Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Page 2
2 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 Fréttir DV Stefnt að því að selja Landssímann fyrir áramótin: Pirringur og tortryggni - stjórnarformaður Landssímans kveðst ekki sjálfur vera í forstjórahugleiðingum Friðrik Pálsson, stjórnarformaöur Landssímans. Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Landssímans, segir að stefnt sé að því að ljúka við sölu á 25% eignarhlut í fyr- irtækinU fyrir áramót. Einkavæðingar- nefnd stendur nú í viðræðum við þá tvo kjöfestufjár- festa sem skiluðu inn bindandi til- boðum í fyrirtækið en þeir eru Tele- Danmark og banda- riski fjárfestingar- sjóðurinn Providence, sem m.a. er stærsti hluthafinn í Eircom á írlandi. Það mun síðan koma í hlut nýrrar stjómar, þar sem nýir eigendur verða í meirihluta, að ráða nýjan for- stjóra til fyrirtækisins í stað Þórarins V. Þórarinssonar sem nú er verið að gera starfslokasamning við. Ljúka málinu strax Það vekur athygli að starfslok Þórar- ins ber að svo skömmu áður en nýir eigendur koma inn í fyrir- tækið og hafa menn spurt að því hvort ekki hafi verið eðlilegra að bíða og láta þá bæði ákveða hvort nýr forstjóri verði ráðinn og svo væri að nýir aðilar myndu sjá um að gera starfslokasamninginn við Þórarin. Ágreiningurinn og meintur trúnaðar- brestur hafi enda verið milli Þórarins og þeirra sem eru að selja en ekki milli Þórarins og þeirra sem eru að kaupa. Spurður um þetta segir Friðrik Pálsson að PriceWaterhouseCoopers í London, sem sé sá sérfræðiaðili sem hafi með sölu á hlut ríkisins að gera, hafl ráðlagt að svona skyldi staðið að málum og að eðlilegt væri aö ljúka þessu máli strax, áður en salan væri frágengin. Ósk um misnotkun?! Talsverð umræða hefur spunnist vegna starfsloka Þórarins og þær ástæður sem að baki henni liggja. Þór- arinn V. hefur upplýst að þessi ákvörð- un hafi komið honum á óvart og i ljós- vakamiðlum í gær spyr Þórarinn hvort skilja megi ummæli Friðriks Pálssonar í Ríkisútvarpinu í gærmorgun þannig aö hann hafi brugðist trúnaði við Landssimann með því að misnota ekki aðstöðu sína sem stjómarmaður í Þró- unarfélaginu og Lífeyrissjóðnum Fram- sýn með þvi að láta þessi fyrirtæki kaupa hlut í Landssímanum? Vildi Friðrik að Þórarinn misnotaði sér aðstöðu sína í Þróunarfélaginu og Framsýn? „Það hefur nú komið upp einhver grundvallarmis- skilningur varðandi þessi ummæli mín. Það sem ég var að segja var að eitt af því sem hafi valdið pirringi eða tortryggni hafi verið það að lífeyrissjóðirnir skyldu ekkert kaupa og það að Þórarinn var tengdur bæði Framsýn og Þróunarfélaginu hafi kynt undir þá tortryggni. Ég er ekki með þessu að gagnrýna Þórarin fyrir að misnota ekki aðstöðu sína í þessum félögum enda væri það aldeilis út í „Hróa hött“ - það datt aldrei nokkrum i hug - hann átti ekki að koma nærri þessu.“ Partur af tortryggni - Geturðu útskýrt þetta nánar? „Ég er að vísa til þess að Þórarinn sagði sig ekki úr stjórnum þessara fé- laga, eins og talað hafði verið um að hann gerði, heldur sagði hann sig ein- ungis tímabundið frá stjómarstörfum, eins og hann kallaði það. Þegar það svo kemur upp á sama tíma að hvorugt þessara félaga tók þátt í að kaupa nokkum skapaðan hlut þá verður það einfaldlega partur af þeirri tortryggni sem kom upp í kringum þetta mál í beinu framhaldi af því að hann hafði farið fram opinberlega og krítíserað að- ferðafræðina. En það er alls ekki þannig að ég hafi verið að gera því skóna að menn hafi ætlast til að hann notaði aðstöðu sina í þessum fyrirtækj- um. Þá hefðu menn bara einfaldlega beðið hann um að ganga í að láta þessi félög kaupa, ef ætlunin hefði verið að hann misnotaði aðstöðu sína.