Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
I>V
Páll segist ekkert vera orðinn of gamall.
Hann var hætt kominn fyrir fáum árum þegar hann veiktist af kransæöastíflu
og æöagúl en segist hafa náö fullri heilsu á ný eftir erfiöa aögerö og þakkar
þaö þeim snillingum í læknastétt sem þar um véluöu. Hann hlær þegar ég
spyr hann hvort hann hafi haldið aö hann myndi deyja og segir aö þaö hafí
sér aldrei dottiö í hug.
tímabili. Það liggur ljóst fyrir að
ég er ekkert hættur í pólitík. Það
eru kjósendur Framsóknarflokks-
ins sem ráða hvort framhald verð-
ur á minni þingsetu. Ég hef haft
traust Norðlendinga í öll þessi ár.
Nú er orðin breytt kjördæmaskip-
an sem ég tel reyndar óheppilega
en viö verðum að búa við hana.
Ég veit ekkert hvaða stuðning ég
hef á Vestfjöröum og Vesturlandi
en ég tel að það sé vel rúm fyrir
þrjá framsóknarþingmenn í kjör-
dæminu.“
- Steingrímur Hermannsson
segir í ævisögu sinni að þegar
hann kom að stjórn flokksins hafi
gengið erfiðlega að yngja upp
þingmannalið flokksins. Er þetta
svona enn?
„Hann breytti um skoðun með
aldrinum. Ég hef farið í gegnum
bæði almenn prófkjör og prófkjör
á kjördæmisþingi og gengið vel.
Mér finnst ég ekkert vera orðinn
of gamall."
- Hvað finnst þér athugavert
viö þessa nýju kjördæmaskipan?
„Það hefði verið skömminni
skárra að gera landið að einu kjör-
dæmi, þá hefðu allir haft skyldur
við alla. Það er auk þess erfitt að
mynda persónuleg tengsl við fólk-
iö í svona víðlendu kjördæmi."
- Mun Framsóknarflokkurinn
bíða afhroð í kosningum eftir
nýrri kjördæmaskipan þar sem
vitað er að fylgi flokksins hefur
verið meira í hinum dreiföu
byggðum en í þéttbýlinu sem fær
aukið vægi með nýrri skipan?
„Það er ofmælt að hann bíði af-
hroð. Það er vitað að þessi nýja
kjördæmaskipan er ekkert sér-
staklega hagstæð Framsóknar-
flokknum.1'
Blönduvirkjun var mistök
- Talið berst að virkjanafram-
kvæmdum og Páll segir slæmt að
ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun
hafi verið frestað en telur það ekk-
ert sérstakt áfall fyrir Framsókn-
arflokkinn þótt ekkert verði af
framkvæmdum yfirhöfuð, það
yrði áfall fyrir landsmenn alla og
sannarlega áfall fyrir Austfirðinga
sem hafa bundið vonir við at-
vinnubyggingu. Páll er ekki með
öllu ókunnur virkjanafram-
kvæmdum því Blönduvirkjun er í
túnfætinum heima hjá honum á
Höllustöðum. Var góð reynsla af
þeim framkvæmdum?
„Ég vildi virkja með öðrum
hætti þar. Að horfa upp á menn
eins og Steingrím Hermannsson
og Hjörleif Guttormsson vera allt í
einu á móti virkjunum fyrir aust-
an eftir þau hervirki sem þeir
unnu á afréttarlöndum mínum er
stórundarlegt. Blönduvirkjun var
mesta inngrip í íslenska náttúru
af mannavöldum á sögulegum
Engin tölva
Páll Pétursson félagsmálaráöherra er ekki meö tölvu á skrifstofu sinni. Hann
segist ekki þurfa þess.
tíma og allt annaö er smáræði.
Þarna fóru 60 ferkílómetrar af
grónu landi undir lón sem er
miklu meira en tapast við Kára-
hnjúka. Unnið hefði verið að
bjarga helmingnum af því landi og
byggja jafngóða virkjun. Þessar
framkvæmdir höfðu engin varan-
leg áhrif á atvinnuuppbyggingu og
búsetu í kjördæminu því orkan er
seld til Grundartanga en það var
reyndar enginn markaður fyrir
hana lengi vel.“
Er enginn graðfoli
- Páll Pétursson var hætt kom-
inn fyrir fáum árum þegar hann
veiktist af kransæöastíflu og æða-
gúl en segist hafa náð fullri heilsu
á ný eftir erfiöa aðgerð og þakkar
það þeim snillingum í læknastétt
sem þar um véluðu.
Hann hlær þegar ég spyr hann
hvort hann hafi haldið að hann
myndi deyja og segir að það hafi
sér aldrei dottið í hug. Það er
nokkur staðfesting á skikkanlegu
heilsufari þessa roskna ráðherra
að þegar viö hittumst er hann ný-
kominn úr fjögurra daga göngum
á Auðkúluheiði, afréttum Svín-
vetninga. Hann segir að veðrið
hafi verið gott. Þaö vakti mikla at-
hygli í eftirmálum veikinda Páls
þegar hann sagðist vera til heils-
unnar eins og sex vetra graðfoli í
samtali við sjónvarpsfréttamann.
Ertu svona brattur ennþá?
„Þetta var nú svolítið mistúlk-
að á sínum tíma. Það sem ég sagði
var að ég væri með æðakerfi eins
og sex vetra graöfoli. Það hefði
verið bölvað karlagrobb ef ég
hefði líkt mér við hann að öðru
leyti og það á enn þá við.“ -PÁÁ
ki f!kl4
nordica
Brauðgerðarvél
með íslenskum leiðbeiningum
og uppskriftarhefti
_ Verð áður
J
Hnífaparasett
zwilunq j hæsta gæðaflokki
Verð áður
T.900
9.900 i
OLYMPUS
ViewZoom 120
Verð áður
■19.900
6 manna sett -18/8 stál
?% - ■ r&am
—
6.500 15.900
n ■ AEG
Ryksugu
m m
GAMEBOY
NYR LEIKUR
rfWTTTíl Verð áður
5.490
í dag er rétti dagurinn
til þess að fá sér
AEG ryksugu
3.990
SHARP
20%
afsláttur
Reiknivél
Sú eina rétta fyrir bókhaldið
Lágmúla 8 • Sími 530 2800