Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Fréttir
I>V
Verðlaun í viðskiptum
- íslenski draumurinn fær viðurkenningar
Viðskiptaverölaun DV, Viðskipta-
blaðsins og Stöðvar 2 voru veitt í
sjötta sinn í vikunni. Þau fengu
annars vegar bræðurnir Ágúst og
Lýður Guðmundssynir sem stofn-
uðu lítið fyrirtæki fyrir 15 árum
með 20 þúsund krónur í hlutafé.
Óhætt er að slá því fóstu að bræð-
urnir Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir séu í hópi yngstu forstjóra
stórfyrirtækja á íslandi en þeir eru
37 og 34 ára gamlir. Ágúst er stjórn-
arformaður og Lýður forstjóri i fyr-
irtæki sem heitir Bakkavör Group
hf. sem hefur hægt og hljótt vaxið á
undanförnum 15 árum úr því að
vera bílskúrsfyrirtæki, sem saltaði
þorskhrogn, upp í að verða eitt af
stærstu fyrirtækjum í íslensku við-
skiptalífi.
Byrjuðu með 20 þúsund kall
Það var árið 1986 sem Lýður,
Ágúst og Guðmundur Lýðsson, fað-
ir þeirra, stofnuðu lítiö fyrirtæki
sem fékk nafnið Bakka-
vör, en þeir bræður tóku
fljótlega algerlega við öll-
um rekstri og skuldbind-
ingum fyrirtækisins.
Fyrstu misserin var
Bakkavör ekki fjárhags-
lega öflugt fyrirtæki,
stofnað með lágmarks-
hlutafé sem á þessum
árum var 20 þúsund krón-
ur. Bræðurnir leigðu sér
lítið frystihús suður með
sjó og þar stóðu þeir sjálf-
ir og söltuðu hrogn og
gerðu það sem gera þurfti.
Það er langur vegur frá
fyrsta 20 þúsund kallinum
yfir til hins nýja fyrirtæk-
is en ætlað eigið fé þess
mun verða á bilinu 8-9
milljarðar króna.
Þegar kaup Bakkavarar
Group hf. á breska mat-
vælafyrirtækinu
Katsouris Fresh Foods
Ltd. voru undirrituð fyrir
þremur vikum áttu sér
stað stærstu fyrirtækja-
kaup í íslenskri viðskipta-
sögu. Kaupverðið er 15,6
kannanir eru meðal þeirra viða-
mestu sem íslenskt fyrirtæki hefur
gengist undir og meðal annars voru
stjórnendur Bakkavarar sendir í ít-
arlega læknisskoðun sem hluta af
rannsókninni. Þeir reyndust vera
við hestaheilsu.
í viðtali sem birtist í DV við þá
bræður um framtíðina og áætlanir
þeirra sögðust þeir alltaf hafa ætlað
að verða stórir en vildu fátt segja
um framtíðaráformin.
„Við fórum fljótlega í stefnumót-
andi áætlanagerð og 1992 gerðum
við áætlun til ársins 2000 og tveim-
ur árum seinna til ársins 2005. Það
er óhætt að segja að við erum þar
sem við ætluðum okkur að vera á
þessum tímapunkti."
Með snjó í skegginu
Verðlaunaveiting DV, Viðskipta-
blaðsins og Stöðvar 2 er afltaf tví-
skipt og veitt eru bæði viðskipta-
verðlaun og hins vegar viðurkenn-
Bræöurnir í Bakkavör
Ágúst og Lýður Guðmundssynir
ólust upp úti á Seltjarnarnesi. Þeir
hófu sína starfsemi suður í Garði
ungir að árum, þegar þeir fóru að
salta og verka þorskhrogn fyrir er-
lendan markað. Þeir voru líka að
selja vöru sem þeir þekktu mjög vel.
