Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Blaðsíða 26
42 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára______________________________ Indiana Guövaröardóttir, Sólvangi, Hafnarfiröi. 80 ára______________________________ Guömundur Jónasson, Skúlagötu 40, Reykjavík. Jón Helgason, Hlíöarvegi 39, Kópavogi. Ósk Ásgrímsdóttir, Geröavegi 3, Garði. Steinunn Guöbjörnsdóttir, Sogavegi 104, Reykjavík. Valdimar Ottósson, Dalbraut 46, Bíldudal. 75 ára______________________________ ísleifur Sumarliöason, Bjarkarholti 2, Mosfellsbæ. Jakob Ágústsson, Aðalgötu 25, Ólafsfirði. Jórunn Siguröardóttir, Gilstúni 17, Sauðárkróki. Margrét Vilmundardóttir, Mófellsstöðum, Borg. Torfhildur Jóhannesdóttir, Torfnesi, Hlíf 1, Isafirði. Þorbergur Jónsson, Skeggjastöðum 1, Egilsstööum. 60 ára______________________________ Birgir Jónsson, Sjávarflöt 3, Stykkishólmi. Sigurjón Þórarinsson, Keilugranda 10, Reykjavík. 50 ára______________________________ Ásthildur Davíösdóttir, Barrholti 13, Mosfellsbæ. Ragnheiöur Blandon, Furugrund 54, Kópavogi. Ragnhildur Þórðardóttir, Merkjalæk, Blönduósi. Sigrún Haröardóttir, Ennishlíð 3, Snæfellsbæ. Þóra Ólafsdóttir, Þrastarlundi 5, Garðabæ. 40 ára______________________________ Friörik Þór Friðriksson, Hjallagötu 12, Sandgeröi. Guörún Margrét Jóhannesdóttir, Baldursgötu 24, Reykjavík. Helgi Magnússon, Bugðulæk 15, Reykjavík. Höskuldur R. Höskuldsson, Borgarbraut 2, Grundarfirði. íris Hlíökvist Bjarnadóttir, Gunnlaugsgötu 6a, Borgarnesi. Jón Ingimar Jónsson, Garöhúsum 53, Reykjavík. Jónína Elr Hauksdóttir, Fornhaga 24, Reykjavík. Kristín Anna Alfreösdóttir, Smiöjustíg 10, Grundarfirði. Margrét Högnadóttir, Hlíöarvegi 38, ísafirði. Rommanee Chaemlek, Aðalgötu 10, Suðureyri. Sigrún Arnórsdóttir, Uppsalavegi 2, Húsavík. Sigurjón Kristlnsson, Leirdal 16, Vogum. 7 JJrval -gottíbátinn Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Svorrír Einarsoon Bryndía útfararstjóri Vaibjamardóttir útfararstjóri Útfararstofa íslands Suöurhlíö35* Sfmi 581 3300 allan sólarhrlnglnn. www.Utforin.ÍS I>V imEmssmmm Viðar Eggertsson leikstjori Viðar Eggertsson, leikari og leik- stjóri, hefur leikstýrt þremur verk- um sem eru á fjölunum nú í haust. Það eru Öndvegiskonur í Borgar- leikhúsinu; Laufm i Toscana í Þjóð- leikhúsinu, og Túskildingsóperan í Nemendaleikhúsinu. Þetta kom fram í viðtali við Viðar sem birtist í DV sl. fostudag. Starfsferill Viðar fæddist i Reykjavík og ólst þar upp og í Ytri-Njarðvík en flutti þrettán ára til Akureyrar þar sem hann átti heima unglingsárin. Hann • stundaði nám við leiklistarskóla SÁL 1972-75 og lauk því námi við Leiklistarskóla íslands 1976. Hann var þátttakandi í alþjóðlegri leiksmiðju á vegum UNESCO 1977, fulltrúi íslands í leiksmiðju Alþjóð- legu leikhússtofnunarinnar 1989 og starfaði í norrænni leiksmiðju á Grænlandi 1992. Viðar hefur leikið hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Leikfé- lagi Reykjavíkur, Alþýðuleikhúsinu og ýmsum atvinnuleikhópum en alls hefur hann leikið í um tæplega sjötíu leikritum á sviði. Hann var fastráðinn við LA 1978-80, stofnaði EGG-leikhúsið 1981 og hefur starf- rækt það síðan með öðrum verkefn- um og verið boðið með ýmsar sýn- ingar þess víða um heim, var fast- ráðinn við Þjóðleikhúsið 1986-87, hefur leikið í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum, var fastráðinn dag- skrárgerðarmaður hjá RÚV 1991-92, var Leikhússtjóri Leikfélags Akur- eyar 1993-96, leikhússtjóri Leikfé- lags Reykjavíkur 1996, starfaði síð- an sem leikari og leikstjóri, hér