Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Síða 56
Subaru Impreza FRETTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnieyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 Framsókn verður ein - semjist ekki við VG Páll Pétursson félagsmálaráðherra f segir að náist ekki samningar um sam- eiginlegt framboð vinstri grænna og R- listans muni Framsóknarflokk- urinn bjóða fram emn í Reykjavík við næstu borgar- stjómarkosningar. Páll segir að verði vinstri græn- ir einir á báti gildi hið sama um Framsókn þar sem framsóknarmenn séu ekki í neinu sér- stöku samfloti með Samfylkingunni. Hann segir reyndar að í hjörtum margra framsóknarmanna sé vinstri strengur og því höfði stefna vinstri grænna mun meira til þeirra en jafnað- armennska Samfylkingarinnar. Þetta og margt fleira um pólitiska framtíð Páls kemur fram í opinskáu við- tali hans við DV inni í blaðinu. PÁÁ Dýraklám á tónleikum: Einstaklega ógeðfellt - komið til lögfræðinga ■mm- „Við vonum að slíkur afglapa- háttur sé einsdæmi," segja stjórn- endur Borgarleikhússins í yfirlýs- ingu sem þeir sendu frá sér í gær. Þar harma þeir sýningu mynda- bands með dýraklámi á tónleikum þriggja hljómsveita í leikhúsinu sl. miðvikudagskvöld. Myndbandið var sýnt í nokkrar mínútur undir leik einnar sveitarinnar, en sýning þess stöðvuð þegar tónleikahaldari varð áskynja um hvað var að gerast. 1 yf- irlýsingunni segir að myndefnið, það er dýraklámið, hafi verið „ein- staklega ógeöfellt". Lögmenn Borgarleikhússins hafa fengið mál þetta til meðferðar, en stjórnendur leikhússins vænta þess að atvikiö verði ekki til þess að skrúfað verði fyrir að einstaklingar úti í bæ efni til uppákoma í húsinu. Til þeirra séu og ævinlega gerðar þær kröfur um siðgæði og að lands- lögum sé fylgt. -sbs Páll Pétursson. Tvö alvarleg slys: Líðan óbreytt Maðurinn sem slasaðist í bílslysi í Hveradölum á þriðjudagskvöld liggur enn á gjörgæsludeild og er líðan hans að sögn læknis óbreytt. Líðan stúlkunnar sem slasaðist á Háaleitisbraut á fostudaginn fyrir viku er einnig óbreytt. Bæði tvö eru . í öndunarvél og eru að sögn læknis á gjörgæsludeild mjög alvarlega slösuð. -aþ Töframaöurinn Liro sýnir listir sínar í Loftkastalanum Finnski töfra- og sjónhverfingamaöurinn, Liro Sappinen, sýndi töfrabrögö fyrir fullu húsi í Loftkastaianum í gærkvöld. Liro er líka ofurhugi en skemmst er aö minnast þess þegar hann hékk í logandi köölum vlö Reykjavíkurhöfn, íklæddur spennitreyju. Aðeins 5% hlutafjár í Símanum seldust: Síminn nær ekki inn á Verðbréfaþing - verðið of hátt eða tímasetningin röng, segir stjórnarmaðurinn. Verðfellt í þágu Íslandssíma, segir Össur Síminn fer ekki á Verðbréfaþing. Þetta er útkoman úr fyrri hluta hluta- fjárútboðs Símans en tilboð voru opn- uð síðdegis í gær. „Það getur bæði ver- ið að verð fyrirtækisins hafi verið of hátt eða tímasetningin röng. Margt hefur unnið gegn áhuga fjárfesta síð- ustu daga,“ sagði Friðrik Pálsson stjórnarformaður Símans, í samtali við DV í gærkvöld. „Þessi dræma þátt- taka í útboðinu er meiri háttar klúður fyrir ríkisstjórnina," segir Össur Skarp- héðinsson, formaður Samfylkingar. 5% eru seld Frá fagfjárfestum bárust alls nítján tilboð i Símann en 8 prósent af heildar- hlutafé í þessari umferð símasölunnar voru eyrnamerkt þeim. Heildamafh- verð þeirra tilboða var 152,3 milljónir en kaupverðið samanlagt í heildina 879,2 milljónir króna. Meðalgengi tilboð- anna var 5,756, sé mið tekið af því að lágmarksgengið í var 5,75. Þá buðu um 2.600 manns í hlutafé sem al- menningi og starfsfólki fyrirtækisins bauðst að kaupa. Útkoman eftir þetta er því sú að boðið hefiir verið í um 5% af heildar- hlutafé Símans. Því er ijóst að fyr- irtækið verður ekki skráð á Verð- bréfaþing íslands að sinni, en stjóm þingsins hafði gert það að skilyrði fyr- ir