“ Þegar Friðrik talar um gagnrýni Þórarins á aðferðafræöina er hann að vísa til þess að Þórarinn hafði opinber- lega dregið í efa að þetta væri rétti tím- inn til að selja Landssimann og að hugsanlega væm bréfm í fyrirtækinu verðlögð of hátt. Ekki flókið mál - En voru þaö þá einhver fleiri atriði en þetta sem leiddu til ákvörðunarinn- ar um starfslok Þórarins? „Já, en ég vil í sjálfu sér ekkert vera að tala mikið meira um það. Þetta er í sjálfu sér ekki flókið mál. Ef eigandi í fyrirtæki vill ekki einhverra hluta vegna lengur nýta sér starfskrafta manns, sem er hjá honum í vinnu, þá er það alveg nóg ástæða. í þessu tilfelli kom upp ákveðinn pirringur og tor- tryggni gagnvart Þórami og fyrir því vom kannski ekki stórkostlegar ástæð- ur, en það var hins vegar nóg til þess að það var ekki áhugi á að nýta hans starfskrafta lengur." - Það hefur vakið nokkra athygli að þegar Þórarinn fór í fríið þann 10. októ- ber sögðu bæði þú og fleiri að ömggt væri að Þórarinn myndi snúa aftur. Þessi pirringur hefur væntanlega kom- ið upp fljótlega eftir það. Ekki í forstjórahugleiðingum Hefur ákvörðunin um starfslok legið fyrir í langan tíma? „Nei, það er ekki hægt að segja að þetta hafi legið fyrir í langan tíma, enda er ekki neitt eitt sérstakt atvik sem verður til þess að þessi ákvörðun er tekin. Það að Þórarinn fer í frí er ákvörðun sem er tekin af heilum hug af öllum aðilum, en svo líða vikurnar og ýmsir hlutir gerjast á þeim tíma. Þegar síðan fer að líða að því að salan er að ganga upp, þá er þetta orðið sameigin- leg afstaða allra hlutaðeigandi aðila, að heppilegast væri að þarna yrðu starfs- slit.“ - Hafði tímasetning þessara starfs- loka hugsanlega eitthvað með það að gera að menn vOdu ekki mgga bátnum á meðan frestur til að skila inn bind- andi tilboðum var ekki runninn út? „Það eina sem hafði áhrif á þessa tímasetningu nú var það, að fyrir því var gert ráð í samningum við Þórarin í haust að hann kæmi til baka þegar búið væri að ákveða við hvem yrði samið. Sú tímasetning getur verið að renna upp og menn vildu að þetta væri afstaðið þá.“ - Hávær orðrómur er uppi um það að þú sért kandídat í nýjan forstjóra. Er það rétt? „Nei.“ - Ekkert til í því? „Ekki af minni hálfu, nei.“ Birgir Guömundsson fréttastjóri Fréttaviðtalið Þórarinn V. Þórarinsson. Bolungarvík: Hommar barðir eftir ball - lögregla sinnti ekki hjálparbeiðni - Annríki, segir sýslumaður Sjóvá-Almennar: Yfirtaka báta- tryggingar Sjóvá-Almennar tryggingar hf. yfir- tóku á síðasta hausti tryggingastofn Bátatryggingar Breiðafjarðar. Ákvörð- unin var tekin eftir að félagið var orð- ið eitt eftir af starfandi bátatryggingafé- lögum á landinu. Áður hafði Vélbáta- tryggingafélagið Grótta selt Sjóvá-Al- mennum tryggingum hf. tryggingar- stofn sinn. Er nú lokið 63 ára farsælu starfi Bátatryggingar Breiðafjarðar. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hafa nú sameinað umboð sitt í Stykkishólmi bátatryggingastarfseminni frá 1. des- ember sl. og verður þjónusta félagsins að Smiðjustíg 3, efri hæð. Umboðsmað- ur er Gissur Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Bátatrygginga Breiða- fjarðar síðan 1975. -DVÓ/ÓJ Tveir ungir samkynhneigðir menn í Bolungarvík voru barðir illilega aðfara- nótt sl. súnnudags. Þeir hafa kært at- hæfið tO lögreglu, en eru jafnframt mjög ósáttir við að lögregla hafi ekki veitt þeim liðveislu. „Ég tel að lögregl- an hafi alls ekki unnið sitt starf,“ sagði annar mannanna, í samtali við DV í gærdag. Málavextir voru þeir að eftir dans- leikinn í Bolungarvík kom tO átaka. Fyrst að baki samkomuhúsinu, eri