Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 27 DV Helgarblað Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri Hún segist trúa á samvinnu og virkjun frjðrra hugmynda frá öllum í leikhúsinu. Hún telur það ekki hlutverk leikstjórans að ráðskast með leikarana. Vil ekki ráðskast með goðsagnir - Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri talar um Emmu, Ofvitann og leikhúsið Þegar Vigdís Jakobsdóttir var að alast upp í Svíþjóð og á Isafirði var hún með ólæknandi leikhúsdellu og var sískrifandi leikrit, leikandi í leikritum í skólanum og horfði á all- ar sýningar sem hún komst í tæri við. Svo kom Ofvitinn. Ofvitinn eftir Þórberg Þórðarson, í frægri leikgerð Kjartans Ragnars- sonar, var sýndur í sjónvarpinu og Vigdís, sem þá var 13 ára gelgja á Hlíöarveginum, ákvað að verða leik- stjóri. „Ég heillaðist algerlega af Þór- bergi og þessari sýningu. Ég kunni löng stykki utanbókar og gekk um eins og Þórbergur með hendur á baki og þuldi textann. Ég las allt sem ég komst yfir eftir Þórberg og í mínum huga var Jón Hjartarson einfaldlega Þórbergur." Hitti Ofvitann aftur Vigdís tók þátt í öflugri starfsemi Litla leikklúbbsins á ísafirði á sín- um uppvaxtarárum og fékk að vera með puttana í öllum þáttum starfs- ins eins og títt er um áhugasama áhugamenn. Hún lék og smíðaði, saumaði og sminkaði, seldi miða og skrifaði leikskrár og stýrði tveimur sýningum. Svo fór hún til náms við háskól- ann í Kent á Bretlandi og lærði þar leikstjórn og leikhúsfræði. Þegar hún kom heim var eitt það fyrsta sem hún sá á íslensku leiksviði sýn- ing i Héðinshúsinu gamla sem þá var ekki orðið Loftkastalinn. Sýn- ingin hét Sögur úr Vesturbænum og þar á meðal var leikrit eftir Guð- rúnu Ásmundsdóttur sem fjallaði um fólkið sem var i Unuhúsi, þess- um fræga suðupotti menningar í Grjótaþorpinu. Vigdís kom of seint með sinn eigin púða til að sitja á eins og aðrir áhorfendur áttu að gera og settist langfremst - næstum uppi á sviðinu. Sá sem var fyrstur inn var Jón Hjartarson í hlutverki Þórbergs Þórðarsonar eins og hann var á dögum Unuhúss. Ofvitinn var mættur. Vigdís gaf ósjálfrátt frá sér niður- bælt óp. „Þetta var ein af þessum stundum í lífmu þar sem allt fær skyndilega merkingu. Hugljómun held ég að það heiti. Á þessu augnabliki rann upp fyrir mér hvað hafði beint mér á þá braut sem ég var nú komin á. Örfáum árum síðar, á einu og sama árinu, leikstýrði ég Jóni í Kaffileikhúsinu og aðstoðaði Kjart- an við Sjálfstætt fólk sem Atli samdi tónlistina við.“ Hver er vilji Emmu? Vigdís hefur starfað að ýmsum verkefnum, bæði með atvinnuleik- húsum og áhugaleikhúsum, en ný- lega lauk hún fyrsta leikstjórnar- verkefni sínu fyrir Þjóðleikhúsið, sem var uppsetningin á Vilja Emmu eftir breska leikritaskáldið David Hare. Þar segir frá átökum roskinn- ar leikkonu við Emmu dóttur sína og Dominic tengdason og í þeim átökum hverfast jafnframt ólíkar skoðanir og árekstrar tveggja ólíkra heima, leikhússins annars vegar og fjölmiðlahéimsins hins vegar. Gagn- rýnendur sögðu að leikritið ætti ekki erindi við okkur. Ertu sam- mála þessu? Emma er engin gólftuska „Mér finnst leikritið eiga mikið erindi við okkur en það er erindi sem er auðvelt að líta fram hjá og kannski er það erfitt fyrir konur að horfast í augu við að Emma er boð- beri kærleikans. Hún er alls engin gólftuska og það er fullkomlega ósanngjarnt að líta á hana sem slíka,“ segir Vigdís við blaðamann DV yfir rótsterku skógarkaffi á Kaffitári í Bankastræti. „Það er vilji Emmu, trú hennar og hugsjón sem bindur verkið sam- an. Ég tel það mikla ögrun að koma þessari fórn hennar i nafni kærleik- ans á framfæri og ef boðskapurinn um kærleikann á ekki erindi við okkar striðshrjáðu tíma þá er illa komið fyrir okkur.