Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 22 . SEPTEMBER 2001
55
DV
Tilvera
90 ára___________________________
Hólmfríöur Jóhannesdóttir,
Aöalgötu 3, Sauðárkróki.
85 ára___________________________
Elín Dagmar Guöjónsdóttir,
Æsufelli 2, Reykjavík.
Rögnvaldur Þorkelsson,
Eikjuvogi 23, Reykjavík.
80 ára___________________________
Aldís Dúa Þórarinsdóttir,
Garöabraut 16, Akranesi.
Haraldur Tryggvason,
Svertingsstöðum 2, Akureyri.
70 ára___________________________
Ebba Jóhannesdóttir,
Túnbrekku 5, Ólafsvík.
Óskar H. Ólafsson,
Dælengi 2, Selfossi.
Snjólaug Bruun,
Dynskógum 22, Hverageröi.
60 ára____________________________
Birgir Björnsson,
Egilsgötu 8, Borgarnesi.
Elin Ósk Snorradóttir,
Vallarbraut 21, Seltjarnarnesi.
Jónas Þorvaldsson,
Trönuhjalla 5, Kópavogi.
50 ára____________________________
Ástmundur Guönason,
Háaleitisbraut 123, Reykjavík.
Birgir Þór Þóröarson,
Steinageröi 8, Húsavík.
Einar G. Haröarson,
Engjaseli 84, Reykjavík.
Genowefa Ziglinska,
Óseyrarbraut 24, Þorlákshöfn.
Guöbjörg Jónsdóttir,
Bollagörðum 17, Seltjarnarnesi.
Leó Jóhannesson,
Reynigrund 16, Akranesi.
Magnús Skúlason,
Þinghólsbraut 20, Kópavogi.
40 ára____________________________
Ólöf Herborg Hartmannsdóttir,
Skagfiröingabraut 15, Sauðárkróki.
Rögnvaldur Ó. Snorrason,
Hörpulundi 10, Akureyri.
Víöir Ólafsson,
Góuholti 7, ísafirði.
Örn Haraldsson,
Skeljatanga 9, Mosfellsbæ.
Sjötiu of* fímm ára
Elísabet Þórunn Sigurgeirsdóttir
fyrrv. forstöðumaður félagsstarfs aldraðra á Blönduósi
Elísabet Þórunn Sigurgeirsdóttir,
fyrrv. forstöðumaöur félagsstarfs
aldraðra á Blönduósi, Grímshaga 7,
Reykjavik, verður sjötíu og fimm
ára á morgun.
Starfsferiil
Elísabet fæddist á ísafirði og ólst
þar upp. Hún flutti til Blönduóss
1944 og var búsett þar til 1996 er hún
flutti til Reykjavíkur.
Elísabet var starfsstúlka Héraðs-
hælis Austur-Húnavatnssýslu á
Blönduósi 1973-84 og var forstöðu-
maður félagsstarfs aldraðra á
Blönduósi 1984-94.
Elísabet var formaður kvenfélags-
ins Vöku á Blönduósi í níu ár, for-
maður Sambands austur-hún-
vetnskra kvenna 1968-82 og 1986-87
og annaðist safnvörslu við Heimilis-
iðnaðarsafnið á Blönduósi um ára-
bil. Hún var einn af stofnendum
Krabbameinsfélags Austur-Hún-
vetninga og var gjaldkeri félagsins
um skeið, sat í þjóðhátiðarnefnd og
var formaður sögusýningar Blöndu-
óss végna hundrað ára afmælis
staðarins auk ýmissa annarra fé-
lags- og trúnaðarstarfa.
Fjölskylda
Elísabet giftist 7.10. 1945 Jóhanni
Sverri Kristóferssyni, f. 3.3. 1921, d.
9.12. 1995, hrepþstjóra og flugvallar-
verði á Blönduósi. Hann var sonur
Kristófers Kristóferssonar frá
Köldukinn og Dómhildar S. Jó-
hannsdóttur, af Nesjavallaætt.
