Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Side 24
28
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
Tilvera
I>V
1 1 f 1
Taizé-messur í
Háteigskirkju
í Háteigskirkju hafa verið
sungnar Taizé-messur hvern
flmmtudag í nærri áratug. Svo
er enn en nú hefjast þær kl.
20.00. Taizé-messur eru svo
nefndar vegna tónlistarinnar
sem hæflr sérstaklega til bæna
og íhugunar. Lögin eru fljótlærð
og léttsungin, textamir stuttir
og kjarnyrtir og fjalla um
veruleika trúarinnar.
Djass
GITARDUETT KEVINS DRUMM OG
HILMARS JENSSONAR [
TJARNARBIOIFramúrstef'nu-
gítarleikarinn Kevin Drumm og
Hilmar Jensson spinna saman í
Tjarnarbíól í kvöld. Tónleikarnir
hefjast kl. 22.00.
TRÍÓ SIGURÐAR FLOSASONAR Á
KAFFI REYKJAVIK Sigurður
Flosason, saxófónn, Eyþór
Gunnarsson, píanó, og Lennart
Ginman, bassi, kynna nýja diskinn
sinn, Djúpiö, á tónleikum á Kaffi
Reykjavík í kvöld, kl. 20.30.
Tónleikar
BREAKBEAT.IS TONLEIKAR A CAFE
22 Þykkustu jungle, drum & bass og
experimental breakbeat-tónarnir
halda áfram aö hljóma á hinum
mánaöarlegu Breakbeat.is-kvöldum
á Café 22. Tjúttiö hefst kl. 21.
Fýrirlestrar
SAMSPIL ORKUNOTKUNAR OG
UMHVERFIS Dr. Philip S.M.Chin,
prófessor viö Tækniháskólann í
Queensland í Ástralíu, flytur
fyrirlestur um samspil orkunotkunar
og umhverfis í sal 101 í Lögbergi í
dag, kl. 16.10. Fyrirlesturinn er á
vegum Verkfræöideildar og
Umhverfisstofnunar HÍ og verður
fluttur á ensku. Hann nefnist:
SUSTAINABLE DEVELOPMENT
GREEN CITIES AND GREEN
ISLANDS. Dr. Chin mun fjalla m.a.
um þaö nýjasta í þróun rafbíla og
annarra farartækja sem nota
sjálfbæra orkugjafa.
HEITIR VÖLSUNGA SAGA
VOLSUNGA SAGA?
Dr. Hubert Seelow, prófessor í
norrænum fræðum viö háskólann í
Erlangen, heldur fyrjrlestur í boöi
heimspekideildar HÍ í stofu 201 í
Árnagarði kl. 17.15 I dag.
Fyrirlesturinn nefnist Habent sua
fata libelli. Heitir Völsunga saga
Völsunga saga? Fyrirlesturinn verður
fluttur á íslensku og er öllum opinn.
MÁLÞING UM HEIMILIÐ Á GRAND
HOTELI I tengslum við
stórsýninguna Heimiliö og Islandica í
Laugardalnum 6.-10. september er
blásiö til málþings um heimilið á
Grand Hóteli frá kl. 15-17 í dag.
Þar er fjallaö um hvernig jafnvægi í
einkalífi og vinnu hefur áhrif á
lífsánægju fólks. M.a. flallar Ingólfur
V. Gíslason félagsfræöingur um hina
sígildu spurningu: Hver ræður á
heimilinu? Aögangur er ókeypis.
Ganga
GENGIÐ MEÐ FRAM HVITA
I kvöld veröur gengið upp og niður
með Hvítá meö Þorkeli Fjeldsted,
bónda í Ferjukoti. Fræðst veröur um
sögu árinnar og Hvítárbrúar.
Skemmtileg ganga fyrir alla
fjölskylduna. Tekur um 2 tíma.
Bíó
CHASING SLEEP I HASKOLABIOi
Filmundur frumsýnir spennumyndina
Chasing Sleep í kvöld í Háskólabíói
kl. 10.30.
