Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Blaðsíða 8
8
Utlönd
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno Wagon 4x4
Skr. 5/98, ek. 51 þús.
Verð kr. 1050 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4
Skr. 7/98, ek. 85 þús.
Verð kr. 960 þús.
Suzuki Jimny JLX 4x4
Skr. 6/00, ek. 28 þús.
Verð kr. 1290 þús.
Suzuki Jimny JLX 4x4
Skr. 5/99, ek. 47 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Vítara JLX, ssk.
Skr. 9/95, ek. 105 þús.
Verð kr. 990 þús.
Suzuki Vitara JLX, bsk.
Skr. 5/97, ek. 115 þús.
Verð kr. 990 þús.
Daihatsu Terios SX 4x4
Skr. 10/98, ek. 35 þús.
Verð kr. 990 þús.
Daihatsu Terios SX 4x4
Skr. 5/99, ek. 53 þús.
Verð kr. 990 þús.
Subaru Impreza 2,0 4x4
Skr. 11/99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1580 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---✓//✓—......
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100
Peres gagnrýnir forsætisráðherra sinn í blaðaviðtali:
Hryllir við sumum hern-
aðaraðgerðum Sharons
Shimon Peres, utanríkisráðherra
tsraels, gegnrýnir Ariel Sharon, for-
sætisráðherra landsins fyrir þá
ákvörðun ríkistjórnarinnar að hætta
öllum samskiptum við Yasser Arafat
og palestínsk yfirvöld. Þetta kemur
fram í viðtali við Peres í ísraelska
dagblaðinu Yedioth Ahronoth þar sem
hann segir að þrátt fyrir að klippt hafi
verið á samskiptin telji hann Arafat
ekki dauðan úr öllum æðum. „Aftur á
móti tel ég að þetta muni styrkja
stöðu Arafats meðal palestínsku þjöð-
arinnar og einnig meðal nágranna-
þjóðanna. Ég tel einnig aö þetta muni
auka samúö Evrópuþjóða með Palest-
ínumönnum," sagði Peres og bætti við
að hann hryllti við sumum hernaðar-
aðgerum Sharons að undanfömu, án
þess þó að nefna þar neitt sérstakt.
„Ég er ýmsu vanur og sit því bara
og bíð átekta. Ef Sharon tekst að
binda enda á sjálfsmorösárásirnar
með háttalagi sínu, þá verð ég fyrstur
til að viðurkenna að ég hafði rangt
fyrir mér,“ segir Peres, sem viður-
Yasser Arafat
Shimon Peres segir aö aögeröir Shar-
ons muni styrkja stööu Arafats.
kennir þó að Arafat hafi mistekist
hrapallega við að binda enda á sjálfs-
morðsárásirnar. „Hann er nú að
gjalda mistakanna og hefur fengið
skömm í hattinn frá Bandaríkjamönn-
um. En hvað gerist ef við fælum hann
í burtu? Þá fyrst fáum við að sjá
vandamál," segir Peres.
ísraesk stjórnvöld hafa lýst því yfir
að þau muni halda áfram að elta uppi
palestínska hryðjuverkamenn og segj-
ast þegar hafa haft hendur í hári
fjölda þeirra, þar af átján í fyrrinótt.
í gær héldu ísraelsmenn áfram
hemaðaraðgerðum á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu og h'afa þær ekki
verið harðari í langan tíma. Óstað-
festar fréttir herma að að minnsta
kosti átta Palestínumenn hafi látið lif-
ið og fjöldi annarra slasast. Fimm
hinna látnu vom lögreglumenn frá
bænum Salfit í nágrenni Nablus og sá
sjötti eftirlýstur hryðjuverkamaður af
dauðalista ísraelsmanna. í bænum
Assiya vom þrettán Palestínumenn
umkringdir og skutu ísraelsmenn tvo
þeirra þegar þeir reyndu að flýja. í
bænum Dura voru tólf menn hand-
teknir, þar á meðal faðir og sjö synir.
Á sama tíma héldu skriðdrekasveitir
inn í flóttamannabúðir á Gaza-svæð-
inu, þar sem tíu heimili og ein verk-
smiðja vom lögð í rúst.
Hörðustu aðgerðir ísraela í langan tíma
Aögeröir ísraelska hersins gegn palestínskum borgurum í gær eru þær höröustu í langan tíma. Á myndinni hér aö of-
an sjáum viö ísraelskan hermann handtaka palestínskan íbúa borgarinnar Hebron á Vesturbakkanum.
Bin Laden-myndbandið
fær misjöfn viðbrögð
Viðbrögð við myndbandsupptök-
unni sem sýnir Osama bin Laden og
nána samstarfsmenn hans skemmta
sér yfir afleiðingum hryðjuverka-
árásanna í Bandaríkjunum þann 11.
september sl. hafa verið æði misjöfn,
en þó á einn veg hjá forystumönnum
helstu samstarfsþjóða Bandarikjanna,
sem allir telja upptökuna sanna að
bin Laden beri ábyrgð á árásunum og
dauða þeirra rúmlega 3000 manna
sem fórast.
Viðbrögð í arabaheiminum eru þó
misjöfn og fullyrða margir meðal al-
mennings að um hreina fólsun sé að
ræða og aðeins um leiksýningu að
ræða sem Bandaríkjamenn hafi sett á
sviö til að bæta ímynd sína og rétt-
læta árásir á saklaust fólk. Sumir
halda því fram að viðbrögð bin
Ladens hljóti að hafa verið mistúlkuð,
enda um mjög léleg hljóð- og mynd-
gæði að ræða.