Börn Elísabetar og Jóhanns
Sverris eru Kristófer Sverrir, f. 7.6.
1945, mjólkurfræðingur, kvæntur
önnu G. Vigfúsdóttur aðalgjald-
kera; Hildur Björg, f. 26.3.1947, hús-
móðir i Reykjavík, gift Birni Búa
Jónssyni, kennara við MR; Sigur-
geir, f. 14.10. 1948, d. 6.9. 1995, vann
við bílaviðgerðir og var tónlistar-
maður en fyrri kona hans var Jóna
Guðmundsdóttir en seinni kona
hans Hulda Baldursdóttir; Jón, f.
11.6.1958, smiður og tónlistarmaöur
á Blönduósi, kvæntur Jóhönnu
Harðardóttur hjúkrunarfræðingi en
fyrri kona hans var Helga Snorra-
dóttir, aðalgjaldkeri hjá sýslu-
mannsembættinu í Kópavogi; Sverr-
ir Sumarliði, f. 3.3. 1964, smiður i
Reykjavik, en kona hans er Júlía
Björk Árnadóttir, starfsstúlka hjá
Freyju.
Barnabörn Elísabetar eru nú orð-
in fimmtán en langömmubörnin eru
þrettán.
Systkini Elísabetar: Jóhann Árni
Sigurgeirsson, f. 16.8. 1911, d. 2.3.
1987, verslunarmaður á Isafirði;
Þóra Sigurgeirsdóttir, f. 12.9.1913, d.
9.5. 1999, húsmóðir á Blönduósi;
Svava Sigurgeirsdóttir, f. 26.8. 1915,
d. 8.7. 1990, var búsett á Akureyri;
Gústav Sigurgeirsson, f. 5.11. 1919,
d. 25.12. 1994, múrari í Reykjavík;
Sumarliöi Sigurgeirsson, f. 26.1.
1922, d. 12.2. 1936; Þorgerður Sigur-
geirsdóttir, f. 14.12. 1928, fyrrv. full-
trúi hjá Raunvísindastofnun HÍ.
Foreldrar Elísabetar voru Sigur-
geir Sigurðsson, f. 2.4. 1886, d. 10.9.
1963, sjómaður á ísafiröi, og Ingi-
björg Þórunn Jóhannsdóttir, f. 6.12.
1891, d. 25.6. 1950, húsmóðir.
Ætt
Sigurgeir var sonur Sigurðar,
landpósts á Akureyri, Sumariiða-
sonar, landpósts á Kjarna, Guð-
mundssonar, sjómanns í Malarbúð
á Snæfellsnesi, Jónssonar. Móðir
Sigurðar var Guð-
rún Sigurðardótt-
ir, vinnumanns á
Leikskálum, Jóns-
sonar, b. í Skriðu-
koti, Kolbeinsson-
ar. Móðir Jóns var
Ingibjörg Hall-
dórsdóttir, b. í
Villingadal, Þórð-
arsonar. Móðir
Guðrúnar var Sig-
ríður Skeggjadótt-
ur, b. á Svarfhóli í
Miðdölum, Jóns-
sonar og Þorbjarg-
ar Þórðardóttur.
Móðir Þorbjargar
var Sigríður Jóns-
dóttir, systir Jóns,
íoður Páls, prests
og skálds á Völl-
um í Svarfaðardal,
langafa Einars 01-
geirssonar. Páll
var einnig langafi
Katrínar, móður
Jórunnar Viðar.