Hausttónleikar Harðar Torfasonar í 25. skipti:
Semur, syngur og
hannar sviðsmyndina
„Ástæðurnar fyrir því að ég hóf
að halda tónleika á hverju hausti
eru margar,“ segir Hörður Torfason
sem heldur sína árlegu hausttón-
leika 1 25. skipti í kvöld og annað
kvöld klukkan 21 í íslensku óper-
unni. Hörður segir að upphafið
megi tengja því þegar hann fór að
berjast fyrir réttindum samkyn-
hneigðra. „Þetta þýddi það að ég
glataði öllu og það var lokað á mig
alls staðar. Ég tók þá upp á því að
fara að ferðast um landið og halda
tónleika til að vekja athygli á mál-
staðnum," segir Hörður og bætir
því við að hausttónleikarnir hafi
líka orðið til í kringum það að öll-
um afmælisgjöfunum sem hann
fékk í tilefni af þrítugsafmæli sinu
var stolið. „Ég hét því þá að halda
aldrei upp á afmælið nema með því
að halda tónleika og selja inn og fá
þannig gjafirnar borgaðar til baka.“
Koma víöa aö
Að sögn Harðar kom fátt fólk á
tónleikana fyrstu árin en gestunum
hefur fjölgað með hverju árinu og
nú er yfirfullt bæði kvöldin. Fólk
komi víðs vegar að og jafnvel alla
leið frá útlöndum. „Margir hringja í
mig erlendis frá til að vita hvar og
hvenær tónleikamir verða til að
þeir geti skipulagt íslandsferðina
þannig að þeir verði hér á landi þeg-
ar ég er að spila,“ segir Hörður.
Á milli þess sem Hörður spilar
lög sín í íslensku óperunni spjallar
hann við gesti um líflð og tilveruna
og bendir þeim á margbreytileik-
ann. Hörður segist nota sumarið til
að skrifa og semja og alltaf megi því
heyra ný lög á tónleikunum. Það má
segja aö efnisskráin skiptist í
þrennt: óskalög, gömul lög og svo
nýju lögin.
Bíógagnrýni
DfflYND HARI
Hausttónleikar í 25. sinn
Á milli þess sem Höröur sþilar lög sín í íslensku óperunni spjallar hann viö gesti um lífiö og tilveruna og bendir þeim
á margbreytileikann.
20 tíma vinnudagur
Hörður lætur sér ekki bara nægja
að semja lögin og syngja á tónleik-
unum því hann hannar líka alla
leikmyndina sem hann notar á
þeim. Hann hefur mikla reynslu á
þeim vettvangi og hafa sviðskreyt-
ingarnar því vakið mikla athygli.
Undirbúningur fyrir tónleikana tek-
ur marga mánuði og segir Hörður
að síðustu dagana sé vinnudagurinn
oft allt upp í 20 tímar. „Ég er að
vinna fram á síðustu stundu og rétt
næ að hlaupa af sviðinu til að skipta
um föt og síðan inn aftur,“ segir
Hörður sem vonar að tónleikagestir
eigi eftir að skemmta sér vel í kvöld
og annað kvöld.
-MA
Stjörnubíó - Blow Dry: jj-jlri
(Hár)blásið til orrustu
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Sjá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is
Astæðan fyrir því að
maður fer beinlínis sjálf-
viljugur að sjá kvikmynd
um hárgreiðslu er sú að
maður veit að handrits-
höfundurinn, Simon
Beaufoy, er sá hinn sami
og gerði hina frábæru The
Full Monty (1997), þar sem
sex atvinnulausir strákar
strippa til að vinna sér
inn pening og svolitla
sjálfsvirðingu í leiðinni. í
Blow Dry byggir Beaufoy
handritið upp á svipaðan
hátt: raunsæisleg vanda-
mál (atvinnuleysi / sjúk-
dómar) í bland við húmor
í söguþræði sem leiðir að
mikilli sýningu (stripsjói
/ hárgreiðslukeppni). En
vandamálin snerta mann
ekki eins djúpt hér og
húmorinn er ekki eins
beittur. Munurinn á þess-
um kvikmyndum er fyrst
og fremst munurinn á
sýningunum; sem sagt á
berum karlmönnum að
dansa og fullklæddum
konum og körlum að
greiða, blása og spreyja
hár. Svo verður hver að
eiga það við sig hvað þeim
þykir mest spennandi.
