Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
9
ÐV
Fréttir
Óánægja með verðskrá Landssímans:
Verð fjarfundaþjón-
; usta hækkar verulega
- allt önnur þjónusta og meiri gæði, segir forstöðumaður upplýsingasviðs
Landssíminn hefur hækkað
verðskrá á þjónustu vegna mynd-
funda töluvert, eða úr 1.556 krón-
um, sem er verðskrá sem hefur
gilt sl. 4 ár, í 4.300 krónur á tím-
ann, þ.e. nýja verðskráin er 2,7
sinnum hærri en sú gamla. Nokk-
urrar óánægju hefur gætt með
þessa miklu verðhækkun, t.d. hjá
skólum sem nota þessa þjónustu,
og telja sumir að með því sé verið
að kippa fótunum undan forsend-
um fyrir notkun hennar. Lands-
síminn telur hins vegar að verið
sé að selja allt aðra þjónustu en
verið hefur og mun meiri gæði,
þannig að það sé ekki sanngjarnt
að setja þetta upp sem beina
hækkun, þótt þetta komi vissulega
sem hækkun inn t.d. hjá skólum,
en þá er verið að selja miklu
meira en áður. Landssíminn segir
verðskrána jafnframt mun lægri
en tíðkist í Evrópu.
Myndfundaþjónusta Landssím-
ans var opnuð á ný 15. ágúst sl.
eftir gagngerar endurbætur. Fjár-
fest hefur verið í nýjum búnaði
með það að markmiði að byggja
upp góða og áreiðanlega þjónustu.
Búnaður þessi er einn af þeim
bestu sem þekkjast og starfsfólk
hefur verið sérþjálfað vegna
þessa. Landssíminn rak áður svo-
kallaða byggðabrú í samvinnu við
Byggðastofnun. Sá rekstur var á
engan hátt sambærilegur við þá
þjónustu sem nú er verið að
byggja upp. Samningurinn við
Byggðastofnun rann út í júli sl. og
hefur ekki verið endurnýjaður.
Landssíminn hefur endurskipu-
lagt þjónustuna frá grunni og fjár-
fest hefur verið fyrir tugi milljóna
í nýjum búnaði.
„Þeir aðilar sem mest nota þjón-
ustuna, t.d. háskólar og Símennt-
unarmiðstöðvar, eru með samn-
inga um mun lægra verð, og verið
er að semja við þá aðila um að
lækka verðið enn frekar t.d. með
hagræðingu á fyrirkomulagi þjón-
ustunnar. Auk þessa þá er búið að
semja við menntamálaráðuneytið
um lægra verð fram að áramótum
sem tryggir að skólar og símennt-
unarmiðstöðvar verða að litlu
leyti varar við þessa hækkun.
Ekki er enn búið að útfæra það
endanlega," segir Heiðrún Jóns-
dóttir, forstöðumaður upplýsinga-
og kynningarmála Landssímans.
-GG
Frá undirritun samningsins
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og bæjarstjórarnir Magnús Gunnars-
son og Ásdís Halla Bragadóttir undirrituóu samninginn í Ráðhúsinu í gær.
Hafnarfjörður og Garðabær:
Eignast hlut í Orkuveitunni
Borgarstjórinn í Reykjavík og
bæjarstjórarnir í Hafnarfirði og
Garðabæ undirrituðu í gær samn-
inga um framtíðarfyrirkomulag
hitaveitu í bæjarfélögunum tveim-
ur. Við það falla úr gildi eldri samn-
ingar þeirra við Hitaveitu Reykja-
víkur um dreifingu og sölu á heitu
vatni.
Nýi samningurinn felur í sér að
Hafnarfjörður og Garðabær verða
meðeigendur borgarinnar i Orku-
veitu Reykjavíkur. Réttur þeirra til
hlutdeildar í hagnaði Hitaveitunnar
fellur niður en í staðinn kemur
hlutdeild í arðgreiðslum Orkuveit-
unnar í samræmi við eignarhluta.
Hafnarfjörður eignast 1% hluti í
Orkuveitunni en Garðabær 0,5%.
Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
stjómarformanns Orkuveitunnar, hafa
á vissan hátt staðið deilur milli Hafn-
arfjarðar og Garðabæjar um túlkun
eldri samninga. „Með þessum samn-
ingi er sá ágreiningur leiddur til
lykta,“ segir Alfreð. -MA
IE1
HEKLA®
- íforystu á nýrri öld!
HEKLA or skrúsott vðmmorH.
Rúmlega öruggur
• Volkswagen Passat er fjölskyldubíl! sem stenst allar væntingar.
Passat er einstaklega rúmgóður bíll sem er hlaðinn staðalbúnaði og uppfyllir ströngustu öryggiskröfur.
Komdu, prófaðu og fínndu hversu vel eiginleikar Passat svara þínum kröfum.
Passat
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða www.hekla.is • Netfang hekla@hekla.is