“ - Hinir tveir ólíku heimar leik- hússins og afþreyingariðnaðarins í sjónvarpinu takast á i þessu leikriti. Sigrar annar hinn? „Ungi leikarinn sem kemur inn í lokaatriðinu hrifst af ofsafengnum ofbeldisatriðum en sér jafnframt töfrana í því sem Esme er að gera. Ég held að við þurfum á afþrey- ingu aö halda en viljum jafnframt leikhús sem ristir dýpra og þetta tvennt getur vel þrifist hlið við hlið.“ Umræðan hálfgert prump - Ertu aö tala um muninn á „markaðsleikhúsi" og listrænu leik- húsi? „Mér fmnst sú umræða hálfgert prump og sú skipting eiginlega ekki vera til i raun og veru. Þegar sem mest var talað um þetta voru í raun- inni allir sammála en fannst sitt leikhús taka einhverju öðru fram og nýttu sér athyglina sem fékkst með því að vera ósammála en voru það ekki i raun og veru.“ - í leikritinu er mikið talað um vald fjölmiðla yfir menningarum- ræðu og leikhúsi. Hafa fjölmiðlar of mikið vald? „Það eru margir sem vinna verk sín án þess að um það sé nokkru sinni fjallað í fjölmiðlum. Þetta fólk er ósýnilegt og störf þess. Það sem er hættulegt er ef við förum að meta lífsstarf fólks og afrek eftir því hve sýnilegt það er í fjölmiðlum. Fjöl- miðlar hafa mjög mikið vald sem þeir beita á hverjum degi með vali á viðfangsefnum," segir Vigdís sem hefur setið báðum megin við borðiö í þessum efnum því hún fékkst við blaöamennsku á sumrin á námsár- unum. Vigdís segir að David Hare hafi upphaflega samið verkið með Dame Judi Dench í huga og ef til vill beri það þess nokkur merki að vera „stjörnuleikrit". Það er Kristbjörg Kjeld sem fer með aðalhlutverkið. Er byrjandi í leikstjórn ekkert hræddur við að ráðskast með goðsagnir eins og Kristbjörgu og Arnar Jónsson sem einnig leikur í verkinu? „Það er ekki hlutverk leikstjór- ans að ráðskast með leikara. Ég trúi á gildi samvinnunnar og það að beisla reynslu og hugmyndir allra sem að leiksýningu koma. Ef ég vildi ráða öllu sjálf þá væri ég í list- grein þar sem ég gæti unnið alein. Leikstjóri á ekki að hunsa hinn skapandi mátt sem býr í gáfum og hæfileikum leikaranna." Kristbjörg og Arnar eru stórkost- legir listamenn vegna þess að þau eru bæði, þrátt fyrir áratuga reynslu, enn tilbúin til að leita á ný mið og prófa sig áfram. Sama má segja um Þóru Friðriksdóttur sem ég var svo heppin að hafa í hópnum líka. Ég fann aldrei fyrir öðru en velvilja og trausti þessa reynda fólks." Ekkl sitja og bí&a - Að lokum vil ég fá að vita hver verða næstu verkefni Vigdísar og þá verður hún leyndardómsfull eins og Sobbeggi afi, því sumt er ekki tímabært að tala um, en segir mér samt frá samstarfi sínu við Mörtu Nordal leikkonu en saman hafa þær rekið leikhóp sem heitir VigMa og getur varla veriö minni. Afrakstur samvinnu þeirra hefur verið í formi listgjörninga hér og þar um borg- ina, síðast á menningarnótt 18. ágúst. „Við náum mjög vel saman; töl- um sama málið þegar leiklistin er annars vegar. Maður verður að skapa sjálfum sér verkefni. Það ger- ist ekkert ef maður situr og bíður.“ -PÁÁ Suzuki Grand Vitara V-6 bsk.Topplúga, krókur, álfelgur, upph.Skr. 10/98, ek. 49 þús. Verð kr. 1950 þús. Suzuki Baleno Wagon ssk.Skr. 6/97, ek. 56 þús, Verð kr. 940 þús. Suzuki Vitara JLX 5 dr., ssk. Álfelgur, upph. 30”-kantar. Skr. 3/97, ek. 68 þús, Verð kr. 1230 bús. Suzuki Baleno GLX 4 dr. bsk.Skr. 7/98, ek. 28 þús. Verð kr. 990 þús. Suzuki Wagon R+ 2wd 5 dr. Skr. 10/98, ek. 24 þús. Verð kr. 690 þús. Suzuki Jimny JLX bsk.Skr. 12/98, ek. 36 þús, Verð kr. 1090 þús. Subaru Forester CS bsk. Krókur, álfelgur, stuðgrind, Skr. 6/99, ek. 28 þús. Verð kr. 1950 þús. Renault Megane Berline bsk. Skr. 10/00, ek. 9 þús. Verð kr. 1490 þús. s'fÆ Nissan Sunny Wag. 4wd. Skr. 4/95, ek. 141 þús. Verð kr. 450 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---////............ SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.