Systir Sigríðar
var Ástríður,
amma Saura-Gísla og Sveinbjamar,
langafa Gunnars, fóður Gísla, lekt-
ors í sagnfræði. Móðir Sigurgeirs
var Kristin Pálsdóttir, b. á Stóra-
Mosfelli, Guðmundssonar, b. á Keld-
um, Halldórssonar. Móðir Kristínar
var Halldóra Hálfdánardóttir,
vinnumanns á Tjöm i Svarfaðardal,
Hálfdánarsonar og Margrétar
Björnsdóttur, b. á Starrastöðum í
Hörgárdal, Hallssonar. Móðir Mar-
grétar var Margrét Jónsdóttir John-
soníusar, sýslumanns í Vigur, bróð-
ur Þorgerðar, móður Hallgrims,
langafa Filippíu, móður Guöjóns B.
Ólafssonar, forstjóra SÍS. Hallgrím-
ur var einnig langafi Baldvins, foð-
ur Björns Th. Björnssonar.
Ingibjörg var dóttir Jóhanns, skó-
smiðs á ísafirði, bróður Einars,
hljómskálavarðar í Reykjavík, og
Erlends, fóður Einars, húsameist-
ara og arkitekts. Jóhann var sonur
Árna, sjómanns í Brekkukoti á
Álftanesi, Jóhannssonar, b. á Arnar-
nesi, Jónssonar, b. í Hrauntúni í
Leirársveit, Arnþórssonar. Móðir
Ingibjargar var Kristín Guðrún
Guðmundsdóttir frá Ásmundarnesi
í Strandasýslu.
Elísabet er aö heiman.
T
Uindið
Goðafoss:
Allt að
fimmtíu
rútur á dag
„Það hefur verið mikið um
ferðamenn viö Goöafoss í sumar og
mikið að gera hjá ferðaþjónust-
unni,“ sagði Sigríður Karlsdóttir í
v’ersluninni á Fosshóli í Suður-
Þingeyjarsýslu. „Hingað hafa kom-
ið um fimmtíu rútur sama daginn
fyrir utan lausatraffíkina."
Ferðaþjónustan á Fosshóli rekur
verslunina, gistingu og veitinga-
sölu. Þar er einnig starfræktur svo-
kallaður Goðafossmarkaður þar
sem konur úr nágrenninu eru með
margs konar handunninn varning
til sölu.
Sigríður segir aö þegar skemmti-
ferðaskip liggi við Akureyri sé gíf-
urlegt rennerí af ferðamönnum við
Goðafoss. í flestum tilfellum stoppa
skipin bara einn dag og þá er farið
í rútuferð þar sem viðkomustað-
imir eru Laufás og Goöafoss. Þeir
sem hafa rýmri tíma fara jafnvel í
Mývatnssveit. Sigriður segir að
rúturnar fari yfirleitt beint að foss-
inum og þar fari fólkið út. Þegar
það hafi stoppað nógu lengi við
fossinn komi það í verslunina.
Búið er að gera upp gömlu brún-
a sem er rétt við verslunina þannig
að nú gengur fólk þar um og nýtur
náttúrufegurðarinnar við niðinn
frá fossinum, að sögn Sigríðar
Karlsdóttur.
DV-MYND ÖRN
Erlendir feröamenn viö Goöafoss
Goöafoss er segull fyrir erlenda
feröamenn. Hvaö skyldu vera teknar
þar margar myndir yfir feröamanna-
tímann?
C
Landsvirkjun
Norðlingaðlduveita: Kynning á matsáætlun
Landsvirkjun kynnir
tillögu að
matsáætiun
Norðlingaölduveitu
í opnu húsi
í Reykjavík
Fundarstaður:
Stjornstöó Landsvirkjunar við Bústaðaveg
í dag laugardaginn 22. september kl. 13:00-17:00.
Stutt kynningarerindi flutt kl. 14:00 og 16:00.
Á kynningarfundunum gefst tækifærí til að ræða við fulltrúa Landsvirkjunar og
ráðgjafa fyrirtækisins um umhverfismatið. Á heimasíðu verkefnisins,
www.nordlingaalda.is, er einnig hægt að kynna sér matsáætlunina og koma á
framfæri athugasemdum og fyrirspumum.
- --- -■■■' ■ -■■ : v •-. ■■--- •*