Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
I>V
Neitar að hætta
- Páll Pétursson félagsmálaráðherra talar um samstarfið við R-listann, framboð í næstu kosningtun og hið óréttláta brunabótamat
fyrir. Meðallækkun á brunabóta-
mati yfir landið allt var 4% en
13% i Reykjavík."
Tökum lögin upp aftur
- Er þessi breyting þá lands-
byggðinni til hagsbóta á kostnað
Reykvíkinga?
„Ég þori ekki að segja til um
það. Hér í miðbænum eru mörg
hrörleg hús og ekkert óeðlOegt
þótt matið lækki þar. Þar sem
gömul hús hafa verið endurbætt
eru þau í háu verði. Það getur
ekki staðist að tala um eignaupp-
töku í þessu samhengi. Þessar
rúmlega átta þúsund kærur benda
til þess að það hafl verið gengið of
langt. Ef mikið misræmi kemur
fram þá finnst mér ekkert fráleitt
að taka þessi lög upp aftur og
breyta þeim. Það var áreiðanlega
ekki ætlan Alþingis eða viðskipta-
ráðherra að fara að snuða ein-
hvern.“
Engir hnífar í bakinu
- Er ekki nokkuð sanngjarnt að
segja að Sjálfstæðisílokkurinn sé í
virkri stjómarandstöðu við R-list-
ann í Reykjavík þar sem Fram-
sóknarflokkurinn er innan borðs.
Hefur þetta einhver áhrif á stjórn-
arsamstarfið?
„Nei, þótt hnútur hafi gengið
þarna á milli þá er gott samstarf
innan ríkisstjórnar um sveitar-
stjórnarmál. Mitt ráöuneyti fer
með málefni sveitarfélaga og þar á
ég gott samstarf bæði við fjár-
málaráðherra og forsætisráð-
herra. Fjórir af ráðherrum Sjálf-
stæðisflokksins eru þingmenn
Reykvíkinga og það væri mjög
óeðlilegt ef þeir færu að ganga á
hlut Reykvikinga."
- Davíð Oddsson forsætisráð-
herra oröaði það svo á dögunum
að R-listinn ræki stöðugt rýtinga í
bak Framsóknar í ríkisstjórn. Eru
hnífar í bakinu á þér?
„Samfylkingin er í stjórnarand-
stöðu. Það vill svo til að í borgar-
ráði, frá því í sumar, sitja ein-
göngu fulltrúar Samfylkingarinn-
ar og þar á Framsókn engan full-
trúa núna. Þetta tel ég afar
óheppilegt. Ég þarf ekkert að vera
hissa á því þótt einhver skeyti
komi frá Samfylkingunni í borgar-
ráði.“
Mikil vanþekking
- Þú sagðir sjálfur um daginn
að málflutningur R-listans væri
ótrúlegt rugl. Varstu þar að tala
gegn eigin flokksmönnum?
„Ég var ekkert að tala um kon-
una mína þar. Ég var að tala um
bókanir frá R-listanum í borgar-
ráði. Þau bókuðu um húsnæðis-
mál af mikilli vanþekkingu eða
þaðan af verra.
- Sigrún Magnúsdóttir, eigin-
kona Páls, situr í borgarstjórn R-
listans í Reykjavík. Ertu aldrei i
óþægilegri aðstöðu þegar borgar-
málin eru til umræðu. Talar þú
aldrei gegn þínum eigin mönnum
á því sviði? „Nei, ég á gott sam-
starf við sveitarstjórnarmenn
Framsóknar um land allt.“
Verðum ekki einir með
Samfylkingu
- Páll segist vera nokkuð sáttur
við þátttöku Framsóknarflokksins
í R-listanum í Reykjavík þrátt fyr-
ir fulltrúaskortinn í borgarráöi
núna og segir flokkinn hafa haft
veruleg áhrif á stjórn borgarinnar
til góðs á undanförnum árum.
Hann segist vona að R-listinn
haldi borginni í komandi borgar-
stjórnarkosningum. En er það háð
því að samstarf takist við Vinstri-
græna um þátttöku í R-listanum?