síð- an fyrir framan það. Lögregla kom og skakkaði leikinn. „Síðan fóru ég og vin- ur minn heim, en hann var Ola meidd- ur og gat varla gengið. Þrisvar sinnum hringdi ég í lögregluna og bað um Frá Bolungarvík hjálp, en þeir sögðu mér að láta ekki svona. Við skyldum bara fara heim að sofa. Ég veit tO þess aö um nóttina fóru árásarmennirnir að íbúð þar sem ég og vinur minn bjuggum áður og smölluðu þar rúðu í útidyrahurðinni," sagði ungi maðurinn þegar hann lýsti atburða- rásinni i samtali við DV. Hann segist óttast að dræm viðbrögð lögreglumann- anna væru hugsanlega vegna meintra fordóma þeirra gagnvart samkyn- hneigðum. Félagamir hafa rætt við sýslumanninn í Bolungarvik, Jónas Guðmundsson, og íhuga að kæra vinnu- brögð lögreglunnar tO Rflússaksóknara. Sýslumaður í Bolungarvík staðfesti við DV í gær að mál þetta væri kom- ið inn á sitt borð. Hann telur vinnu- brögð lögreglunnar í þessu máli ekki tengjast kynhneigð mannanna tveggja á nokkurn hátt. „Það var mikið að gera hjá lögreglunni þessa nótt og þess vegna lenti þetta mál aftar í for- gangsröðinni," sagði Jónas Guð- mundsson. -sbs Alþingismenn í jólaleyfi Davíð Oddsson forsætisráðherra las síðdegis upp forsetabréf um frestun þingfunda Alþingis til 22. jan- úar. Halldór Blön- dal, forseti Alþing- is, hafði áður óskað þingmönnum gleðilegra jóla. Tutt- ugu og þrenn lög voru afgreidd á tveimur síðustu starfsdögunum fyrir jól, þar á meðal ráðstafanir í ríkisíjármálum sem ætlað er að afla ríkissjóði tekna upp á um einn milljarð króna. Skatttekjur aukast Skatttekjur Fjarðabyggðar verðaá næsta ári 839,0 milljónir króna og alls 88,2% af skatttekjum fara í rekstur málaflokka, skv. fjár- hagsáætlun sem er til umfjöllunar. Tekjur aukast um 10% milli ára. Meðal helstu fjárfestinga verða við- byggingar við grunnskólana á Eskifirði og Neskaupstað. Óvissa um viðgerð á Núpi Tilboð í viðgerð á línuskipinu Núpi BA verða opnuð 18. desember nk. en það skemmdist mikið þegar það strandaði skammt fyrir utan höfnina á Patreksfirði. Ekki er víst að það svari kostnaði að gera við skipið. - InterSeafood.com greindi frá. Vilja áhugamannahnefaleika Meirihluti menntamálanefndar Alþingis leggur til að frumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi þrjú ár í röð, um að leyfa ólympíska hnefaleika, verði sam- þykkt, með þeirri breytingu að í stað þess að talað sé um ólympíska hnefaleika verði talað um áhuga- mannahnefaleika. Þrjár guilplötur Samband hljóm- plötuframleiðenda mun i dag afhenda þrjár gullplötur sem miðast við 5000 seldar plötur. Þeir sem fá gull- plötuna eru Sálin hans Jóns míns og Jóhanna Guðrún fyrir plöturnar Logandi ljós og Ég sjálf - og Álfta- gerðisbræður fá gullplötuna fyrir Álftirnar kvaka. Fræðslusetur opnað Flugleiðir opnuðu í gær fræðslusetur að Suðurlandsbraut 12. Þar verður miðstöð umfangs- mikillar starfsþjálfunar og kennslustarfsemi fyrir starfsfólk félagsins. Þetta nýja húsnæði skiptist i sjö kennslustofur, auk tækjasalar þar sem kennd er með- ferð björgunarbáta. Löggur brautskráðar Alls 39 nemendur, þar af 6 konur, voru braut- skráðar frá Lögregluskóla ríkisins í gær. Baráttan gegn hryðjuverkum og friðargæsla eru góð dæmi um aukið mikilvægi lög- gæslunnar á okkar timum. Því þarf úrvalsstarfslið, sagði dóms- málaráðherra í ávarpi við braut- skráninguna. Dæmd fyrir þjófnað Tæplega fertug kona á ísafirði var í Héraðsdómi Vestfjarða i dag dæmd til greiðslu 80 þúsund króna sektar og sviptingar öku- réttar í tvö ár. Konan var fundin sek umferðarlagabrot, þjófnað og tilraun til þjófnaðar. - BB greindi frá -sbs/Hkr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.