Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
27
I>V
Tilvera
Rosie Perez 37 ára
Leikkonan og
dansarinn Rosie Per-
ez fæddist þann 6.
september 1964 og er
því 37 ára í dag. Hún
fæddist í Brooklyn í
New York og var ein
af tíu systkinum. Þegar hún var að-
eins tólf ára var hún sett á barna-
heimili fyrir að hafa skorið konu á
háls. Seinna meir tók hún sig á og fór
í háskóla í Los Angeles þar sem hún
var uppgötvuð á dansgólfí á skemmti-
stað þar í borg. Rosie er líklega best
þekkt fyrir hlutverk sitt í myndinni It
Could Happen to You en mótleikarinn
hennar þar var Nicolas Cage
G lldlr
Vatnsberinn (20. ian.-18. febrl:
1 k Einhver er í vafa um að
éT~W það sem þú ert að gera
i sé rétt. Þú skalt hlusta
á það sem aðrir hafa
að segja en endanlega ákvörðunin
verður þó að vera þín.
Fiskarnlrng. fehr.-?0. marsl:
Fyrri hluti dagsins
kemur þér á óvart. Þú
þarft að glíma við
óvenjulegt vandamál.
Þú verður þreyttur í kvöld og ætt-
ir að taka það rólega.
TirlTOiliPiMB" Imémíéméíí iáwl
fyrir föstudaglnn 7. s eptember
Hrúturinn (21. mars-19. april):
. Vertu þolinmóður þó
'að þér finnist vinna
annarra ganga of
^ hægt. Það væri
góð hugmynd að hitta vini í
kvöld.
Nautlð (20. april-20. maí):
Þér gengur vel að
r leysa verkefni sem
ollu þér vandræðum
___ fyrir nokkru. Þú
ert í góðu jafnvægi og dagurinn
verður skemmtilegur.
Tvíburarnir m. maí-21. iúni):
V Einhveijar tafir verða
/^^á skipulaginu en ekki
_ / I láta þær koma þér úr
jafnvægi. Dagurinn
verður að öðru leyti ágætur og
ekki verður kvöldið verra.
Glúntarnir sungnir í Salnum um helgina
Sneiðmynd
af lífi tveggja
stúdenta
Reikna má með góðri stemningu
í Salnum nú um helgina er Glúnt-
amir hans Gunnars Wennerberg í
þýðingu Egils Bjamasonar veröa
fluttir þar. Það eru barítonsöngv-
aramir Bergþór Pálsson og Ólafur
Kjartan Sigurðarson sem syngja
við undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Um tvenna tónleika er að
ræða, á fostudags-og sunnudags-
kvöld kl. 20. Þótt þessir sænsku
stúdentasöngvar hafi verið kyrjað-
ir til sjávar og sveita hér á islandi
á árum áður er langt síðan þeir
hafa hljómað hér á tónleikum.
Iðrast daginn eftir
„Glúntarnir birta okkur sneið-
mynd af lífi tveggja stúdenta við
Uppsalaskóla á nitjándu öldinni.
Annar er busi, hinn er lengra kom-
inn á námsbrautinni," segir Ólafur
Kjartan. „Þeir eru næmir á um-
hverfi sitt, þessir ungu menn.
Stundum er minnst á ungar konur
og stöku sinnum er glasi lyft en
þótt þeir svaHi dálítið held ég að
líferni þeirra hneyksli engan i dag.
Þeir iðrast daginn eftir og þeir
reyna að læra lexíumar sínar og
eru ýmist glaðir eða hnuggnir."
Jónas leggur áherslu á að um
vandaðar tónsmiðar sé að ræða.
„Þau em vel gerð þessi lög og mað-
ur veröur ekki leiður á þeim. Stef-
in eru á sveimi í kring um mann
þegar maður vaknar á morgnana.
Gunnar Wennerberg samdi þessar
visur ungur og varð síðan tvívegis
á lífsleiðinni kirkjumálaráðherra
Svíþjóðar. Þá vildi hann nánast af-
neita Glúntunum en nafn hans lif-
ir sem höfundur glúntanna en ekki
sem ráðherra." Hann segir Glúnt-
ana hafa haft mikil áhrif á tónlist-
arsögu okkar íslendinga. Bergþór
bætir því við aö þeir séu til á ís-
lenskri plötu í flutningi Ásgeirs
Hallssonar og Magnúsar Guð-
mundssonar en sú plata sé ófáan-
leg og Ásgeir eigi hana ekki einu
sinni sjálfur.
Nýr flygill í Salinn
Hverjum skyldi svo hafa dottið í
hug að endurvekja Glúntana á ís-
lensku nú? Ólafur Kjartan gengst
við því. „Áhuginn á þeim hefur
blundað í mér í nokkur ár,“ segir
hann og kveðst hafa áttað sig á því
er hann söng með Bergþóri í La
Boheme sl. vetur að hann væri
rétti maðurinn til að syngja
Glúnta. „Svo fær Jónas að vera
með!“ segir hann stríðnislega en
bætir svo við: „1 alvöru talað þá
Grallaralegir flytjendur Glúntanna
Bergþór Pálsson, Ólafur Kjartan Siguröarson og Jónas Ingimundarson.