heima og erlendis, en hann lék t.d. Drakúla í samnefndu verki í leik- húsi í Dublin 1997. Viðar hefur sett á svið samtals á fimmta tug leikrita. Af verkum sem hann hefur leikstýrt á síðustu árum má nefna Sannar sögur af sálarlífi systra þar sem hann gerði einnig leikgerð upp úr verkum Guðbergs Bergssonar; KafTi, eftir Bjarna Jóns- son; Hægan Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín og Bróðir minn Ljónshjarta en öll þessi verk voru sýnd í Þjóð- leikhúsinu. Auk þess má nefna Tobacco Road, sýnt hjá LA, Franke og Johnny, hjá LÍ í Iðnó, og Krabbasvalirnar, hjá leikhópnum Grímu í Færeyjum. Viðar hefur átt sæti í stjórn Fé- lags íslenskra leikara, Bandalags is- lenskra listamanna, Friðarsamtaka listamanna, Kjarvalsstaða, setið í leikhúsráði LA, í stjórn Alþýðuleik- hússins, í Þjóðleikhúsráði og í stjórn íslenska dansflokksins. Hann var varaformaður leiklistarráðs, varformaður Félags leikstjóra á ís- landi og formaður þess 1991-92. Þá sat hann í prófnefnd Félags ís- lenskra leikara. Hann er nú ritari í stjórn Félags leikstjóra á íslandi, ritari í stjórn Leiklistarsambands tslands og full- trúi íslands í stjórn Norðurlanda- hússins í Færeyjum. Viðar hlaut starfslaun lista- manna 1984, 1986 og 1992 og menn- ingarverðlaun DV 1995. Fjölskylda Tvíburasystir Viðars er Urður Björk, f. 18.6. 1954, verkakona á Ak- ureyri. Hálfsystkini Viðars eru Stefán Rafn Valtýsson, f. 18.12. 1943, sjó- maður i Sandgerði; Hafsteinn Egg- ertsson, f. 21.9. 1956, húsasmiða- meistari í Hafnarfirði; Guðbjörg Eggertsdóttir, f. 15.12. 1959, við- skiptafræðingur í Reykjavík. Foreldrar Viðars: Eggert Eggerts- son, f. 5.9. 1926, vélstjóri í Reykja- vík, og Hulda Kristinsdóttir, f. 26.8. 1921, verkakona á Akureyri. Stjúpfaðir Viðars er Aðalsteinn Kristjánsson, f. 12.11. 1915, lengi bóndi að Gásum í Eyjafirði, síðar verkamaður á Akureyri. Ætt Eggert er sonur Eggerts vélstjóra, bróður Guðlaugs, afa Úlfars Þor- móðssonar. Annar bróðir Eggerts var Bjami, afi Sveins Eyjólfssonar, útgáfustjóra DV, fóður Eyjólfs, framkvæmdastjóra Frjálsrar fjöl- miðlunar. Eggert var sonur Bjarna, b. á Björgum á Skagaströnd, bróður Önnu, móður Guðmundar J. Hlíð- dal, póst- og símamálastjóra. Bjami var sonur Guðlaugs, b. á Tjörn í Nesjum, Guölaugssonar, bróður Guðlaugs, langafa Þorsteins Gísla- sonar, prófasts í Steinnesi, fóður Guðmundar, pr. i Árbæjarsókn. Móðir Eggerts Bjarnasonar var Guðrún Anna Eiriksdóttir, b. á Hól- um í Fljótum, Eiríkssonar, og Krist- ínar Guðmundsdóttur, b. á Heiðar- seli í Gönguskörðum, Jónssonar. Móðir Eggerts Eggertssonar var Ólafla Þóra Jónsdóttir, tómthús- manns í Reykjavík, Hinrikssonar, og Karitasar Ólafsdóttur. Hulda er dóttir Kristins, sjó- manns í Glerárþorpi, Sigurðssonar, b. á Helgafelli í Svarfaðardal, Guð- mundssonar. Móðir Kristins var Soffia Pálsdóttir, b. í Syðraholti, Jónssonar og Guðrúnar Sigfúsdótt- ur. Móðir Huldu var Sigrún, hálfsyst- ir Eiríks Hjartarsonar, raffræðings og kaupmanns í Reykjavík, afa Sig- urðar Örlygssonar listmálara. Sig- rún var dóttir Hjartar, b. á Uppsöl- um í Svarfaðardal, Guðmundsson- ar, hreppstjóra í Grímsey, Jónsson- ar, hreppstjóra þar, Jónssonar. Móðir Sigrúnar var Stefanía Stef- ánsdóttir, b. á Hrappsstöðum, Stef- ánssonar og Ingibjargar Eiriksdótt- ur, b. í Pálsgerði, Sveinssonar. Móð- ir Ingibjargar var Ólafía Loftsdóttir, systir Hákarla-Jörundar, en meðal afkomenda hans eru leikararnir Gestur Pálsson, Bríet Héðinsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Sextugur Árni Ingi Guöjónsson vélvirki í