Blow Dry gerist í litlum
bæ á Norður-Englandi,
Keighley, þar sem breska
hárgreiðslumeistara-
keppnin er haldin árið
2000. Þangað koma allir
færustu hárgreiðslu-
meistarar landsins
með síðhærðu módelin
sín til að keppa um
silfurskærin! Sá sem
er vænlegastur til
vinnings (eins og segir
í auglýsingunni) er
Ray (Bill Nighy) sem
er ekki aðeins meist-
aralega góður klippari
heldur þrjótur í þokka-
bót. Enginn virðist
geta staðist honum
snúning nema rakar-
inn í Keighley, Phil
(Alan Rickman), sem
var óvinnandi með
öllu þar til fyrir áratug
þegar konan hans,
Shelly (Natasha Ric-
hardson), hljópst á
brott með aðalmódel-
inu, Söndru (Rachel
Griffiths). Þessi svik
höfðu þau áhrif á hann
að hann lagði keppnis-
skærin á hilluna og
einbeitti sér að því að
ala upp soninn og
halda bæjarbúum
Keighley hárprúðum
og snyrtilegum. Virð-
ingarvert í sjálfu sér -
en eitt sinn hár-
Keppnin um silfurskærin greiðslumeistari alltaf
Blow Dry gerist i litlum bæ a Noröur-Englandi, Keighley, þar hárgreiðslumeistari
sem breska hárgreiöslumeistarakeppnin er haldin áriö eins og máitækið segir
2000. Þangaö koma allir færustu hárgreiöslumeistarar er heinlínis ekk-
landsins meö síöhæröu módelin sín til aö keppa um silfur- ert sem kemur á óvart
skærin! í þessari mynd, nema
kannski örfáar klippingar - og þá
meina ég á hári en ekki filmu. En
hún er nú stundum fyndin samt og
leikararnir eru ekki af verri end-
anum. Alan Rickman og Natasha
Richardson leika fyrrverandi
meistarann og fyrrverandi konuna
hans og gefa myndinni ákveðinn
klassa bara með því að vera á
staðnum og blása lífi í frekar flat-
an texta. Eins er með hana Rachel
Griffiths, ekki er hún að gera neitt
illa og hún fær þar að auki að vera
með ótrúlegar hárgreiðslur, og
þegar ég nefndi áðan að í þessari
mynd væru allir alltaf fullklæddir
þá var það nú ekki alveg sannleik-
anum samkvæmt. Fyrir utan þessa
ágætu þrenningu þá er líka munað
eftir því að það eru aðallega ung-
lingar sem fylla kvikmyndasali
heimsins, þess vegna fá Josh Hart-
nett (Virgin Suicides) og Rachel
Leigh Cook (Antitust) líka svolít-
inn tíma á tjaldinu til aö verða
skotin.
Þetta er alls ekki meingölluð
mynd, t.d. verður hárgreiðslu-
keppnin merkilega spennandi þeg-
ar á líður, en eftirminnileg er hún
ekki. Samt skora ég á klippara ís-
lands að fjölmenna svo maður fari
nú almennilega greiddur á næstu
árshátíð.
Aöalleikarar: Alan Rickman, Natasha Ric-
hardson, Rachel Griffiths, Rachael Leigh
Cook, Josh Hartnett, Rachel Leigh Cook
ofl. Leikstjóri: Paddy Breathnach Hand-
rit: Simon Beaufoy Kvikmyndataka: Cian
De Buitléar