(
ý/i' //)/(/(>('/'(!/( (//// // /
X V
Verðlaunahafar ársins 2001
Þeir fengu viöskiptaverölaun DV, Viðskiptablaðsins og Stöövar 2 árið 2001. Lengst til vinstri erÁgúst
Guðmundsson, stjórnarformaður Bakkavarar Group, en Bakkavör fékk viöskiptaverðlaunin. í miðjunni
stendur Arngrímur Hermannsson, stjórnarformaöur íslenskra ævintýraferöa, sem fékk verðlaun sem
frumkvöðull ársins. Við hlið hans stendur svo Lýður Guömundsson, forstjóri Bakkavarar.
milljarðar íslenskra króna og þrír
breskir bankar munu fjármagna
kaupin, auk þess sem fyrri eigendur
KFF munu fá hluta kaupverðsins
greiddan í formi hlutabréfa i Bakka-
vör. í framhaldinu munu nokkur
stærstu fjármálafyrirtæki og bank-
ar í islensku viöskiptalífi sameinast
um hlutafjárútboð í Bakkavör sem
verður trúlega tæpir þrír milljarð-
ar.
Eftir kaupin verða starfsmenn
Bakkavarar um 1.900 talsins og
áætluð velta fyrirtækisins árið 2002
er um 20 milljarðar króna. Fyrir-
tækið er með starfsemi í níu lönd-
um og á verksmiðjur í Bretlandi,
Chile, Svíþjóð, Frakklandi og sölu-
og dreiflngarfyrirtæki í Póllandi og
Þýskalandi og höfuðbækistöðvarnar
eru í Danmörku.
Katsouris til sölu
Kaupin á fyrirtækinu áttu sér
þann aðdraganda að bræðurnir
höfðu þekkt til þess í 10 ár, eftir að
hafa reynt að selja Katsouris hrogn
en mistekist. Þeir höfðu áður leitað
eftir kaupum á fyrirtækinu, eftir að
Bakkavör óx fiskur um hrygg, en þá
vildu eigendur ekki selja.
Síðan bar það til tíðinda að
Bakkavör keypti fyrirtæki sem hét
Wine and Dine en heitir núna
Bakkavör Birmingham. Það vill
þannig til að íjölskyldan sem átti
Wine and Dine þekkir vel
Katsouris-fjölskylduna.
Katsouris-fjölskyldan fylgdist
með kaupum Bakkavarar á Wine
and Dine af miklum áhuga. í fram-
haldinu var ákveðið að setjast niður
með þeim og hefja viðræður um
kaup.
Kaup eins og þessi gerast ekki í
einu vetfangi því samningaviðræð-
ur og úttektir sem nauðsynlegar eru
taldar hafa staðið í nærri heilt ár
áður en skrifað er undir. Þessar
nokkra útlendinga i ökuferð i brjál-
uðu veðri um hávetur. Þeir
skemmtu sér alveg konunglega og
Arngrímur áttaði sig á því að vont
veður væri góð söluvara og snjór
væri gulls ígildi. Hann byrjaði
skömmu síðar að leigja út einn
jeppa og gerði út fyrirtæki úr
vinnuherbergi á heimili sínu með
einn jeppa í hlaðinu.
Arngrímur Hermannsson er
starfandi stjórnarformaður í fyrir-
tæki sem heitir íslenskar ævintýra-
ferðir. Það varð til fyrir réttu ári,
um og gerðum, allt frá ofurjeppum á
axlarháum blöðrudekkjum sem geta
ekið í hvaða snjó sem er, vélsleðum
og snjóbílum yflr í átta hjóla trukka
með húsi þar sem 50 farþegar geta
setið í makindum og upplifað akstur
á jökli.
Bækistöðvar Ævintýraferða eru á
tveimur stöðum í Reykjavík, með
500 fermetra á hvorum stað og sam-
tals um 30 starfsmenn. Þar fyrir
utan á fyrirtækið fjallaskála og
bækistöðvar á nokkrum stöðum á
hálendinu og lét síðastliðið vor
grafa stærsta snjóhús í heimi sem
var 500 fermetrar og kostaði slétta
milljón. Með viðamiklu neti undir-
verktaka geta Ævintýraferðir flutt
300-600 farþega í einu í 25-50 ferð-
um.
