Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2001, Side 28
Subaru Impreza
FRETTASKOTIO
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Endurskoðunarnefnd sjávarútvegsráðherra:
Horfur á
samkomulagi
- skilar af sér um miðjan mánuðinn
„Þaö er verið aö vinna í málinu
og ég stefni að því að starfi nefndar-
innar gæti lokið kannski um miðjan
mánuðinn," sagði Friðrik Már Bald-
ursson, formaður endurskoðunar-
nefndar sjávarútvegsráðherra, um
ganginn í starfi nefndarinnar. Sam-
kvæmt lögunum átti nefndin að
vera búin að skila af sér fyrir 1.
september en talsvert er síðan að
ljóst varð að sú dagsetning myndi
ekki standast. Friðrik segist stefna
aö því að nefndin skili sameigin-
legri niðurstöðu - hafi raunar alitaf
stefnt að því. Það þykir hins vegar
tíðindum sæta að talsverðar líkur
eru nú taldar á því að samkomulag
geti náðst í nefndinni sjálfri. Þar
var lengi framan af hver höndin
uppi á móti annarri en síðustu vik-
ur hafa oröið þáttaskil í starfi henn-
ar og verið er að vinna með ákveðn-
ar grunntillögur sem vissulega eru
sagöar flóknar en til þess fallnar að
samkomulag náist um þær. Krist-
inn H. Gunnarsson, fulltrúi Fram-
sóknar í nefndinni og formaður
Byggðastofnunar, staðfesti við DV
að samningahljóð væri í mönnum
og sagði að sú staðreynd ein og sér
að menn væru að tala svona mikið
saman segði sína sögu. Kristinn vill
þó ekki frekar en aðrir nefndar-
menn reifa hvaða hugmyndir þetta
eru en aðspurður að vissulega séu
þær flóknar en útfærsla á flóknum
hugmyndum geti verið snúin og
betra aö einfalda hugmyndirnar
eins og hægt er. Hann segir að úr
því sem komið er, fresturinn sem
kveðinn sé á um í lögunum sé liðinn
hvort eð er, telji hann það ekki höf-
uðatriði að nefndin skili af sér sem
fyrst. Mestu skipti að menn ræði
málið í botn og komist að sameigin-
legri niðurstöðu. -BG
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Fjárlaganefnd Alþingis smakkar saltaöan fýl
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps tók fagnandi á móti fjárlaganefnd Aiþingis í gær viö Jökulsá á Sólheimasandi. Á leið til
Víkur var komiö viö á Dyrhólaey og vitinn þar skoöaöur. Eftir stuttan fund á Halldórskaffi í Brydebúö voru skoðaöar
þær sýningar sem uppi eru á staönum og aö því loknu bauö sveitarstjórnin gestunum saltaöan fýl meö tilheyrandi
meölæti og eitt staup af ísköldu íslensku brennivíni. Var ekki annaö aö heyra en aö gestunum líkaöi vel maturinn.
Dreifbýiis-
knæpurnar
í Fókusblaði morgundagsins er
rætt við Rakel Þormarsdóttur sem
bæði hefur snúið baki við lofandi
ferli í knattspyrnu og módelbrans-
anum, kíkt er á fáránleg umferðar-
merki og ljósmyndarinn Brian
Sweeney segir frá athyglisverðri
fortíð sinni. Birt er úttekt á helstu
pöbbum landsbyggðarinnar hring-
inn í kringum landið og útskýrt af
hverju styttan af Héðni Valdimars-
syni er allt í einu farin að senda
sms-skilaboð. Tvær landsbyggðar-
hljómsveitir fá svo aðeins að rasa
út í blaðinu.
Haustar að í efnahagsmálum:
Bankar vilja hafa
borð fyrir báru
- segja bankastjórar og auka framlög á afskriftareikninga
„Við núverandi aðstæður er
hyggilegt að auka framlög á af-
skriftareikninga," sagði Halldór J.
Kristjánsson, bankastjóri Lands-
banka íslands hf., í samtcdi við DV í
morgun. Eins og fram kemur í blaö-
inu í dag hafa framlög á afskrifta-
reikning útlána hjá íjármálafyrir-
tækjum aukist á fyrri hluta líðandi
árs í tæplega 3,4 milljarða kr. úr 2,3
milljörðum á sama tímabili síðasta
árs. Þetta sést í hálfs árs uppgjörum
banka og sparisjóða sem hafa verið
kynnt að undanfömu.
Halldór segir að afskriftasjóðir
banka séu byggðir upp með tvíþætt-
um hætti. Annars vegar sérgreind-
ur sjóður, þar sem metin er áhætta
af lánum til einstakra fyrirtækja
miðað við aðstæður þeirra. Hins
vegar almennur sjóður sem er al-
mennt varúðarframlag. Aukningu á
framlögum í þessa sjóði segir Hall-
Björguðu
Starfsmenn Jarðborana hf. sýndu
ótrúlegt snarræði á þriöjudag er þeir
björguðu manni á þrítugsaldri úr Ur-
riðavatni í Fellum sem hafði fallið út-
byrðis af litlum plastbát. Maöurinn
var um 100 metra frá landi að vitja
um silungsnet í vatninu þegar óhapp-
ið varð.
