Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Side 20
24
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Miklu meíra úrval - betra verð
THE AUTHENTIC WESTERN JEANS
Tilvera
ITOLTI
HEIMflR
THE AUTHENTIC WE8TERN JEANS
TOLTI
HEIMflR
gallabuxur
fyrír hestamenn
Logi Laxdal og Þormóður rammi
settu glæsilegt íslandsmet á
dögunum í 150 metra skeiði á
Meistaramóti 847 og Netheims og
Andvara. Tíminn er 13,62 sek. en
fyrra met áttu þeir félagar 13,64 sek.
og var það sett i fyrra á veðreiðum
Fáks 31. ágúst 2000.
Ekki er hægt að kvarta yfir
meðvindi því hægur andvari var á
móti. Tíminn er handtekinn og
meðaltal fimm klukkna. Logi var
einnig með næstbesta tímann, 14,00
sek., á Neyslu frá Gili en Daníel
Jónsson var þriðji á Áka frá
Laugarvatni á 14,20 sek. Logi
sigraði einnig í 100 metra
hraöskeiði á Kalda frá Keldudal á
7,79 sek. en þar var annar
Sigurbjörn Bárðarson á Óðni frá
Búðardal á 7,98 sek. og þriðji Hinrik
Bragason á Frosta frá Fossi á 8,035
sek.
í 250 metra skeiði sigraði Hinrik
Bragason á Frosta frá Fossi á 22,3
sek., Daníel Jónsson var annar á
Þoku frá Hörgslandi á 22,31 sek. og
Logi Laxdal þriðji á Hnossi frá Ytra-
Dalsgerði. Sigurður Sigurðarson
kom mörgum hrossum í úrslit.
Hann sigraði í tölti á Fifu frá Brún
með 7,93 i einkunn, Sigurbjörn
Bárðarson var annar á Oddi frá
Blönduósi og Sævar Haraldsson
þriðji á Glóð frá Hömluholtum.
í A-flokki stóð efstur Kjarkur frá
Ásmúla með 8,47 og var knapi Logi
Laxdal. Bylur frá Skáney var annar
með 8,57 og var knapi hans
Sigurbjörn Bárðarson. Skafl frá
Norður-Hvammi var þriðji með 8,55
og var knapi Sigurður Sigurðarson.
Ekki var gefm einkunn í úrslitum
heldur raðað í sæti.
í B-flokki stóð efstur Óskar frá
Litla-Dal með 8,80 og var knapi
Sigurbjöm Bárðarson. Fífa frá Brún
var önnur með 8,79 og var knapi í
forkeppni Sigurður Sigurðarson og
úrslitum Jakob Sigurðarson. í
þriðja sæti var Skundi frá Kristhóli
með 8,55. -EJ
HESTAmolar
Á uppskeruhátíð Skagfirðinga var
hrossabú Páls B. Pálssonar og
Önnu Sigurðardóttur á Flugumýri
II valið ræktunarbú ársins. Frá þeim
hjónum hafa komið mörg glæsileg
kynbótahross á undanfömum árum
og á þessu ári Sif frá Flugumýri með
8,40, Komma frá Flugumýri með 8,15
og Kolbrá frá Flugumýri með 8,03.
Páll kom með hross undan Kormáki
frá Flugumýri í dóm á Hellu. „Ég
hreinsaði hagann,“ sagði Páll „til að
ná 15 sýndum afkvæmum undan Kor-
máki og hann er því kominn með 120
stig og 1. verðlaun fyrir afkvæmi."
Á Meistaramóti 847, Netheims og
Andvara komust 8 hestar í úrslit í A-
og B-flokki en níunda úrslitasætið
var hægt að kaupa. Styrktarfélag
Friðdóru Friðriksdóttur keypti sæti
fyrir hana og Trostan frá Sandhóla-
feiju fyrir 131.000 krónur og Andrés
P. Rúnarsson keypti B-flokks sæti
fyrir Hinrik Bragason og Kólf frá
Hofsstöðum á 80.000 krónur en Hin-
rik mætti svo ekki.
Blessuð sértu sveitin mín söng
Vignir Jónasson, tvöfaldur heims-
meistari í hestaíþróttum, fyrir eina
af hryssunum sem hann var að sýna
á Hellu. „Ég syng töluvert fyrir
hrossin og mig,“ segir hann, „til að
dreifa athygli hrossanna og mér til
ánægju," sagði hann.
Frítt var inn á Meistaramót 847,
Netheims og Andvara i Garðabænum
en krakkar gengu um svæöið og söfn-
uðu peningum fyrir krabbameins-
sjúk böm. Söfnuðust um 30.000 krón-
ur og ætla forsvarsmenn mótsins að
bæta við í söfnunarkassana.
