Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Page 6
6
DESEMBER 2001
Fréttir_________________________®__________________________________________________________________________________ DV
Jarðskjálftahrina í
Mýrdalsjökli og mynni
Eyjafjarðar
Jarðskjálftar hafa verið í nótt í
Mýrdalsjökli. Klukkan fjórar mínút-
ur yfir eitt varð jarðskjálfti upp á
3,2 á Ricter i jöklinum vestur af
Goðabungu. Nokkrir skjálftar hafa
verið í jöklinum í nótt.
Hjá Veðurstofunni töldu menn að
þetta væri ekki óeðlilegt miðað við
árstíma, alltaf væri virkni í jöklin-
um á haustin. Þá hefur verið
skjálftahrina norður af Gjögurtá í
mynni Eyjafjarðar í nótt og í gær-
dag. -NH
ólagjöfin hennar!
Stuttir og síðir
pelsar i úrvali
Minkapelsar
Tilhoð
50% útborgun
og efitirstöðvar
vaxtalaust allt að
12 mánuðum.
Pelsfóðurs-
kápur og jakkar
Ullarkápur og
jakkar meö
loðskinni
Loðskinnshúfur
Loðskinnstrejiar
Loðskinnshárbönd
Klassískur fatnaður
Bocace-skór
Þar sem
vandlátir
versla
PELSINN
Kirkjuhvoli, sími 552 0160
g§ ftaðgreiðslur i uflt að 36 mónuði
DV-MYND ÓMAR GARDARSSON
Sjómaður í heimaranni
„Ég lauk viö að klæöa mig í gallann þegar ég var kominn í sjóinn erj ég var
varla kominn út úr brúnni þegar brot reiö yfir og hreif mig meö sér. í sjónum
sá ég síöan til félaga minna þar sem þeir stóöu á stefni hins sökkvandi
skips, “ segir Gunnar Oddsteinsson hér í viðtalinu. Hér er hann meö dætrum
sínum, þeim Oddnýju Sigurrós, Kristjönu Rún og Díönu ívu.
Ófeigur VE:
Engin mistök
en við ekkert
var ráðið
- segir skipverji um atburðarásina þegar skipið sökk
„Þegar ég fer yfir atburðarásina í
huganum get ég ekki merkt að nein
mistök hafi valdið þessu sjóslysi. Hér
varð einfaldlega ekki við neitt ráðið í
þeim aðstæðum sem upp komu,“ seg-
ir Gunnar Kristján Oddsteinsson,
vélavörður á togskipinu Ófeigi VE,
þegar hann rifjar upp atburðarás
þess að skipið sökk úti fyrir Vik í
Mýrdal aðfaranótt miðvikudags í sl.
viku. Eins manns er enn saknað.
Gunnar rómar þá stillingu sem
áhöfnin sýndi við þessar háskalegu
aðstæður. Allt hafi verið mjög fum-
laust og líkast slysavarnaæfingu.
Hafi hér sjálfsagt haft mikiö að segja
að allir skipverjamir hafi sótt nám-
skeið í Slysavarnaskóla sjómanna.
Brotsjór og menn forðuðu
sér í brú
Gunnar segir að skipið hafi verið
að draga trollið eftir mjúkum sand-
botninum þegar þetta gerðist.
Skyndilega hafi það fest í botni og til
að losa það hafi skipstjórinn byrjað
að hifa. í þann mund hafi brotsjór
riðið yfir skipið aftanvert og sjór
komist inn í spilrými þess. „Skip-
stjóri og stýrimaður voru báðir á
vakt upp í brú og reyndu að bregðast
við aðstæðum með því að snúa skip-
inu upp í vind, þar sem ekki var
hægt að hifa virana á niðurstöðu
vegna veðursins. Stífur vindur var af
suðvestri þegar þetta gerðist. Skip-
stjórinn var rétt byrjaður á hífa þeg-
ar fleiri brot, eitt eða tvö, riðu yfir
skipið aftanvert," segir Gunnar.
