Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 15
15
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001
DV
og Skagamanna um
tspyrnu í Eyjum á sunnudag:
Pressa á Skaganum
Skagamenn hafa, líkt og Eyja-
menn, komið nokkuð á óvart i sum-
ar, en hefðin fyrir að vera í fremstu
röð er hvergi jafn sterk og á Akra-
nesi. Það hlýtur þó að vera töluverð
pressa á þeim að landa titlinum stóra
á morgun eftir að þeir töpuðu fyrir
Fylki í undanúrslitum bikarkeppn-
innar.
Það eru margir leikmenn sem hafa
átt mjög gott tímabil með Skagalið-
inu. Hjörtur Hjartarson er nánast ör-
uggur með markakóngstitilinn, fyrir-
liðinn Gunnlaugur Jónsson er senni-
lega aö spila sitt besta timabil í sum-
ar og hinn ungi Grétar Rafn Steins-
son hefur vakið athygli á miðju
Skagamanna fyrir góða frammistöðu.
Þá hafa menn eins og Kári Steinn
Reynisson og Pálmi Haraldsson hafa
leikið vel.
Seinni hluta tímabilsins hafa svo
leikmenn eins og EUert Jón Björns-
son og Hjálmur Dór Hjálmsson látið
að sér kveða. Og aðalsmerki Ólafs
Þórðarsonar, baráttugleðin og að gef-
ast aldrei upp, sést vel á Skagaliðinu
enda er það eflaust honum að miklu
leyti að þakka að liðið kom sér í
þessa stöðu eftir frekar slaka byrjun
í deildinni.
Enn geta knattspyrnuunnendur
orðið jafn undrandi á þvi að aUtaf
virðist koma maður í manns stað í
þessu liði og það er eins og þeir geti
framleitt knattspymumenn á færi-
bandi þarna á Skaganum. Og þeir
virðast einnig hafa lag á að koma á
óvart og verða í toppbaráttunni þeg-
ar menn búast ekki við miklu af
þeim, eins og raunin varð fyrir þetta
tímabU. I þessu liði er góð blanda af
ungum og efnUegum leikmönnum og
reyndum jöxlum, og slík blanda er yf-
irleitt vænleg til árangurs. Nú er
spurning hvort þessi blanda sem nú
er á Skaganum reynist vera upp-
skrift af íslandsmeistaratitli. Eitt er
víst að það verður erfitt að sækja
þrjú stig til Vestmannaeyja, sérstak-
lega þegar svo mikið er í húfi.
-HI
Þetta eru
• •• • •• /» i •
mjog jofn lið
- segir Bjarni Jóhannsson
„Þessi úrslitaleikur ÍBV og ÍA er fyrir margra hluta
sakir mikill leikur. Fáir áttu í raun von á því að þessi Jóhannsson,
tvö lið myndu berjast um titilinn og önnur félög voru þjálfari Fylkis.
nefnd til sögunnar. Bæði hafa þessi lið komið veru-
lega á óvart í sumar og náð frábærum árangri," segir Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Fylkis og fyrrverandi þjálfari Eyjamanna.
„Á heildina litið hefur mér fundist ÍA vera betra lið í sumar. Slíkur
dómur skiptir þó auðvitað litlu þegar út í svona leik er komið. Skaga-
mönnum nægir jafntefli en ég held að þeir megi ekki hugsa um það. Að-
eins að þiggja það ef það er i boði í lokin. í raun eru þetta mjög jöfn lið
og hafa svipaða styrkleika og veikleika. Þessi úrslitaleikur er í stU við
allt mótið þar sem hefðin hefur verið hungrinu yfirsterkari. Það er frá-
bært að fá svona dramatískan leik i lokin og vonandi fer hann fram í
góðu veðri.“ -SK
ÍBV og ÍA eru
sigurvegarar
- segir Gústaf Björnsson
„Þetta verður stórskemmtilegur leikur. Fyrir mótið
töluðu bókstaflega allir um KR, Fylki og Grindavík sem
hugsanlega meistara. Þetta var í raun ekkert óeðlUegt.
Niðurstaðan, nefnilega að ÍBV og ÍA leiki hreinan
úrslitaleik um titUinn, er sigur fyrir þau lið sem hafa
trú á sínum eigin mönnum og mjög skýr skilaboð til annarra liða,“ sagði
Gústaf Björnsson, þjálfari KeUavíkur.