Hafnarfiröi Ámi Ingi Guðjónsson vélvirki, Arnarhrauni 31, Hafnarfirði, er sex- tugur í dag. Starfsferill Árni er fæddur í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann gekk í Barna- skóla Hafnarfjarðar og tók gagn- fræðapróf frá Flensborgar- skólanum. Árni stundaði nám við Iðnskólann i Hafnarfirði, lauk vél- virkjaprófi þaðan 1962 en verklegt nám í vélvirkjun stundaði hann í Vélsmiðju Hafnarfjaröar. Ámi starfaði í Vélsmiðju Hafnar- flarðar allt til 1972. Hann hóf þá störf hjá ísal í Straumsvik og hefur starfað þar síðan. Árni lék handknattleik með meistaraflokki Fimleikafélags Hafn- arfjaröar, FH, í yfir fimmtán ár og varð margfaldur íslands- og bikar- meistari með liðinu. Hann tekur enn virkan þátt í ýmsum störfum fé- lagsins. Fjölskylda Ámi kvæntist 15.6. 1963 Lilju Guðjónsdóttur, f. 19.10. 1944, sjúkra- liða. Foreldrar Lilju: Guðjón Ingólfs- son, fyrrv. fiskmatsmaður, og Aðal- heiður Frímannsdóttir gæslukona en þau fluttu frá Skagaströnd til Hafnarfjarðar 1952. Synir Árna og Lilju: Guðjón, f. 5.2. 1963, iðnrekstrarfræðingur, maki Hafdís Stefánsdóttir banka- starfsmaður, þau eiga tvö böm, Árna Stefán og Hildi Rún; Magnús, f. 24.2. 1964, bankastarfsmaöur, maki Ragnheiður E. Ásmundsdóttir kennari, þau eiga fjögur böm, Lilju Björg, Arnar Helga, Ásdísi Ingu og Magnús Fannar; Jónas, f. 1.8. 1969, slökkviliðsmaöur og húsasmiður, maki Berglind Adda Halldórsdóttir snyrtifræðingur, þau eiga einn son, Halldór Inga. Systkini Áma: Guðjón Rúnar, f. 19.5. 1940, d. 1978, flugmaður en hans kona var Sigriöur Alexanders- Merkir Islendingar Elínborg Lárusdóttir rithöfundur fæddist á Tunguhálsi í Lýtingsstaðahreppi í Skaga- firði 12. nóvember 1891. Hún var dóttir Lárusar Þorsteinssonar, bónda þar, og k.h., Þóreyjar Bjarnadóttur, bónda á Hofi, Hannessonar, prests og skálds á Ríp, Bjarnasonar. Elínborg stundaði nám við Kvenna- skólann á Blönduósi, Hússtjórnarskól- ann á Akureyri og Kennaraskólann. Hún giftist Ingimar Jónssyni sem var prestur að Mosfelli í Grímsnesi 1922-1928 og síðan skólastjóri Ung- mennaskóla Reykjavíkur frá stofnun 1928 en sá skóli nefndist Gagnfræðaskóli Reykjavíkur frá 1930 og Gagnfræðaskóli Austurbæjar frá 1949. Elínborg Lárusdóttir Elínborg var afkastamikill rithöfundur og býsna mikið lesin á fjórða, fimmta og sjötta áratugnum. Hún samdi jöfnum höndum skáldsögur, smásögur, ævisögur og þætti. Meðal ritverka hennar eru Sög- ur, 1935; Anna frá Heiðarkoti, 1936; Gróður, 1937; Förumenn, 1939-1940; Frá liðnum árum, 1941; Strandar- kirkja, 1943; Úr dagbók miðilsins, 1944; Hvíta höllin, 1944; Símon í Norðurhlíð, 1945; Miðillinn Hafsteinn Björnsson, 1946; Gömul blöð, 1947; Steingerður, 1947; Tvennir tímar, 1949; I faðmi sveit- anna, 1950; Miðillinn Hafsteinn Bjöms- son, II. 1952; Merkar konur, 1954; Forspár og fyrirbæri, 1957; Leikur örlaganna, 1958, og Horfnar kynslóðir. Elínborg lést 1973. dóttir og eignuðust þau þrjú þöm; Auður, f. 2.5. 1943, verslunarmaður en maður hennar er Guðbjartur Þormóðsson og eiga þau tvö böm. Foreldrar Árna voru Guöjón Ámason, f. 22.2. 1909, d. 1990, vél- stjóri, og Magnúsína Katrín Guð- jónsdóttir, f. 21.6. 1912, d. 1974. Þau bjuggu í Hafnarfirði. Ætt Guðjón var sonur Árna Jónatans- sonar og Ingibjargar Cýrusdóttur frá Hellissandi. Magnúsína var dótt- ir Guðjóns Magnússonar, skósmiðs í Hafnarfirði, og Guðrúnar Einars- dóttur. Árni tekur á móti ættingjum og vinum fóstudaginn 16. nóvember í Félagsmiðstöð FH í Kaplakrika kl. 20.00-23.00. Allt til alls ►I550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.