Saman í Flugbjörgunar-
sveitinni
Það er skemmtileg tilviljun að
verðlaunahafar ársins tengjast
gegnum islenska náttúru
og íslenskan vetur með
sérstökum hætti. Ágúst
Guðmundsson, annar
bræðranna í Bakkavör,
er mikill útivistarmaður
og fæst enn við leiðsögn
göngumanna á sumrin.
Ágúst fékk sína þjálfun
innan raða Flugbjörgun-
arsveitarinnar og gekkst
þar undir sérstaka ný-
liðaþjálfun á sínum tíma,
þar sem ekkert er undan
skilið og engum er hlíft.
Þjálfari hans og leiösögu-
maður gegnum þessa
þjálfun á sínum tíma var
einmitt Arngrimur Her-
mannsson, einn af reynd-
ustu kennurum sveitar-
innar. Arngrímur sagði í
samtali við blaðamann
DV að hann myndi vel
eftir Ágústi þvi hann
hefði verið harðduglegur
en afar sjálfstæður og
uppátækjasamur.
Arngrímur hefur ekki
aðeins verið frumkvöðull
á því sviði að selja útlend-
ferðir um ísland í vetrar-
heldur var hann einnig
þeim snjóakstri á
/*■ X
Páll Asgeir
Ásgeirsson
blaðamaður
Arngrimur Hermannsson
ævintýramaður
Arngrímur byrjaði starfsemi sína í
vinnuherberginu á heimili sínu með
eitt faxtæki og einn jeppa fyrir utan.
Arngrímur var að selja það sem
hann þekkti, íslenska náttúru og hiö
hvikula íslenska veðurfar.
ing sem frumkvöðull ársins. Þau
hlaut að þessu sinni maður með
snjó í skegginu, Arngrímur Her-
mannsson.
Þetta er maður sem hefur verið
handgenginn íslenskri náttúru gegn-
um þjálfun og störf með Flugbjörg-
unarsveitinni í Reykjavik árum sam-
an en Flugbjörgunarsveitin er senni-
lega harðsnúnasta lið útivistar- og
björgunarmanna sem til er á íslandi
og þótt viðar væri leitað.
Árngrímur lærði á sínum tíma
röntgentækni en fýsti alltaf að
starfa við ferðaþjónustu og það urðu
straumhvörf í ferli hans þegar hann
var eitt sinn fenginn til að fara með
Innlent fréttalj
þegar fyrirtæki Arngríms, Addice
eða Addis, sameinaðist þremur öðr-
um fyrirtækjum sem sinna afþrey-
ingu í ferðaþjónustu á vetrum á ís-
landi. Þetta voru fyrirtækin Lang-
jökull, Vélsleðaleigan Geysir og
Bátafólkið. Arngrímur lumaði á
heitinu íslenskar ævintýraferðir,
eða Iceland Adventure, sem hann
notaði til kynningar erlendis, og
það varð heiti hins nýja fyrirtækis.
Sameiningum fylgja alltaf
ákveðnir byrjunarörðugleikar og í
tilfelli Ævintýraferða birtust þeir í
einhverjum versta vetri sem komið
hefur á íslandi. Snjóleysi og rign-
ingar settu svip sinn á veturinn og í
stað þess að skjótast með farþegana
upp að Hengli þurfti yflrleitt að aka
þeim upp að Langjökli til að komast
i almennilegan snjó.
Samt skilaði fyrirtækið hagnaði
fyrsta árið og tvöfaldaði veltuna
milli ára. Fyrirtækið ræður yflr
25-30 farartækjum af ýmsum stærð-
mgum
klæðum
brautryðjandi í
jeppum með stórum dekkjum sem
hefur gert þessar ferðir mögulegar
og eru einstæðar í heiminum. Arn-
grímur hefur ásamt félögum sínum
í íslenskum ævintýraferðum tvö-
faldað veltu fyrirtækisins á fyrsta
ári eftir sameiningu og reiknar með
að hún tvöfaldist á ný með kaupun-
um á innanlandsdeild Samvinnu-
ferða-Landsýnar sem urðu að veru-
leika fyrir tveimur vikum.