Þórður Þorgeirsson var að vanda
með mörg hross á kynbótasýning-
unni á Hellu og mörg þeirra stóðu í
verðlaunasæti. Hann átti erfltt með
aö manna verðlaunahryssumar í 5
vetra flokknum því þar var hann
með fjórar efstu hryssurnar af flmm.
„Strákamir sem ætluðu að sitja
hrossin fyrir mig í verðlaunaafhend-
ingunni era allir farnir i Garðabæ að
keppa," sagði hann og mætti á Frigg
frá Heiði einni.
Vm nœstu helgi verður haldin
mikil sýning sem tengist hestum í
Laugardalshöllinni og Skautahöll-
inni í Laugardal. Sýningin í Laugar-
dalshöllinni snertir flesta þætti er
varöa hesta og hestamenn en á
sýningunni i Skautahöllinni verður
íslenski hesturinn og knapinn í aðal-
hlutverki.
Á Meistaramóti 847, Netheims og
Andvara vora peningaverðlaun fyrir
skeiðgreinamar þrjár og töltið.
Fyrsta sæti gaf 40.000 krónur, annað
sætið 20.000 krónur og þriðja sætið
10.000 krónur.
Aðstandendur Átaks í hesta-
mennsku standa að nýstárlegu hesta-
móti fóstudaginn 14. og laugardaginn
15. september í Víðidalnum. Mótið er
kaliað Kappreiðar og gleðimót og
verður keppt í hefðbundnum grein-
um, svo sem skeiði, tölti, fjórgangi og
A-flokki gæðinga, en einnig í nýstár-
legum greinum svo sem léttu tölti og
fjórgangi fyrir byrjendur, þrautareið,
fánareið o.fl., jafnt fyrir polla, byrj-
endur og þá sem lengra era komnir.
Á hestasýningunni í Skautahöll-
inni um næstu helgi hafa Sigurbjöm
Bárðarson og Lára Stefánsdóttir
dansari hannaö atriði þar sem hestur
dansar tangó við Lára og era margir
spenntir eftir að sjá þann dansinn.
Vel fór á meö þeim Loga Laxdal og Kjarki frá Ásmúla en þeir fengu gull í A-flokki gæöinga.
DV-mynd Eiríkur Jónsson
5 vetra
hryssur
blómstr-
uðu á
Hellu
165 hross, 6 stóðhestar og 159
hryssur voru fulldæmd á síð-
sumarsýningu á Hellu í síð-
ustu viku. Margar hryssnanna
fengu prýðisdóm. 5 vetra
hryssumar stóðu þar fremstar
og fengu 7 þeirra hærri ein-
kunn en 8,00 en alls fékk 21
hryssa 8,00 eða meira.
í 7 vetra flokknum stóð efst
Logadís frá Stokkhólma undan
Loga frá Skaröi og Hemlu frá
Hemlu með 7,93 fyrir byggingu,
8,42 fyrir hæfileika og 8,22 í að-
aleinkunn. Zara frá Syðra-
Skörðugili fékk 8,13 og Eik frá
Stóra-Hofi 8,12.
í 6 vetra flokknum stóð efst
Garún frá Friðheimum, undan
Gusti frá Grund og Gerplu frá
Efri-Brú, með 7,66 fyrir bygg-
ingu, 8,44 fyrir hæfileika og
8,13 í aðaleinkunn. Hrafnkatla
L52 frá Leirubakka fékk 8,09 og
Birta frá Akranesi 8,03.
í 5 vetra flokknum stóð efst
Frigg frá Heiði undan Elri og
Fjöður frá Heiði með 8,31 fyrir
byggingu, 8,16 fyrir hæfileika
og 8,22 í aðaleinkunn. Von frá
Ártæ 8,16 og Kórund frá Stóra-
Hofi 8,10. Hæst dæmda 4 vetra
hryssan fékk 7,74.
Einn stóðhestur fékk hærri
aöaleinkunn en 8,00. Það var
Draupnir frá Tóftum undan
Hrafni frá Holtsmúla og
Skjónu frá Tóftum með 7,66
fyrir byggingu, 8,30 fyrir hæfi-
leika og 8,05 í aðaleinkunn.
Eldvaki frá Áifhólum fékk 7,97
og Prins frá Skammbeinsstöð-
um I fékk 7,93. Hæst dæmdi 5
vetra stóðhesturinn fékk 7,76
en enginn 4 vetra stóðhestur
fékk fullnaöardóm.
-EJ
Enn Islandsmet
hjá Loga í skeiðinu