„Ef vinstri grænir eru ekki
með þá tel ég mjög óeðlilegt aö
Framsóknarflokkurinn sé í sam-
floti við Samfylkinguna eina. Við
erum ekki í neinu sérstöku
kompaníi við Samfylkinguna og ef
Vinstri-grænir bjóða fram sér þá
verðum við að gera það líka. Það
var mynduð samsteypustjórn,
samvinnuverkefni ólíkra flokka
og þannig hefur þaö verið."
Steingrímur á móti öllu
- Hver er virkasti andstæðingur
ríkisstjórnarinnar?
„Það ber miklu meira á vinstri
grænum en Samfylkingunni. Þeir
eru upplagður andstæðingur því
þeir eru á móti öllu sem gert er.
Það er hægt aö ganga að því vísu
hvort sem málið er gráupplagt eða
ekki. Fyrir vikið fá þeir alltaf ein-
hvern hluta af sviðinu."
- En er þetta ekki hefðbundið
hlutverk stjórnarandstöðu. Ég
minnist þess að hafa heyrt Davíð
Oddsson lýsa starfi sínu í stjórn-
arandstöðu einmitt meö þessum
hætti?
„Ég er ekki sammála því og
hans lýsing á eigin stjórnarand-
stöðu er ekkert til fyrirmyndar.
Hlutverk stjórnarandstöðu er að
gagnrýna og leiðbeina. Ég hef ekki
mjög langa reynslu af því að vera
í stjórnarandstöðu það hef ég ver-
ið í fjögur ár og nokkra mánuði og
við framsóknarmenn reyndum að
vera jákvæðir og gagnrýna það
sem var gagnrýnivert en styðja
annað.“
- Vinstri grænir hafa notið
meira fylgis í kosningum og könn-
unum en reiknað var með og þeir
hafa ótvírætt sótt fylgi sitt að ein-
hverju leyti í raðir ykkar fram-
sóknarmanna. Er þetta rétt?
„Hryggsúlan úr Alþýðubanda-
laginu er í vinstri grænum. Það er
mikill vinstri strengur í hjörtum
framsóknarmanna. Það höfðar
ekki til framsóknarmanna að
kjósa kratana. Vinstri grænir hafa
þvi náð til einhverra óánægðra
framsóknarmanna, en það hefur
íhaldið líka gert.“
Framsóknarmaður til
vinstri
- Er það staðfesting þess að
Framsóknarflokkurinn hafi færst
til hægri í núverandi stjórnarsam-
starfi?
„Þaö er vafalaust eitt og annað
af verkum núverandi ríkisstjórn-
ar sem vinstrisinnuðum fram-
sóknarmönnum geðjast ekki að.
Ég hef alltaf taliö mig til vinstri-
sinnaðra framsóknarmanna, eða
að minnsta kosti á þeim bekk, en
við erum ekki einráðir í þessari
ríkisstjórn og mér finnst við hafa
haldið okkar striki nokkuð vel. Ég
hef ekkert breyst þótt ég hafi þurft
að vinna með sjálfstæðismönnum.
Ég hef ekkert tekið það nærri mér
og samstarf í ríkisstjórn er gott og
á jafnréttisgrundvelli."
- Ertu þá á öndverðum meiði
við hægrisinnaða forystu flokks-
ins?
„Ég vil ekki kalla hana hægri-
sinnaða. Ég tel að við eigum ekki
að ganga í Evrópusambandið og
formaður hefur engar ákvarðanir
tekið þar um. Ég hef átt afar gott
samstarf við ýmsa foringja Fram-
sóknarflokkssins en best við Ólaf
Jóhannesson sem sennilega hefur
verið lengst til hægri af formönn-
um flokksins."
Er ekki oröinn of gamall
- Páll Pétursson er fæddur i
mars 1937 sem þýðir að hann er 64
ára gamall. Hann er ekki elstur
þeirra sem nú sitja á þingi sé mið-
að við lífaldur en hann hefur setið
lengst á þingi. Þegar næstu þing-
kosningar fara fram árið 2003
veröur hann 66 ára gamall. Er
þetta ekki oröiö gott eða ætlar þú
að bjóða þig fram aftur?