Arngrimur ræddi við DV í ítar-
legu viðtali fyrir rúmri viku og þar
kom fram að hann hugsar um ís-
lenska ferðaþjónustu til framtiðar
og telur að sú stefna stóriðju og upp-
byggingar virkjana sem nú er uppi
sé tímaskekkja til lengri tíma litið.
Fortíðin
Verðlaunin voru nú veitt í sjötta
sinn. í fyrsta sinn fengu þau hjónin
Arngrímur og Þóra, sem reka Arn-
arflug, og Kári Stefánsson, stofn-
andi íslenskrar erfðagreiningar,
fékk frumkvöðlaverðlaunin. 1997
var það Finnbogi Jónsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,
sem fékk verðlaunin en frumkvöð-
ull ársins var Skúli Þorvaldsson á
Hótel Holti fyrir erlendar fjárfest-
ingar.
1998 fékk Sigurður Gísli Pálma-
son, kenndur við Hagkaup og Hof,
verðlaunin en ríkisstjórn íslands
fékk frumkvöðlaverðlaunin.
1999 fékk Gunnar Örn Kristjáns-
son, forstjóri SÍF, viðskiptaverð-
launin en Össur Kristinsson, stofn-
andi Össurar hf., frumkvöðlaverð-
launin.
Árið 2000 fékk Jón Sigurðsson,
forstjóri Össurar hf., frumkvöðla-
verðlaunin en Jákup Jacobsen,
stofnandi Rúmfatalagersins, fékk
frumkvöðlaverðlaunin.
501»
REYKJAVIK
Sólariag í kvóld 15.30
Sólarupprás á morgun 11.17
Síödeglsflóó 18.50
Árdegisflóð á morgun 07.12
gjfíliJAfi/JJ
Bjartviðri norðaustan til
Sunnan og suövestan 5 tll 13 og
súld eða dálítil rigning sunnan og
vestan til á morgun en bjartviðri
norðaustan til. Afram hlýtt í veðri.
-'C3
% \
Léttskýjað austan til
Sunnan og suðvestan 5 til 10 m/s
og dálítil súld en hæg breytileg átt
og léttskýjað á austanverðu landinu.
Hiti 2 til 8 stig, en í kringum
frostmark austanlands.
ggjp/rgl".
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
Hiti 0°
Hiti 0°
o o
Hiti 0°
til 0° tii O” til 0“
Vindur; 5-10‘V6 Vindur: 5-10 Vindur: 5-10 m/«
t *
S og SV 5 til 10 m/s og dáfitil súld en hæg breytlleg átt og léttsk. á austanv. landinu. Noröaustanátt og víöa slydda eða snjókoma. Kólnandi veftur. Norftlæg átt. Él noröarv og austanlands og fremur kalt.
■ðssm.'v
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
EMGfe J
AKUREYRI léttskýjaö 9
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK úrkoma 10
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 7
KIRKJUBÆJARKL. þoka 6
KEFLAVÍK þokumóöa 10
RAUFARHÖFN heiöskírt 6
REYKJAVÍK þokumóöa 9
STÓRHÖFÐI þokumóöa 7
BERGEN
HELSINKI léttskýjaö -1
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 2
ÓSLÓ þokumóða -1
STOKKHÓLMUR 3
ÞÓRSHÖFN skýjað 8
ÞRÁNDHEIMUR alskýjað 2
ALGARVE þokumóöa 16
AMSTERDAM léttskýjaö -2
BARCELONA rigning 2
BERLÍN skýjaö -5
CHICAGO snjókoma -1
DUBLIN hálfskýjað 7
HALIFAX léttskýjaö 7
FRANKFURT heiöskírt -4
HAMBORG skýjaö - -4
JAN MAYEN léttskýjaö 9
LONDON mistur 4
LÚXEMBORG heiðskírt -4
MALLORCA skýjað 12
M0NTREAL heiöskírt 4
NARSSARSSUAQ alskýjaö -4
NEW YORK alskýjaö 12
ORLANDO þokumóöa 21
PARÍS heiöskírt -1
VÍN heiðskírt -9
WASHINGTON rigning 13
WINNIPEG alskýjaö -4