Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Page 19
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 19 DV Helgarblað Verðlaun í flokki undarlegra skota Jennifer Aniston, Friends-gella og hármódel, er nær okkur smælingj- unum í þankagangi en viö héldum. Hún á líka sína barnalegu fortíð þar sem hún gerði ýmislegt undarlegt og mannlegt. Hún viðurkenndi ný- lega að hafa haft mikið uppáhald á Duran Duran, þeirri góðu sveit. Má gera ráð fyrir að hún hafi tekið und- ir hástöfum í viðlaginu við Hungry Like The Wolf. Áhugi hennar á Dur- an Duran snerist þó ekki einungis um stórkostlega tónlist sveitarinnar heldur einnig um Taylor, Taylor, Taylor, Rhodes og Le Bon. Hugarór- ar hennar snerust þó að mestu um söngvara sveitarinnar, Simon Le Bon sjálfan, manninn sem Wham- aðdáendur héldu fram að væri með Anne Heche: Misnotuð af föður sínum Fjölskylda Anne Heche er ekki sú upplitsdjarfasta um þessar mundir því Anne hefur nýlega gefið út ævi- sögu sína, Call Me Crazy. Anne Heche hætti sem kunnugt er með Ellen Degeneres og byrjaði með Coley Laffoon. Kom þetta nokkuð á óvart því eins og fólk veit þá er Ellen kona og Coley karlmaður. Hef- ur Coley nú þegar gert hana ófríska og ríkir mikil spenna á litla heimil- inu. En fjölskylda Anne er æf eftir að hafa lesið það sem borið er á borð fyrir lesendur. Anne heldur því meðal annars fram aö faðir hennar hafi misnotað hana og að móðir hennar hafi vitað af því. Móöir hennar, Nancy, svarar þessum ásök- unum dóttur sinnar á Netinu og seg- ir að hún sjái sig ekki i öllum þeim lygum og óhróðri sem Anne skrifi um. Systir Anne, Abigail, hefur slit- ið öllu sambandi við systur sína. Hún segir að Anne hafi einhvern tímann efast um nákvæmni minn- inga sinna og hún taki undir það með henni. „Miðað við mína reynslu og hennar efasemdir þá held ég að það sem hún segir um fóður minn sé ekki satt. Og allar staðhæfingar um að móðir mín hafi vitað af slíku athæfi eru algjörlega rangar.“ Abigail segir einnig að hún hafi miklar efasemdir um endaskipti Anne á kynhneigð sinni. „Hún seg- ist ekki hafa verið lesbía, hún hafi bara verið rugluð. Ég myndi vilja halda orðinu „lesbía" og fleygja orð- inu „rugluð". Anne hefur margar leiðir til að vekja athygli á sér.“ Og það gætu nú eflaust margir tekið undir það með Abigail. Smáauglýsingar Allt til alls ►I550 5000 gervitennur og gengi í ljósbláum nærbuxum. Þegar Jennifer var tólf ára fór hún með vinkonu sinni og ætlaði á tónleika með Duran Duran. Þær biðu lengi í biðröð og Jennifer var meira að segja með rós tO að færa Simon. „Biðröðin náði fyrir hom og við komumst ekki að fyrir nóttina. Þess vegna sváfum við úti.“ Mörgum árum síðar voru Jenni- fer og elskan hennar, Brad Pitt, í verslunarleiðangri: „Ég var að skoða eitthvað og Brad benti mér allt í einu að koma. Ég kom til hans og þá stóð Simon þarna. Ég fór til hans og sagði: „Ég beið eftir þér fyr- ir utan hótel.“ Ég held að hann hafi haldið að við værum rugluð.“ Kannski hann hafi bara verið hissa á því að einhver myndi eftir honum. Jennifer Aniston Var skotin í Simon Le Bon. Ferðaskrifstofan Sól býður nú í fyrsta skipti á íslandi upp á vetrarsól á Kýpur og það á einstöku verði. Aðalgististaður okkar er Ermitage Beach Hotel í Limassol sem býður upp á vel búnar íbúðir með upphitun og loftkælingu. Hótelið er einstaklega vel staðsett við ströndina og í stuttu göngufæri frá úrvali verslana, veitinga- og skemmtistaða. Kýpur er þriðja stærsta eyja Miðjarðarhafsins og býður upp á alls kyns spennandi afþreyingu. Limassol er lífleg og skemmtileg borg þar sem hagstætt verðlag og spennandi verslunarmöguleikar fara saman. Hátískuvarningur, gallerí og verslanir ásamt notalegum kaffihúsum og góðum veitingastöðum mynda skemmtilegt umhverfi í iðandi mannlífinu í þessari hreinlegu og öruggu borg. Á meðan dvalið er á Kýpur býður Sól stuttar en spennandi skoðunarferðir frá Kýpur til Jórdaníu, Egyptalands, Sýrlands og Líbanon. Kynningarverd AF HVERJU KÝPUR í VETUR? • Vandaðir gististaðir Sólar • Sumar allt árið • öryggi og gestrisni heimamanna • Hagstætt verðlag • Spennandi skoðunar- og skemmtiferðir • Upphitaðar og loftkældar íbúðir • Skemmtidagskrá Silfurklúbbsins • Upphitaðar sundlaugar • Rómuð fararstjórn Sólar Skelltu þér til Kýpur í vetur. Við ábyrgjumst að þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • www.sol.is tvel -heitar ferðir!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.