Hann kveðst hafa farið niður i vélar-
rúm og aðgætt að lensdælum. Það
hafi svo verið hægara sagt en gert að
komast upp aftur, sjór hafi verið far-
inn að fossa niður í vélarrúmið ofan
af þilfarinu.
„Ég mætti vélstjóranum þegar ég
kom upp aftur. Hann sagðist hafa að-
gætt að enginn væri niðri í lest, stað-
an væri þannig að við skyldum forða
okkur upp í brú en þegar hér var
komið sögu var skipið farið að halla
ískyggilega mikið á bak,“ segir Gunn-
ar. Þegar skipverjar komu i brúna
klæddu þeir sig í snatri í björgunar-
galla. Skipstjórinn sendi út neyðar-
kall. Skipverjar fóru úr brúnni, fram
á hvalbak, og fóru sjóinn þegar skip-
ið var að fara í hafið. Sjálfvirkur
sleppibúnaður björgunarbátanna
virkaði og þeir blésust upp.
í sjóinn á annarri erminni
„Mér gafst ekki einu sinni ráðrúm
að komast í nema skálmar gallans og
aðra ermina áður en ég fór úr brúnni.
Ég lauk við að klæða mig í gallann
þegar ég var kominn í sjóinn en ég
var varla kominn út úr brúnni þegar
brot reið yfir og hreif mig með sér. í
sjónum sá ég síðan til félaga minna
þar sem þeir stóðu á stefni hins
sökkvandi skips,“ segir Gunnar.
Hann telur að allt hafi þetta tekið
ótrúiega stuttan tima, aðeins hafi lið-
ið um þrjár mínútur frá þvi skipstjór-
inn sendi út neyðarkall þar til Ófeig-
ur var horfinn af ratsjá. Skammur
tími leið svo þar til skipið Danski -
Pétur kom á vettvang og skipverjar
voru halaðir úr björgunarbátum.
Sjópróf vegna Ófeigsslyssins voru
haldin í Vestmannaeyjum í gær.
„Veðrið þegar Ófeigur fórst var ekki
verra en oft áður og merkilegt er að
veiðarfærin hafi fests í botni á þess-
um stað þar sem er sléttur sandbotn.
Við höfum oft verið þarna áður en
aldrei orðið varir við festur eða nibb-
ur þarna áður. Þetta er þekkt
veiðislóð og hábölvað að hafa skip
þarna liggjandi á sjávarbotni," segir
Gunnar. -sbs
Brottvikning félagsmálastjóra:
Gekk gegn lögum
segir félagsmálaráöuneytið
Félagsmálaráðuneytið hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að Hafnar-
fjarðarbær hafi gengið gegn ákvæð-
um sveitarstjórnarlaga og stjórn-
sýslulaga þegar staða félagsmála-
stjóra, Mörtu Bergmann, var lögð
niður. Félagsþjónustan í Hafnarfirði
var þá stofnuð og annar ráðinn í
það starf. Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja rekur málið ásamt
Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar og
er um prófmál að ræða. Samkvæmt
úrskurði ráðuneytisins þykir ein-
sýnt að bæjaryfirvöld þurfi að sæta
bóta- og miskaábyrgð, hvort sem
það verður sótt í gegnum dómstóla
eða með samkomulagi við bæjaryf-
irvöld, að þvi. er fram kemur á
heimasíðu Sth. Málið er 1 höndum
Gests Jónssonar, lögfræðings stárfs-
mannafélagsins.
-jss
\
n
Umsjón: Höröur Krístjánsson
netfang: hkrist@dv.is
í fótspor meistarans?
