandinn sé hinsvegar sá að flaug-
arnar muni samt sem áður falla eins
og annað sem fer upp og þær muni
væntanlega koma niður í Evrópu og
víðar og springa þar með látum og
illum afleiðingum fyrir nær- og jafn-
vel fjarstadda.
Vandinn er sem sé ekki leystur
heldur aðeins fluttur til. Og auðvitað
á þeim forsendum að það sé lífsnauð-
synlegt að verja miðpunkt heimsins
og guðs útvöldu þjóð en úthverfi ver-
aldar og mannskepnur miöur guði
þóknanlegar verði að mæta afgangi.
Þeir sem svo þenkja, hvar í landi sem er og hvaða trú-
arbrögð sem þeir aðhyllast, eru nú jafn hœttulegir og
þeir hafa alltaf verið í sögunni. Hroki, þjóðremba og
trúarofstœki af þessu tagi er görótt blanda.