skráningu að minnst 15% af heildar- hlutafé væru í dreifðri eign á skrán- ingardegi. Ekki er enn ljóst hvort tvö tilbpða fagfjárfestanna verða tekin gild þar sem á til að mynda annað þeirra vantar undirskrift. „Síminn er nákvæmlega jafn sterkt fyrirtæki og það var í gær þrátt fyrir þennan dræma áhuga fjárfesta," segir Friðrik Pálsson og nefnir það til marks um styrkleika fyrirtækisins að alls hafi um 600 starfsmenn skráð sig fyrir hlut i félaginu. „Það sem mér finnst skipta meginmáli núna er að einka- væðing Símans er komin af stað og fyrirtækið er ekki lengur að öllu leyti í eigu ríkisins. Verkefhi næstu vikna og mánaða er svo að halda einkavæðingar- ferlinu áfram. Ég tel ekki að hin dæma þátttaka í útboðinu þurfi að lækka verð fyrirtækisins á sölu eignar- hluta til kjölfestufjárfesta. Þvert á móti. í útboðslýsingu kemur fram að meirihluta i stjóm fær sá fjárfestir sem kaupir fjórðungshlut í fýrirtæk- inu og það er þekkt að í viðskiptum greiða menn oft yfirverð til að ná yfir- ráðum í stjóm, eru tilbúnir fyrir þeirra hluta sakir að greiða hærra verö en almennir íjárfestar." Ekkert annaö en pólitísk spilling I samtali við DV sagði össur Skarp- héðinsson að hann teldi hina dræmu þátttöku í útboðinu mikið áfall fyrir ríkisstjómina. „Hún stafar ekki síst af því að Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingamefndar, hefur upplýst að sölu Símans í vor hafi verið frestað til að trufla ekki útboð Íslandssíma. Þróun markaðarins var þó mun hag- stæðari þá en síðan hefur orðið. Þetta er að mínu mati ekkert annað en póli- tísk spilling. Með því að hagræða fyrifi vini sína i Íslandssíma verðfelldu Holl- vinasamtök Sjálfstæðisflokksins þessa eign þjóðarinnar. Það er engu líkara en þessi ríkisstjóm sé ekki í neinum tengslum við veruleikann sem ríkir á markaðnum," segir Össur. Hann bætir og við að í sL viku hafi markaðir um allan heim hmnið vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum. Á meðan sú lægð gekk yfir hefði frestun útboðsins verið skynsamleg. „Ekki sist þar sem hægt var fresta útboði sl. vor fyrir einkavini forystu Sjálfstæðis- flokksins," segir Össur Skarphéðins- son. -sbs Friörik Pálsson. Össur Skarphéöinsson. Lokaritgerð Vilhjálms: Lagadeildin vinni eftir lögum - segir Sigurður G. - skýrar reglur fyrir stúdenta skortir „Lagadeildin þarf að vinna eftir lögum,“ segir Sigurður G. Guðjóns- son hæstaréttarlögmaður sem fer með mál Vilhjálms H. Vilhjálmsson- ar. Hann var sem kunnugt er svipt- ur titli lögfræðings frá lagadeild Há- skólans Islands vegna umdeildrar heimildanotkunar í lokaritgerð sinni. Æðstu menn við lagadeildina hafa sagt að vinnureglur um loka- ritgeröir verði væntanlega endur- skoðaöar vegna þessa máls. Um- rædd ritgerð sé undantekning og þeir minnist þess ekki að önnur sambærileg, þar sem heimildanotkun er jafn óvenjuleg, hafi áður verið samþykkt sem fullgild. „Það þarf í sjálfu sér ekkert að endurskoða vinnureglur um lokarit- gerðir, heldur þurfa menn að átta sig á þvi í hvaða lagaumhverfi háskólanem- ar eiga að starfa. Um það þurfa að vera skýrar reglur séu viðlögin ef heimilda er til Siguröur G. Guöjónsson. hver dæm- is ekki getið skýrt. Slíkar reglur eru ekki til í dag,“ segir Sigurður G'. Guðjóns- son. Hann bendir á að miðað við reglur háskólans í dag séu ekki forsendur til þess að lagadeildin geti hnekkt einkunn Vilhjálms, sem kennari hans og prófdómari hans hafa gefiö honum. Þeir hafi endanlegt vald um einkanagjöf. Sá sem standist öll próf að mati þeirra eigi kröfu á lærdómstitili. -sbs Brother merkiuélin V íAL__ Rafport nú er unnt að merkja allt á heimilinu, ktthubauka, spðlur, skðla- dðt, geisla- ðiska o.tt. ngbgiauegl 14 • sfmi 554 4443 • if.ls/rafport Útiljós Rafkaup Armúla 24 • S. 585 2800 i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.