„Ég kom inn á þing 1974 og telst
því aldursforseti því ég hef setið
þar lengst. Ef Guð lofar get ég orð-
ið elstur þingmanna á næsta kjör-
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra er framsóknarmaður. Hann
segist reyndar vera vinstrisinnað-
ur framsóknarmaður en margt í
fari hans bendir til þess að hann
sé líka íhaldsmaður. Páll er á móti
Evrópubandalaginu, var hernáms-
andstæðingur, á móti nýrri kjör-
dæmaskipan og telur að Blöndu-
virkjun hafi verið mistök, eins og
hún var byggð. Hann greiddi at-
kvæði gegn bjómum og það er
engin tölya á borði hans í ráðu-
neytinu. Á veggjunum hanga tvær
áberandi myndir. Önnur eftir Ás-
grím Jónsson af manni með hesta-
kerru í Hvítársíðu. Hin eftir Jón
Stefánsson af hesti á hrokasundi.
Páll segir að hann sé í Héraðs-
vötnum í Skagafiröi.
Það er fallegt útsýni af skrifstof-
unni í Hafnarhúsinu. Tveir horn-
gluggar snúa út að Reykjavíkur-
höfn þar sem lognið ríkir.
Það ríkir samt ekkert logn í
ráðuneyti félagsmála um þessar
mundir. Ævareiðir húseigendur
senda Fasteignamati ríkisins kær-
ur í þúsundatali vegna breytinga
á brunabótamati og fasteignamati
sem margir telja Pál Pétursson
bera ábyrgð á. Menn tala um
eignaupptöku og óréttlæti. Val-
gerður Sverrisdóttir viðskiptaráð-
herra telur félagsmálaráðherra að
hluta ábyrgan og Jóhanna Sigurð-
ardóttir ræðst harkalega að hon-
um af sömu sökum.
Valgeröur er ábyrg
Hver ber ábyrgðina, Páll?
„Ábyrgðin liggur klárlega hjá
viðskiptaráðherra. Það er alveg
ljóst. Frumvarpið var flutt af við-
skiptaráðherra 1999 að beiðni
sveitarfélaganna. Fasteignamat
ríkisins, sem vann brunabótamat-
ið, heyrir undir fjármálaráðherra.
Þetta mál var afgreitt úr efnahags-
og viðskiptanefnd og kemur þvi
ekkert þessu ráðuneyti við að
einu eða neinu leyti nema því að
lánveitingar íbúðalánasjóðs voru
áður miðaðar við brunabótamat.
Þegar það lækkar er ekki eðlilegt
að miða viö 65% af því sem há-
mark lána. Við breyttum þessu og
miðum nú við 65% af kaupveröi
en 70% þegar um fyrstu íbúð er að
ræða. Lánsupphæð verður þó að
rúmast innan 85% af brunabóta-
mati.“
- Er þessi breyting þá fasteigna-
eigendum til góðs?
„Hún getur verið það. Fast-
eignaeigendum er hagur að því að
fasteignamat sé nálægt raunviröi.
Mér hefur hins vegar komið á
óvart hvað lækkun brunabóta-
mats var mikil og hvatti fólk til
þess að kæra og reikna með að
flestir fái úrlausn sinna mála.
Okkar markmið er aö verja íbúöa-
lánasjóö fyrir áfollum og hann
láni ekki hærra en tryggingar eru
DV-MYNDIRGVA
Páll Pétursson félagsmálaráöherra er ekki af baki dottinn
„Þaö liggur Ijóst fyrir aö ég er ekkert hættur í pólitík. Þaö eru kjósendur Framsóknarflokksins sem ráöa hvort fram-
hald veröur á minni þingsetu. Ég hefhaft traust Norölendinga í öll þessi ár. Nú er oröin breytt kjördæmaskipan sem
ég tel reyndar óheppilega en viö veröum aö búa viö hana. Ég veit ekkert hvaöa stuöning ég hef á Vestijöröum og
Vesturlandi en ég tel aö þaö sé vel rúm fyrir þrjá framsóknarþingmenn í kjördæminu. “