„Skagamönnum nægir jafntefli og það þarf ekki að vera betra.
Eyjamenn eru gríðarlega erfiðir heim að sækja. Þeir gefa litil færi á sér og
leika sterkan vamarleik með Birki í markinu sem er maður mótsins aö
mínu mati. Hvernig sem þessi leikur fer verður ekki fram hjá því litið að
þessi tvö lið eru að mínu mati sigurvegarar mótsins. Annað liðið fær allan
heiðurinn á sunnudaginn en hitt þátttökurétt í Evrópukeppni." -SK
Gústaf
Björnsson,
þjálfari
Keflavíkur.
Hjartarson, markaskorarinn mikli í liöi Skagamanna, hefur skoraö 15 mörk í
sumar. Tekst honum aö skora í Eyjum á sunnudag?
Hjörtur
Mörk skoruö moö vlnstri:
Nr. # íf og íf
Mörk skoruö meö skaiia:
Nr. Z'.ogít.
Mörk skoruö meö hægri:
Nr. $j, & aj. Í9, ig og 14
Mörk Hjartar Hjartarsonar í sumar
1. 17. maí, FH (heima), 34. mínúta, vítaspyrna
2. 17. maí, FH (heima), 82. minúta, skallamark af 9 metra færi
3. 11. júní, Valur (úti), 49. mínúta, skot með vinstri af 13 metrum
4. 11. júní, Valur (úti), 56. mínúta, skot meö vinstri af 14 metrum
5. 18. júní, Breiðablik (heima), 52. minúta, vítaspyrna
6. 27. júní, Grindavík (heima), 1. mín., skot meö hægri af 6 metrum
7. 27. júní, Grindavík (heima), 31. mín., skot með hægri af 7 metrum
8. 2. júlí, Fylkir (úti), 9. mínúta, skallamark af 9 metra færi
9. 15. júlí, FH (úti), 4. mínúta, skot með hægri af 8 metra færi
10. 2. ágúst, Keflavík (úti), 5. mínúta, skot með hægri af 1 metra færi
11. 19. ágúst, Breiðablik (úti), 28. mín., vítaspyrna
12.19. ágúst, Breiðablik (úti), 53. mín., skot með hægri af 4 metrum
13. 19. ágúst, Breiðablik (úti), 89. mín., skot með vinstri af 3 metrum
14.17. sept., Fylkir (heima), 55. mínúta, skot með hægri af 5 metrum
15. 17. sept., Fylkir (heima), 88. mínúta, skot með hægri af 6 metrum
Hjörtur Hjartarson
hjá ÍA hefur nán-
ast gulltryggt sér
markakóngstitil-
inn í Símadeildinni
enda meö 6
marka forustu fyr-
ir síðustu umferö.
Hér má finna allt
um hvernig hann
gerði mörkin sín
fimmtán í sumar.
Fimmtán mörk
Hjartar í sumar
Hjörtur hefur auk þess gert 3 sigurmörk, skorað 10 mörk í fyrstu
snertingu, 2 mörk eftir 2 til 4 snertingar og 9 mörk eftir tost leikatriði.
-----------------------------1 ; ...............................................
Helgarblað
Skagamenn hafa alls gert 27 mörk
í sumar þar af hafa 12 þeirra verið
fyrsta markið í leikjum þeirra og 4 sig-
urmörk. Mörk Skagamanna í Síma-
deildinni í sumar skiptast annars
þannig: Mörk í fyrri hálfleik 12, mörk
í seinni hálfleik 15, mörk úr markteig
8, mörk utan teigs 2, mörk meö vinstri
fótar skoti 7, mörk með hægri fótar
skoti 15, skalíamörk 2, mörk úr víti 3,
mörk úr aukaspymu 0, mörk úr fóst-
um leikatriðum 14.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliöi ÍA,
hefur leikið best leikmanna liðsins
samkvæmt einkunnagjöf DV-Sport.