Sérfræðingar í arabisku, sem
bandarísk stjórnvöld fengu til að
hlusta á upptökuna, hafa staðfest að
þýðing textans sé rétt og höföu ekkert
Osama bin Laden
Margir í arabaheiminum telja mynd-
bandiö falsaö.
við hana að athuga. Samt era margir
vantrúaðir á að þarna sé raunvera-
lega um bin Laden að ræða og þar á
meðal er fyrrum utanrikisráðherra
talibanastjórnarinnar í Afganistan,
sem segist efast um að bin Laden sé
svo vitlaus að láta svona nokkuð út úr
sér á myndbandsupptöku.
Stjómvöld í Pakistan segja upptök-
una sanna að þau hafi tekið rétta
ákvörðun um að styðja baráttu banda-
riskra stjómvalda í baráttunni gegn
hryðjuverkum og hernaðaraðgerðir
þeirra í Afganistan.
Labib Kamhawi, þekktur jórdansk-
ur stjómmálaskýrandi, sagði að þó
upptakan væri ófölsuð þá sannaði
hún ekki að bin Laden bæri ábyrgð á
hryðjuverkunumn þó hann hafi lofað
þær.
Éinn helsti leiðtogi araba búsettra í
Bretlandi, sem ekki vildi láta nafns
síns getið, sagðist viss um að upptök-
urnar væru ófalsaðar, en taldi þó að
þær myndu frekar auka stuðninginn
við bin Laden meðal araba sem er í
nöp við Bandaríkin. „Ummæli hans
sýna að hann hefur styrk og þor og
það vigtar mikið hjá þessu fólki,“
sagði talsmaðurinn og bætti við að
ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs
væri mun ofar í hugum araba þessa
dagana.
Hizbollah í startholunum?
Jerúsalemdagur líbanskra Hiz-
bollah-skæruliða var haldinn hátíð-
legur í Beirút í Líbanon í gær og í til-
efni dagsins var efnt til skrúðgöngu
fyrir börnin. Sheikh Hassan
Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-hreyfing-
arinnar í Líbanon, notaði tækifærið
til að hvetja palestínska sjálfs-
morðsliða til dáða um leið og hann
boðaði frekari þátttöku samtaka sinna
í baráttunni gegn ísraelsmönnum.
Kúariða í Austurríki
Heilbrigðisyfirvöld í Austurríki til-
kynntu í gær að kúariðutilfelli hefði í
fyrsta skipti greinst í landinu. Það
sama gerðist í Finnlandi í síðustu
viku og er Svíþjóð því eina landið inn-
an Evrópusambandsins, þar sem sjúk-
dómurinn hefur ekki greinst.
Hamas heitir hefndum
Hinn herskái arm-
ur palestínsku Ham-
as-samtakanna hefur
hótað Ariel Sharon,
forsætisráðherra ísra-
els, að drápanna á
mönnunum sex í gær-
morgun verði hefnt
grimmilega. „í hvert
skipti sem Sharon drepur munum við
grípa til aðgerða í Jerúsalem eða öðr-
um borgurn," sagði Khaled Meshaal,
pólitískur leiðtogi Hamas-samtakanna
sem ekki viðurkenna tilvist ísraels-
ríkis. Þetta kom fram í ræðu sem Mes-
hall hélt á mótmælafundi í Damaskus,
höfuðborg Sýrlands, í gær.
Ný friðargæslusveit ESB
Fundur leiðtoga Evrópusambands-
ríkjanna samþykkti samhljóða í gær
sameiginlega þátttöku ríkjanna við
hugsanleg friðargæslustörf í Afganist-
an á vegum SÞ og er þetta í fyrsta
skipti sem ESB-ríkin munu fylkja
sameiginlegu herliði.
njósnarar
Bandarískur dóm-
stóll í Flórída hefur
dæmt tvo meðlimi
kúbversks njósna-
hrings til lífstíðar-
fangelsins með dags
millibili og bíða þrír
aðrir félagar þeirra
dóms næstu daga. Sá
sem fyrst var dæmdur var forsprakki
hópsins, en sá sem dæmdur var í gær
var gómaður þegar hann reyndi að
smjúga inn á bandaríska herstöð í
sumar. Kastró Kúbuforseti hefur
gagnrýnt dóminn og segir að menn-
irnir hafi ekki á neinn hátt ógnað ör-
yggi Bandaríkjanna. „Þeir eru hetj-
ur,“ sagði Kastró, en mönnunum mun
hafa verið ætlað að njósna um hóp
kúbverskra útlaga sem skipulögðu
árás á Kúbu að sögn þarlendra yfir-
valda.
Kúbverskir
50 fórust í Jórdaníu
Meira en 50 egypskir múslímar fór-
ust þegar fólksflutningabifreið sem
ilutti þá frá helgu borginni Mekka í
Sádi-Arabíu fór í gær út af þjóðvegin-
um nálægt hafnarbænum Aqaba í
Jórdaníu. Bílstjórinn mun hafa misst
stjórn á bifreiðinni og kviknaði í
henni eftir veltuna.
Þrengt að al-Qaeda liöum
Afganskir hermenn sem beijast í
fremstu víglínu í sókninni gegn al-Qa-
eda-liðunum í Tora Bora-íjöllum sögð-
ust í gær hafa það á tilfmningunni að
andstæðingar þeirra væru að gæta
dýrmæts fengs. „Þeir haga sér ein-
kennilega og halda mætti að þeir væra
að gæta bin Ladens," sagði einn her-
mannanna. Sóknin gekk vel i gær og
náðu afganskar hersveitir nokkr-um
hellum á sitt vald, þar sem augljóst
var að bin Laden hafði nýlega dvalið.
Bandarískar sérsveitir tóku þátt í
sókninni og særðust tveirúr þeim.