Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
49
Helgarblað
DV-MYNDIR PETUR JÓHANNSSOf
IslensKumæland
Nevio Flego til vinstri og Walter Sker, þeir félagar eru í „ vinnufötunum“
sínum á ströndinni í Portoroz. í baksýn sést i hiö fræga Hótel Metropoi í
Portoroz. Þar er meöal annars frægt spilavíti sem mikiö er sóít.
Vinsæll dvalarstaður íslendinga í Slóveníu á árum áður aftur í fullu fjöri:
„íslenskir“ strand-
verðir í Portoroz
Heimurinn er litill, það sannaðist
þegar komið var á ströndina í Por-
toroz fyrsta dag tíðindamanns DV í
Rósahöfn á dögunum. Til Portoroz eru
íslenskir ferðamenn farnir að fara að
nýju eftir margra ára hlé. Þarna í
sandinum mætti honum hlýleg kveðja
tveggja strandvarða: „Góðan daginn!"
Þar voru þá komnir þeir Walter Sker
og Nevio Flego, sem báðir eru Slóven-
ar og tala mjög góða íslensku. Walter,
sem heitir reyndar Valtýr og er með
íslenskan ríkisborgararétt, og Nevio
félagi hans, komu til íslands 1978 og
1979. Unnu þeir við fiskvinnslu í
Ólafsvík í nokkur ár. Walter starfaði á
íslandi síðasta vetur við bæði sjó-
mennsku og framreiðslustörf og kem-
ur aftur i haust. Nevio starfar ein-
göngu við strandvörslu í Portoroz og
segist vera hættur að koma til að
vinna á íslandi. Hann langar til að
koma sem ferðamaður með konu sína
en hún rekur skemmtilega verslun í
Piran.
Tíðindamaður DV naut hins fræga
og vinsæla ferðamannabæjar Piran í
Slóveníu enda hefur staðurinn upp á
margt að bjóða. Slóvenía, sem er mjög
fallegt land, er aðeins um fjórðungur
af stærð Islands og þar lifa um 2 millj-
ónir manna sem þó þykir ekki þétt-
býlt. Höfuðborgin er Lubljana og þar
búa um 400 þúsund manns. Strand-
lengja Slóveníu er 46 km.
Piran hefur verið íjölsóttur staður
um langan tíma og þar rétt hjá er
hinn frægi sumarleyfisstaður Por-
toroz eða Höfn rósanna eins og það
Þröngar götur
Stundum er ekki nema faðmslengd
á milli húsana.
mun útleggjast á íslensku. Til Por-
toroz fóru fjölmargir íslendingar á
vegum ferðaskrifstofanna Sunnu og
Útsýnar i kringum árið 1980. Seinna
var skipulögðum ferðum þangað hætt
þegar ófriður skall á á Balkanskaga,
en nú eru ferðamenn af mörgum þjóð-
ernum mættir að nýju.
Piran er skemmtileg borg og þar
búa um 5000 manns. Mjög gaman er
að ganga um hinar mörgu þröngu göt-
ur bæjarins, þar sem varla er nema
faðmslengd á milli húsanna. Fjöl-
margir góðir veitingastaðir freista
ferðalanganna í þessum þröngu göt-
um og það er vel tekið á móti gestum
enda eru Slóvenar miklir höfðingar
heim að sækja.
Við höfnina í Piran er gaman að
virða fyrir sér sjómennina sem þar
hreinsa netin sín á morgnana og
spjalla við þá. Þeir landa snemma og
aflinn, fiskur af ýmsu tagi, er fluttur
rakleiðis í veitingahúsin. Portoroz
iðar af lífi allan daginn. Þar eru mjög
góðar strendur til sólbaða á daginn. Á
kvöldin iða göturnar af lífi enda fjöl-
margt þar um að vera. Stórt torg er í
Portoroz þar sem boðið er upp á
margs konar skemmtanir og sölu-
mennsku sem gaman er að fylgjast
með. Fyrir þá sem hafa nóg fé á milli
handanna, er hægt að heimsækja hið
fræga spilavíti á hinu glæsilaga hóteli
Metropol. Spilavítið hefur verið opið
síðan 1913.
Vonandi sjá ferðamálamenn á ís-
landi sér hag í að koma á ferðum til
Portoroz aftur því þetta er skemmti-
legur dvalarstaður bæði fyrir unga
sem aldna og margir fslendingar eiga
góðar minningar frá þessu fallega
stað. Þá eru staðir eins og Postojna,
sem er fræg fyrir hellana sína, og
Lipica með heimsins frægustu hesta,
mikið sóttir. Þá er Bled-vatnið
ógleymanlegur staður og þriggja tíma
sigling er frá fiskimannabænum Izola
til Feneyja þannig að nóg er um að
vera fyrir þá sem sækja Slóveníu
heim. -PSJ
Auglýsingasími: 550 5000
I tilefni af opnun Smáralindar
miðvikudaginn 10. október
gefur DV út veglegt sérblað
þriðjudaginn 9. október.
í blaðinu verður sagt frá öllu
því helsta sem bíður gesta
við opnun Smáralindar.