Það má segja að það hafi verið röð
ótrúlegra tilviljana sem réði því að
starfsmenn Jarðborana urðu varir við
óhappið, en þeir sátu á kaffistofu
sinni og höfðu verið að fylgjast með
fálka út um glugga sem snýr að vatn-
inu.
Einn starfsmannanna, Hjörtur P.
Garðarsson, sá þá manninn falla fyrir
borð. Að sögn Hjartar stukku allir út
Halldór J. Sólon
Kristjánsson. Sigurösson.
dór skynsamlega því harðnaö hafi á
dalnum hjá mörgum fyrirtækjum.
Til dæmis sé sú staöreynd auðsæ
hjá fyrirtækjum sem skulda í er-
lendum myntum en fá tekjur í ís-
lenskum krónum. Þá hafi hluta-
bréfaverð lækkað og vextir séu háir
en öll þessi atriði hafi mikil áhrif á
afkomu þeirra og þar með lánshæfi.
í ljósi þess hafi framlög á afskrifta-
reikninga bankanna verið aukin.
manni frá
Hetjurnar í Jaröborunum
Þeir unnu hetjudáö.
og gerðu kláran bát sem þeir höfðu til
umráða. Fór Hjörtur ásamt félaga sin-
um, Agnari Egilssyni, út til hjálpar
manninum. Var hann búinn að fara
þrisvar sinnum í kaf þegar þeim tókst
að koma honum til bjargar og var
maðurinn orðinn nær máttvana og
„Við erum ekki að leggja fyrir til
mögru áranna en menn kappkosta
að hafa borð fyrir báru,“ sagði
bankastjórinn.
Sólon Sigurðsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, sagði að aukin
framlög á afskriftareikning þar á
bæ kæmi til af tvennu. Þannig
hefðu útlán bankans aukist talsvert
á siðustu misserum og eins prósents
hlutfall af þeim væri ævinlega lagt
fyrir í afskriftasjóð. Þá væri af
bankans hálfu farið vandlega yfir
allar stærri lánveitingar og athugað
hvort veðtryggingar fyrir þeim
væru nægjanlega haldgóðar.
„Það er alltaf svo að þegar kemur
niðursveifla í efnahagslifið aukast
vanskil og skoða þarf málin betur.
Því er alls ekki að neita að vanskil
útlána hjá okkur hafa verið að
aukast að undanfömu,“ sagði Sólon
Sigurösson. -sbs
drukknun
mjög kaldur. Starfsmenn Jaröborana
undrast hversu hratt allt gekk fyrir
sig og segir Hjörtur að menn hafi far-
ið þegjandi í sitt hlutverk eins og um
þaulæfða björgun hefði verið að ræða.
Hann telur að aðeins hafi liðið nokkr-
ar mínútur frá því að maðurinn féll
fyrir borð þar til þeir komu á vett-
vang.
Ekki þurfti að flytja manninn á
sjúkrahús en hann fékk aðhlynningu
á staönum. Ungi maðurinn var ekki í
björgunarvesti og má því telja mikla
mildi að ekki fór verr. Hann er hins
vegar hvergi banginn og var í dag
kominn aftur út á vatnið til aö vitja
um net sín - en í björgunarvesti í
þetta sinn. -FBH
Mál Saharis:
Prófmál um
mannrétttindi
barns
- segir faöirinn
„Við bíðum enn átekta en því mið-
ur hefur ekki enn borist svar frá
Hæstarétti. Ég vona sannarlega að
það berist í tæka tíð og drengurinn
þurfi ekki að fara utan á morgun,"
sagði Jakob Páll Jóhannsson, faðir Sa-
haris Jakobssonar.
Sahari, sem er níu ára gamall, hef-
ur að undanfórnu barist sjálfur fyrir
því að fá að búa hjá fóður sínum i
Hafnarfirði en ekki hjá móður sinni í
Frakklandi. Samkvæmt úrskurði hér-
aðsdóms Reykjaness rennur frestur
fóðurins til að aíhenda drenginn móð-
ur sinni út klukkan 15 á morgun.
Jakob Páll sagði engar ráðstafanir
hafa verið gerðar þess efnis að dreng-
urinn haldi til Frakklands á morgun,
það verði gert þegar og ef þar að kem-
ur. Hann kveðst hafa fundið fyrir
gríðarlegum stuðningi við mál Sa-
haris í þjóðfélaginu og það beri að
þakka. „Þetta er ekki forræðismál
heldur er þetta aö minu viti prófmál
um mannréttindi barns. Ég vona að
okkur beri gæfa til að tryggja réttindi
barna okkar i framtíðinni," sagði Jak-
ob Páll Jóhannsson.
Ekki náðist í lögmann móður
drengsins í morgun.
-aþ
brother P-touch 1250
Lítil en STÓRmerkileg merkivél
5 leturstæröir
9 leturstillingar
prentar i 2 linur
boröi 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.il.is/rafport
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800