Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Page 25
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
29
DV
Tilvera
Ripp open
Um síðustu helgi fór fram Flipp open-golfmót starfsmannafélags DV. Þetta er í tíunda sinn sem mótiö er haldiö og aö
þessu sinni fór þaö fram á golfvellinum í Borgarnesi. í hópi keppenda meö forgjöf varö Teitur Jónasson i fyrsta sæti
en Sigmundur Ernir Rúnarsson í ööru sæti. Hilmar Karlsson varö í fyrsta sæti keppenda án forgjafar. Klara Jónsdóttir
sigraöi í kvennaflokki. Verölaun voru í boöi Sjónvarpsmiöstöövarinnar, Bræöranna Ormsson, Útilífs og Ölgeröar Egils
Skallagrímssonar.
Swordfish:
Veröld Sverðfisksins
félagi Gabriels, sannfærir
hann um aö meö því geti
hann endurheimt dóttur
sína sem hann fær ekki aö
hitta. Fljótlega veröur
Stanley þó var viö aö ekki
er allt sem sýnist við þetta
verkefni og hann er aðeins
peð í áætlun sem snýst um
annað og meira en einfalt
peningarán.
Þaö er enginn annar en
John Travolta sjálfur sem
leikur Gabriel og hefur
hann gert það gott síðan
hann fékk hlutverk í Pulp
Ficton, kvikmynd Quent-
ins Tarantion’s. Meö hlut-
verk Stanleys fer ástralski
leikarinn Hugh Jackman
sem hefur verið að hasla
sér völl í Englaborginni.
Næsta mynd hans er kvik-
myndin Kate & Leopold
þar sem mótleikkona hans
er Meg Ryan. Golden Glo-
be verðlaunahafinn Halle
Berry leikur Ginger og hefur hún
leikið i fjölda kvikmynda og sjón-
varpsmynda. Einnig fer leikarinn
Don Cheadle með stórt hlutverk í
myndinni en hann mátti meðal
annars sjá í stórmyndinni TrafFic.
Framleiðendur Swordfish eru
þeir Joel Silver og Jonathan D.
Krane sem framleitt hafa margar
hafa vinælustu myndum síðustu
ára. Silver framleiddi til að mynda
Matrix og Krane myndir á borð við
Pink Panther, Face/Off og The
General’s Daughter. Swordfish
verður frumsýnd á morgun í Sam-
bíóunum, Nýjabíó Keflavik og
Nýjabíó Akureyri.
-MA
Meira en peningarán
Gabriel Shear ætlar sér annaö og meira en einfalt peningarán.
Innan okkar heims leynist annar
heimur sem kallast heimur Nets-
ins. Sá heimur stjórnast af lykil-
orðum og öryggiskerfum. Þar er
líka að finna dýpstu leyndamál
okkar, skaðlegar upplýsingar og
auðvitað fullt af peningum. Þetta
er veröld Sverðfisksins og þangað
inn vill Gabriel Shear, aðalpersóna
kvikmyndarinnar Swordfish, kom-
ast til að geta fjármagnað þjóðem-
ishyggju sína.
En tO að geta náð peningunum
þarf hann tölvuhakkara sem hefur
hæfileika til að brjóta niður full-
komnustu öryggiskerfi heims eins
og það sé bamaleikur. Þann hæfi-
leika hefur Stanley Job-
son sem er annar
besti tölvuhakk-
ari heimsins.
Hann ákveð-
ur að taka
tilboð
Gabriels
þrátt fyrir
að hann sé
á skilorði
og megi
ekki yfir-
gefa heima-
bæ sinn. Það
gerir Stanley
eftir að
fagra Gin-
ger,
Ginger og Stanley
Hin fagra Ginger
fær tölvuhakkar-
ahn Stanley til að
taka tilboði
Gabriels.
Heartbreakers:
Margslungnar
mæðgur
Kvikmyndin Heartbreakers segir
frá Max sem er falleg, kynþokkafull
og sjarmerandi. Allir karlmenn
falla fyrir henni og það nýtir hún
sér til fulls. Hún giftist þeim nefni-
lega og fær síðan væga summu við
skilnaðinn eftir að þeir hafa verið
gripnir með buxurnar á hælunum.
Áætlun hennar gengi hins vegar
ekki eins og sögu nema vegna þess
að hún hefur snjalla og sæta aðstoð-
arkonu sér við hlið sem er Page
dóttir hennar.
Mæðgurnar eru margslungar í
brögðum sínum og hafa breytt
blekkingum í stórskemmtilega list.
Þegar þær eru að reyna að blekkja
tóbaksrisann Tensy kynnist Page
manni sem hún verður ástfangin af.
Það leiðir til þess að fjótlega fara
hlutir eins og siðferðiskennd og
samviskubit að gera vart við sig.
Mæðgumar lenda að lokum á flótta
undan hefnigjörnum eiginmanni,
með lík í skottinu og neyðast á end-
anum til borga fyrir sig.
Leikkonurnar Sigourney Weaver
og Jennifer Love Hewitt fara með
aðalhlutverkin í myndinni. Sú fyrr-
nefnda er líklega best þekkt fyrir
hlutverk sitt í Alien-kvikmyndun-
um. Hún hefur leikið í fjölda kvik-
mynda auk þess sem hún hefur oft
sést á leiksviði á Broadway og víð-
ar. Jennifer Love Hewitt lék lengi í
sjónvarpsþættinum Ein á báti sem
sýndur er á Stöð 2. Hún hefur
einnig leikið í myndum á borð við I
Know What You Did Last Summer,
Sister Act 2 og sjónvarpsmynd um
ævi leikkonunnar Audrey Hepburn.
Meðal annarra leikara má nefna
óskarsverðlaunahafana Anne
Bancroft og Gene Hackman. Heart-
breakers verður frumsýnd á morg-
un í Stjömubíói.
-MA
Hin sjarmerandi IVlax
Max er falleg, kynþokkafull og sjarmerandi og nýtir sér þaö til fulls.