Gunniaugur er með meðaleinkunnina
3,89 og er í þriðja sæti meðal leik-
manna deildarinnar fyrir síðustu um-
ferðina. Næstur Gunnlaugi er hinn
ungi og skemmtilegi leikmaður, Ellert
Jón Björnsson, með 3,64 i meðalein-
kunn og þriðji er Ólafur Þórðarson
með meðaleinkunnina 3,6 í 10 leikj-
um en hann hefur ekki verið meö síð-
an gegn FH 15. júlí.
Skagamenn eru þekktir fyrir að
byija hálfleikina mjög sterkt og það
sést vel á þvi að þeir hafa gert 9 mörk
gegn 3 á fyrstu 10 mínútum hálfleikja
deildarleikja sinna i sumar. Skaga-
menn hafa meðal annars gert þrjú
mörk á fyrstu 5 mínútunum í sumar.
Ólafur Þór Gunnarsson, mark-
vörður Skagamanna, hefur varið öll
þijú vítin sem á hann hafa komið í
sumar. Skagamenn hafa sjáifir fengið
fjögur víti. Hjörtur Hjartarson hefur
tekið þau öli og nýtt þrjú þeirra en
hann lét Gunnar Sigurósson, mark-
vörð Framara, verja frá sér víti í 15.
umferö.
Skagamenn hafa fengið funm
mörk á sig í síðustu tveimur útileikj-
um en það eru jafnframt einu skiptin
sem Ólafur Þór Gunnarsson, mark-
vörður liðsins, hefur þurft að sækja
boltann í deildinni síðan 2. júlí því
hann hefur haldið hreinu í sjö af síð-
ustu níu deildarleikjum Skagamanna.
Ólafur Þóróarson, þjálfari ÍA, hef-
ur notað 20 leikmenn i sumar þar af 17
þeirra í byrjunarliðið sitt. Sex leik-
menn hafa náð að leika alla leikina og
þrir þeirra hafa spilað allar 1530 mín-
úturnar sem hafa verið í boði en það
eru þeir Ólafur Þór Gunnarsson,
Gunnlaugur Jónsson og Reynir Le-
ósson. Sex leikmenn hafa náð að
skora fyrir ÍA í sumar og 11 hafa lagt
upp mark.
Hjörtur Hjartarson er marka-
hæsti leikmaður Símadeildarinnar í
sumar með 15 mörk en enginn hefur
heldur átt þátt í fleiri mörkum en
hann því hann hefur komið að sköpun
21 af 27 mörkum Skagamanna eða yfir
70%. Hjörtur hefur búið til jafnmörg
mörk og allt Eyjaliðið en hér á síðunni
má sjá úttekt á markaskorun hans í
sumar.
Hörtur Hjartarson hefur gefið
flestar stoðsendingar af leikmönnum
ÍA i deildinni í sumar en Hjörtur hef-
ur lagt upp fjögur mörk. Unnar Val-
geirsson og Kóri Steinn Reynisson
hafa lagt upp þrjú mörk hvor og þeir
Haraldur Hinriksson, Grétar Rafn
Steinsson, Gunnlaugur Jónsson eitt
mark hver. Hjörtur hefur auk þess
fiskað tvö víti sem hann hefur skorað
sjálfur úr og hefur Kári Steinn einnig
fiskað eitt víti.
Skagamenn hafa farið stigalausir
heim frá Eyjum síðustu fimm árin og
hafa aðeins náö aö vinna einn deildar-
leik af síðustu tíu gegn ÍBV á sama
tíma og Eyjamenn hafa sex sinnum
borið sigur úr býtum.
Vinni Skagamenn titilinn í Eyjum
veröur þetta sjötti íslandsmeistaratit-
illinn hjá félaginu á síðustu tíu tíma-
bilum og jafna þeir þar með hið fræga
gullna tímabil á árunum 1951-1960
þegar ÍA vann 6 fyrstu meistaratitla
sína.
Egill Múr Markússon dæmir leik-
inn en hann hefur dæmt þrjá leiki hjá
þessum liðum í sumar, tvo hjá ÍA og
einn hjá ÍBV. EgiU Már dæmdi tapleik
Skagamanna gegn Fylki á útiveUi og
sigurleik þeirra gegn KR heima og
dæmdi sigurleik IBV á Fram á Val-
bjamarveUi. Þetta verður 14. leikur
EgUs í sumar en enginn hefur dæmt
fleiri leiki en hann í deUdinni.
-ÓÓJ