Síðan Ólina Þorvarðardóttir tók
við skólameistarastöðu Menntaskól-
ans á ísafirði í haust hafa orðið þar
mikil umskipti. Margir Isfirðingar
voru famir að
sætta sig við að
óhjákvæmilegt
væri að skólinn
dalaði hægt og síg-
andi. Þannig var |
myndarleg heima-
vist skólans stútfull |
út úr dyrum á tím-
um Jóns Baldvins 1
Hannibalssonar og Bryndísar
Schram en varð fljótt skröltandi tóm
eftir að þau hjón hurfu á braut. Var
svo komið að húsverði var illilega
bmgðið í hvert sinn er hann mætti
lifandi vera á heimavistinni. I héraðs-
fréttablaðinu BB segir að þetta sé nú
liðin tíð. Nú er aftur fullt út úr dyr-
um. Nú spyija menn vestra hvort sag-
an sé að endurtaka sig. Jón Baldvin
hóf afskipti af bæjarpólitík og fór síð-
an i landsmálapólitík og ráðherrastól.
Hvað gerir ðlína, fer hún í fótspor
(skóla)meistara Jóns Baldvins...?
Björn rótari?
í heita pottinum var á dögunum
rætt um líklega leiðtoga sjáifstæðis-
manna í borgarpólitíkinni. Þar berjast
nú á toppnum Inga Jóna Þórðar-
dóttir, Júlíus Víflll Ingvarsson og
Eyþór Arnalds.
Var þá bent á að
Þórarinn Viðar
Þórarinsson, fyrr-
verandi Landssíma-
forstjóri, væri hugs-
anlega á lausu. Nú
er þetta staðfest og
Þórarinn fær ekki
að setjast aftur í for-
stjórastól Símans. Þykir því augljóst
að næsta verk kappans verði að
blanda sér í leiðtogaslag sjálfstæðis-
manna. Þannig er oddvitatríóið að
verða að kvartett. Er því vandséð að
Bjöm Bjamason ráðherra fái inni í
sveitinni - nema þá sem rótari...
Styrkja gott málefni...
Það kom að því að rétta eðli súlu-
staða borgarinnar kæmi í ljós. Súl-
umar, eða öllu heldur stúlkurnar sem
hringa sig um þær á evuklæðunum,
eru á góðri leið með að verða helsta
ímynd stuðnings i
almennings við þá
sem minna mega
sin. Þór Ostensen, |
annar eigandi Club |
Vegas, hefur til-1
kynnt Mæðra-1
styrksnefnd að af-1
rakstur af kjöltu-1
dansi á staðnum
verði nú að hluta færður nefndinni.
Hefur því opnast leið fyrir betri borg-
ara bæjarins að leggja óhikað leið
sína inn á Vegas. Nú geta menn sagt
fullum fetum að þeir séu bara að
„styrkja gott málefhi" ...
Lúmsk gagnrýni
Jón Baldvin Hannibalsson fer á
kostum í tveggja og hálfs tíma viðtali
við Hans Kristján Ámason útgef-
anda á myndbandi sem kom í bóka-
verslanir í vikunni. Þarna
er um að ræða
jólaspólu sem
svamlar um í jóla-
bókaflóðinu og veit-
: ir harða samkeppni
i á bæði borð. Jón
Baldvin lýsir af ein-
lægni stormasömu
sambandi við konu
~ sína, Bryndisi
Schram. Þegar Bryndis var kjörin
fegurðardrottning íslands var Jón
Baldvin að setja niður staura norður
á Ströndum. Hann sendi unnustunni
umsvifalaust skeyti sem innihélt að-
eins eitt orð: „Sveiattan!"
Sendiherrann talaði um velferðar-
ríkið Singapore og bar saman við Is-
land. Hans Kristján hváði við og benti
á að Singapore væri nánast einræðis-
ríki. Þá glotti Jón Baldvin í kampinn
og þeir sem vildu skilja sáu aö hann
lét í ljósi þá lúmsku gagnrýni að Dav-
íð Öddsson forsætisráðherra hefði
nær einræðisvald á íslandi....