þróaðist þetta í samvinnu okkar ill af Steinway-gerð verður vígður
þriggja og við höfum skemmt okk- líka. Að sögn Jónasar býður hann
ur vel.“ upp á allt aðra möguleika en
Tónleikamir um helgina eru út- Bösendorfer flygillinn sem fyrir er.
gáfutónleikar því diskur með efninu Og hann lýkur máli sínu með góðri
kemur út á morgun, föstudag. Svo setningu fyrir Salinn: „Nú höfum
eru þetta fyrstu tónleikarnir í Tí- við hér fullkominn konsertsal og
brárröðinni í Salnum i Kópavogi og getum boðið bæði flytjendur og gesti
stundin er stór því nýr konsertflyg- velkomna til dýrðarstunda. -Gun
Town & Country:
Ástarævintýri og lúxuslíf
Krabbinn (22. iúní-22. iúlí):
Vinur þinn á f basU
með eitthvað og þú
hefur aðstöðu til að
hjálpa honum. Þú ger-
ir eitthvað sem þú hefúr ekki gert
lengi og sérð aUs ekki eftir því.
Llónlð (23. iúií- 22. áaúst):
I Þú kynnist manneskju
' sem á eftir að hafa
djúpstæð áhrif á þig.
Rómantíkin Uggur f
loftinu og þú ert afar ánægður
með gang mála.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
Ekki eyða timanum í
aUtof mikla skipulagn-
p*ingu. Þú veist hvað þú
^ f þarft að gera og ættir
að koma þér strax að efninu. Dag-
urinn verður ánægjulegur.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
y Dagurinn verður frem-
ur viðburðasnauður en
V f kvöldið verður hins
r f vegar fiörugt og þú
skemmtir þér vel í góðra vina
hópi.
Sporðdreki (24. okt.-2l. nóv.):
Farðu varlega í Qár-
málum og ekki treysta
hveijum sem er. Þú
ættir að gefa þér tíma
tíl aði slappa af og gera eitthvað
nýtt og skemmtilegt.
Bogamaður (22. nóv.-2i. des.t
----.Vinnan á hug þinn aU-
Pan þessa dagana. Þú
w verður að gæta þess að
k særa engan þótt þú
hafir Utinn tíma til að umgangast
ástvini.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Ýmislegt skemmtilegt
gerist í dag og þú verð-
ur fyrir óvæntu happi
seinni hluta dagsins.
Nú er góður tími til að gera breyt-
ingar.
VIII bara Ellie
Eftir nokkur ástarævintýri kemst Porter aö því aö hann vill bara Ellie.
Rómantíska gamanmyndin Town
& Country fjallar um lífið, ástina,
vináttuna og ýmis vandamál sem
fylgt geta hjónabandinu. Aðalper-
sónur myndarinnar eru hinn mið-
aldra Porter, konan hans Ellie og
bestu vinir þeirra, Griffm og Mona.
Þau fiögur lifa lúxuslífi þar sem
ferðir til Parísar, kántríklúbbar og
glamúrpartí í Hamptons eru dagleg-
ir viðburðir. En bak við þennan æv-
intýraheim leynist raunveruleikinn
sem er langt frá því að vera fullkom-
inn. Griffin játar nefnilega að hafa
haldið fram hjá Monu konu sinni.
Þetta veldur umbreytingum í lífi
Porters sem uppgötvar að allir eru
að stunda frábært kynlíf nema
hann.
Porter ákveður þvi að finna hvað
það er sem vantar í líf hans og set-
ur sér það markmið að lenda í ást-
arævintýrum. Þar sem hann er rík-
ur, myndarlegur og sjálfsöruggur
eru konurnar fljótar að kasta sér í
arma hans. Eftir nokkur ástarævin-
týri gerir hann sér hins vegar grein
fyrir því að hann viU EUie aftur en
það gæti hins vegar verið of seint.
Óhætt er að segja að leikaramir í
myndinni séu ekki af verri endan-
um og meðal þeirra eru Warren
Beatty, Goldie Hawn, Andie
MacDoweU, Diane Keaton, Garry
Shandling, Jenna Elfman og
Nastassja Kinski. Leikstjóri mynd-
arinnar er Peter Chelsom sem leik-
stýrði myndinni The Mighty. Town
& Country verður frumsýnd á morg-
un í Háskólabíói.
Dýragarðurinn í Slakka:
Tveim vikum lengra sumar
Dýragarðurinn í Slakka í Bisk-
upstungum á eftir að starfa fram
að næstu helgi. Á sunnudag verð-
ur lokað þetta árið. Sumarið er
metsumar hvað varðar gesta-
fiölda. Milli 19 og 20 þúsund
manns hafa komið í garðinn.
Venjan hefur verið sú að loka í
ágústlok en í ár var framlengt um
tvær vikur enda sérdeilis sumar-
legt um að litast í garðinum.
Sendlar óskast á dreifingu
bladsins. Vinnutími er eftir
hádegi eða eftir samkomulagi.
Aldur 13 -15 ára.
Uppiýsingar í síma 550 5746